Þjóðviljinn - 23.10.1963, Blaðsíða 4
4 BÍÐA
MÖÐVIUINN
Miðvikudagur 23. október 1963
Ctgeíaudi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórar: Jón Bjamason, Sigurður V. Friðþjófsson.
Hitstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línuri. Áskriftarverð kr. 80 á mánuði.
Viðreisnaröngþ veiti
Ijað Heíur löngum við brunnið að stjómarblöð
kenndu stjómarandst'æðingum um sitt hvað
af því sem aflaga fer í þjóðlífinu. Blöð ríkisstjórn-
ar Sjálfsfæðisflokksins og Alþýðuflokksins, eink-
um þó Morgunblaðið, hafa farið svo út í öfgar
með þess konar afsakanir undan'farið, að það er
örðið skoplegt og ólíklegt að nokkur taki áróður-
inn alvarlega. Morgunblaðið birtir skrif dag eftir
dag þar sem því er haldið blákalt fram að það
sé ekki stjórnars'tefnan, er fengið hefur að reyna
sig heilt kjöríímabil, sem valdi óðadýrtíðinni,
heldur allt aðrir aðilar! Einn daginn er það vinstri
stjórnin sáluga, sem við völd var fyrir hálfum ára-
tug í ein ’tvö ár, eða þá að það er stjómarandstað-
an, Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn,
sem öllu eiga að hafa ráðið um þróun þessara
mála undanfarin ár, enda þótt Sjálfstæðisflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn ha'fi raunar setið í
rfkisstjórn! Og svo hinn daginn eru það verka-
lýðsfélög landsins, sem eiga sök á öllu sem aflaga
hefur farið hjá þessum stjórnarherrum og við-
reisnarstjórn þeirra.
Ijess konar málflufning er ekki h’ægt að bjóða
neinum manni sem hugsar um þjóðfélagsmál.
Að vinstri stjórnin og stjórnmálaflokkar stjórnar-
andstöðunnar hafi ráðið þróuninni í þessum
málum er auðvitað eintómt bull. Og hitt er marg-
hrakið að verkalýðshreyfingin hafi með kaup-
hækkunum valdið óðadýrtíðinni. Kaupið hefur
ekki hækkað nema um nokkurn hluta þeirra
verðhækkana sem orðið hafa frá því Alþýðuflokk-
urinn og Sjálfstæðisfokkurinn tóku við stjórninni,
og jafnan eftir á, verkalýðsfélögin hafa háð varn-
arbaráttu gegn braskráðstöfunum ríkisstjórnar-
Ínnar og einkabrasksins, sem unnið hafa saman
sem einn maður.
Oíkisstjórn Sjálfstæðis’flokksins og Alþýðuflokks-
ins á sökina á óðadýrtíðinni sem nú þjakar
alþýðu manna og færir gróðabröskurum þjóðar-
innar ofsagróða. Ríkisstjórninni gagna ekki nein-
ar barnalegar afsakanir, hún kemst ekki upp með
það að reyna að skjóta eigin sök á annarra herð-
ar. Sekt hennar og þeirrar tilraunar með íslenzkt
þjóðfélag sem henni þóknaðist að kalla „viðreisn"
er uppVís og öllum ljós. Hún hefur skapað alveg
óvenjulegt ástand sem m.a. hefur gerf kaup verka-
manna næsta lítils virði. Það er athyglisvert, að
þó verkalýðshreyfingin mæti nú þessu óvenjulega
ástandi með kröfum sem nema um 40% launa-
hækkun heyrist engin rödd, sem segir að þar sé
krafizt of mikils eða ósanngjamlega. Ríkisstjórn-
in hefur leikið kaupmátt launanna svo grátt, að
menn skilja almennt og viðurkenna að hér er
sízt of í lagt.
Stjórnarflokkarnir mörðu meirihluta alþingis í
kosningunum í sumar á fölskum forsendum og
taumlausum blekkingaráróðri. Andspænis sívax-
andi öngþveiti og ráðleysisfumi ríkissfjómarinn-
ar væri ekki óeðlilegt að hin vesæla ríkisstjórn
Ólafs Thors segði af sér, þing yrði rofið og kjós-
endum leyft að velja sér þingmenn með þá mynd
fyrir augum em nú blasir við af viðreisnar-
stjórnarfari Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins. — s.
