Þjóðviljinn - 14.01.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.01.1964, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 14. janúar 1964 HÓÐVILIINN SÍÐA 5 ☆ Hið alþjóðlega Lauberhorn- skíðamót fór fram um síð- ustu helgi, en þar er keppt svigi. Þetta er vandasöm og erfið keppni og ekki á færi nema afburðamanna að kom- ast brautirnar klakklaust á enda. 70 menn hófu keppn- ina, en aðeins 40 gátu lokið henni. Hríðarveður var á, þegar keppnin var háð. Úr- slit í samanlögðu svigi og stórsvigi: 1) Gerhard Henn- ing, Austurrki. 2) Ludwig Leitner, V-Þýzkal., 3) Miohel Arpin, Frakklandi, 4) Karl Sohranz, Austurríki. ☆ Ýmsir beztu skautahlaup- arar Evrópu tóku þátt í al- þjóðlegu móti í Osló um síð- ustu helgi. 500 m: 1. Kaplan (Sovétr.) 41,6 sek., 2. Haug- en (Noregi) 41,8, 3. Gjest- vang (Noregi), 4. Guljajev (Sovétr.). 1500 m: 1. Liebre- eha (Hollandi) 2.11,0 mín, 2. Habibubilin (Sovétr.) 2.11,8, 3. Jumasjev (Sovétr.), 4. Verkerk (Hollandi), 5. Haug- en (Nor.) 5000 m: 1. Jumasj- ev (Sovétr.) 7.55,9 mín., 2. Johannesen (Noregi) 7.56,6, 3. Liebrec'ht (Hollandi) 7.58,8. —☆— ☆ Norðmenn hafa nú tryggt sér þátttöku í aðalkeppni Heimsmeistaramótsins í hand- Nenninger. knattleik, sem fram fer í Prag í marzmánuði. Þeir unnu báða leikina um keppni- réttinn við Hollendinga, þann siðari i Amsterdam sl. laugardag. Úrslitin urðu þá 19 : 18. —☆— ☆ Sænska meistaramótið í skautahlaupi fór fram um síðustu helgi, og varð heims- meistarinn, Jonny Nilsson, sænskur meistari. Annar varð Ivar Nilsson. Jormy sigraði í 10.000 m, 5000 m, og 1500 m. íslandsmótið í handknattleik JAFNTEFLIHJÁ FH 0G ÍR, - FRAM VANN ÁRMANN Á sunnudagskvöldið áttust við í 1. deild karla ÍR og FH, og var fyrirfram gerf ráð fyrir auð- veldum sigri FH. Sú varð þó engan veginn raun- in, því leikurinn var allan tímann jafn og mjög spennandi, og lauk með jafntefli. Fram vann yfirburðasigur yfir Ármanni, eins og búizt hafði verið við. Fram—Ármann 34:19 Þó Ármenningum tækist að skora fyrsta markið, var fyrri hluti hálfleiksins fyrri heldur slappur af þeirra hálfu, og voru Framarar komnir í 9:3 eftir 12 mínútur, en þá sóttu Ármenningar sig og áttu góð- an kafla og lauk hálfleiknum með 16:11 fyrir Fram. Hélt þetta áfram fyrstu mínútum- ar í síðari hálfleik, og stóðu leikar þá 18:13, en þá eru það Framarar sem taka til sinna ráða og sækja fast, og fá Ár- menningar ekki við neitt ráðið. Um miðjan síðari hálfleik standa leikar 27:15, og má segja að þetta hafi haldið á- fram það sem eftir var, og lauk leiknum með 15 marka mun eða 34:19. Fram sýndi enn að þeir eru ekkert lamb að leika sér við, og geta þegar þeir vilja sett upp hraða, og leikskipulag sem hentar hverju sinni. Þetta er líka orðið svo samrunnið lið, þar sem sameinað er mjög já- kvæður leikur á Línu, og lang- skot. Guðjón Jónsson er snjall í langskotum og ákaflega lag- inn að senda inn á línu, enda kann Sigurður Einarsson sitt ,,fag” sem línudansari”. Ingólfur átti mörg snjöll skot í gegnum vöm Ármanns, sem kom markmanninum al- veg á óvart, annars var Ing- ólfur