Þjóðviljinn - 23.12.1963, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 23.12.1963, Blaðsíða 12
Poloníus (Lárus Pálsson) kveður son sinn Leartes (Jóhann Pálsson) með hæfilcga viturlegum hollráðum hirðlífsins. Ófel- íu (Þórunni Magnúsdóttur er ráð lagt að binda ekki vonir við Hamlet. ýmsir þeir atburðir sem stað- settir eru í hallarsölum. En honum er síðan snúið á ýmsa vegu, til dæmis snýr hæsti hlutinn fram þegar vofa hins myrta konungs birtist, hann snýr til hliðar þegar Öfelia kemur svífandi inn eft- ir langri boglínu. Þessi hring- ur skal vekja edífðarkenndir með áhorfendum. Disley Jones sagði. að þá væri hans tilgangi náð ef tækist að skapa þessari sýn- ingu búning sem væri sem næst hugmyndum okkar um leikhús á dögum Shakespear- es sjáifs. Því væri nauðsyn- legt að sleppa öllum óþarfa á sviðinu, sem dreg'ð gæti athygli frá leikritinu sjálfu. Og skipti miklu máli að skapa þessum leik umgjörð sem gæti hugmynd um vídd, óendan- leika, stefndi að stór- mannlegum hreinleik í formi. E'nnig er skipt um fyrir opnum tjöldum til að tryggja góðan hraða. Þetta kvöld var fyrsta æf- ing sem leikarar fóru i þessa ágætu endurreisnar- búninga, sem draga svo á- gætlega fram karlmennsku og glæsileik ef nokkur er. Það var tölverður ys og þys á göngum þegar fram- hjá fóru stórkostlegir kjólar og traustvekjandi skikkjur. Þar fór Lárus Pálsson sem nú leikur þann hlálega og orðmarga Póloníus ráðgjafa; þegar Leikfélagið setti Hamlet á svið 1948 lék hann aðal- hlutverkið. Jóhann Pálsson. afskaplega skrautlegur í gerli Laertesar. Rúrik Haraldsson, fullur af góðvild einkavinar Hamlets, Hórasar. Einnig jafn velviljaður maður og Róbert Arnfinnsson með bandítta- skegg og dökka bauga morð- ingjans undir augum; hann leikur kónginn. Og Þórunn Magnúsdóttir sem fyrir að- eins nokki-úm mánuðum hlaut. sína eldskím í mjallhvítum síðkjói Júlíu á smáu sviði Leikhúss Æskunnar; nú skal þessi áræðna, varla tvítuga stúlka taka á sig bungar byrðar Ófelíu, ást Hamlets Hamlet (Gunnar Eyjólfsson) lætur ekkert tækifæri ónotað til að hrella Poloníus (Lárus Páls- son): þarna skal hann gleypa við hverri kenningu prinsins um skýjafar á himni: Öldungis rétt, skýið er eins og úlfaldi. Fyrir miðju Gísli Alfreðsson í hlutverki þess lymska Rósinkrans. ekki fisjað saman. Hann glímdi við alla þá púka sem dönsuðu innan i Pétri Gaut. Hann tókst á við vofu kyn- þáttahaturs í Andorra. Og hann leikstýrði Dimmuborg- um og hver veit hvað. Og nú hefur honum verið falið hlutverk hlutverkanna, Ham- let. Hann þarf að minnsta kosti ekki að kvarta yfir leið- indum lífsins. Að vísu haföi hent hann heilsufræðilegt ó- happ. En Gunnar var samt bjartsýnn og vitnaði til vit- urs læknis sem sagði: þaö er ekkert jafn auðvelt og að lækna leikara sem á erfitt hlutverk framundan. Og eng- an eins erfitt að lækna og inn, Benedikt Árnason, ný- kominn úr sighngum og ný- ráðin fastur leikari hjá Þjóðleikhúsinu. Og játaði að á honum hvíldi afskaplegur þungi ábyrgðar, en var jafn- framt bjartsýnn á góðan á- rangur. Við hlið hans sat enskur peysu-lalli og lista- maður, Disley Jones, ber- sýnilega mikiiil starfsmaður. Það er hann sem hefur gert leiktjöld og teiknað búninga og ' gott ef ekki saumað bá sjálfur. Leiktjöld (ef það er þá rétt að nota slíkt orð hér) eru mjög einföld að gerð. Hring- ur, sem hækkar inn til bak- sviðsins; innan hans gerast ★ etta var, sem fyrr segir, fyrsta æfing í búningum. og að sjálfsögðu gætti ákveð- ins stirðleika sem verður vafalaust horfinn þá er tjald- ið lyftist á jólum. Þess dags verður beðið með óþolinmæði, því víst verður þessi Hamlet- sýning mikill viðburður: stór- um hópi áf okkar beztu lista- mönnum er teflt fram til viðureignar við eitt mesta og erfiðasta verk gjörvallra leikbókmenntanna. Svipmót þess leikárs sem nú stendur yfir mun að verulegu leyti ákvarðast af öriögum þess- arar sýningar. Á.B. JÓLABOÐSKAPUR ÞJÓÐLEiKHÚSS ER Um jóilSn frumsýnir Þjóð- leikhúsið Hamlet. Vilhjálmur Shakespeare á fjögur hundruð ára afmæli innan skamms. Það er því eðlilegt að ýmislegt gangi á í heiminum. Það er til dæm- is vitað að Rússar hafa stefnt saman öllu sínu bezta liði til að