FRUMVARP TIL SKIPULAGS-
LAGA LAGT FYRIR ALÞINGI
Ríkisstjómin hefur lagt fyrir Alþingi frum-
varp til skipulagslaga. Er það í aðalaíriðum sam-
hljóða frumvarpi því, sem skipulagsnefnd ríkis-
ins samdi og lagt var fyrir Alþingi 1961—1962.
Ýmsar breytingar hafa þó verið gerðar á frum-
varpinu.
ÞINGSJA ÞJÓÐVILJANS
Fyrsti kafli laganna fjallar
um stjórn sMpulagsmála og
eru aðalákvæði íhans þessi:
Félagsmálaráðuneytið fer
með stjórn skipulagsmála
samkvæmt lögum þessum.
Ráðuneytinu til aðstoðar
eru skipulagsstjórn ríMsins
og skipulagsstjóri. 1 sMpu-
lagsstjóm riMsins eiga sæti
5 menn: Húsameistari rikis-
ins, vegamálastjóri, vita- og
hafnarmálastjóri, svo og tveir
menn skipaðir af ráðherra til
fjögurra ára eftir almennar
sveitarstjórnarkosningar, ann.
ar eftir tilnefningu Sambands
íslenzkra sveitafélaga, en hinn
án tilnefningar. Varamenn
hinna tveggja síðasttöldu
skulu skipaðir á sama hátt.
Nefndin kýs sér sjálf for-
mann, varaformann og ritara
til fjögurra ára í senn.
Verkefni skipulagsstjórnar
er að ganga frá skipulagsupp-
dráttum, er berast til stað-
festingar, eiga frumkvæði að
skipulagningu og endurskipu-
lagningu, þar sem hún telur
þess þörf, vera opinberum að-
ilum til ráðuneytis um allt,
sem sMpulagsmál varðar, og
fara að öðru leyti með stjóm
skipulagsmála eftir því, sem
segir í lögum þessum. Ef á-
greiningur verður milli aðila,
sem fara með stjórn skipu-
lagismála samkvæmt lögum
þessum, sker ráðherra úr,
nema öðruvísi sé sérstaMega á-
kveðið.
Ráðherra skipar skipulags-
stjóra að fengnum tillögum
skipulagsstjómar. Hann fer í
umboði ráðuneytisins og
skipulagsstjórnar með fram-
kvæmdir í skipulagsmálum
eftir því, sem lög þessi á-
kveða.
Skipulagsstjóri sér um mæl-
ingar, gerð skipulagsupp-
drátta, svo og endurskoðun
eldri uppdrátta. Hann getur
þó leyft, að slíkar mælingar
Deiidafundir
i fyrradag
Fundir voru í báum deildum
Alþingis í fyrrada-g.
Á dagskrá efri deildar voru
tvö mál 1) bráðabirgðabreyting
og framlenging nokkurra laga,
vísað til annarar umræðu og
fjárhagsnefndar og 2) frumvarp
til laga um sölu ríkisjarðarinn-
ar Litlagerðis í Grýtastaða-
hreppi. vísað til annarar um-
ræðu og landbúnaðamefndar.
í neðri deild voru þrjú mál
á dagskrá. Bjami Benedikts-
son dómsmálaráðherra hafði
framsögu á frumvarpi til laga
um meðferð ölvaðra manna og
drykkjusjúkra og var því vísað
til annarar umræðu og heil-
brigðis- og félagsmálanefndar.
Gísli Guðmundsson hélt langa
framsögu með lagafrumvarpi
sex Framsóknarmanna um ráð-
stafanir til að stuðla að jafn-
vægi í byggð landsins, og var
því vísað til annarar umræðu
og fjárhagsnefndar.
Loks var frumvarpi til laga
úm ríkisborgararétt vísað til
annarrar umræðu og allsherj-
arnefndar.
<S>-
og gerð skipulagsuppdrátta
séu falin sérmenntuðum mönn-
um, er starfi í samráði við
hann. Hann ákveður í samráði
við skipulagsstjóm að hvaða
skipulagsverkefnum skal unn-
ið hverju sinni.
SMpulagsstjóri hefur um-
sjón með því, að hvarvetna sé
farið eftir gildandi skipulagi.
Hann skal fylgjast með störf-
um bygginganefnda. Skipu-
lagsstjóri skal sitja fundi
sMpulagsstjómar og hefur
þar málfrelsi og tillögurétt.
Honum er heimilt með sama
hætti að sitja fundi bygging-
arnefnda.
