Þjóðviljinn - 02.10.1963, Side 8

Þjóðviljinn - 02.10.1963, Side 8
3 SlÐA ÞJÓÐVILIINN Miöv’ikudagur 2. olftóbor 1963 REYNSLA HINS FROMA FINNANDA Eigi alls fyrir löngu fann Bandaríkjamaðurinn Dougias Johnson 240 þúsund dollara á götu í Los Angeles. Hann skil- aði upphæðinni til eigandans, eins og hverjum frómum finn- anda bar. En reynsla hans varð sú, að flestir mundu telja að slíkt hefði varla getað skeð nema í Ameríku. Mörgum myndi vaíalaust þykja fróðlegt að vita hver viðbrögð Evrópu- búa hefðu orðið, ef þessi fund- ur hefði átt sér stað. Eftir þennan peningafund átti Johnsonsfjölskyldan ónæð- issama daga. Skammarbréfum rignai yfir manninn fyrir bjánaskap og skepnuskap. Hvad hafði hann þá til saka unnið? Aðeins gert einfalda skyldu sína, að skila eign sem hann átti ekki, Bréí írá Kennedy íor- seta Svo langt gengu smánaryrð- in. að Kennedy forseti sá á- stæðu til að senda Douglas Johnson svohljóðandi bréf: „Vegna hins óbifanlega heið- arleika yðar, að skila aftur hinni fundnu fjárhæð — 240 þús. doll. — til réttra eigenda, vil ég með bréfi þessu votta yður persónulega virðingu mín£K Með athygli las ég frétt- ina um fund þennan. Verknað- ur þeirra, sem heitt hafa yfir yður og fjölskyldu yð- ar margskonar vandræði, Verk yðar er eftirbreytnisverð fyrirmynd, er verðskuldar al- menna athygli, því að styrkur okkar liggur í viljanum til að vinna af djörfung og dreng- 6kap.“ Bróðir forsetans, Robert Kennedy dómsmálaráðherra, skrifar Douglas Johnson eftir- farandi. „Ég vil aðeins geta þess, að þér völduð réttu leiðina, er þér skiluðuð eigandanum hinu fundna fé. Hefðuð þér ekki gert það, mundi samvizkan vissulega hafa kvalið yður. Með afhendingu fjármunanna hafið þér orðið fyrirmynd í ráðvendni, sem flestir sam- Iandar yðar hafa virt yður fyrir." Hvað er þarna? Hvað hafði gerzt er olli þess- um lofsamlegu ummælum hinna ábyrgustu Bandaríkja- manna? Douglas Johnson býr með fjölskyldu sinni f borginni Los Angeles í Kalifomíu. Morgun einn var negrafjöl- skyldan snemma á fótum og frú Johnson, 38 ára gömul, undirbjó morgunverðinn fyrir mann sinn og þrjá syni sína. Maður hennar rakaði sig áður en hann fór að leita sér að vinnu, sem hann átti von í hjá byggingarfyrirtæki og var flutningur á ýmsu rusli þaðan. En kaupið var ekki hátt við slíka vinnu, eins og nærri má geta. Þegar drengimir voru farnir í skólann stakk Douglas upp á því við konu sína. að hún kæmi með sér á vinnu- staðinn. — „Það veit á gott“, sagði hann. — Svo varð þó ekki. vinnuveitandinn fannst hvorki heima né á vinnustað. Þau urðu því að halda heim á leið aftur vonsvikin. Á heim- leiðinni sá konan gráan hlut liggja á götunni og hélt bað vera múrsteinsmola, svo hún sagði: „Láttu þetta vera.