Þjóðviljinn - 01.12.1963, Síða 1
Sunnudagur 1. desember 1963 — 28. árgangur — 256. tölublað.
A 5. SlÐU BLAÐS-
INS í dag ritar Hanni-
bal Valdimarsson,
forseti Alþýðusam-
bands íslands, grein
um samningamálin.
Fjölda nýrra
síldartunna
rekuráfjörur
Leitarflokkar, sem gengu
á fjörur vegna hvarfs vél-
bátsíns Hólmsteins, hafa
skýrt frá því að ókjör af
nýjum síldartunnum sé
rekið á fjörur allt frá
Landeyjarsandi austur að
Ingólfshöfða. Engar skýr-
ingar hafa fengizt á því
hvern:g þessar tunnur eru
til komnar. Þjóðviljinn
vissi af tunnuskipi í Kefla-
vík fyrir skömmu. en
bryggjuvörðurinn þar gaf
þær upplýsingar, að það
hefði ekki orðið fyrir nein-
um skakkaföllum á Ieið
upp tU Islands og ekkert
Deiluaðílar rœddu við full-
trúa ríkísstiórnarinnar í gœr
Dregið eftír aðeins 23 daga
Rill verður næstu daga á horni Aðalstrætis
og Austurstrætis og verða seldir úr honum
miðar í Happdrætti Þjóðviljans 1963 en nú
eru aðeins 22 dagar eftir þar til dregið verð-
nr um íbúðina og aukavinningana 10. Ættu
menn þvi ekki að draga það lengur að fá
sér miða ef þeir ætla á annað borð að freista
gæfunnar. Það getur borið ríkulegan ávöxt.
★ Happdrættið hefur nú fengið eftirtalda
umboðsmenn á Suðumesjum: Kjartan
' Kristófersson í Grindavik, Hjört B. Helga-
son í Sandgerði, Sigurð Hallmundsson í
Garði, Sigurð Brynjólfsson Garðavegi 8 í
Keflavík, Oddberg Eiríksson i Ytri Njarðvík
og Runóif Jónsson á Rcykjalundi. Geta
mcnn snúið sér til þeirra með skil. Ibúar
Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðahrepps og
Seltjamamess snúi sér beint til skrifstof-
unnar í Reykjavík þar til annað verður á-
kveðið.
★ Skrifstofan verður op-
in í dag kl. 2—4 e.h., sími
11514. Geríð skil sem allra
fyrst fyrir þeim miðum
sem þið erað þegar búnir
að sclja. Áríðandi er að
hraða skilum eins og hægt
er þar sem svo stuttur
tími er eftir. Skil utan af
landi skulu póstlögð til
skrifstofunnar.
Loksins er kominn skriður
á viðræður um samninqa
□ Loksins virðist ofurlítill skriður vera að komast á samningaviðræður |
milli samstarfsnefndar verkalýðsféla ganna og fulltrúa atvinnurekenda,
þótt enn sé ekki tímabært að spá neinu um niðurstöður þeirra viðræðna.
Frestur sá sem er til þess að ná samkomulagi rennur út 10. þ.m. og er því
orðið tímabært að hraða samkomulagstilraunum eins og frekast er kostur.
Rahbfundir um hæj-
armál í Kópavogi
Félag óháðra kjósenda
í Kópavogi mun í vetur
efna til vikulegra rabb-
funda um bæjarmál, og
verður fyrsti fundurinn
í félagsheimilinu Þing-
hól annað kvöld, mánu-
dag, kl. 8,30.
fyrr segir á hverju mánudags-
kvöldi kl. 8.30 í Þlnghól. Þar
munu mæta jafnan einhverjir
af aðal- eða varafulltrúum Fé-
lags óháðra kjósenda í bæjar-
stjóm Kópavogs.
Þetta verða óformlegir rabb-
fundir, þar sem menn geta
rætt saman nm bæjarmálefni
yfir kaffibollum.
