Þjóðviljinn - 01.10.1963, Page 8
SÍÐA
ÞJÓÐVIUINN
Þriðjudagur 1. október 1963
FISKIMÁL - Eftir Jóhonn J. E. Kúld
AUÐÆVI HAFSINS
VIÐ S-AMERÍKU
Fiskveiðar í stórum stíl voru
óþekktar við strendur Suður-
Ameríku allt til ársins 1948.
Fram að þessum tíma er talið
að heildaraflinn með allri
strandlengju Suður-Ameríku
hafi ekki farið fram úr 130
þús. smálestum á ári. En
þrettán árum síðar eða árið
1961, er fiskafli Kólombíu,
Ek[uador, Perú og Chile kom-
inn upp í 5 milljónir og 800
þúsund smálestir, og hefur þó
vaxið mikið síðan.
Þó fiskveiðar hafi vaxið
mikið í öllum þessum fjórum
löndum umrætt tímabil, þá
sker Perú sig algjörlega úr.
Árið 1948 var heildarfiskafli
Perúmanna 47,700 smálestir,
1950 er hann kominn upp í
Verða Norður-
landamenn vald-
ir í alþjóðadóm-
stólinn?
Allsherjarþingið mun á næst-
unni ásamt Öryggisráðinu
velja fimm dómara í Alþjóða-
dómstólin í Haag til níu ára,
og hefst starfstími þeira 5.
febrúar 1964. Stungið hefur
verið up á 26 mönnum, þ. á.
m. 3 frá Norðurlöndum, próf.
Max Sörensen, Danmörku, próf.
Érik Castrén, Finnlandi. og
landsréttarforsetanum Sture
Petrén. Svíþjóð, Enginn af 5
fráfarandi dómurum er nor-
rænn né heldur af þeim tíu er
eftir sitja.
-<S>
6000 hitaeiningar
Framhald af 4 síðu
ekki hafa nein sjúkdómsein-
kenni Vísindamennirnir reikna
með því, að á mörgum öldum
hafi átt sér stað aðlögun þessa
fólks að hinum mjög svo sér-
stæðu lífsskilyrðum. Þeir benda
á, að svipuð skilyrði séu meðal
eskimóa. sem einnig eti mikið
af fitu.
Þetta fólk verður ekki fyrir
þeim óteljandi sálrænu trufl-
unum sem hafa áhrif á lík-
amsstarfsemina og eru svo al-
gengar meðal fólks í borgum
eða þéttbýli. Þesi staðreynd
varpar ljósi á sambandið milli
sálrænna áhrifa og hjarta-
sjúkdóma, segir í tímaritinu.
(Frá S.Þ.)
70.500 smálestir. Árið 1955
nær hann 213.300 smálestum
en fimm árum síðar, eða 1960,
er aflinn í Perú kominn upp
í 3.531.000 smálestir.
Nýjustu tölur sem ég hef
um fiskafla Perúmanna eru
frá árinu 1961, en það ár
nemur aflinn 5.243.100 smá-
lestum. Þetta ár urðu Peni-
menn no. 2 í röðinni yfir fisk-
veiðiþjóðir. Japanir einir voru
með hærri afla.
Þó að vöxtur fiskveiðanna í
Perú hafi orðið með jafn æf-
intýralegum hi-aða eins og töl-
urnar sanna, og hin þrjú lönd-
in sem ég nefndi, komist þar
ekki í neinn samjöfnuð, þá
hafa þó fiskveiðar þessara
landa vaxið nokkuð hratt á
síðustu árum, eins og ég mun
nú sýna fram á.
Fiskaflinn í Chile var árið
1948 64.600 smálestir, en árið
1961 er hann kominn upp í
429.800 smálestir.
Fiskafli Equador vex á
þessu tímabili úr 3,400 smá-
lestum upp í 60.200 smálestir.
Þá kem ég að Kólombíu,
sem hafði aðeins 15.000 smá-
lesta fiskafla áríð 1948 en var
komin með 47.599 smálesta
afla 1961. a
Veiðarnar og
vinnsla aflans
Fiskveiðarnar við Perú
byggjast algjörlega á smásíld-
artegund, svonefndri Ansjósu,
sem er sögð vera skyld sar-
dínunni. Þessi smávaxni fisk-
ur hrygnir í Humbolt-
straumnum undan ströndum
Perú, og mergðin er sögð svo
ótrúlega mikil að þar verður
engum tölum við komið, jafn-
vel þó talið væri í smálestum
einum.