“ Johnson stöðvaði samt bíiinn og tók hlutinn upp, sem var teningslagaður smáböggull, og kastaði honum án frekari at- hugunar bak við sig í bílnum. Milljónaríjórðungur í dollurum „Ekkert skil ég enn í því, hversvegna ég fór að taka upp þennan böggul, það er þó ekki venja mín“, sagði hann. „Ég er ekki vanur að gá að hvað liggur á götunni". Á leiðinni tók frúin böggui- inn og leit á merkimiðann, sem við hann hékk. „Veiztu hvað þú hefur fundið"? hróp- aði hún. “Á miðanum stend- ur 240.000 dollarar." „Það er ómögulegt", sagði Dough f hæðnistón, „heldurðu að slík upphæð komist fyrir í svo litlum böggli?" En .. samt var innihaldið næstum V< millj. dollarar. Hjónin héldu áfram heim og Helena var enn svo hyggin að segja: „Þú skalt aka varlega, því að ef eitthvað kæmi fynr og þessi fjárhæð fyndist hjá okkur mundum við áreiðan- lega lenda í einhverjum vand- ræðum“. En þá vissu þau ekki að þetta var mesta fjárhæð sem eigendumir, Brinks In- corporated höfðu nokkru sinni tapað. Böggullinn hafði dottið úr brynvarðri bifreið, er beir notuðu til flutnings á pening- um. Ennþá mikilvægara var þó, að þetta voru venjulegir 10 og 100 dollara seðlar. sem hver ófrómur finnandi mundi auðveldlega geta notað til hverskonar þarfa sinna. John F. Kennedy Edgar Hoover Þau aðvara lög- regluna „Konan mín sagði, að ég hefði titrað eins og hrísla, er ég ók áfram“. sagði Dough. Hann opnaði ekki böggulinn. Þegar heim var komið buðu þau vini sínum, Taylor. fyrr- verandi lögregluþjóni, heim til sín, báðu hann að vera vott að afhendingu peninganna. „Kall- ið ekki á lögregluna“, sagði hann, „því hún mun koma með öskrandi lúðra svo að ná- grannamir halda að þið hafið framið eitthvart afbrot". Hann ráðlagði að síma til leynilög- reglunnar. Þannig atvikaðist, að leynilögreglumenn komu fljótt. Þeir sögðu: „Venjulega geyma menn verðmæta fundna hluti lengi heima hjá sér til þess að reyna að ipína út sem hæst fundarlaun. Ykkar við- brögð eru einstæð og verð- skulda þökk og hamingjuósk, vegna þess heiðarleika sem þau bera vott um“. Almenningsálitið Enginn vissi nokkuð um pen- ingafundinn og þegar lögreglu- mennimir fóru sátu þau Hel- ena og maður hennar hálf- ringluð hvort á móti öðru. en þau voru ánægð yfir því að nú mundi allt vera í bezta lagi. Sjmir þeirra, 16, 13 og 11 ára, höfðu enn ekkert frétt um þetta. En þegar blaðamenn, ljósmyndarar, útvarpsmenn og sjónvarpsmenn komu, var frið- urinn búinn. Þetta látlausa fólk vissi varla sitt rjúkandi ráð af hávaðanum og öllum gauraganginum í kringum þetta allt. Eftir þetta fóru bréfin að berast til þeirra, eins og skæðadrífa. Voru þau full af óbóta skömmum fyrir þann bjánaskap að hafa skilað pen- ingunum. Douglas Johnson sagði < sjónvarpið: — Hversvegna skilarðu einhverjum hlut? Auðvitað vegna þess að hann er ekki eign þín! Þegar John- son er spurður hvort hann hafi ekki fundið hjá sér löng- un að halda peningunum. segir hann: Hversvegna? Ég er enginn þjófur! Hefði ég hald- ið peningunum mundi ég aldr- ei framar geta litið í augu bama minna! Hvaða fundarlaunum áttuð þér von á? var ein spurning- •1». — Ég get ekki séð að þess- ir menn — sem peningunum týndu — hafi verið skuldugir mér um neitt. Ég gerði pðeins það, sem hverjum manni bar að gera. Upphaf vandræðanna Eigendur dollaranna gáfu hinum fróma finnanda 10 pús- und dollara. Hann varð þjóð- hetja. Hann fékk vinsamleg bréf frá Edgar Hoover og fleiri háttsettum mönnum. og