Þjóðviljinn - 14.01.1964, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.01.1964, Blaðsíða 6
g SlÐA ÞJÚÐVILIINN Þriðjudagur 14. janúar 1964 TOGBÁ TUR FRÁ A-ÞÝZKA- IANDI VCKUR ATHYGLI H Fyrir stuttu var skuttogbát af nýrri gerð hleypt af stokkunum í skipasmíðastöðinni í Boisenburg við Saxelfi í Austur-Þýzkalandi. Þessi nýi togari hefur vakið geysimikla athygli og sennilegt, að fyrst um sinn geti skipasmíða- stöðin ekki annað hinni miklu eftirspurn. Þetta er 160 lesta bátur nettó, sem er með dísilvél og búinn frystitækjum til djúp- frystingar á fiski. Báturinn getur þannig farið í næstum mánaðartúra, þar sem rúm er fyrir 130 lestir af djúpfryst- um fiski ©g 30 lestir af nýj- um. Togbáturinn verður senni- Iega til sýnis í Kaupmanna- höfn næsta haust. Báturinn er smíðaður sérstaklega fyrir veiðar við Island, Grænland og á Eystrasaltinu. Eftirsókn er mikil Skipasmiðastöðin í Austur- Þýzkalandi má vera hreykin af þessum nýja báti, enda gæt- ir stolts í yfirlýsingum for- stjórans. er hann skýrir opin- berlega frá þessu I fyrsta sinni: — Við urðum fyrstir til að byggja slíkan togbát, og á því er enginn efi, að kaupendur verða margir, þegar fram- leiðslan kemst í gang fyrir al- vöru. Við erum nýbúnir að hleypa honum af stokkunum, en sú reynsla sem fengizt hef- ur þennan stutta tíma vekur góðar vonir.... — En hvað verður hægt að byggja marga frystitogbáta á ári? — Boisenburg-skipasmíða- stöðin er afar ný í sniðum. Við getum byggt 5 togbáta, 20 eða 100, allt eftir því hvað þörf er fyrir marga. Eins og stend- ur tökum við þann kostinn að framleiða mikið magn í einu, til þess að fullnægja þörfinni innan lands, svo að viðskipta- vinir frá öðrum löndum verða að bíða úti á tröppum á með- an, þótt þeir séu auðvitað mjög kærkomnir gestir. Góður öry&gisút- búnaður Austur-þýzkir stálbátar hafa fengið mjög gott orð á sig á Norðurlöndunum og fengu sér- lega góða dóma í Danmörku fyrir skömmu, þegar gerð var víðtæk rannsókn á dönskum stálbátum, eins og sagt var frá hér í blaðinu í haust. Líkönin, sem skoðuð voru í Danmörku voru flest eitthvað gölluð, höfðu m.a. of litla kjölfestu. Af þessu meðal annars fórust margir danskir stálbátar frá Danmörku í fyrra. Eftir að rannsóknin hafði farið fram lét prófessor Pro- haska. sem stjómaði tilraun- unum, þau orð falla um a.- þýzka og pólska stálbáta, að þeir væm tryggastir þeirra báta, sem hann hefði gert til- raunir með. Sagði hann, að öryggisreglurnar í sósíalísku löndimum væm svo strangar, að skipin fái ekki að fara úr höfn nema kjáölfestan sé full- komin og skipin séu þar að auki rétt hlaðin. Erfitt til að byrja með Forstjóri skipasmíðastöðvar- innar í Boisenburg sagði í við- tali við Land og Folk. að það væri rétt — öryggisreglumar væru strangar og það væri eitt af því, sem mest áherzla væri lögð á. Þessar öryggis- reglur gilda bæði um áhöfn- ina, skipin og fanmana. Þessar ströngu reglur, sem em sam- eiginlegar fyrir öll sósíalísku löndin, leggja mikla ábyrgð á herðar tæknifræðingum okkar, og þeir verða að vanda sig meira en tíðkast annars stað- ar. Það hefur verið erfitt að sameina tvær kröfur, kröfuna um ódýra togara og strangar kröfur um öryggi, en þetta hefur tæknifræðingunum okk- ar þó tekizt. Þeir sem þekkja eitthvað til skipasmíða,draga enga dul á hrifningu sína af a.