Þjóðviljinn - 30.10.1963, Síða 1
SillllÉllBllÍÍIÍlll&É^
w .. --v.
kiííPmmSiHi
illliiil
:;::::
' ■ vX; v
: 5 .•:
MR
mmm
—
;
■ ■ . ■ ■;•:;.
.......................
'
llilii
. ■ • ;• . :<• • ••
I ;■ ■ ; ;■'
5-:
:l Í::i' I :
::
."T'iÉ' *« '
m f
!
MmgsWM
wmmSSímSíSSSmi
Miðvikudagur 30. október 1963 — 28. árgangur — 235. tölublað.
Lögðu sér
hróa rjúpu
til munns
Borgarnesi, 29/10. — Enn-
þá einu sinni hafa rjúpna-
skyttur lent í villum í ó-
byggðum og íer nú þetta að
horfa til vandræða, þar
sem fjölmennir leitarflokk-
ar eru kallaðir á vettvang
upp á fjöll og eru þetta
orðnir daglegir viðburðir.
Rétt eftir hádegi í gær
lögðu upp 2 starfsmenn í
Samvinnuskólanum í Bif-
röst og héldu á rjúpnaveið-
ar á Bröttubrekkum. Þeir
ætluðu að vera komnir
aítur um fimm Ieytið. Um
kvöldmatarleytið var farið
að óttast um þá, og brugðu
Hörð átök innan stjórnar-
f lokkanna um ný þvingunarlög
við bændur í Norðurárdal
og hófu lcit að rjúpna-
skyttunum. Skömmu fyrir
miðnætti í gærkvöldi var
leitað til lögreglunnar í
Borgarnesi og einnig kom
fram beiðni til Flugbjörg-
unarsvcitarinnar. Margir
menn fóru á stjá og voru
að til kl. 3 eða 4 um nótt-
ina. Hinsvegar var Reynir
Ásberg, rafvirki, á leið frá
Bifröst til Borgarness á bíl
sínum og varð var við citt-
hvað kvikt hjá Gljúfurár-
brú, og voru þar komnar
rjúpnaskytturnar og áttu
skammt eftsr i;pp á þjóð-
veginn. Þeir T-efðu farið af
stað matarlausir og tók
hungur að þjá þessa heið-
ursmenn.
Þeir höfðu skotið nokkrar
rjúpur og lögðu sér til
munns tvær nýveiddar
rjúpur með fiðri og öllu
saman. — P.G.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær hafa sérfræðingar ríkis-
stjórnarinnar unnið að því að undanförnu að ganga frá ráðstöfunum
vegna hruns viðreisnarinnar. Eftir því sem næst verður kom-
izt munu þessar ráðstafanir þó ekki beinast gegn óðaverðbólgunni
og afleiðingum hennar á lífskjörin, heldur mun ætlunin einvörðungu
sú að setja þvingunarlög sem komi í veg fyrir að verklýðssamtök-
in geti gert nýja og óhjákvæmilega kjarasamninga næstu mánuð-
ina. Hins vegar mun það haft að yfirskyni að síðan eigi að nota tím-
ann til að finna ráð til að tryggja þeim lægstlaunuðu kjarabætur!
Eins og ráðgert var átti Ólaf-
ur Thors forsætisráðherra fund
í gær með Hannibal Valdi-
marssyni, forseta Alþýðusam-
bandsins, Eðvarð Sigurðssyni,
formanni Dagsbrúnar, og Bimi
Jónssyni, formanni Einingar.
Höfðu ýmsir spáð því að þar
myndi forsætisráðherra skýra
frá ákvörðun ríkisstjómarinnar
um þessi efni. en ekki mun hafa
verið um neitt slíkt að ræða.
Fyrirætlanir ríkisstjómarinnar
hafa hins vegar verið ræddar í
ýmsum öðrum stofnunum. Til að
mynda var fjallað um þær á
Hvalfjarðarmál á
þingfundi í dag
Á fundi sameinaðs Alþingis
í dag verður m.a. tekin fyrir
þingsályiktunartillaga nokkurra
Alþýðubandalagsþingm. varðandi
fyrirhugaðar framkvæmdir Atl-
anzhafsbandalagsins í Hvalfirði.
fundi í miðstjóm Alþýðuflokks-
ins í fyrrakvöld, og kom þar
fram nokkur andstaða gegn
þeim ætlunum að binda karjp
hinna lægstlaunuðu, eftir að
ýmsir hátekjumenn þjóðfélagsins
hefðu fengið allt að 100%
kauphækkanir.
