Þjóðviljinn - 04.01.1964, Blaðsíða 10
|0 SÍÐÁ
NEVIL SHUTE
ÞI6ÐVILIINN
Laugardagur 4. janúai 1964
og þama var hann eins og aevin-
lega, sofandi með dagblað yfir
andlitinu, rétt eins og hann
hefði aðeins farið í skrifstofuna
eða vörugeymsluna í Grafesend.
Sem snöggvast fann hún til von-
brigða og gremju; hana hafði
langað til að gera eitthvað sér-
stakt fyrir hann og nú var tæki-
færið liðið hjá.
Hún gekk út í garðinn og stóð
hjá stólnum hans. — Jæja. þú
ert dálaglegur náungi, sagði hún
blíðlega, að laumast svona inn
orðalaust og sofna undir dag-
blaði eftir ferðalag um allan
heim og ég veit ekki hvað. Er
engin rómantík til í þér?
Hann opnaði augun og ýtti
blaðinu frá sér. — Halló, sagði
hann viðutan. — Ég hef víst
gleymt mér sem snöggvast.
— Já. það má nú segja. Hún
brosti til hans. — Þú hefðir get-
að látið mig vita, að þú værir
að koma. Ég hefði tekið á móti
þér eða eitthvað.
Hann sagði: — Ég vissi ekki
sjálfur hvenær ég kæmi.
— Var þetta gott ferðalag?
Ég bjóst ekki við þér svona
fljótt heim aftur. Þú ert ekki
búinn að vera nema mánuð í
burtu.
— Já. sagði hann. — Réttan
mánuð. Það var lítið fyrir mig
að gera þama fyrir handan, svo
ég kom bara heim aftur.
Hún sagði: — Það hefur ver-
íð alveg vonlaust, eða hvað?
Hann leit upp. — Vonlaust?
Hvað áttu við?
— Með þennan náunga. sem
þú fórst að leita að, þennan
flugmann. Gaztu ekkert gert
fyrir hann?
— Fyrir hann? Tumer brosti.
— Þú verður hissa á þvi sem ég
segi þér núna, sagði hann. —
Hann lifir öðru lífi en við héld-
um. Hann er 1 betri atvinnu en
ég og býr líka við betri kjör.
Hann á heima í stóru húsi og
hefur eina fimm þjóna. Honum
er borgið.
Hún sagði undrandi: — En ég
hélt hann byggi með innfæddri
konu. Og svo bætti hún við
forvitnislega: — Sástu hana?
— Já. sagði herra Tumer. —
Eins viðkunnanleg stúlka og við
gætum bezta fundið í Watford
47
Hárgreiðslan
Hárgrelðsin o?
snyrtistofa STETNTJ og OÖDð
Langavegi 18 III. h. (lyfta)
SlMT 24618.
P E R M A Garðsenda 21.
SfMl 33968. Hárgreiðslu- o s
snyrtislofa.
Dðmnr! HárRrciðsla við
allra hæfi
TJARNARSTOFAN.
Tjarnargðtn 10. Vonarstrætls-
tnegln. — SÍMI 14662.
HARGRETÐSLOSTOFA
ADSTORBÆ.IAR
(Maria Guðmundsdóttir)
Langavegi 13 — SlMI '4656
— Nuddstofa á sama stað. —
eða jafnvel í Harrow. Þetta er
allt saman öðru vísi en við héld-
um.
Hún leit tortryggnislega á
hann. — Gat hún nokkuð taiað
í ensku?
— Betri ensku en þú og ég,
sagði Tumer. — Ég segi þér
satt, að herra Morgan hefur ver-
ið sæll og heppinn þegar hann
losaði sig við hinn kvenmanninn
og giftist þessari. Og þau eiga
tvo indæla krakka.
Hún sagði: — En hvemig eru
bömin eiginlega á litinn?
— Þau eru svona gulleit, svar-
aði hann. — Þau eru svona
helmingur af hvoru, ef svo
mætti segja.
— En agalegt!
— Ég veit svei mér ekki. sagði
Tumer. — Þetta er allt saman
svo ólíkt þegar maður er kom-
inn á staðinn. Gefðu mér teboila
og ég skal segja þér allt sam-
an.
