Þjóðviljinn - 15.10.1963, Qupperneq 12
Mesta verðbólgustökk í sögu landsins:
■ 1. september s.l. hækkaði hin opinbera vísi-
tala framfærslukostnaðar um fimm stig. Fyrsta
október s.l. hækkaði hún um 6V2 stig í viðbót. Á
einum mánuði hefur þannig komið til fram-
kvæmda vísitöluhækkun sem nemur 11V2 stigi,
en það jafngildir 23 stigum samkvæmt gömlu vísi-
tölunni. Þetta er ofsalegasta verðbólguþróun sem
nokkru sinni hefur verið mæld á íslandi. Til sam-
anburðar má geta þess að í allri valdatíð vinstri-
stjórnarinnar — á nærri því hálfu þriðja ári —
hækkaði gamla vísifalan um 16 stig. Samt fór
vinstristjórnin frá vegna verðbólguháskans — og
viðreisnarstjórnin tók sérstaklega að sér að vinna
bug á honum!
■ í septembermánuði síðastliðnum hækkaði matvöru-
vísitalan um hvorki meira né minna en 15 stig, og er hún
nú komin upp í 175 stig. Matvæli þau sem vísitölufjöl-
skyldan þarf að nota eru að meðaltali 75% dýrari en þau
voru í upphafi viðreisnar. Hafa matvæli hækkað meira
og örar en nokkur annar kostnaðarliður í vísitölugrund-
vellinum.
■ f september hækkaði vísitalan fyrir „fatnað og
álnavöru“ einnig um fjögur stig, og er hún nú komin
upp í 146 stig.
B Vísitalan fyrir „ýmsa vöru og þjónustu“ hækkaði
um þrjú stig og er nú 163 stig.
Hafa hækkað um nærri tvo þriðju
■ Alls hefur vísitalan fyrir „vörur og þjónustu" —
allar nauðsynjar vísitölufjölskyldunnar nema húsnæði —
þá hækkað um níu stig að jafnaði í septembermánuði.
Er sú vísitala nú 163 stig; það vantar þannig ekki mikið
upp á að almennar nauðsynjar hafi að meðaltali hækk-
að um tvo þriðju síðan viðreisnin hófst!
■ Húsaleiguvísitalan er látin haldast óbreytt 108 stig.
Húsnæði á þannig aðeins að hafa hækkað um 8% síðan
í ársbyrjun 1959! Allir vita að þetta er fáránleg fjarstæða;
aðeins á þessu sumri og hausti hefur húsnæðið tekið stökk-
breytingar til hækkunar, og mun óhœtt að fullyrða að
húsnœði hafi sízt hækkað minna en matvaran á viðreisn-
artímabilinu.
■ En með því að halda húsaleiguliðnum óbreyttum og
draga frá fjölskyldubætur (þótt aðeins hluti launþega
njóti þeirra) fæst hin opinbera vísitala framfærslukostn-
aðar. Hún hœkkaði í septemb'ermánuði um sex stig (nán-
ar tiltekið 6V2) og er nú 144 stig.
Me& kökukeflin
reidd í heimsókn
Akranesi 14/10 — Sandstorm-<?>búum. Allur Suðurskaginn er
ur geisaði hér í dag eins og
þeir tiðkast í Saharaeyðimörk-
inni og á rætur sínar að rekja
til skeljasandsbirgða Sements-
verksmiðjunnar, sem mynda
fjailháa bingi efst við Suður-
götuna. Þetta bregzt ekki í suð-
austan og sunnan hvassviðrum
og er ákaflega hvimleitt bæjar-
Tveir brunar
á Akureyri
Síðastliðinn sólarhring kvikn-
aði í tveimur húsum á Akur-
eyri. Skömmu eftir miðnætti að-
faranótt mánudags var slökkvi-
liðið kvatt að húsinu Ásgarður
2 í Glerárhverfi. Hafði kvikn-
að út frá olíukyndingu í kjall-
ara hússins. Skemmdir urðu litl-
ar. Skömmu fyrir hádegi í gær-
' ’g var slökikviliðið svo kvatt
-j húsinu Hamarsstíg 14. Hafði
kviknað út frá rafmagnstöflu í
kjallara hússins og eyðilögðust
rafmagnsleiðslur í. húsinu og
nokkrar skemmdir urðu af reyk.
meira og minna undirlagður af
sandbyl. Hvimleiðast er þetta þó
íbúum við Suðurgötu, Skagabraut
og Jaðarsbraut og smitar inn
í húsin fingerðu dufti sem þekur
allt og eru húsmæður á þönum
frá morgni til kvölds með af-
þurrkunarklúta sína. Sandurinn
er svo fíngerður, að hann smit-
ar inn um dyraumbúnað og lok-
aða glugga. Þá skefur þetta
málningu af bflum og veldur
stórtjáni.