Aflanum er ausið upp með
hringnótum og unninn í mjöl.
Um veiðar og vinnslu í Chile
gildir það sama og í Perú. Þar
hafa einnig risið upp miklar
fiskimjölsverksmiðjur og
framleiðslan fer vaxnadi með
hverju ári sem líður.
1 Equador og Kólombíu eru
hinsvegar fiskveiðarnar mest-
megnis stundaðar til öflunar
manneldisfæðu, svo sem
rækju og fleiri eftirsóttra
krabbadýra, ásamt ýmsum
fisktegundum. Niðursuðuiðn-
Verkamenn
óskast í fasta vinnu nú þegar.
hjá verkstjóranum.
Upplýsingar
H.F. KOL OG SALT.
Sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn. Upplýsingar í skrif-
stofu vorri Vonarstræti 8.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR.
aður er byrjaður þarna og fer
ört vaxandi. Reiknað er með
því, að á þessum slóðum
muni vaxa upp fullkominn
manneldisiðnaður úr fiski í
náinni fi-amtið.
Stórvinnslan að
miklum hluta í
eigu útlendinga
Bæði í Perú og Chile er
stórvinnslan að mestu í eigu
erlendra manna, bandarískra
og kanadískra. Hinn mikli
milljónaauður sem þarna er
unninn úr verðmætum hafsins
kemur því landsfólkinu ékki
að góðu nema að litlu leyti.
En þetta er ekkei-t nýtt í sögu
Suður-Ameríkuríkjanna, því
að auðævi þeirra hafa að
stórum hluta um áratugi ver-
ið hagnýtt af útlendingum og
þá aðallega Bandaríkjamönn-
um. Það voru líka þeir ásamt
Kanadamönnum sem hófu
byggingu mjölvinnsluverk-
smiðjanna í Perú og Chile
1948, en tilefnið er talið að
hafi verið vöntun þá á fiski-
mjöli í Norður-Ameriku, til
fóðrunar alidýra ýmiskonar.
Plaza de Armas, aðaltorgið í Lima, höfuðborg Perú.
Á hvaða tíma sólarhrings-
ins er karfaveiBin bezt?
Þjóðverjar hafa um nokk-
urt s'keið látið rannsaka á
hvaða tíma sólarhringsins
karfaveiðin væri mest á hin-
um ýmsu miðum. 1 nokkrum
atriðum birtu þeir niðurstöður
sínar nú á þessu ári, og fara
þær hér á eftir.
Þjóðverjar skipta sólar-
hringnum í tvennt og miða
við sólaruppkomu og sólarlag.
Á miðunum við Vestur-Græn-
land og Labrador varð niður-
staða rannsóknanna æfinlega
sú sama. Á báðum þessum
miðum varð veiðin miklu
meiri að degi til meðan sól
var á lofti heldur en að nóttu.
Frá kl. 10—14 var svo veiðin
meiri en aðra tíma dagsins og
gat orðið lVá sinnum meiri
heldur en afiinn milli kl. 18
og 22 að kvöldi, þegar mestur
varð munur. Rannsóknirnar á
kai-famiðunum við Austur-
Grænland sýna hinsvegar ger-
ólíka útkomu. Þar varð niður-
staða rannsóknanna sú að afl-
inn varð að jafnaði minnstur
á tímabilinu kl. 10—14, ein-
mitt á sama tíma sem veiðin
varð bezt á hinum fyrmefndu
miðum. Á Austur-Grænlands-
miðunum varð veiðin hinsveg-
ar mest á tveimur tímabilum,
frá kl. 14—18 og frá kl. 22 tU
2 að nóttu. Þessi mismunur á
góðum veiðitíma virtist ekki
breytast eftir árstímum að
öðnx leyti en þvi að metafla-
tíminn á Vestur-Grænlands og
Labrador miðum gat færzt til
í samræmi við breyttan sól-
argang. Þannig færðist met-
aflatíminn við Labrador og
Vestur-Grænland til um 3—4
klukkustundir í nóvember og
desember, á meðan sólargang-
ur var stytztur, miðað við
sumarmánuði hinsvegar.