Nú telur skipulagsstjóri, að
byggingarleyfi brjóti í bága
við samþykkt eða fyrirhugað
skipulag, og getur hann þá
leitað úrskurðar ráðherra um,
hvort það skuli fellt úr gildi.
Ef skipulagsstjóri notar heim-
ild þessa, er óheimilt að hefja
eða halda áfram framkvæmd-
um samkvæmt nefndu bygg-
ingarleyfi, unz úrskurður ráð-
herra liggur fyrir, en leita
skal ráðherra áður lunsagnar
skipulagsstjómar.
1 öðrum kafla er fjallað um
skipulagsskyldu og eftirlit
með framkvæmd hennar, en
gert er ráð fyrir að skipulágs-
uppdræti skuli gera að öllum
kaupstöðum, kauptúnum og
þorpum, þar sem búa 100 £bú-
ar eða fleiri. Á skipulags-
skyldu svæði skulu allar
byggingar og önnur mann-
virki gerð í samræmi við gild-
andi skipulagsuppdrátt.
Aðrir kaflar laganna fjalla
um mælingar skipulagsskyldra
staða, gerð skipulagsupp-
drátta, framlengingu skipu-
lagstillagna, samþykkt þeirra
og staðfestingu, framkvæmd
skipulags eldri hverfa, for-
kaupsrétt, eignarnám og
skaðabætur, lóðaskrá og loks
em refsiákvæði.
Fimmtugur í dag
Snorri Jónsson
járnsmiður
■í
Kærri Snorri!
Flokkur þinn, Sósíalistaflokk-
urinn sendir þér beztu kveðj-
ur sínar, heillaóskir og þgkkir
á fimmtugsafmælinu.
1 meira en tvo áratugi hefur
þú staðið í fylMngarbrjósti í
frelsisbaráttu íslenzks verka-
lýðs og sýnt það f félagi þínu,
Félagi jámiðnaðarmanna í
Reykjavík. með formennsku
þinni mest allt þetta tímabil,
hvemig sameina skuli, og
stjóma trúu og tryggu baráttu-
félagi verkalýðsstéttar. Hvað
eftir annað hefur félag þitt
brotið ísinn fyrir aðra í harð-
vítugum, löngum vinnu-deil-
um, og í verkinu hef-
ur þér tekizt að fylkja öllum
jámiðnaðarmönnum án tillits
til stjómmálaskoðana undir
stéttabaráttumerki þess, — og
leiða það ætíð til sigurs.
Það var ekki að undra þó
Alþýðusamband Islands eftir
þessa reynslu af viturlegri
stjóm þinni. kysi þig fyrst og
fremst sem framkvæmdastjóra
sinn hin síðustu ár og fæli
þér þannig eitt ábyrgðarmesta
forystuhlutverk í íslenzkri
verklýðshreyfingu.
Flokkur þinn þakkar þér
allt það starf sem þú hefur
unnið í verklýðshreyfingunni
jafnt í flokknum sem í verk-
lýðsfélögunum. Hann er stolt-
ur af að hafa átt þig 25 ára
meðal stofnenda sinna sem full-
trúa á stofnþingi hans fyrir rétt-
'Jm 25 árum og haft þig í mið-
stjóm sinni um tvo áratugi og
í framkvæmdanefnd hans síð-
ustu árin. Þú hefur ásamt bín-
um ágætu samstarfsmönnum
úr verkalýðsfélögunum verið
honum tryggingin fyrir þvf að
hann breytti viturlega í bar-
áttu verkalýðsins, brygðist
honum aldrei og mæti afl og
aðstöðu rétt, er til omstu
skyldi leggja og berjast til sig-
urs.
Vér flokksfélagamir sendum
bér og Agnesi konu þinni, sem
borið hefur svo ágætlega með
bér allt erfiði baráttunnar. og
fiölskyidu binni allri okkar
beztu framtfðaróskir: að við
’negum nióta bín og forustn
binnar í íslenzkri verklvðs-
breyfingu unz sígurinn endan-
1 er unninn.
T.ifðu ve1 og iengi.
Rfnar Otr-nfrsson,
Kæri vihur!