Jón Axel Pétursson banka-
stjóri tók dæmi af sjálfum sér,
kvaðst einmitt í gær hafa feng-
ið ákveðna mjög verulega kaup-
hækkun ofan á laun sem verið
hefðu sómasamleg fyrir. Hann
gæti ekki sem Alþýðuflokksmað-
ur af gamla skólanum staðið að
því að banna með lögum kaup-
hækkanir til almennra verka-
manna sem aðeins hefðu brot af
bankast j órakaupi.
Guðmundur R. Oddsson, for-
stjóri Alþýðubrauðgerðarinnar,
tók mjög í sama streng og Jón,
og þótti afstaða þeirra nokkmm
tíðindum sæta, því þeir hafa
áratugum saman verið í hægra
armi flokksins. En hægrimenn
sem halda skoðunum sínum ó-
breyttum komast fljótlega til
vinstri í Alþýðuflokknum.
Óskar Hallgrímsson andmælti
einnig fyrirætlunum um að
binda kaup með lögum. Benti
hann á að ríkisstjómin hefði í
vor beðið verkalýðssamtökin að
fresta meiriháttar kjarasamning-
um til hausts til þess að tóm
gæfist til efnahagslegra athug-
ana og spurði hvort ríkisstjóm-
in hefði ekkert gert síðustu sex
mánuði. fyrst hún vildi nú fá
frest til að vinna þau verk sem
hún lofaði að vinna í vor.
Jón Sigurðsson tók í sama
streng og Óskar og gangrýndi
sérstaklega Gylfa Þ. Gíslason,
sem ekki var mættur á fundin-
um. Kvað Jón fjarveru hans
vonandi fyrirboða þess að hann
ætti eftir að vera fjarverandi
víðar; til dæmis væri nóg fyrir
Alþýðuflokkinn að hafa í ríkis-
stjóminni þá tvo ráðherra sem
væru „eldri og reynddari“!
Málið var ekki útkljáð á mið-
stjómarfundi Alþýðuflokksins og
mun nýr fundur vera fyrirhug-
aður í dag. Hins vegar mun
fomsta Sjálfstæðisflokksins hafa
talið sig fá nauðsynlegar heim-
ildir á floklisráðsfundinum s. L
laugardag. þótt flokksráðsmenn
fengju sáralítið að vita um fyr-
irætlanir leiðtoga sinna.
Síldarflotinn
í höfninni
LJÓSMYNDARI Þjóðviljans tók
þessa skemmtilegu mynd í
gær af síldveiðiflotanum
liggjandi í Reykjavíkurhöfn.
Vetrarsíldveiðin er nú sem
óðast að hefjast, sum skipin
hafa þegar hafið veiðar og
önnur að búa sig á veiðar.
Á 12. SÍÐU blaðsins í dag. eru
fleiri myndir af síldveiðiskip-
um svo og frétt um aflabrögð-
in í gær og fyrradag. —
(Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Stundakennararfá
laun skv. menntun
Eins og kunnugt er, hefur
nokkur vafi leikið á því undan-
farið, hver yrðu Iaun stunda-
kennara við skóla landsins. Nú
mun hinsvegar hafa verið ákveð-
ið, hvcr þau verði. Helzta breyt-
ingin er í stuttu máli sú, að
Verður brenni-
vínið tekið af
ráðherrunum?
I umræðum í neðri deild
Alþingis í gær um áfengis-
lög tóku tveir framsóknar-
menn (Þórarinn Þórarinsson
og Sigurvin Einarsson) tii
máls. Lögðu þeir báðir til að
afnuminn skuli afsláttur á
útsöluverði áfengis til ráð-
herra og annarra cmbættis-
manna er þessara fríðinda
hafa notið. Sigurvin sagðist
ekki vilja núverandi ráð-
herrum neitt illt með þessu
enda væri ekki víst eins og
nú horfði í þjóðmálum að
þetta ákvæði bitnaði á þeim
þó að Iögum yrðl.
gamli skalinn er lagður til
grundvallar, en menn fá hlut-
fallslega hækkun samkvæmt
þeim launaflokki, sem þeir ættu
að vera í samkvæmt menntun,
væru þeir fastráðnir kennarar.