eftir amerískum venjum rigndi lofinu yfir Johnson-fjölskyld- una. En í mörgum bréfum kvað við annan tón, þar sem við- brögð Johnsons voru talin meiri bjánaskapur en unnt væri að lýsa með orðum. Hót- unarbréf og móðgandi sknf héldu áfram að berast inn á heimilið — bréf sem báru vott um glæpamennsku á hæsta stigi. í skólanum urðu dreng- irnir að píslarvottum þessa ó- hugnanlega hugsunarháttar, sem magnaður var af kyn- þáttahatri. Þeir voru með- höndlaðir eins og stigamenn. Þeir urðu fyrir ónotum er þeir leituðu sér atvinnu. voru t.d spurðir: „Hversvegna fóruð þið að skila peningunum? Nei, fyrir ykkur höfum við ekki vinnu". Sumir sögðu: „Sá sem kastar frá sér 240 þúsund doll- urum þarfnast ekki vinnu, heldur lækningar". Verst var þó að þola ofsókn- ir gegn heimilinu. Stundum var dyrabjöllunni hringt og er komið var til dyra var sagt: „Ég ætlaði aðeins að sjá með eigin augum þessa bjána. sem hafa hagað sér eins og vit- firringar“. Bústaðaskipti Reiðir einstaklingar, sem áttu leið framhjá, hrópuðu úr bíþjm sínum ókvæðisorð að húsi Johnsons. Nágrannarmr hættu að líta til þeirra. Sím- ann urðu þau að taka úr sam- bandi, gátu ekki lengur hlust- að á smánaryrðin, er látlaust klingdu þar. Douglas varð meira að segja að kaupa marghleypu og banna konu sinni að opna dymar meðan hann var ekki heima. Loks urðu þau að flytja í burtu. Elzti sonurinn fór að heiman, en skildi miða eftir á borðinu, þar sem hann segist verða að svipta sig lífi. Hann kom þó aftur eftir tvo daga og baðst fyrirgefningar. Þessar ægilegu ofsóknir gegn heiðarlegu fólki vöktu nú aft- ur samúðaröldu. Hundruð bréfa bárust aftur úr öllum heimsálfum. Feðgarnir urðu nú að fresta smíði á bátnum sem þeir voru með í skýli bak við húsið; fyrst varð að svara hin- um mikla fjölda af bréfum sem bárust að hvaðanæva. Martröðinni linnir Smátt og smátt dró úr árás- um óvinanna, margir endur- skoðuðu nú afstöðu sína eftir að Kennedy forseti hafði borið lof á heiðarleik Johnsons. Allt gengur nú betur en áð- ur. Johnson hefur nú keypt nýj- an vörubíl og ný húsgögn. Svo hafa þau hjón getað fest kaup í húsinu, sem þau búa í. og martröðin af hinni ofsalegu at- hygli heimsins dvínar nú smátt og smátt. Þegar Douglas er spurður um hug sinn til hinnar „töp- uðu“ fjárhæðar, svarar hann: — Nú á ég fallegt nýtt hús góða konu og þrjá heilbrigða syni; hvers frekar ætti ég að óska? Mér finnst ég vera nógu ríkur. En hvað er annars verðmætara en að vera heiðarlegur? Sem betur fer er ennþá til margt fólk eins og Johnsons- fjölskyldan. Annars væri heim- urí.nn ræningjabæli. Kristófer Grímsson þýddi úr esperanto. Skrá yfir útsvör fasteignagjöld og aðstöðugjöld fyrir árið 1963, liggur frammi til sýnis á skrifstofu hreppsins, Þórustíg 3, Ytri- Njarðvík, og verzluninni Njarðvík, Innri - Njarðvík, frá 1. okt. til 14. okt. 1963, að báðum dögum meðtöldum. Kærur út af útsvörum og fasteignagjöldum ber að senda sveitarstjóra, en kærur vegna aðstöðugjalda til skattstjóra Reykjanesumdæmis eigi síðar en mánudaginn 14. okt. 1963. Njarðvík, 30 sept. 1963. SVEITARSTJÓRINN