I tiléfni þessara tímamóta
ævi þinnar langar mig til að
biðja Þjóðviljann fyrir ofur-
litla afmæliskveðju til þín,
Ég veit að þér er ekki að
skapi að farið sé að ekrifa
um þig lofgrein, þess vegna
ætla ég að hlífa þér við sliku
frá minni hendi, þótt mér
kannske finnist að sitthvað
mætti nú tína til í slíka grein,
en ekki meira um það. Ekki
vil ég heldur hrelia þig með
því að hafa þessi orð mín í
eftirmælastíl, það á sízt við
um mann á þínum aldri og í
þínu starfi, mann sem stendur
í fremstu víglínu harðrar bar-
áttu.
Það máttu vita að fólkið sem
nýtur starfa þinna fyrir heild-
arsamtök verkalýðsins kann
flest að meta þau og það stend-
ur í mikilli þakkarskuld við
þig-
Bezt þekki ég störf þín í Fé-
lagi jámiðnaðarmanna. Við,
sem höfum staðið þér nærri
þar undanfarin ár, erum að
rifja það upp fyrir okkur, hvað
þú ert búinn að vera lengi í
fararbroddi í félagi okkar og
við finnum það út að þú ert
búinn að vera formaður fé-
lagsins í 17 ár, eða lengur en
nokkur annar og í stjóm, fé-
lagsins hefurðu verið í 20 ár.
Þetta talar sínu máli.
Ekki hirði ég um að fara
að telja upp öH þau trúnaðar-
störf, sem félagið hefur faiið
þér þar að auki. Það yrði of
löng upptalning, en við vinir
þínir og samstarfsmenn í Fé-
lagi jámiðnaðarmanna . erani
að hlýja okbur við minning-
amar um, sumarstarfið við þig
á undanförnum árum, um leið
og við hugsum allir til þín
með beztu afmælisóskum, kær-
um þökkum fyrir liðna tím-
ann og von um jafnánægju-
legt samstarf framvegis, eins
og hingað til.
Hafsteinn Guðmundsson,
jámsmiður.
Óbrofin ofmœliskveðja
Snorri Jónsson, formaður Fé-
iags járniðnaðarmanna í
Réykjavík og framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands íslands
er fimmtugur í dag.
Já, menn era Ungir nú á dög-
um, þegar þeir eru fimmtugir.
Það er nú bráðum áratugur,
sfðan samstarf okkar hófst á
skrifstofum Alþýðusambands-
ins.
Fyrir því var engan veginn
spáð allt of vel af öllum, að
tveir skapvargar, eins og við
ættum að fara að starfa saman
daglega og kljást við erfið
vandamál. — Já, mundu þama
ekki verða sífelldir árekstrar
og óteljandi sprengingar, eða
a.m.k. sáfalítið um samstarf f
dagíegú erfiði og argaþrasi.
Var ekki von, að menn héldu
það?
En sumt tekst befcur en ætl-
að er. Og svo hefur farið uni
samstarf okkar. Ég minnist
þess nefnilega ekki þegar ég nO
lít ýfir áratuginn liðna, að
okkur hafi nokkumtíma orðið
Undurorða öll þessi ár, þrátt
fyrir ólíkar skoðanir okkar á
ýmsum málum.
Véðurspáin um yfirvofandi
þrumur, eldingar og fellibylji,
hefur þvl rætzt verr en flestar
aðrar veðurspár, og veltur þó
á ýmsu með veður og véður-
spádóma. Víst er Snortí Jóns-
son, jafnvel ekkert síður én
ég, skapmaður. En hann kann
vél að stilla skap sitt. 1 því
er hann mér miklu frerntí, og
mun ýmsum með því ekhi
þykja ýkjamikið sagt. — Én
hvað sem því líður, er þáð
staðreynd, að við höfum átt
ágætlega skap saman, og okk-
ur hefur famazt vél og fallið
vel að vinna saman. — Að því
leyti mun hvorugur undan öðt'-
um kvarta.
Ég hef kynnzt Snorra Jóns-
syni sem óvenjulega staðföst-
um og starfsömum samverka-
manni. Hann gengur rór að
starfi, tekur öfgalausa afstöðu
til mála og vill það eitt hafa,
sem hann telur sannast og rétt-
ast. — Hann er þéttur á vélli
og þéttur í lund, og það sem
bezt er: Hann er drengur góð-
ur.
Snorri Jónsson getur nú, enn
á bezta aldri, litið yfir mikið
og farsælt starf í félagi stétt-
ar sinnar. Þar hefur hann um
20 ára skeið gegnt stjói’nar-
Framhald á 8. siðu.