Samningafundur sá er sátta-
semjari hélt í gærkvöld með
allri samstarfsnefnd verkalýðs-
félaganna og fulltrúum atvinnu-
rekenda stóð til kl. 2 í fyrri-
nótt og voru málin þar rædd
allítarlega en um árangur þeirra
viðræðna vörðust deiluaðilar
allra frétta í gær.
Ákveðið var þó á fundinum
að fulltrúar beggja deiluaðila
skyldu ræða við fulltrúa ríkis-
stjómarinnar hvor í sínu lagi.
Áttu þær viðræður að fara
fram í gær.
Þá hefur sáttasemjari boðað
til nýs fundar með deiluaðilum
í dag. Verður fundur með lands-
nefndinni, Iðjufélögunum og
jámiðnaðarmönnum kl. 2 í dag,
en með fulltrúum hinna verka-
lýðsfélaganna og fulltrúum at-
vinnurekenda kl. 8.30 í kvöld.
Hátíðahöldin í dag
Hátíðahöld stúdenta hefjast
í dag með guðsþjónustu í kap-
ellu Háskólans. Kl. 2 e. h. hefst
svo samkoma í hátíðasal Há-
skólans og hefur áður verið
skýrt frá dagskrá hennar. Að
lokum hefst svo hóf að Hótel
Borg kl. 19.
Tvö umferðar-
slysígær
I GÆBMORGUN urðu tvö um-
ferðarslys hér í Reykjavík
og meiddust tvær manneskj-
ur lítilsháttar í þeim.
ANNAÐ SLYSEO varð á mót-
um Skothúsvegar og Sóleyj-
argötu. Rákust tvær fólks-
bifreiðir þar saman og
meiddist stúlka er var far-
þegi í annarri þeirra smá-
vegis. Heitir hún Inga Hall-
dórsdóttir.
HITT SLYSEÐ varð á mótum
Rauðagerðis og Miklubraut-
ar. Valt steypubifreið þar á
veginum og klemmdist bif-
reiðarstjórinn, Stefán Páls-
son, með annan fótinn milli
hurðar og stafs.
Prestkosningarnar
fara fram í dag
í dag fara fram prests-
kosningar í Reykjavík, og
er nú mikið fjör í trúarlífi
höfuðstaðarins. Stuðnings-
menn hinna ýmsu hefðar-
klerka hafa sett upp há-
kristilegar kosningaskrifstof-
ur, og má með sanni segja
eins og stendur í Alþingis-
rímunum fomu, að „allir
þóttust vissir vera, vitlausir
að agitera“.
misst út af farminum.
Þegar blaðið nú er að
fara í pressuna hefur ekki
unnizt tími til að rannsaka
þetta dularfulla mál nán-
ar.
Félagið fitjaði upp á þessari
nýbreytni í fyrra og vegna
góðrar reynslu hefur verið á-
kveðið að taka upp þráðinn aft-
ur í vetur. Fundir verða sem
FUNDUR í SÓSÍALISTA-
FÉLAGINU Á ÞRIÐJUDAG
SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur fé-
lagsfund í Tjarnargötu 20 n.k. þriðjudagskvöld,
3. desember, kl. 8,30.
Fundarefni:
1. Kaupgjaldsmálin.
2. Félagsmál.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og
sýna félagsskírteini við innganginn.
Ríkisútvarpið efnir til
verðlaunasamkeppni
Rfkisútvarpið hefur ákveðið
að efna til samkeppni um frá-
sagnir frá hlustendum, er nefn-
ist: „Þegar ég var 17 ára“. Er
ætlazt til þess að þar sé fjallað
um minningar frá þessu aldurs-
skeiði, eða sagt frá lífsviðhorfi,
áætlunum, umhverfi eða öðru
slíku, sem hverjum höfundi þyk-
ir frásagnarverðast. Flutnings-
lengd frásagnanna í útvarpi
skal vera 20—30 mínútur og
æskilegt að höfundar flytji efnið
sjálfir, en einnig getur útvarpið
lagt til flytjanda, ef óskað er.