Hún horfði á hann með dá-
litlum áhyggjusvip meðan þau
drukku teið. Hann hafði breytzt
þennan mánuð og ekki til hins
betra. Hann virtist hress og kát-
ur, en það var eins og hann
hefði rýrnað allur og orðið mátt-
lausari. Það bar meira á van-
mætti hægri handarinnar og
hann átti erfitt með að beita
henni við borðið; hann notaði
vinstri höndina æ meira. Hún
gerði sér Ijóst, að þetta var eitt
af því sem hlaut að koma; héð-
an í frá hefði hann vaxandi
þörf fyrir hana.
Hún sagði: — Hvernig hefur
þér sjálfum liðið, Jackie? Hef-
urðu fundið nokkuð til eða
fengið þessi yfirlið?
Hann sagði: — Ég datt og
vissi ekki af mér í þrjá klukku-
tíma.
— Þrjá klukkutíma! Hún var
dolíallin. Var nokkur hjá þér?
Hann sagði henni hvað hefði
komið fyrir og hvað hefði verið
gert. — Þau reyndust mér ákaf-
lega vel, sagði hann. — Þau
gerðu allt fyrir mig sem unnt
var. Það var enginn læknir á
staðnum, en ég þurfti ekki
lækni. Ég jafnaði mig sjálfur.
Hún sagði: — Þú ættir að
tala við North lækni fyrst þú
ert kominn heim.
— Ég kæri mig ekki um að
tala við fleiri lækna. sagði herra
Tumer. — Ég veit hvað bíður
mín og það þýðir ekkert að
æðrast útaf því og sóa tímanum
fyrir öðru fólki.
Þau sóttu annan stól og báru
út í garðinn og sátu saman
meðan hann sagði henni frá
ferðalaginu og hvað á dagana
hefði drifið. Það tók klukku-
stund. Hún hlustaði vandlega,
reyndi að skilja þá breytingu
sem orðið hafði á viðhorfum
hans. Loks sagði hún:
— Jæja, hvað ætlarðu núna
að gera, Jacky? Ætlarðu að
byrja aftur á skriístofunni?
Hún hafði sjálf unnið mörg
ár á skrifstofu. Hún vissi að víð-
ast hvar er einstaklingum sýnd
nærgætni, og hún vissi að í hans
tilfelli yrði ekki gerður neinn
skarpur greinarmunur á fullu
starfi og sjúkraleyfi; meðan
hann sýndi sig öðru hverju og
gerði eitthvert gagn, þegar hann
gat, myndi hann fá laun sín
greidd. Sjúkraleyfi hans byrjaði
ekki fyrr en hann hefði ekki
látið sjá sig í hálfan mánuð
eða svo.
Hann sagði: — Ég býst við
því. Hann hugsaði sig um and-
artak og sagði svo: — Ég fór
að hugsa um hina tvo, liðþjálf-
ann og svertingjann. Ég hef
ekki svo miklar áhyggjur af
svertingjanum lengur; hann virð
ist hafa sloppið sæmilega. En
ég vildi gjaman vita hvað orð-
ið hefði um Brent liðþjálfa.
Hún sagði: — Þú þarft áreið-
anlega ekki að hugsa meira um
svertingjann, Jacky. Hann er
sjálfsagt kominn heim til Nash-
ville aftur. Honum er borgið.
— Já. sagði hann með hægð.
— Líkast til er honum borgið.
Ég býst ekki við að ég leiti
neitt að honum. Það er bara
Duggie Brent núna.
Konan hans sagði: — Ég býst
við að það sé líka allt í lagi
með hann.
— Kannski, sagði herra Tum-
er hugsandi. — En mig myndi
langa til að vita vissu mína.
1 fjarlægð heyrðu þau kirkju-
klukkuna slá sex. Mollie spurði
hvað hann vildi gera um kvöld-
ið og Tumer sagði, að það væri
kannski gaman að skreppa út í
Barley Mow. Hún mótmælti því
á þeim forsendum að hann væri
þreyttur eftir ferðina og hafði
sitt fram. Þess í stað héldu þau
áfram að tala um ferðalag hans
og námskeiðið sem hún sótti í
skrifstofustörfum og þegar kóln-
aði færðu þau sig inn í stofuna
og kveiklu á útvarpinu og hlust-
uðu á framhaldsleikritið og
herra Tumer sem hafði saknað
þess mjög meðan hann var í
Burma, hlustaði og hló þar til
tárin streymdu úr augum hans
til samlætis óðrum fimmtán
milljón manneskjum í Bretlandi.
Hann fór í skrifstofuna dag-
inn eftir og þar fann hann verk-
efni við sitt hæfi og hann sagði
framkvæmdastjóranum frá herra
S. O. Chang í Rangoon. Vinnu-
félagarnir tóku allir eftir þeirri
breytingu sem orðið haíði á hon-
um; herra Parkinson leit á það
sem staðfestingu á dauðadómn-
um.
