Þjóðviljinn - 29.08.1963, Blaðsíða 1
/.
Fimmtudagur 29. ágúst 1963
Er liægt með vísinda-
legum aðferðum að
stjórna hugarstarf-
semi mannsins?
Um það efni er fjall-
að í grein sem birtist
í blaðinu í dag á 5.
síðu.
Viðskiptin við lönd A-Evrópu for-
haust-og vetrarsíldveiðanna
Ðrengar slas-
ast / umferð-
arslysiígær
Um kl. 13,40 í gær varð 10
ára drengur á reiðhjóli fyrir
stórri fólksfiutningabifreið á
mótum Hverfisg'ötu og Baróns-
stígs. Meiddist pilturinn mikið
á höfði og var fluttur í sjúkra-
hús.
Samkvaemt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar varð niltur-
inn fyrir haagra framhorni rút-
unnar og lenti hjólið undir
hana. Hemlaför bifreiðarinnar
voru ekki löng og bendir það
til þess að hún hafi ekki ver-
ið á mikilli ferð.
Drengurinn sem heitir Ölaf-
ur Þór Gunnarsson, til heimilis
að Bugðuiæk 10, var fluttur í
slysavarðstofuna og síðan í
Landsspítalann. Mun hann hafa
hlotið höfuðkúpubrot.
3 bilar stór-
skemmast i
árekstriígær
Um kl. 8 í gærmorgun* varð
mjög liarður bifreiðaárekstur á
Borgartúni skammt innan við
Nóatún. Lentu þrjár bifreiðir þar
í eínni bendu og skemmdust tvær
þeirra mjög mikið og ökumenn
þeirra meiddust báðir.
Slys þetta vildi til með þeim
hætti að fólksbifreið sem' var á
leið austur götuna hægði ferð-
'na í því skyni að taka beygiu
ina í því skyni að taka beygju
I sama bili ók vörubifreið sem
kom á eftir henni aftan á hana
af heljarafli og kastaðist fólks-
bifreiðin við það á aðra fólksbif-
reið sem kom á móti hinum
vestan götuna.
Báðar fólksbifreiðimar stór-
skemmdust við áreksturinn og
varð að flytja þær burtu með
kranabíl því að hvomg var öku-
fær. Vörubifrciðin skemmdist
hins vegar lítið. Báðir ökumenn
fólksbifreiðarinnar meiddust
nokkuð og voru fluttir í slysa-
varðstofuna.
Samkvæmt frásögn lögreglunn-
ar vom allar bifreiðimar á frem-
ur hægri íerð og auk þess var
nægilegt svigrúm á götunnx fyrir
vömbifreiðina til þess að beygja
íram hjá fólksbifreiðinni.
„Pressu” liðið
forfallððist
1 gær völdu iþróttafréttaritarar
lið tdl þess að keppa við tilrauna-
landsliðið n.k. sunnudag, en vali
i þaö var skýrt frá hér í blaðinu
í gær. Eftir að „pressuliðið” hafði
verið valið kom í ljós að þar
myndu verða svo mikil forföll
að ákveðið var að velja alveg
nýtt lið. Verður það gert síð-
degis í dag.
Hvað er innan við giuggann?
■^r Áhuginn skín út úr bagsvipnum og eitthvað er mcrkilcgt
fyrir innan gluggann, sem þessir piltar eru að virða fyrir sér.
Myndin er tckin á Raufarhöfn fyrir nokkrum dögum og hefur
yfir sér lcyndardómsfullan biæ cins og vera ber i síldarbæ á
Norðurlandi. — En hvað er innan við gluggann? — Djúp þögn
og ekkert svar.
•fci Það er hægt að sökkva sér ofan í ótrúlegustu hluti. ef atþyglis-
gáfan er heltekin að einum púnkti í tilverunnii. Nú segir kannski
einhver: Blessaður, komdu með það maður. — Nokkrar síldar-
stúlkur að baða sig. Lokaspurningin er. Datt Ijósmyndarinn f
freistnina. —(Ljósm: G. M.)
— segir Guðmundur Garðarsson
viðskiptafræðingur, starfsmaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
Það er ekki nýtt af nálinni að sjá í Morgunblaðinu
- og raunar fleiri blöðum — ýmis furðuleg skrif, þar
sem viðskiptum okkar við lönd Austur-Evrópu er fundið
allt til foráttu og þess jafnvel krafizt að þeim verði hætt
með öllu. Meðal annars birti Morgunblaðið leiðara um
austurviðskiptin 30. júní s.l. og var tilefni hans áskor-
un Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna til ríkisstjórnar-
innar um að hún gerði ráðstafanir til þess að tryggja
aukinn útflutning til Austur-Evrópulanda. Komst leiðara-
höfundur Morgunblaðsins að þeirri niðurstöðu, að álykt-
un þessi væri krafa um „ný innflutningshöft og þving-
anir“ og um að selja vörur til þessara landa „fyrir óraun-
hæft verð“ og að „þvinga neytendur til að nota dýrari
vörur, og oftast líka verri — sem keyptar eru yfir mark-
aðsverði í þessum löndum“.