NJARÐVfKURHREPPI Brfreföaleigan HJÓL Viðtal við Mins Framhaid af 7. síðu. félagsádeila haldi áfram í bókum eins og Þrúgum reið- innar eftir Steinbeck, og t. d. í bókum Caldwells frá suðurríkjunum. Sögur verka- mannahöfundanna upp úr 1930 hafi oft einkennzt af vissum einstrengingshætti í efni og meðferð. Segja má að ekki skorti á ádeilu á bandarískt ’pjóðfélag og þjóðlíf í skáldsögum höfunda eins og Carson MacCullers og Normans Mailer. En í bókum margra hinna yngri höfunda gætir oft vonleysis, þeir einbeita sér að nei- kvæðri úrvinnslu ef svo mætti segja, þeir eru ekki sósíalistar, þeir virðast ekki sjá neina framtíðarleið, þeir gefa enga von. Það er meira að segja hugsanlegt að þeir leiði slí'kt vísvitandi hjá sér, að leita að leiðum frá því þjóðfélagsástandi sem þeir eru að deila á, af eins konar ótta við að þeir hlytu þá að finna sósíalismann. En þess er að vænta að lífið og lífs- baráttan kenni einnig þeim að enginn þarf að taka svo neikvæða afstöðu til þjóðfé- lagsmálanna og að það er ekki fullnægjandi. Að síðustu fáein orð um gestinn sjálfan, sem átti hér örustutta viðdvöl á heimleið frá meginlandi Evrópu. Henry F. Mins er sextugur að aldri, og hefur verið menntaskólakennari í enskri tungu að atvinnu. Hann fæddist í New York, og hlaut þar háskólamenntun. Ferð- azt hefur hann viða um heim, m. a. dvalizt lang- dvölum í Frakklandi og Mexíkó, enda franska og spánska honum töm líkt og móðurmál. Og allt frá ungl- ingsaldri hefur bann verið haldinn þeim „þægilega veik- Ieika“ að safna sér tungu- málum og telur sér nú fært á 35 málum, þar með talin flest Evrópumál, þó ekki baskamál, albanska og lit- háíska. Hann les Norður- landamálin, líka finnsku, og kvaðst enga ástæðu sjá til þess að hann gæti ekki inn- an skamms stautað íslenzku, fyrst hann hafði nú eignazt stóra íslenzk-rússneska orða- bók auk þeirrar ísl.-sænsku, er hann átti áður. Af Asíu- málum talar hann kínversku og japönsku, og er nú að læra arabísku, en vonar af alhug að það verði síðasta málið sem hann leggur í, þvi eiginlega hefur hann svolít- ið samvizkubit að hafa varið of miklu af ævinni til tungu- málanáms! Við kveðjum bandarfeka ritstjórann Henry F. Mins með virðingu og þakklæti, einn fulltrúa hetjubaráttunn- ar sem háð er í Bandaríkj- unum fyrir skoðanafrelsi og sósíalisma, sannan fulltrúa hins bezta í bandarískri menningu og menntun. i-i S.G. Frá barnaskólanum i Kópavogi Bömin komi í skölana fimmtudaginn 3. október n.k. sem hér segir: 12 ára deildir kl. 1. e. h. 11 ára deildir kl. 2 e. h. 10 ára deildir kl. 3 e. h. FRÆÐSLURÁÐ KÓPAVOGS Gagnfræðaskófínn í Kópavogi tekur til starfa fimmtudaginn 3. október. Nemendur mæti sem hér segir: 4 bekkur. Landsprófsdeild og 2. bekkur ld., 2 e. h. Almennur 3. bekkur og 1. bekkur kl. 4 e. h. KENNARAFUNDUR verður 2. okt. kl. 2 e. h. SKÓLASTJÓRI. Kennslan hefst mánudaginn 7. október. Ballett fyrir byrjendur og framhaldsnemendur. Dömuflokkar í plastik. Innritun í síma 3-21-53 kl. 2—6 daglega. BALLETSKOL 1 SIGRÍÐAR 1 Armann 1 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.