Hann fór aftur í skrifstofuna
eftir hádegið, fór síðan út og
tók sér far með sporvagni til
Notting Hill Gate. Hann gekk
hægt yfir að Ladbroke torgi,
gekk upp þrepin og barði að
dyrum. Aftur var það systir
Morgans sem opnaði fyrir hon-
um eins og fyrir fimm vikum. i
— Gott kvöld, sagði hann. '
— Ó, — eruð það þér, sagði
stúlkan. i
— Já, reyndar sagði hann.
— Það er ég sjálfur. Ég er bú-
inn að heimsækja hann bróður
yðar í Mandinaung, ungfrú
Morgan. Ég sagði honum að ég
ætlaði að heimsækja ykkur þeg- |
ar ég kæmi heim. Ég þarf að |
segja móður ykkar sitt af
hverju.
Hún starði á hann. — Fóruð
þér til bróður míns, — í Burma?
— Stendur heima.
Hún færði sig ekki frá dyr-
unum og bauð honum ekki inn.
S K OTTA
Nú er þó sannarlega kominn tími til að sett verði á
bann" hér í húsinu bróðir sæll.
„tilrauna-
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Framhald af 7. síðu.
Aðstoð í
húsnæðismálum
Ein af tillögum borgarfull-
trúa Alþýðubandalagsins var
um nýjan lið í fjárhagsáætl-
uninni: aðstoð við húsnæðis-
lausar fjölskyldur 1 millj. kr.
Sagði Alfreð, að þessi fjár-
veiting væri miðuð við að
fjárhagslega illa stæðu og fá-
tæku fólki yrði veitt nokkur
aðstoð til að komast í húsnæði.
greiða fyrir því að það gæfi
tekið íbúðir á leigu t.d. með
þvi að útvega lán til greiðslu
á fyrirfram krafinni húsaleigu
o.s.frv.
Tillaga um nýjan lið var
einnig 500 þús. kr. framlag
til stofnunar hljómplötusafns.
er starfaði sem útlánasafn
með líkum hætti og bókasöfn-
in. Þá var gert ráð fyrir hærra
framlagi til Lúðrasveitar
verkalýðsins en á fjárhagsáætl-
uninni, 000 þús. króna í stað
700 þús. kr. yrði varið til
sumardvalar fyrir mæður og
böm og 100 þús. króna í stað
60 þús. kr. til blindrastarfsemi.
Kirkjubyggingar
— almannavarnir
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins lögðu ennfremur til að
tveir liðir fjárhagsáætlunar-
innar yrðu felldir niður, sam-
tals að fjárhæð 2,2 mi'llj. króna.
Annar þessara liða var
kírkjubyggingasjóður, en til
hans voru áætlaðar 1,2 millj.
króna. Alfreð Gíslason kvað á-
stæðuna fyrir tillöguflutningi
Alþýðubandalagsmanna í sam-
bandi við kirkjubyggingasjóð
í stultu máli þessa: Húnæð-
’nvandræðin hafa aldrei verið
jafn geigvænleg hér í Reykja-
vík og nú, a.m.k. ekki síð-
ustu áratugina. Svo mikil eru
vandræðin, að borgarstjómin
verður sjálf að bjóða fólki upp
á heilsuspiliandi íbúðir. Með-
an svo er ástatt er mun meiri
ástæða til að verja þessum 1,2
millj. króna til íbúðabygginga
en kirkjubygginga.
(Framsóknarmenn i borgar-
stjóminni töldu hinsvegar sjálf-
sagt að verja meira fé til
kirkjubygginga í Reykjavík en
íhaldið hafði áætlað og fluttu
um það tillögu. Bar sá til-
löguflutningur þann árangur
að íhaldsmeirihlutinn flutti til-
lögu um að framlagið til
kirkjubygginganna yrði hækk-
að úr 1,2 millj. í 1,6 millj
króna!)
Hinn liðurinn, sem borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins
Iögðu til að felldur yrði niður
úr fjárhagsáætluninni. var
einnar milljón króna framlag
til svonefndra almannavarna.
