Þjóðviljinn - 01.11.1963, Síða 1
Föstudagur 1. nóvember 1963 — 28. árgangur — 237. tölublað.
Blygðunarlaus árás á kjör
og réttindi verkafólks:
BANN VIÐ OLLUM VERKFOLLUM,
KAUPHÆKKUNUM, KJARABÓTUM
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
LEGGUR FRAM VAN-
TRAUST Á STJÓRNINA
Þvingunarlög þau sem ríkisstjórnin lagði fyrir
alþingi í gær eru blygðunarlausasta og ósvífnasta
árás sem nokkru sinni hefur verið gerð á samnings-
rétt og frelsi verklýðssamtakanna á íslandi. Of-
beldislögin frá 1942. sem oft er vitnað til þegar
rætt er um árásir á alþýðusamtökin, heimiluðu þó
kauphækkanir samkvæmt gerðardómi, en í þessu
nýja frumvarpi er lagt algert og undantekningar-
laust bann við kauphækkunum og kjarabótum
hverju nafni sem nefnast og allri kjarabaráttu,
verkalýðsfélögin eru svipt öllum samningsrétti.
Bannið gildir til næstu áramóta, en af hálfu rík-
isstjómarinnar er það aðeins hugsað sem upphaf
annars meira. Ef launþegasamtökin sættu sig við
þessa einstæðu árás. yrðu lögin að sjálfsögðu fram-
lengd í einhverri mynd um næstu áramót og um
ófyrirsjáanlega framtíð. Hefur aldrei verið mikil-
vægara en nú að launþegar rísi til varnar hags-
munum sínum og samtökum og hrindi áformum
ríkisstjórnarinnar með öllum tiltækum ráðum.
Á sama tíma og allar kjarabætur eru þannig
b’annaðar skilyrðislaust, er verðlagsyfirvöldunum
heimilað að hækka verðlag á nákvæmlega sama
hátt og gerzt hefur að undanförnu.
Þingmenn Alþýðubandalagsins svöruðu frum-
varpi ríkisstjórnarinnar tafarlaust í gær með því að
leggja fram vantraust á ríkisstjórnina og kröfðust
þess að það yrði tekið til afgreiðslu áður en frum-
varp ríkisstjórnarinnar.
AUar kjarabætur
bannaðar
í fyrstu grein frumvarpsins
er lagt algert bann við bví „að
hækka kaup, laun, þóknun, upp-
mælingar- og ákvæðisvinnu-
taxta eða nokkurt annað end-
urgjald fyrir unnin störf frá
því sem um var samið eða
greitt, þá er frumvarp þessara
Iaga var lagt fram á alþingi".
Síðan er tekið fram að þetta
eigi við um alla kjarasamninga,
auglýsta taxta, launareglugerð-
ir, launasamþykktir og ráðning-
arsamninga einstaklinga, enn-
fremur við Iaunaákv. um opin-
bera starfsmenn og starfsmenn
sveitarfélaga. Einnig er tínd til
kauptrygging sjómanna, hluta-
skipti og hverskonar aðrar
launagreiðslur sem ákveðnar
eru sem hundraðshluti af af-
urðaverði, veltu eða öðru verð-
mæti. Ennfremur er ákveðið að
bann sé lagt við hverskonar
breytingum á vinnutíma „sem
felur í sér hækkun eða Iciðir
til hækkunar á Iaunakostnaöi".
Og að lokum er tekið fram að
þessi sömu fyrirmæli eigi við
um „hvers konar aukagreiðslv
til launþega sem er hrein launa
viðbót, en þau taka ekki til
aukagreiðslu að því leyti sem
hún fer til greiðslu raunveru-
Framhald á 2. síðu.
Frá fundi Hins íslenzka prentarafélags í Iðnó í gærkvöld. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.),
Prentarar leggja áherzlu á
mótmæli sín með verkfalli
— og krefjast þess að Alþingi felli lagafrumvarpið
Á mjög fjölmennum fundi sem haldinn var síðdegis í gær í Hinu ís-
lenzka prentarafélagi var eftirfarand i tillaga frá stjórn félagsins sam-
þykkt einróma:
„Fundur í Hinu íslenzka prentarafélagi haldinn 31. október 1963 klukk-
an 5.30 í Iðnó, mótmælir eindregið frumvarpi um launamál og fleira, sem
fram er komið á Alþingj og ákveður bann við frjálsum samningum milli
verkalýðsfélaga og atvinnurekenda.
Fundurinn telur slíka löggjöf beina árás á samninga'frelsi verkalýðs-
félaga og skorar á Alþingi að fella framkomið frumvarp.
Til frekari mótmæla samþykkir fundurinn að boðaðri vinnustöðvun
verði ekki aflétt nema félagið verði til þess knúið.“
Mótmælaorðsending Alþýðusam-!
bands íslands um þvingunarlögin
í gærkvöld sendi Alþýðusamband ís-
lands frá sér svohljóðandi orðsend-
ingu:
■ Alþýðusambandið mót-
mælir harðlega frumvarpi því
til laga um launamál og
fleira, sem ríkisstjórnin lagði
fram á Alþingi í dag.
■ Lagafrumvarp þeíta er
eigi aðeins hatrömm árás á
samningsréttinn, félaga'frels-
ið og verkfallsréttinn, heldur
þýðir samþykkt þessi einnig
afnám þessara lýðræðisrétt-
inda.
réttindi lýðræðisins.
■ í baráttu þeirri, sem
framundan er, er óendanlega
mikið komið undir árvekni
og bará'tfuþreki félagshe’ilda
og einsfaklinga, og ber að
■ Heitir Alþýðusamband- neyta sérhvers 'færis, sem ge'f-
ið því á öll meðlima’félög sín, ast kann, til varðveizlu lífs-
að slá órofa skjaldborg um kjaranna og mannréltind-
þessi dýrmætu grundvallar- anna.
Fyrir fundirium lá að taka
afstöðu til þvingunarlaga rík-
isstjórnarinnar, sem útbýtt var
á Alþingi í gær. Formaður
félagsins, Pétur Stefánsson, hóf
umræður og skýrði frá gangi
samningamálanna og rakti síð-
an ákvæði þvingunarlaganna.
Um afstöðu atvinnurekenda
sagði hann m.a. frá því að for-
maður þeirra hefði gefið þá yf-
irlýsingu varðandi kröfur prent-
aranna að þær væru mjög samn-
ingshæfur grundvöllur en ekk-
ert þýddi að gera vegna áforma
ríkisstjórnarinnar um kaup-
bindingarlög. f lok ræðu sinn-
ar bar formaður H.f.P. fram
mótmælatillögu gegn þvingunar-
lögunum og var hún undirrituð
af allri stjórninni.
Að lokinni ræðu formanns tók
Stefán Ögmundsson til máls og
lýsti stuðningi við tillögu stjóm-
arinnar. Sýndi Stefán fram á
það hvernig þvingunarlögunum
væri ætlað að dýpka enn þá
gjá, sem rikisvaldið hefði verið
Framhald á 2. síðu.
----------------------------3
Þvingunarlögin
til fyrstu um-
ræðu í dag
★ Dagskrá sameinaðs Al-
þingis föstudaginn 1. nóv.
1963. klukkan 2 síðdegis.
Rannsókn kjörbréfs.
Neðri deild:
Launamál o.fl., frv. —
1. umr.