Þjóðviljinn - 14.01.1964, Side 1
DRFIFING BLAÐSINS
Góð hverfi í Reykjavík eru laus strax. — Sjá 2. síðu.
Afgreiðsla ÞJÓÐVILJANS
Reykjavík, sími 17-500.
Reglur settar um
hleðslu skipa á
vetrars/ldveiðum
■ 30. desember s.l. gaf samgöngumálaráðuneytið út reglu-
gerð um hleðslu síldveiðiskipa á vetrarsíldveiðum en eng-
ar slíkar reglur voru áður til. Meðan vetarsíldveiðar
voru lítið stundaðar og ekki með þeim aflatækjum sem
nú hafa verið tekin í notkun þótti ekki ástæða til að
set’ja aðrar reglur um hleðslu á vetrarsíldveiðum en
þær sem gilda um sumarsíldveiði, en dýrkeypt reynsla
undanfarinna ára hefur fyrir löngu gert setningu strang-
ari reglugerðar nauðsynlega.
Reglur þær sem gilda um
Ihleðslu skipa á sumarsíldveið-
um eru ekki mjög strangar né
ýtarlegar og á meðan vetrar-
síldveiðar voru lítt stundaðar
MIKIL
SÍLD-
VEIÐI
MIKIL SlLDVEIÐI var í fyrri-
nótt í Skeiðarárdýpi og höfðu
39 skip tilkynnt samtals
39800 tunnur. Landlega hefur
verið í Eyjum, en með batn-
andi veðri um helgina létu
margir síldarbátamir úr höfn
á sunnudag og fengu ágætis-
veiði.
VARÐSKIPIÐ ÆGIR lagði út í
fyrradag í nýjan rannsóknar-
leiöangur á vegum Fiskideild-
ar og verður Jakob Jakobs-
son, fiskifræðingur leiðangurs-
stjóri. Ætlunin er að kanna
Frhmhald á 9. síðu.
og með reknetum nær eingöngu,
var sjaldan um aflamagn að
ræða er teflt gæti skipum í
voða vegna ofhleðslu. En þeg-
ar vetrarsíldveiðar hófust í
mjög auknum mæli fyrir nokkr-
um árum vegna tilkomu betri
tækja og djarfari sóknar hefur
komið í ljós að full þörf er að
setja strangari reglur um hleðslu
síldveiðiskipa.
Reglur þær sem nú hafa ver-
ið settar munu vera samdar af
skipaskoðun ríkisins og nær
engum breytingum tekið í með-
ferð ráðuneytis. í>ær eru birt-
ar í Lögbirtingarblaðinu frá 8.
janúar þetta ár.
Helstu ákvæði
Helstu ákvæði reglugerðarinn-
ar eru, að eigi má lesta skip
dýpra en að efri brún þilfars
við skipshlið, lestarlúkur skal
skálka þegar skipið hefur ver-
ið fermt og ströng fyrirmæli
eru um hleðslu lesta með hill-
um, þ.e.a.s.: skipstjóra ber að
sjá svo um að alltaf sé fyllt
neðst í lest, undir hillum, og ó-
heimilt er að skilja eftir ófyllt
rúm neðarlega í lest.
Brot við reglunum varða refs-
ingu samkvæmt XI. kafla laga
nr. 50, 30. júlí 1959, um eftirlit
með skipum.
Fundur Kvenféiags sósíal-
ista annað kvöld
Kvenfélag sósíalista heldur félagsfund í Tjarnargötu 20 annað
kvöld, miðvikudag, kr. 8.30 stundvíslega.
Fundarefni:
1. Skúli Nordahl arkitekt talar um sambýlishús.
2. Helga Rafnsdóttir segir fréttir af fundi Bandalags kvenna
í Reykjavík á sl. hausti.
3. Félagsmál.
Stjórnin.
Tveir Eyjabátar fórust á
síldveiðum í fyrrinótt
HEFSTÍ KVÖLD
I kvöld kl. 7 hefst í Lídó fyrsta alþjóðaskákmót sem haldið er hér á Iandi og eru fimm eriendir
meistarar meðal þátttakenda. Myndin er tekin á blaí umannafundi í gær og sjást þeir ræðast
við stórmeistaramir Friðrik og Gligoric og á milli þeirra stendur Asgeir Þór Asgeirsson forseti
Skáksambands fslands. Sjá nánar frétt á 12. síðu. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Stjórnarkjör í verkaiýðsfélagi Borgarness:
Góður sigur vinstrimanra
■ í fyrradag lauk tveggja daga stjórnarkjöri í Verka-
lýðsfélagi Borgamess. Sóttu hægrimenn nú sem fyrr
fast að stjórn félagsins, en fengu mun verri útkomu
en í fyrra. A-lisíi, listi st'jórnar og trúnaðarmannaráðs,
hlaut nú 95 atkvæði en B-listinn 75.