Hvergi er vært fyrir þessu fín-
gerða dufti utan húss eða inn-
an og sezt það ekki sízt í augu
og öndunarfæri fólks og veldur
heilsutjóni. Kvartað hefur verið
við stjóm Sementsverksmiðjunn-
ar og beðið um leiðréttingu á
þessum hlutum og hefur því ekki
verið sinnt frá upphafi. Sérstak-
lega eru húsmæður æstar og
vilja sumar taka fram kökukefli
sín og gera stjóminni heimsókn.
Skagakonur eru skapharðar,
ef því er að skipta og vita
stjómamefndarmenn á hverju
þeir mega eiga von. ,
Á sunnudagsmorguninn var
haldin fegurðarsýning á hrút-
um inná Skeiðvelli. Búnaðar-
fél. og Fjáreigendafél. Reykja-
víkur og fjáreigendur í Kópa-
vogi og Seltjamameshreppi
stóðu að sýningunni, 1. verð-
laun hlaut Barði, eign Sæ-
mundar Ólafssonar forstjóra,
en önnur verðlaun Þristur,
eign Torfa Þorbiömssonar
jámsmiðs.
Málin eru nokkru nákvæm-
ari en á Langasandi eða:
þyngd, brjósthæð, hæð á
herðakamb, hæð undir bringu
spjaldhryggsbreidd og lengd
framfótleggja. Mál Barða eru:
111 — 114 — 80 —35 — 28 —
139 en Þrists: 98 — 110 — 83
— 36 — 27 — 136.
Fyrstu verðlaun eru bikar
sem Þorkell Einarsson gaf á
sínum tíma og var ranghermt
í blaðinu á sunnudag að
handhafi þess bikars væri
Ólafur á Reynisvatni; hann
vann aftur á móti litla bikar
Fjáreigendafélagsins til eign-
ar á síðustu sérsýningu fé-
lagsins.
Á efri myndinni gefur að
líta „herra Reykjavík 1963-‘
ásamt eiganda gínum, Sæ-
mundi Ólafssyni.
Á neðri myndinni ber mest
á Sóma, fyrrverandi bikars-
hafa, og svo þessum litlu
stúlkum, sem verða kannski
einhvemtíma líka settar upp
á pall og mældar og vegnar.
Eigandi Sóma er Gunnar
Daníelsson, Hlíðargerði 18. —
(Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Hrútar á verí-
launapallinum!
Tveir verkamenn
slösuðust í gær
f gærmorgun varð það slys við höfnina, að þung stál-
plata þeyttist á tvo verkamenn er unnu við uppskipun
úr Herjólfi og fótbraut þá báða. Mennirnir heita Hannes
Pálsson Meðalholti 9 og Guðlaugur Jónsson Karlagötu
15. Hlaut Hannes opið brot. — Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar, var vindhæð um þetta leyti nær átta
vindstigum og fór ört hækkandi og má gera ráð fyrir
að hún hafi verið mun meiri í byljum á opnu svæði
sem þama.
Guðlaugur og Hannes voru að
vinna við uppskipun úr Herjólfi
en áveðurs við þá var verið að
láta þungar stálplötur á vörubíl.
Var lyftari notaður við verkið.
Plötumar, sem lentu á mönnun-
um, voru komnar uppfyrir skjól-
borð bifreiðarinnar er vindkviða
skellti þeim fram af göflum lyft-
arans niður á plötustafla sem
fyrir var á bílpallinum og síðan
runnu þær niður af bílnum hinu
megin og lentu á mönnunum
tveim og fótbraut þá báða eins
og áður segir.
Slys á verkamönnum viðhöfn-
ina eru orðin ískyggilega tíð og
verður að gera einhverjar ráð-
stafanir hið bráðasta til þess að
koma í veg fyrir þau ef hægt
er. Standa nú yfir umræður sem
Dagsbrún hefur gengizt fyrir
um þetta vandamál milli full-
trúa frá Dagsbrún, öryggiseftir-
litinu og atvinnurekendumu Við
aðstæður eins og voru við upp-
skipunina í gærmorgun verður
að sjálfsögðu að gæta fyllstu
varúðar í einu og öllu og óverj-
andi að stofna lífi og limum
verkamannanna í hættu vegna
hirðuleysis eða óvarkámi.
