Þjóðviljinn - 08.09.1963, Blaðsíða 4
4 SÍÐA
HÚÐVILIINN
Enn einn ósigur Kennedys forseta á Bandaríkjaþingi
Fulltrúadeildin minnkaði fjárveitingu
til útlanda um heilan milljarð dollara
Fáum forsetum Bandaríkjanna hefur gengið jafn
illa aö koma málum fram á þingi og John F. Kennedy-
Heita má að þingið hafi fellt öll þau fríumvörp sem
hann hefur lagt hvað mesta áherzlu á aö fá samþykkt.
Nú hefur hann beðið enn einn mikinn ósigur á þingi:
Fulltrúadeildin samþykkti í síðustu viku með allmikl-
um meirihluta (222 atkvæðum gegn 186) að ^kera nið-
ur fjárveitingu til útlanda sem hann hafði farið fram á
um heilan milljarö dollara, úr 4,5 í 3,5 milljarða. Nið-
urskurðarhnífur deildarinnar hefur aldrei fyrr verið
jafn beittur, og vakti afgreiösla málsins bæði undrun og
reiði 1 stjörn Kennedys.
í boðskap sínum til þingsins
hafði Kennedy lagt áherzlu á
að þeir 4.5 . milljarðar sem
hann fór fram á til aðstoðar við
önnur lönd vœru algert lág-
mark og hagsmunum Banda-
ríkjanna myndi sefnt í voða e-f
sú upphæð væri skert. Fulltrúa-
deildin lét sér ekki segjast við
það og þótt búast megi við að
upphæðin verði eitthváð hækkuð
laftur þegar sameiginleg nefnd
beggja þingdeilda hefur fja'lað
um málið. er alveg víst að mik-
ið mun vanta á að Kennedy fái
komið fram vilja sínum. þegar
það verður endanlega afgreitt
af fulltrúadeildinni.
Andstaðan gegn hinum mikla
fjáraustri Bandaríkjanna til að
tryggja vígstöðu þeirra um víða
veröld hefur aldrei verið jafn
mikil á þingi og nú.
Það er varla tilviljun að and-
staðan gegn fjáraustrinum hef-
ur magnazt einmitt nú, þegar
sýnt er orðið að þeim millj-
örðum dollara sem varið hefur
verið til að hlaða undir ein-
valdann Djem í Suður-Víetnam
og allt hans slekti hefur verið
kastað á glæ.
Vanmáttur dollarans
Það eru ekki einungis hinir
svokölluðu „einangrunarsinnar“ l
á Bandaríkjaþingi sem andvígir
eru þessari „aðstoð“ við önnur
ríki. Jafnvel þeir þingmenn
Demókrata frá norðurfylkjun-
um sem dyggilegast hafa stutt
frumvörpin um erlenda aðstoð
fram að þessu eru nú farnir að
efast um að dollarinn sé al-
máttugur.
Þeir hafa reyndar haft á-
stæðu til þess áður. Þeim
mörgu milljörðum dollara sem
ausið var í Sjang Kajsék á sín-
um tíma var einnig kastað á
glæ og sama máli gegnir um
þær miklu fúlgur sem sóað \rar
í Laos. Og þannig mætti lengi
telja.
Ömurleg reynsla
Eitt af því fáa sem Kennedv
hefur komið frarn við þingið
var allveruleg hækkun á fiár-
veitingum til landvama í róm-
önsku Ameríku í sambandi við
hið svonefnda „Framfarabanda-
lag“, en á þá hækkun féllst
þíngið aðeins vegna þess að þvi
var talin trú um að dollarar
gætu komið í veg fyrir að fleiri
lönd- færu sömu leiðina og
Skýrslu Dennings beðið með eftirvæntingu
Búizt er við að Denning Iávarður, sem falið var að rannsaia Profumohneykslið og alla anga þess,
muni bráðlega gefa skýrslu um hirta umfangsmiklu ránnsókn sína. Hins vegar er talið víst að
skýrslan muni ekki verða birt í heild, heldur aðeins valdir kaflar úr henni, enda mun vitnum
sem Denning hefur kallað fyrir sig hafa vcrið Iofað að farið myndi með framburð þeirra sem
trúnaðarmál. Verkamannaflokkurinn var því andvígur að rannsókn málsins yrði fengin í hendur
dómara, heldur vildi hann að þingskipuð nefnd fjallaði um það og má búast við að hann krefjist
þess, að skýrsla lávarðarins verði birt í heild. — Myndin er af Denning á bak við nokkurn
hlúta máls skjalanna.
Globke vitni sem sérfræðingur í gyðingamorðum
Gyiingamorðingi úthlutaði
fórnarlömbum skaiabótnm
- «e drap bara fólk þegar starf mitt krafðist þess, sagði
fyrrverandi SS-foringinn, Giinthér Fuchs, sér til varnar fyr-
Ir rétti í Hanover, þar sem hann er ákærður fyrir morð á
70.000 gyöingum. Þær ótrúlegu upplýsingar komu fram í réttar-
höldunum gegn honum að hann hefur haft það embætti eftir
Stríð að úthluta fórnarlömbum nazista skaðabætur!