gera Hamletkvikmynd. Kozintséf gerir myndina, Sjostakovítsj semur tónlist. Suður í Tanganyika hefur for- sætisráðherra landsins setið og býtt Shakespeare á tung- una swahili. Og þannig mætti lengi telja. Og íslendingar hanga sem sagt ekki í rófu atburðanna. öðru vísi mér áður brá. Sú var tíð að fjölmargir ágætir menningarfrömuðir, franskir og ekki franskir. á- litu Shakespeare svo rudda- legan og olebe’skan höfund að ekki kærm 11 mála að sýna hann á siðuðu leiksviði. Eitthvað hefur nú heimur- inn skánað síðan. og formælingar hans, föður- dauða og sturlun. Enda sat hún á stól og sá ekkert fram- ar. Og Gunnar Eyjólfsson. Þeim manni er sannarlega leikara sem á' ekkert hlut- verk í vændum. . . + Frammi í sal sat leikstjór- Andstætt öllum lögum 14ÁRA DRENGURÍ FANGAHÚSINU Á SKÓLA VQRÐUSTÍG 0 Um svipað leyti og dómur var upp kveðinn í oliu- málinu, varð fjórtán ára dreng úr einu fátækasta hverfi borgarinnar það á, að hrata út af þröngum dyggðavegi hins íslenzka þjóðfélags. Slíkir eru að sjálfsögðu teknir öðrum tökum en olíuforstjórar og til að. afbrot pilstins fyrntist nú ekki, var honum húsið við Skólavörðustíg. Barnavernd ÞJÓÐVILJINN hafði tal af formanni Barnaverndarnefnd- ar og sagði hann að pilturinn væri á hennar vegum. Honum hefði nú nýlega orðið á ýmsir alvarlegri hlutir en vanaleg bernskubrek og þvi talið nauð- synlegt að koma honum í tíma- bundna gæzlu og til yfir- heyrslu. En aðbúnaður Barna- verndarnefndar er með þeim umsvifalaust stungið í tugt- eindæmum að hún taldi sig i þessu tilfelli ekki eiga í annað hús að venda með drenginn. Formaðurinn tók þó skýrt fram, að nefndin forðaðist að koma skjólstæðingum sínum þarna fyrir og hefði það aðeins örsjaldan komið fyrir á und- anförnum árum. Hann sagði enn fremur, að svo fljótt sem auðið varð, hafi drengurinn ver- ið fluttur í húskofa uppí Ell- Framhald á 2. síðu. OPIÐ í DAG FRA KL. 10-12 OG 1-10 Á TÝSGÖTU 3 Eins og þið flest eflaust vitið frestuðum við drætti í happdrætti Þjóðviljans til 16. janúaf vegna verkfallanna sem staðið hafa yfir sið- ustu daga. Mjög góð skil hafa borizt til okkar fram að þessu en stór hluti þeirra! sem sent var til eiga þó eftir að gera upp fyrir það sem þeim var sent. Það eru vinsamleg tilmæli okkar til þeirra sem ekki hafa verið í verk- falli að þeir geri skil sem allra fyrst til okk- ar og helzt í dag, því ýmsar skuldbindingar eru á herðum okkar sem við þurfum að standa við í dag og strax eftir jólahátíðina. Við viljum enn einu sinni minna ykkur á hina glæsilegu 4 her- bergja íbúð sem við bjóðum upp á og 10 aðra glæsilega vinninga: húsgögn, ferðalög o.fl. Þá viljum við vekja athygli á söluverð- launum okkar sem einhver ykkar hiýtur sem eru á svæði 3ja efstu deildanna í Reykjavík eða kjördæmanna. Allir hafa því jafnan möguleika á að hreppa þau og fer það eftir dugnaði hvers byggð- arlags eða beztu skilum. Þessi verðlaun eru: saumavél (automat- isk), útvarpsstæki og ferð til Keupmannahafnar. Þannig að til mikils er að vinna. Við væntum þess aö tekið verði vel á í dag og næstu daga og birtum svo að lokum samkeppnina eins og hún stendur nú milli deilda og kjördæma: 1. 9. deild 84% 14. 11. deild 28% 2. 8. a. deild 57% 15. Norðurland eystra 27% 3. 4. a. deild 55% 16. 2. deild 26% 4. 1. deild 49% 17. 10. a. deild 26% 5. 5. deild 48% 18. 8. b. deild 25% 6. 6. dcild 47% 19. Kópavogur 23% 7. 10. b. 44% 20. 3. deild 22% 8. 15. deild 43% 21. Reykjanes 22% 9. 4. b. deild 42% 22. Norðurland vestra 22% 10. 7. deild 34% 23. 14. deild 21% 11. 12. dcild 34% 24. Austfirðir 18% 12. 13. deild 32% 25. Vesturland 15% 13. Suðurland 29% 26. Vestfirðir 15% Við óskum öllum gleðilegra jóla og þökkum öll þau góðu fram- lög sem okkur hafa verið send bæði fyrr og síðar. S JOMENN! Stjórnarkosningin í Sjómannafélagi Reykjavíkur fer frain á skrif- stofu félagsins í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Kosið er í dag, mánudag kl. 2—6 og á morgun, aðfangadag, kl. 10—11 f.h. Listi starfandi sjómanna er B-listi. Dragiö ekki að kjósa. Jólabazar Æskulýðsfylkingarinnar heldur áfram í dag kl. 17 í Tjarnar- gölu 20. i 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.