heldur óheppinn með skot sín í þessum leik, og skoraði þó 13 mörk! Ármenningar réðu ekki við Fram að þessu sinni, en alltaf finnst manni sem þeir nái ekki því út úr leik sínum sem manni finnst búa í hverjum einstökum manni, Hörður ber þar höfuð og herður yfir aðra leikmenn bæði í sókn og vörn og hann er einn þeirra manna sem tekur leik sinn mjög al- varlega og með samviskusemi. Þeir sem skoruðu fyrir Fram voru: Ingólfur 13, Guðjón 5, Sigurður og Tomas 3 hvor, Á- gúst, Gylfi, Hilmar, Jón Frið- steins., og Karl 2 hver, og hafa þannig allir skorað meira en eitt mark! Fyrir Ármann skoruðu: Hörð- ur 9, Ámi og Jakob 3 hvor, Hans 2 og Lúðvík og Ingvar 1 hvor. Dómari var Magnús Pðturs- son, og var röggsamuc, og virðist sem dómarar séu fam- ir að taka strangar á bnotum en fyrr f vetur og er heldur meira samæmi að færast í FH—ÍR 27:27 Til að byrja með höfðu FH- ingar heldur forystuna, en þó munaði ekki nema 1—3 rnörk- um lengst af fyrri hálfleikin, en þar kom þó að iR-ingum tókst að jafna á 12:12 og aftur á 13:13 og 14:14, en hálfleiikur- inn endaði 16:14. Þetta heldur áfram fram í miðjan seinni hálfleikinn að FH hefur forustuna en IR jafnar stöðugt. En þá eru það ÍR-ingamir sem komast yfir 19:18, og þeir komast í 22:20. Hafnfirðingunum tekst að jafna á 23:23, en baráttan held- ur áfram og iR-ingar láta eng- an bilbug á sér finn nema síð- ur sé og komast í 26:23, og þar með var sigur þeirra talinn öruggur. FH-ingar sækja nú hart, því stutt er til leiksloka, og verjast iR-ingar af miklu kappi, og eru dæmd á þá þrjú vítaköst í röð, og skoraði Ragn- ar úr þeim öllum, og voru þeir þá komnir yfir 27:26, en nokkru fyrir leikslok skorar Hermann fyrir IR og jafnar, og þannig lauk þessari spertn- andi viðureign. Gróandi / handknatt- leik kvenna En betur má ef duga skal Á laugardagskvöldið fóru fram fyrstu þrír leik- irnir í meistaraflokki kvenna á íslandsmótinu í handknattleik. Voru 6 lið í eldinum. FH-stúlk- urnar sátu hjá. Ef litið er á flokka þessa í heild, virðist heldur vera gróandi í kvennahandknatt- leiknum og framför frá því í fyrra, og er það gleðiefni. Má það heldur ekki seinna vera, ef litið er til þess stóra verkefnis sem handknattleiks- kvennanna bíður hér í sumar, sem sé að taka á móti landslið- um Norðurlandanna í keppni um Norðurlanda-meistaratitil- inn á þessu ári. Þetta rúma hálfa ár er síst of mikið til að herða hverja og eina til þeirra átaka, því mikið má enn til þess að flestar þessara stúlkna séu í þeirri þjálfun sem slík keppni krefst á stórum velli. Ármann- 13:5 -Fram Fyrsti kvennaleikurinn var á millí Ármanns og Fram, og tók Armann leikinn þegar í byrjun í sínar hendur. Var all- ur fyrri hálfleikur svo ójafn að furðu sætti, miðað við það að Fram-stúlkumar höfðu ým- islegt til síns ágætis, þótt margt vantaði. Lauk þeim hálfleik með 9:1 fyrir Ármann sem sýnir yfirburðina, en svo undarlega bregður svo við að síðari hálfleikur varð jafn — 4:4! Kom þar tvennt til: Fram- stúlkurnar voru ákveðnari og lokuðu vörn sinni mun betur, og eins hitt að Ámann gaf