Hvað segja svo íslenzkir
togaramenn um þessar rann-
sóknir Þjóðverjanna? Eru
niðurstöður rannsóknanna í
samræmi við þá reynslu sem
fengizt hefur á íslenzkum tog-
urum á þessum miðum?
15000 milljónir frá SÞ og sér-
stofnunum til aðildarríkjanna
Sameinuðu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra
hafa á þessu ári lagt fram 350 milljónir dollara
eða yfir 15000 millj. íslenzkra króna til hjálpar
aðildarríkjum sínum í viðleitni þeirra við að bæta
efnahagslegt og félagslegt ástand sitt, segir í upp-
gjöri sem lokið var á dogunum. Nær 85 af hundraði
starfsliðsins í hinum ýmsu stofnunum S.Þ. fjalla
eingöngu um þessi mál, og hlutfallsleg skipting
fjármagnsins er svipuð.
Rúmlega 150 lönd og svæði
sóttu í fyrra um hjálp frá ein-
hverri stofnun Sameinuðu
þjóðanna, ýmist um aðstoð
sérfræðinga, námstyrki, lán
eða tæki og verkfæri. f flest-
um þessara landa er efnahags-
ástandið þannig, að meðalárs-
laun manna eru kringum 4000
ísl. krónur.
Þær 350 milljónir dollara,
sem að ofan getur. eru bæði
skylduframlög og frjáls fram-
lög. Tæpur helmingur upphæð-
arinnar er á fjárlögum hinna
ýmsu sérstofnana og efnahags-
og félagsmáladeildar Samein-
uðu þjóðanna sjálfra. Allt hitt
eru frjáls framlög ýmissa
stofr^ana. svo sem Barnahjálp-
ar SÞ, Framkvæmdasjóðsins,
Tæknihjálparinnar og annarra
slíkra stofnana.
1 upphæðinni eru ekki falin
lán og fjárfestingar frá Al-
þjóðabankanum og stofnunum
hans né heldur hjálp sem
hjá'lpþegar greiða
sjálfir. Nefna má' að á síðasta
starfsári lánaði Alþjóðabank-
inn 448 milljónir dollara.
Úr áðurnefndu uppgiöri
Sameinuðu þjóðanna má m.a.
fá eftirfarandi upplýsingar:
Starfsemi Sameinuðu þjóð-
anna sjálfra: Efnahags- og fé-
lagsmáladeild S.Þ. safnar og
dreifir upplýsingum og eflir
hina alþjóðlegu viðleitni á eft-
irfarandi sviðum: Áætlanir um
efnahagsþróun, efling og þróun
iðnaðar, náttúruauðlindir og
samgöngutæki. hagskýrslur og
opinber rekstur, velferðarstarf-
semi, húsnæðisvandamál og
önnur félagsleg verkefni. Skrif-
stofa fyrir tæknihjálp annast
þá hjálp, sem aðildarríkjunum
er látin í té 4 þessum sviðum
og einnig þegar um er að ræða
mannréttindi og baráttu við
eiturlyf. Niðurstöðutölur fjár-
hagsáætlunar er 32 milljónir
dollara.
ILO, Alþjóðavinnumálastofn-
unin aðstoðar ríkin við lausn
vandamála á vinnumarkaðin-
um, m.a. í sambandi við iðn-
menntun. tryggingar og skipu-
lagningu vinnuafls. Fjárhags-
áætlun: 14 milljónir dollara.
FAO, Matvæla- og landbún-
aðarstofnun SÞ, fjallar um
landbúnað, fiskveiðar, skóg-
rækt, næringarvandamál
o.s.frv.. ekki sízt í sambandi
við hina víðtæku herferð sína
„Frelsun frá sulti”. Fjárhagsá-
ætlun: 31 milljón dollarar.
UNESCO, Menningar- og
vísindastofnun SÞ, hefur mörg
meginverkefni, og eru meðal
þeirra það verkefni að bæta
lífskjörin á hinu þurra svæði
frá Norður-Afríku til Suður-
Asíu og hitt að koma öllum
börnum Mið- og Suður-Ame-
ríku í skóla, áður en áratugur
er liðinn. Fjárhagsáætlun: 41
milljón dollarar.