Fyrir bezta þáttinn greiðir út-
varpið 5.000 kr. verðlaun og
flutningsgjald í útvarp að auki.
En fyrir næstþezta þáttinn 3.000
kr. og flutningsgjald að auki.
Ríkisútvarpið áskilur sér rétt til
að kaupa allar þær frásagnir,
sem því berast, gegn venjulegu
gjaldi. Frestur til þess að skila
frásögnunum er til 31. janúar n.
k. Skulu handritin send í lokuðu
umslagi, merktu höfundarheiti
eða auðkenni. og í öðru lokuðu
umslagi meðfylgjandi. merktu á
sama hátt, fylgi rétt nafn og
heimilisfang höfunda.
Hólmsteins frá
Sandgerði saknað
Um klukkan eitt í fyrrinótt
barst Slysavamarfélaginu til-
kynning um að togveiðibátsins
Hólmsteins frá Sandgerði væri
saknað frá því morgunin áður
(föstudagsmorgun) Síðast heyrð-
ist til bátsins klukkan hálf tíu
þann morgun og var hann þá
um tíu mílur austur af Alviðm-
hömrum á leið til Yestmanna-
eyja. Báturinn er nýlegur, fram-
byggður og smíðaður í Njarðvík-
um. Á honum er fimm manna á-
höfn. Skipstjóri er Helgi Kristó-
) fersson, Sandgerði.
j Það var vélbáturinn Guðmund-
nr góði sem síðast hafði samband
við þá á Hólmsteini kl. 9,30 á
j föstudagsmorgun og talaðist þá
svo til með þeim að hafa sam-
band aftur eftir þrjá tíma. Þeg-
ar til kom náði skipstjórinn á
Guðmundi aldrei sambandi við
Hólmstein og hefur ekki heyrzt
frá honum síðan. Um þetta leyti
var mjög slæmt veður á þessum
slóðum, og báðir bátarnir á leið
í var til Eyja.
Frá því klukkan sex í gær-
morgun hefur verið gengið á f jör-
ur með suðurströndinni en ekk-
ert fundizt. Skilyrði voru þó
mjög góð, álandsvindur og gott
veður.
í allan gærdag leituðu flugvélar
og varðskip á líklegum slóðum en
án árangurs.
Þessir eru frambjóðendur:
1 Háteigsprestakalli séra Am-
grímur Jónsson, séra Lárus
Halldórsson, séra Ásgeir Ingi-
bergsson og séra Ingvi Þórir
Ámason.
t Langholtsprestakalli séra
Sigurður Haukur Guðjónssou
og séra Magnús Runólfsson.
t Ásprestakalli séra Grímur
Grímsson og séra Jónas Gísla-
son.
1 Bústaðaprestakalli er að-
eins einn umsækjandi, séra
Ólafur Skúlason.
t Grensásprestakalli séra
Ragnar Fjalar Lárusson og
cand. theol. Felix Ólafsson.
t Nesprestakalli séra Hjalti
Guðmundsson og cand. theoL
Frank M. Halldórsson.
Kosið er á þessum stöðumi
t Grensás- og Bústaðapresta-
kalli er kosið í Breiðagerðis-
skóla. I Ásprestakalli í Lang-
holtsskóla. t Langholtspresta-
kalli í Vogaskóla. 1 Háteigs-
prestakalli er kosið í Sjó-
mannaskólanum og í Nes-
prestakalli í Melaskólanum og
Mýrarhúsaskólanum.
Aðalfundur
Sósíalistafélags Kópa-
vogs verður haldinn mið-
vikudaginn 4. des. 1963
að Þinghól.
Dagskrá: Venjuleg að-
ilfundarstörf.
Stjórnin.