Alfreð sagði I þessu sam-
bandi, að með því að gera
ráð fyrir framlagi til almanna-
varna væri verið að gera ai-
varlcgt mál hlægilegt. Aætl-
unarfjárhæðin myndi rétt
nægja til að standa undir
nefndakostnaði, skrifstofu og
starfsmannahaldi. Um velferð
fólksins sjálfs virtist Iítt hugs-
að, cnda væri ekki um nein-
ar dugandi almannavamir að
ræða aðrar en þær, að leggja
niður erlcndar herstöðvar á
Islandi, afmá hcrnaðarmann-
virkin og vísa hemum burt úr
Iandinu.
Lán til
íbúðabygginga
I lok ræðu sinnar gerði Al-
freð grein fyrir þeim tillög-
um, sem borgarfulltrúar Al-
KIPAUTGCRB RIKISINS
HEKLA
fer austur um land í hringferð
9. þ.m. Vörumóttaka árdegis í
dag og á mánudag til Djúpa-
vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar-
fjarðar. Fáskrúðsfjarðar, Norð-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Borgar-
fjarðar og Vopnafjarðar. Far-
seðlar seldir á miðvikudag.
HERÐUBRETÐ
fcr til Homafjarðar í næstu
| viku. Vörumóttaka árdegis í dag
og á mánudag.
Þetta er ólikt flottari bíll en
þinn Lúlli.
Uss þessi er eins og hun-
angskaka. Má ég þá heldur
biðja um minn eigin bíl þótt
útlitið sé ekki eins fallegt.
Maður veit þó nákvæmlega
hvað er stærsti kosturinn við
hann.
. þaO eru hjoiin.
TECTYL
e» rvðvnrn
þýðubandalagsins gerðu við
eignabreytingalið f járhagsáætl-
unarinnar.
Þeir lögðu til að tekjumegin
yrði nýr liður: 20 millj. króna
lán til íbúðabygginga. Gjalda-
megin yrðu stórfelldar breyt-
ingar til hækkunar á þeim
liðum er snertu skólabyggingar
(úr 18 í 21 miUj.), nýja leik-
velli og útivistarsvæði (úr 2
í 2,5 millj.), almenningsnáðhús
(úr 1 í 2 millj.), bamaheimili
(úr 12 millj. 1 14), kennshi-
tæki (úr 1,2 miUj. í 1,5 mUlj.)
og framlag til Byggingarsjóðs
Reykjavíkurborgar (úr 12
millj. króna í 44,5 miflljón-
ir). Á nýjum lið yrði varið
500 þús. kr. til undirbúnings
byggingu aðalbókasafns í
Reykjavík, en liðurinn afborg-
anir lækkaður úr 20 milljón-
um í 15 miUjónir króna.
Bæta þarf úr
gamalli vanrækslu
Guðmundur Vlgfússon lagði
áherzlu á það við umræðuna
um fjárhagsáætlun Rcykjavík-
urborgar að breytingartillögur
borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins stefndu að þvi að meira
hóf væri haft á rekstursút-
gjöldum borgarsjóðs, en auknu
fjármagni hinsvegar varið til
brýnustu framkvæmda, ekki
hvað sízt í húsnæðismálunum.
1 tillögum Alþýðubandalagsins
væri miðað við að áætlaðar
tekjur hækkuðu um 4,4 millj-
ónir króna en gjöldin lækkuðu
um 10,4 milljónir, þannig að
þessari upphæð, um 14,8 millj.,
ásamt 20 millj. króna Iáninu
yrði varið til íbúðabyggingar-
mála.
Guðmundur bcnti á, að til-
Iagan um hækkun framlags-
ins til skólabygginga byggðist
á því sjónarmiði að farið yrði
cftir áætlun fræðsluráðs um
skólabyggingar í borginni. cn
500 þús. króna hækkunin til
leikvalla og útívistarsvæða
miðaði cinungis við að halda
í horfinu. Svipaða hækkun
þyrfti að gcra á framlögum til
Icikskóla og barnahcimila, cn
á þeim vcttvangi væru mikil
og mörg verkefni óleyst vcgna
vanrækslu undanfarinna ára.
★
Ekki eru tök á að rekja að
sinni fleiri atriði sem fram
komu i umræðunum um fjár-
hagsáætlun Reykjavfkurborgar
fyrir áramótin. ! lokin skal
bað aðéins endurtek'ð sem
drepið var á í upphafi, að all-
ar breytingatillögur minnihluta-
flokkanna í borgarstiórn felldu
thaldsfulltrúarnir að fáe'num
smábrevtingum undanskiidum.
Þannig bar áætlunin sama
Casta svipmót'ð. sem íhalds-
meirhlutinn hafði búið áætlun-
arfrumvarpinu við framlagn-
ingu þess.