eft- ir. Einstaklingar Ármanns voru mun sterkari, og hefði liðið því ekki átt að gefa svona eft- ir í síðari hálfleik, og er það nokkur áminning til liðsins. Það var útaf fyrir sig góð frammistaða hjá Fram að geta stöðvað Ármann í síðari hálf- leik, og ætti að vera góð upp- örfun, sem gæti gefið liðinu meira sjálfstraust. I liði Ármanns sýndi Díana oft góðan leik og skoraði flest mörk. Góðar voru líka Sigríð- ur Kjartans, Ása og Steinunn Úr Iciks Vals og Víkings í m.fl. kvenna. Valkyrjan er komin í skotfæri. — (Ljósm Bj. Bj.). og markmaður liðsins sýndi einnig góð tilþrif. Varðar þetta sérstaklega fyrri hálfleik. Framliðið er jafnt án þess að ein beri verulega af annarri. Kristín á ýmislegt gott til, en hefur ekki enn náð þeim til- þrifum sem hún sýndi í Ár- manni þegar hún lék þar, en þetta kemur. Þær sem skoruðu fyrir Ár- mann voru Díana 6, Steinunn 4, Svana Ása og Sigríður Kjartans 1 hver. Fyrir Fram skoruðu Guðrún 2, Geirrún Kristín og Hrafn- hildur 1 hver. V alur—V íkingur 12:10 Þessi Ieikur var jafn og spennandi frá byrjun. Vals- stúlkumar komust þá til að byrja með í 3:4. 5:5, og hafði Valur haft forystuna, en rétt fyrir hálfleikinn 6:5 fyrir Vfk- ing. Valur jafnar rétt eftir hléið, en Víkingur tekur enn forustuna, og virtist sem nú myndu hinar ágætu Víkings- stúlkur fylgja eftir og taka bæði stigin, en Val tekst enn að jafna 7:7 og var þá sem heldur drægi úr Víkingsstúlk- unum, sem Valsstúlkumar not- uðu sér. Að vísu tókst Víking að ná jöfnu 9:9 sem þó var ,heppnis,-skot‘ en Valsstúlk- umar tóku betri endasprett en búizt var við, og unnu með tveggja marka mun. Sigríður Sigurðardóttir leik- ur nú aftur með meistaraflokki Vals, en hún meiddist á hendi í haust og hefur því lítið getað leikið og æft. Koma hennar i liðið er vafalaust styrkur fyrir liðið, þó hún sé ekki nærri þvi bezta sem hún hefur sýnt áður. og kemur þar til bæði grip, skot og úthald, en hún verður ekki lengi að ná því upp aftur, bótt móðirin og húsmóðirin hafi meiri afsökun en þær sem hafa ekki slíkum skyldum að gegna. Sigrún er stöðugt vaxandi og Þórdís einnig. Katrín í mark- inu varði oft laglega. I heild féll liðið nokkuð vel saman. og á að geta náð mun lengra en það náði í þessum leik. Lið Víkings er töluvert kröftugt lið og gerir margt lag- lega og það er í stöðugri fram- för. Einna beztar voru Guð- björg, Rannveig og Halldóra og Ragnar Jónsson tvhendir knettinum að márki IR í hinum geysí- spennandi Ieik liðanna í fyrrakvöld. — (Ljósm. Bj. Bj,). Þennan árangur geta ÍR-ing- ar þakkað fyrst og fremst hin- um unga markmanni sínum, sem endurtók leik sinn móti Víkingi um daginn, og það með enn meiri ágætum, og tvíefldi það liðið í heild. Það náði líka því mesta mögulega út úr leik sínum að þessu sinni, og náði oft nokkuð góðum leik. Ef maður litur á leikmenn FH hvem einstakan. er það engum vafa bundið að þetta lið á að geta gert mikið meira enda Elín sem slgpp undarlega vel með hin síendurteknu ,faðmlög‘ sín um sóknarstúlkur Vals. Þær sem skoruðu fyrir Val voru Sigríður og Sigrún 5 hvor, Vigdís og Ása gerðu 1 hvor. Fyrir Víking skoruðu: Guð- björg 5 Elín og Rannveig 2 hvor og Guðrún 1. Breiðabl.