Beðið eftir
unúirbúningi
vamarinnar
EINS OG ÞJÓÐVILJINN hefur
áður skýrt frá, fyrirskipaði
saksóknari ríkisins málshöfð-
un vegna fölsunar á skrán-
ingu áhafnarinnar á vélbátinn
Sigurpál, en skráning á skip-
ið fór á sínum tíma fram i
Hafnarfirði og játaði einn
starfsmaður bæjarfógetáem-
bættisins að hafa breytt skips-
skráningarskjölum eftir á.
SAMKVÆMT UPPLÝSINGUM,
sem Þjóðviljinn fékk í gær
hjá Jóni Abraham Ólafssyni
umboðsdómara, var málið
þingfcst þann 19. ágúst s.l. og
ákæran birt hinum ákærða.
Fékk hann fjögurra vikna
frest til að fá verjanda og
skila vörn í málinu, en mál-
flutningur er ailur skriflegur.
Verður málið væntanlega tek-
ið til dóms strax að því
loknu, cf ekki koma fram ósk-
ir um frekari rannsókn cða
Icngri frest af hálfu verjanda.
GUÐMUNDUR INGVI SIG-
URÐSSON er verjandi hins
ákærða í máli þessu.
Geriaréémur um
kjör verkfræðinga
að taka til starfa
■ Hæstiréttur hefur skipað menn í gerðardóm-
inn, sem ákveða skal kjör verkfræðinga, er starfa
hjá öðrum aðilum en ríkinu, samkvæmt bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar þar að lútandi.
Gerðardóminn skipa þeir Einar Amalds borgar-
dómari, sem jafnframt er formaður, Björn Steff-
ensen endurskoðandi og Árni yilhjálmsson pró-
fessor.
Verða þessar undirtektir
blaðsins við áskorun Sölu-
miðstöðvarinnar um að
stuðla að öruggum mörkuð-
um fyrir íslenzka framleiðslu
að teljast því furðulegri,
sem hér er um að ræða aðal-
málgagn ríkisstjórnarinnar
og því stefnumarkandi af
hennar hálfu, — ef blaðið
vill á annað borð telja sig
ábyrgt málgagn.
„Staðreýndir, sem
erfitt er að hrekja . .
I Morgunblaðinu í gær er
birt allýtarleg grein um þessi
viðskipti eftir Guðmgnd Garð-
arsson viðskiptafræðing, starfs-
mann Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og er greinin rit-
uð í tilefni af áðurnefndum
leiðaraskrifum Morgunblaðsins.
Er þar í stuttu máli gerð grein
fyrir mikilvægi austurviðskipt-
anna fyrir íslenzkt atvinnulíf
og hraktar firrur Morgunblaðs-
ritstjóranna um þessi viðskipti,
og segir svo í upphafi greinar-
innar:
„. . . Þar sem umrædd
skrif um eina aðalatvinnu-
grein landsmanna, sem þús-
undir eiga afkomu sína und-
ir, eru mjög villandi, er bæði
rétt og skylt, að þeim sé
svarað af hálfu þeirra, sem
bera ábyrgð á að tryggja ís-
lenzkum sjávarútvegi örugga
markaði fyrir þann hluta
aflans, sem fer í frystingu.
Með því móti tekst vonandi
að varpa réttu Ijósi á á-
kveðnar staðreyndir í út-
flutningsmálum, sem erfitt
er að hrekja, hverjar svo
sem óskir manna í aðra átt
kunna að vera.“
Tekur hann fyrst fyrir fullyrð-
ingar Morgunblaðsins um að
freðfigkur sé seldur til þessara
landa fyrir „óraunhæft verð“.
Bendir hann á að sala freðsíld-
ar er mjög svæðisbundiiii nær
eingöngu til Evrópulanda og
segir m.a.:
Framhald á 2. síðu.
fyrir norðan
Samkvæmt upplýsingum
fréttaritara Þjóðviljans á Rauf-
arhöfn í gærmorgun hefur
norski síldarflotiun mokað upp
síld um 100 sjómíiuríút af Rauf-
arhöfn. Engin íslenzk skip voru
á þessum sióðum fyrr en í fyrra-
kvöld en í fyrrinótt var leiðin-
legt veður á miðunum og afli lít-
ill. f gærmorgun fór veður hins
vegar batnandi og fóru skipin
þá að kasta. Síldin sem þarna
veiddist er fremur smá, en mik-
ið veiddist af henni.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Einari Arnalds borgardómara,
formanni gcrðardómsins og innti
hann eftir, hvenær mætti vænta
niðurstöðu í þessu máli. Kvað
Einar dóminn vera um það bil að
taka til starfa. en hann ætti
vafalaust fyrir höndum mikið
verk og vandasamt við könnun
á öllum gögnum hér að hitandi
og væri því ekki á þessn stigi
unnt að scgja, hvenær vænta
mætti úrskurðar hans.
Öruggir m*m
og markft’
Hér verður drepið á nokkur
atrið' 'i grein Guðmundar, þar
sem hann ræðir nánar um skrif
Morgunblaðsins um þetta efni.
Fuglinn Fönix
Myndin sýnir listaverkið „Fönix” og höfund þess, Ásmund
Sveinsson, í garðinum við Suðurgötu 10. Sjá nánar á 10. síðu.
i