Auk hans situr á sakbom-
ingabekk dr. Otto Bradfisch,
sem þegar hefur hlotið tíu ára
hegningarvinnu I öðru máli.
1 þetta sinn er doktorinn á-
kærður fyrir að hafa tekið bátt
i morðum 15.700 gyðinga.
Sérfræðingurlnn Globke
Verjendur þeirra hafa ,gefið
í skyn gð þeir muni kalfa dr.
Hans Globke. ráðuneytisstjóra
Adenauers, fyrir rétt sem vitni.
Þeir teljg hann sérfróðan i 311u
því sem við kemur morðurri 4
gyðingum. enda var hann höf-
undur Númbergslaganna svo-
nefndu, sem gyðingaofsókmr
nazista voru byggðar á. Verj-
endumir búast við að hann
muni bera fyrir réttimjrrt að
það hafi verið lffshí”,r",»"t 'vr-
ir SS-mennina að neita að
hlýða fvrirski'-"imj.rn um eA
taka gyðinga af lífi.
Dthlutaði skaðabótum
Þeir Bradfisch og Fúsch eru
sakaðir um að hafa sent tug-
þúsundir gyðinga frá hverfi
þeirra I pólsku borginni Lodz
til fangabúðanna í Kulmhof -rið
Danzig, en þar voru þeir teknir
af lífi í gasklefum.
Fuchs er nú 52 ára gamall.
Eftir stríðið fékk hann at-
vinnu í flóttamannaráðu-
neytinu í fylkinu Neðra-
Saxlandi og var verksvið
hans að annast úthluturi á
skaðabótum handa þeim
mönnum sem nazistar höfðu
ofsótt!
Það var fyrir tilviljun eina pð
upp komst um hann. Nokkrir
fsraelsmenn sem voru á ferða-
lagi um Vestur-Þýzkaland
komu auga á hann á götu f
Hannover og könnuðust við
hann. Þeir tilkynntu þetta iög-
reglunni I Telaviv og baðan
barst kæran á hann.
Mun standa í sex vikur
Bradfisch vann sem umboðs-
maður tryggingafélags f Kaiser-
slautern begar hann var hand-
tekinn 1960. sama árið og
Fuchs.
Fuchs er ákærður um að hafa
sjálfur myrt 46 gyðinga. Þeir
neituðu að hlýða fyrirmælum
hans þegar hann ætlaði að
senda þá frá Lodz f fangabúð-
imar í Kulmhof. Hann annaðist
mál gyðinga hjá þýzku her-
námsstjóminni í Lodz.
Búizt er við að réttarhöldin
yfir þeim Fuths og Bradfisch
muni standa í sex vikur. IJm
hundrað vitni hafa verið boðuð
fyrir réttinn frá ýmsum lönd-
um í Evrópu, og einnig frá
ísrael og Bandaríkjunum.
„Ég er saklaus“
— Ég er saklaus. sagði dr.
Bradfisch í réttinum. — ég
hafði ekkert hugboð um að í
Kulmhof væru útrýmingar-
búðir. Ég vissi ekkert um sas-
klefana bar. Það stóð ekkert. f
fvrirmæhmum um að gvðing-
arnir myndu verða drepnir.
Kúba.
Nú er fengin tveggja ára
reynsla af þessu „bandalagi" og
hún er sannast sagna ömurleg.
Efnahagur landa rómönsku
Ameríku hefur síður en sve
batnað og fjarri fer því að
nokkuð hafi / dregið þar úr
„hættunni á kommúnisma"
„Vanþakklátir“
þiggjendur
Þá hefur það ekki orðið til að
milda skap þeirra þingmanna
sem andvígir eru fjáraustrin-
um til útlanda að mörg þeirra
ríkja s'em þegið hal'a aðstoð frá
Bandaríkjunum hafa reynzt svo
„vanþakklát" að þau hafa látið
þjóðarhagsmuni sitjá i fyrir-
rúmi fyrir gróðafærum banda-
rískra auðhringa. Þannig hefur
Ceylon nú nýlega þjóðnýtt alla
olíudreifingu í lándinu þrát*
fyrir mótmæli og hótanir
Bandaríkjastjómar sem umhag-
að var um hagsmupi banda-
rísku olíuhringanna. Og nú
hafa Indónesar sem fengið hafa
margháttaða aðstoð frá Banda-
ríkjunum boðað bjóðnýtingu
eigna bandarísku olíuhringanna
í sínu landi. Hér mætti einnig
lengi telja.
Hagsmunir einka-
fjármagnsins
Fulltrúadeidin hefur ekki að-
eins skorið niður * fjárveiting-
una til útlanda um heilan millj-
arð. Hún samþykkti einnig að
hætt skyldi fjárveitingum til
allra landa sem ættú viðskipti
við Kúbu.