Laun stundakennara munu
vera ákveöin 80% af meðallau-
um kennara, í 25 ár miðað við
launin í dag. Þessi ákvörðun
gildir um óákveðinn tíma.
Blaðið getur ekki að svo
stöddu sagt til um það, hver
verði laun stundakennara, enda
sjá þeir það væntanlega sjálfir
fljótlega eftir mánaðamót. Þó
munu laun stundakennara í
gagnfræðaskólum verða kr. 91.95
samkvæmt 16. launaflokki, miðað
við 45 mínútna kennslustund. Þó
eru þetta aðeins laestu laun
stundakennara við gagnfræða-
skólana.
Hæstu laun stundakennara,
þau er greidd eru við Mennta-
skólann og Kennaraskólann.
munu vera samkvæmt 20. launa-
flokki 123.05 fyrir 45 mín.
kennslustund. Þá er þcss að geta,
að stundakennarar fá greidda
yfirvinnu eftir kl. 5 á daginn.
Eftirvinnukaup stundakennara
er bið sama og hjá föstum
konnurum.
ÍSLAND Þ0LIR EKKI
.FRJÁLSA VERZLUN'
-Jr Þjóðhagsáætlunin frá í fyrxa
hefur reynst Ijót Gylfaginning.
Verzlunarjöfnuðurinn -er orðinn
óhagstæður um 700 milljónir.
30. september nam útlánaaukn-
ing bankanna 1001 millj. kr. en
innlánaaukningin nam þá
570 milljónum króna. Á sama
tíma 1962 var útlánaaukningin
640 milljónir króna og inn-
lánaaukningin 730 milljónir.
•^p Ber þetta sem annað að
sama brunni:- ísland þolir ckki
,,frjálsa verzlun“. Það verður að
aflétta einokun inhflútnings-
verzlunarinnar á tekjum út-
flutnlingsverzlumarinnnar. ' At-
vinnuvegir okkar þola ekki öllu
fleiri „sérfra!ðinga“-tilraunir og
tfmi tU kominn að Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokksmcnn horfist í
augu við þá staðreynd að áætl-
unarbúskapur er það eina sem
getur bjargað okkur út úr þeim
ógöngum sem stjórn þcssara
flokka hofur leitt okkur f.
★i Þetta var megintak hinnar
hvössu ræðu Einars Olgeirsson-
ar f nd Alþingis i gær þar
sem hann fylgdi enn einu sinni
frumvarpi sínu um áæthinar-
ráð ríkisins úr hlaði.
Ósiðlegt athæfi við stúlkubarn
I fyrrakvöld gcrðist 27 ára
gamall maður f Hafnarfirði sek-
ur um ósiðlcgt atferU við sex
ára gamalt stúlkubarn. Tók
maðurinn telpuna upp f bíl og
fckk hana til að afklæðast og
mun einnig hafa Iosað sjálfur
eitthvað um föt sín. Ekki virð-
fst þó hafa verið nm bcina til-
raun til kynmaka að ræða og
er telpan algerlega ómeidd. Var
farið með hana til læknisrann-
sóknar.
Telpan sagði frá atburði þess-
um þegar hún kom heim til sín
og var athæfi mannsins þegar
kæirt til lögreglunnar og var
Framhald á 2. síðu.
Lífeyrir og eftir-
laun opinberra
starfsmanna
hækki
Á fundi stjómar B.S.R.B.
fyrra mánudag var gerð svo-
felld tillaga um hækkun lifeyr-
is og eftirlauna:
,.Stjórn Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja skorar á
ríkisstjórnina og bæjarstjómir
Iandsins að hlutast tU um að
fyrrverandj starfsmenn ríkisins
og bæjanna fái frá 1. júií sl.
að telja. greiddar hliðstæðar
hækkanir á Ufeyri og efttríaun og
opinbcrir starfsmenn fengu á
laun sin frá þeim tíma“.
M-FUNDUR klukkan 21.00
í kvöld að Laugateig 11
(kjallara). — Stundvísi.