1 fyrra varð að kjósa tvisvar
i félaginu. I fyrri kosningunni
urðu listamir jafnir, fengu 82
atkvæði hvor, en í þeirri síðari
sigraði- A-listinn með 94 at-
kvæðum, en B-listinn hlaut 88.
Þótt B-listinn, sem studdur er
af ríkisstjómarmönnum og
hægra armi Framsóknar. fengi
nú mun verri útkomu en í fyrra,
var ástæðan ekki sú að ekki
væri reynt til þrautar. B-listinn
starfrækti sérstaka kosninga-
skrifstofu, hafði bíla og sótti
menn langar leiðir, og færir sú
þrautseigja félaginu raunar mjög
góða heimtu á félagsgjöldum.
Stjóm Verkalýðsfélags Borgar-
ness er nú þannig skipuð: For-
maður Guðmundur V. Sigurðs-
son; ritari: Sigurður B. Guð-
Frhmhald á 9. síðu.
HRINGVER VE 393 sendi út
neyðarkall um kl. sex í gær-
morgun og var báturinn þá
staddur á síldveiðum á austan-
verðu Síðugrusni.
Frá þvi Hringver sendi út
neyðarkall liðu aðeins fimm
mínútur unz skipið var horfið
í djúpan mar. Skipverjar voru
að háfa og voru langt komnir að
fylla lestina. Höfðu þeir háfað
um 1100 tunnur.
Allt f einu slóst skipið til á
stjórnborða og lagðist á hliðina
og rejmdist útilokað að rétta það
við. Svo bar þetta brátt að, að
skipverjar höfðu ekki tíma til
þess að setja á sig björgunar-
belti og hrukku margir útbyrð-
is, þegar þeir reyndu að koma
björgunarbát út.
Svömluðu þeir þarna í sjónum
nokkru stund. Eindæma veður-
bliða var á þessum slóðum f
gærmorgun og má það teljast
mikil mildi eins og á stóð. Síld-
arbáturinn Ámi Þorkelsson KE
46 var staddur að veiðum ekki
langt frá og kom fljótlega á
vettvang og tíndi skipverja
hvem af öðrum upp úr sjónum
og sakaði engan þeirra.
Hringver var stálbátur, 126 t.
að stærð. smíðaður í Djúpvík í
Sviþjóð árið 1960. Báturinn var
eign Helga Benediktssonar í Eyj-
um.
Á síðustu vertíð fór Hringver á
Framhald á 4. síðu.
■ Snemma í gærmorg-
un sukku tveir Eyjabát-
ar á síldarmiðunum á
Skeiðarárdýpi. Mann-
björg varð af báðum
bátunum. Þetta voru
bátarnir Hringver VE
393 og Ágústa VE 350.
■ Eindæma veðurblíða’
var á þessum slóðum í
gærmorgun en þó var
þungur sjór. Mönnunum
var fljóflega bjargað um
borð í aðra báta. Þeir:
komu inn til Eyja í gær-
dag með bjargvæ’ttum
sínum og voru hressii;
og hafði ekki sakað.
OPIÐ TIL KLUKKAN 7 í KVÖLD
í gær og fyrradag voru
ágætir dagar þó engin deild-
in færi í 100% en tvær eru
mjög nálægt því, og eflaust
ná þær markinu í dag. Marg-
ar deildir hafa sótt vel á og
þarf nú að gera allsherjar
ráðstafanir í öllum deildum
til þess að hreinsa upp.
Nokkrar deildir hafa skorað
á hvor aðra i samkeppninni
og er harðvítug barátta
þeirra í milli. Úti á landi
eru eftir þó nokkur skil og
er nú hver síðastur að póst-
leggja skjl til okkar eða skila
til umboðsmanna. Við vilj-
um í þvi sambandi minna á
þá, en nöfn þeirra höfum
við birt hér í blaðinu. Þá
höfum við verið beðnir um
að skila því til Selfyssinga
að umboðsmaður þeirra er
Þormundur Guimundsson
Miðtúni 17 og er hægt að
gera skil til hans. í Hafnar-
firði er hægt að gera skil til
Hjartar Gunnarssonar Mosa-
barði 14 eða Geirs Gunnars-
sonar Þúfubarði 2. Við birt-
um svo samkeppnina dag-
lega úr þessu, næst á morg-
un. Röð deildanna er nú
þannig:
1. 9 delld
2. 14 —
3. 8a __
4. 15 —
5. 6 —
6. 5 —
7. 13 —
8. 4a —
9. 1 —
10. 4b —
11. lOb —
12. 12 —
13. Vestfirðir
14. Norðurland v.
15. 2. deild
16. 8b —
17: 7 —
ÞRÍR DAGAR EFTIR.
ii _ 44%
10a — 43%
Austurland 40%
Suðurland 40%
Kópavogur 39%
Reykjanes 39%
3 dejld 36%
Norðurland e. 28%
Vesturland 24%
99%
99%
89%
85%
78%
76%
72%
71%
70%
69%
57%
50%
50%
49%
48%
47%
44%
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.