Vestmannaeyja-
bátur sökk í fyrrad
Síðastliiðinn sunnudag. sökk i
Vestmannaeyjabáturinn Sæbjðrg
fyrir Suðurlandi, nánar tiltekið
út af Mýrdalssandi, en þar var
báturinn á togveiðum. Mann-
björg varð. Slysið varð í blíð-
skaparveðri.
Skipsmenn urðu varir við það
á sunnudagsmorguninn um kl.
níu, að leki var kominn að skip-
inu. Hafði lekinn komizt í véi-
arrúmið, óx óðfluga og fengu
skipverjar ekki við neitt ráðið,
en vélin stöðvaðist. Þegar fyrir-
sjáanlegt var, að skipið myndi
ekki haldast öllu lengur ofan-
sjávar hafði skipstjórinn, Hiim-
ar Rósmundsson, samband við
nærstaddan Vestmannaeyjabát.
Gyilfa VE-201. Kom hann fljót-
lega á vettvang, og fóru skip-
verjar á Sæbjörgu í gúmmíbát
yfir í Gylfa. Stóðst það endum,
að Sæbjörg sökk skömmu eftir
að þeir voru komnir heilu og
höldnu yfir í hinn bátinn.
Sæbjörg var einn af hinum
svonefndu Svíþjóðarbátum, 52
tonn að stærð, smíðaður 1946.
Enga grein geta þeir skipverjar
gert sér fyrir orsökum þess leka,
Tvö umferðarslys
á Miklubrautinni
Um kl. 7.30 si. laugardags-
kvöld varð það slys á mótum
Lönguihlíðar og Miklubrautar að
15 ára piltur, Egill Haraldsson,
Hamrahlíð 7, varð fyrir bifreið
og meiddist allmikið. Pilturinn
sem var á skellinöðru kom sunn-
an Lönguhlíðina og mun hafa
ætlað á gnlu ljósi yfir Miklu-
brautina en lenti þá fyrir bif-
reið er ók vestur götuna. Kast-
aðist pilturinn í götuna og fót-
brotnaði auk þess sem hann
hlaut fleiri meiðsli. Var hann
fluttur í sjúkrahús.
Laust eftir kl. 7 á sunnudags-
kvöldið varð 66 ára gömul kona,
Pálína Friðriksdóttir, Bræðra-
borgarstíg 34, fyrir jeppabifreið
á Miklubraut rétt sunnan við
mót Mikiubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. Meiddist hún
talsvert á fótum og höfði og
var flutt í sjúkrahús.
er svo skyndillega kom að skip-
inu. Fimm manna áhöfn var á
skipinu, skipstjóri er sem fyrr
segir Hilmar Rósmundsson, en
vélstjóri Theodór Ölafsson. Eru
þeip jafnframt eigendur bátsins.
Afmælissöfnun
Þjóðviljans:
10 dagar
eftir
NtJ BIRTUM við fyrstu tölur úr
samkeppni sósialistafélaganna
utan Reykjavíkur. Átta félög
eru komin á blað og sum all-
vel. Á fimmtudaginn birtum
við stöðuna næst og síðan ann-
an hvern dag.
ÞAÐ ER orðinn stuttur tími til
stefnu og við þurfum því að
taka vel á ef við eigum að ná
500 þús. króna markinu 24.
október, á 25 ára afmæli Sós-
íalistaflokksins.
SENDIÐ OKKUR framlögin
strax. Utanáskriftin er: Þjóð-
viljinn, Þórsgötu 1, síminn:
17514.
REYKVÍKINGAR! A morgun
birtum við næst röð deildanna.
Gerið skil í dag. Opið klukkan
10-12 og 1-6 á Þórsgötu 1 og f
skrifstofu Sósíalistafél. Reykja-
víkur, Tjarnargötu 20.
RÖÐ sósíalistafclaganna erþessi:
1. Mosfellssveit 30%
2. Hveragerði 12—
3. Rangárvallasýsla 10—
4. Kópavogur 3—
5. Miðneshreppur 2—
6. Vestmannaey.iar 2—
7. Selfoss 2—
8. Keflavík 1—
HVAÐ VERDA möre félög
komin til viðbótar á fimmtii- daginn? HERÐUM SÓKNINA!
i
4
4
4