—Þróttur 12:7 Þriðji kvennaleikurinn þetta kvöld var milli Breiðabliks og Þróttar og bauð leikurinn í heild ekki uppá mikið .fjör*. Þó náðu Breiðabliks-stúlkurnar töluvert góðum tilþrifum 1 lok leiksins, og með fleiri leikjum og reynslu ætti þetta lið að geta þitið frá sér. Til að byrja með var leikur- inn jafn og mátti var á milli sjá. Breiðablik skoraði fyrsta markið en Þróttur jafnaði og enn jafnar Þróttur á 2:2 og kemst yfir en Breiðablik jafn- ar á 3:3. Þróttur jafnar á 4:4 og Breiðablik hefur 5.4 í hléi. Enn jafnar Þróttur og kemst í 6:5 en Breiðablik jafnar á 6:6 og Þróttur jafnar á 7:7 og þá var eins og Þróttarstúlkurnar væru búnar eða þá öllu held- ur að Breiðablik tók upp á- kveðnari leik og meiri hraða sem Þróttar-stúlkumar réðu ekki við og skomðu 5 mörk í röð. Þróttarstúlkumar eiga tölu- vert ólært, og meira úthald þurfa þær að fá ef þær ætla að ógna. Daníel dæmdi tvo kvenna- leikina og slapp vel frá því. Sveinn Kristjánsson dæmdi einn, og fóru svo að segja eng- in brot framhjá honum, en vafasamt er að hann hafi fund- ið hinn gullna meðalveg með blístru sína. en það sýndi í þessum Ietk. Að vísu er í því veikari hlekk- ur nú, sem var mjög sterkur, en það er Hjalti í markinu. Hann er ekki svipaður því sem hann hefur verið undanfarið, og þarf hann sannarlega að taka hlutina alvarlega fyrir förina til Tékkóslóvakíu eftir rúman hálfan annan mánuð. Það vegur Ifka nokkra furðu, að iiðið skyldi naumast reyna línuspil allan leikin, og á þann hátt reyna að trufla hina nokk- uð þykku vöm iR-inga. Það var eins og FH-ingar þyrðu ekki inn í vörnina, og treystu einvörðungu á langskot, en þau varði Ámi i marki IR með miklum ágætum. Það var líka eins og FH-ing- arnir gæfu sér engan tíma til að átta sig á gangi leiksins með samleik, og reyna á þann hátt að koma IR út úr jafn- vægi, þeir skutu í tíma og ó- tíma, og misstu knöttinn hvað eftir annað fyrir fljótfærni, öf- ugt við það sem IR gerði. Þeim tókst með hóflega rólegum leik að koma FH út úr jafnvægi, og bíða eftir tækifærinu, en það var eins og Hafnfirðingar mættu ekki vera að slíku. Vamir beggja voru opnar eins og mörkin sýna. Við þetta jafntefli FH sem talið er vera aðalkeppinautur Fram, hafa möguleikar Fram aukist til muna því takist Fram að vinna alla leiki sína við hin félögin, er FH ekki nóg að vinna Fram f síðari leiknum, og eins og Fram er f dag eru ekki miklar líkur til þess að Fram tapi. þó raunar allt geti gerzt í handknattleik. Dómari var Valur Benedikts- son og dæmdi yfirleitt vel, þennan harða og átakasama Frímann. Ungverjar í riðli með íslendingum Það verða Ungverjar sem lenda í riðli með Islendingum, Svíum og einu Afríkuríki á heimsmeistararnótinu í hand- knattleik i Prag. Ungverjar og Pólverjar hafa nú háð tvo leiki til að skera úr um þátttöku- réttinn, og unnu Ungverjar báða leikina. Ekki er enn kunnugt um það hvaða Afríku- ríki kemur í keppnina.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.