ICAQ, Alþjóðaflugmálastofn-
unin vinnur að eflingu öryggis
í flugmálum, samræmingu
flugumferðarreglna og beitingu
nýjustu tækni. Fjárhagsáætl-
un: 5 milljónir dollara.
WHO, Alþjóðaheiibrigðis-
málastofnunin veitir ríkjum
aðstoð í viðleitninni við að
koma á eða bæta eigið heil-
brigðiseftirlit og i baráttunni
við hvers konar sjúkdóma,
ekki sízt farsóttir. Fjárhags-
áætlun: 33 millónir dollara.
ITU, Alþjóðaf jarskiptasani-
bandið vinnur að eflingu og
útbreiðslu útvarps, síma og
annarra fjarskiptatækja. Fjár-
hagsáætlun: 3 milljónir doll-
ara.
WMO, Alþjóðaveðurfræði-
stofnunin vinnur að því að
koma á samfelldu neti
veðurathugunarstöðva um
heim allan. Fjárhagsáætlun:
0.9 milljón dollarar.
IAEA, Alþjóðakjarnorku-
stofnunin fjallar um hagnýt-
ingu kjarnorkunnar í þágu
friðarins. Fjárhagsáætlun: 9
milljónir dollara.
UPU, Alþjóðapóstmálasam-
bandið vinnur að eflingu al-
þjóðastarfs á sviði póst-
mála. Fjárhagsáætlun: 1 millj-
ón dollarar.
IMCO. Alþjóðasiglingamála-
stofnunin stuðlar að samvinnu
ríkja á milli og gagnkvæmum
skiptum á upplýsingum sem
varða siglingar. Fjárhagsáætl-
un: 0,9 milljón dollarar.
Samvinnustofnanir eða sjóðir
Hin samvirka tækniaðstoð
(EPTA), Framkvæmdasjóður-
inn, Alþjóðamatvælasjóður-
inn. n.s 1^-nphjálpin (UNICEF)
reka ekki sjálfstæða starfsemi.
Þetta eru samvinnustofnanir
eða sjóðir, sem leggja fram fé
og starfskrafta, en verkefnin
eru leyst af Sameinuðu þjóð-
unum eða sérstofnunum þeirra.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætl-
ana: EPTA 50 milljón dollarar,
Framkv.-sjóðurinn 72 milljón-
ir. Matvælasjóðurinn 30 millj-
ónir og Barnahjálpin 33 millj-
ónir dollara.
Fjárhagsstofnanir
Fjórar af sérstofnunum Sam-
einuðu þjóðanna eru „fjár-
málastofnanir“, þ.e. þær hafa
það höfuðverkefni að leggja
fram fjármagn.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
lánar aðildarríkjunum erlend-
an gjaldmiðil, svo að þau geti
leiðrétt skyndilegar breytingar
á viðskiptajöfnuðinum. Á sínu
eigin sviði veitir hann löndun-
um tæknihjálp. Fjárhagsáætl-
un: 9 milljónir dollara.
Alþjóðabankinn lánar ein-
stökum ríkjum fé eða lánar
einkafyrirtækjum fé til raf-
væðingar, iðnvæðingar eða
annarra þróunarverkefna gegn
ríkistryggingu. Á liðnum árum
hefur bankinn samtals lánað
7 milljarða dollara. Fjárhags-
áætlun: 15 milljónir dollara.
IFC, Alþjóðafjármálastofn-
unin er nátengd Alþjóðabank-
anum og lánar fé með svipuð-
um skilyrðum til einkaiðnaðar
og án ríkisábyrgðar. IFC hef-
ur til þessa lagt fram 80 mihj-
ónir dollara. Fjárhagsáætlun:
2 milljónir dollara.
IDA, Alþjóðlegi þróunarsjóð-
urinn er líka tengdur Alþjóða-
bankanum. Hann veitir lán
með mjög sanngjörnum kjör-
um, oft vaxtalaus. Lánin sem
sjóðurinn hefur veitt nema nú
samtals 450 milljónum dollara.
Fjárhagsáætlun: 2 milljónir
dollara. (Frá SÞ).