Hún setti einnig bað skilyrði
fyrir fjárveitingum, að ekki
verði vafið minna en helmingi
þeirra til einkafyrirtækja. Þetta
hefur m.a. í för með sér að
hætta verður við fjárveitingu
þá sem Bandaríkjastjóm var
búin að heita Indverjum til að
koma upp stáliðjuveri í Bokara.
enda þótt John Galbraith, sem
var sendiherra Bandaríkjanna á
Indlandi til skamms tíma. hafi
lýst yfir að ekkert einkafjár-
magn sé til í Iandinu sem géti
risið undir rekstri stáliðjuvers
af þessu tagi.
Minna en Kúba fær
Kennedy forseti var að von-
um ævareiður vegna bessarar
afgreiðslu málsins í fulltrúa-
deildinni og vandaði henni ekkí
kveðjumar í sjónvarpsviðtaii.
Honum sveið sárast að deild-
in skar niður fjárveitinguna ti1
landanna í rómönsku Ameríku
um fjórðung. og hann sagði að
ef ekki yrði aftur úr bessu bæ't
við endanlega afgreiðslu máls-
ins myndi svo fara að aðstoð
Bandaríkjanna við öll lönd
rómðnsku Amerfku vrði ekki
meiri en aðstoð sú sem Sovét-
rflcin veita íftí Kúbumönnum
einum.
Eunnudagur 8. ssptember 13C3
Stúdentnr í Rnngún gegn
Diem og Bundarikjamönnum
Andstaðan gegn valdhöfunum i Suður-Vietnam, fjölskyldu Diems
forseta, og hinum bandarisku yfirboðurum hans vex með degi
hverjum, þrátt fyrir miskunnarlaust ofbeldi lögreglusveitanna,
Alþýða manna í Suður-Vietnam á vísa samúð alira Asíuþjóða i
baráttu sinni gegn hinum bandarísku leppum og hefur það komið
í ljós með ýmsum hætti að undanförnu. Myndin hér að ofan er
tekin í Rangún í Burma og sýnir stúdenta kveikja í bambusskilti
sem á stendur: „Bandaríkjamenn eru að baki Ngo Dinh Diem”.
V-þýzkur lögregluforingi
vur einn uf böðlum nuzistu
Einn af æðstu mönnum lög-
reglunnar í Slésvík-Holtseta-
landi í Vestur-Þýzkalandi.
Waldemar Krause, yfirmaður
rannsóknarlögrcglunnar í Flens-
borg. hefur verið handtekinn.
sakaður. um að bera ábyrgð á
lífláti þúsunda manna í Sovét-
ríkjunum á stríðsárunum.
Krause var þá foringi einn-
ar hinna alræmdu ,.Einsatz“-
sveita nazista sem' murkuðu
lífið úr hundruðum búsunda
manna í Austur-Evrópu. en þó
einkum í Sovétríkjunum.
Engu að sfður fékk hann
starf i vesturþýzku lögreglunni
að stríði loknu og hækkaði
fljótlega í tign. Hann er sagður
hafa verið virtur og mikils
metinn maður í Flensborg.
,Hann var handtekinn vegna
upplýsinga sem bárust frá mið-
stöðinni í Ludwigsburg sem
vinnur að því að safna gögn-
um um stríðsglæpamenn naz-
ista.
Astsjúk vinnukonu nær búin
uð drepu 6. Montgomery
Það er kunnara en frá þurfi
að segja að kvikmyndaleikarar
eiga sér marga aðdáendur.
einkum af kvenþjóðinni. og
vilja sumar þeirra gerast æði á-
leitnar við þá. Þetta fékk hinn
kunni bandaríski leikari George
Montgomery að reyna um dag-
inn — og má hann þakka sín-
um sæla fyrir að hann skuli
enn vera f tölu lifenda.
37. ára gömul kona. Ruth
Wenzel, sem eitt sinn hafði ver-
ið vinnukona hjá honum og bá
gefið honum undir fótinn án
bess það bæri tilætlaðan árana-
ur brauzt inn f íbúð hans og
sat fyrir honum f tvo daga.
Þegar hann kom loks beim
i síðustu viku miðaði hún á
hann hlöðnum riffli og hafði
við orð að hún myndi skjó'.a
hann ef hann léti ekki blfðlega
að henni. Montgomery var ekki
fús að sýna henni bliðuhót með
slfkum skilmálum. Honum tókst
að ná rifflinum af henni. en
skot hljóp úr byssunni. — ,Hún
var ástsjúk" sagði lögreglufor-
inginn. sem sótti hana. ..á jví
er enginn vafi“ .
Nú fjórburar
AUSTIN. Texas 6/9. Frú Gye-
her, sem er prófessor við há-
skólann I Texas. ól í gær fjór-
bura, allt stúlkur. Frúin átti
þríbura fyrir.