-þýzkum stálskipum. En það liggur mikil vinna bak við þetta. Það var erfitt til að byrja með. en nú höfum við aflað okkur staðgóðrar reynslu til þess að byggja á, Samband við sjómenn Þessarar reynslu var aflað á ýmsan hátt. Það er ekki nóg að senda tilraunabáta á haf út til þess að læra að byggja góða stálbáta. Við urðum að byggja stofnanir, sem höfðu vandamálin til meðferðar Upplýsingum var safnað sam- an um lítil og stór skip, fljót- andi fiskiverksmiðjur, flutn- ingaskip og rannsóknarskip. Á þessum upplýsingum ásamt upplýsingum um nýtizku stál- báta byggðum við svo reynslu okkar, Einnig er alltaf mikil- vægt að hafa samband við þá menn, sem vinna á bátunum. Þannig náðum við þeim góða árangri, sem nú hefur komið í ljós. Markið enn hærra Skipasmíðaiðnaðurinn í Austur-Þýzkalandi hefur nú á prjónunum stórkostlega áætl- un, sem hefur gert það að ---------------------------3> 160 lesta bátur með frysti- útbúnaði. Byggður fyrir íslamfsmið Átti að vitna með Ruby Nektardansmær meS byssu í veskinu Lögreglan í Dallas handtók um daginn unga stúlku að nafni Karen Lynn Bennett, þar sem hún hafði ætl- að að laumast inn í réttarsalinn, þar sem yfirheyrslur fóru fram í máli Jack Rubys, með skammbyssu í veski sínu. Ungfrú Bennett er nektardansmær og hafði unn- ið í næturklúbb Rubys. Hún var kölluð fyrir réttinn til þess að bera vitni með Ruby. Réttarhöld þessi fóru fram í tilefni þess að Ruby hafði lagt fram beiðni um að vera látinn laus gegn tryggingu, þangað til réttarhöldin í máli hans hefj- asL Lögreglan ákvað að láta ekki leika á sig eins og í fyrra sinnið, er Lee Harvey Oswald var skotinn framan við nefið á þeim og lét hún því leita á öllum er kallaðir voru fyrir réttinn. Nektardansmær, Karen Lynn Bennett sem áður starfaði við Karen Lynn Bennett, nektar- dansmærin með byssuna í veskinu. næturklúbb Rubys, Carousel, var meðal vitnanna sem verj- endur Rubys kölluðu fyrir rétt- inn til þess að reyna að fá Ru- by lausan gegn tryggingu. — Kvenlögregluþjónn leitaði á ungfrú Bennett áður en henni var hleypt inn í salinn og fann hún skammbyssu sem var rækilega falin í veski dans- meyjarinnar. Ruby lék á alls oddi. Jack Ruby tók réttarhöldun- um auðsjáanlega eins og hverju öðru gríni. Hann hló og sagði fimmaurabrandara, stillti sér upp fyrir ljósmyndurunum. Ruby hafði 6 lögfræðinga, sem önnuðust vöm hans. Henry Wade var aðalsaksóknari. Fyrir utan Little Lynn, eins og hún kallar sig í auglýsing- um, var ijósmyndarinn Bob Jackson frá Dallas Time Her- ald kallaður fyrir réttinn. Það var hann, sem tók myndina frægu af Jack Ruby, þegar hann skaut Lee Harvey Os- wald morguninn 24. nóvember. Einnig var Will Fritz, yfirmaður morðdeildarinnar í Dallaslögreglunni, kallaður fyrir réttinn. Hann á að gera grein fyrir flutn. fangans Lee H. Oswald, úr bæjarfangels- insa í ríkisfangelsið. Það var á þeirri leið, sem Ruby brauzt gegnum þvögu af blaðamönn- um og skaut Pswald. Rétturinn heimilaði ekki, að Ruby yrð látinn laus gegn tryggingu yfir jólin. Austur-þýzkur togbátur af þessari gerð er algcngur á Norðurlöndum. 12.400 lesta flutningaskip. Með stærstu skipum, sem smíðuð eru í Austur Þýzkalandi. aðalmarkmiði að búa til betri skip, sterkari skip búin full- komnari tækni. — Hér í Austur-Þýzkalandi glímum við líka við að ná sem fyllstri gernýtingu. Samt ekki á sama hátt og í auð- valdslöndunum. Við höfum síðustu árin lagt mikla áherzlu á, að hægt sé að senda skipin út á sjó með sem minnstri áhöfn. Þetta er ekki hægt að gera nema með þvi að endurbæta tæknina um borð. Við ætlum að byggja<$> skip, sem bjóða sjómönnum upp á góð vinnuskilyrði, skip sem flutt geta stóra farma ■— en hvað spamaðinn snertirer hann látinn víkja fyrir öryggi áhafnarinnar. Hér þekkist ekki, að skip sigli með of litla áhöfn. 12.—15.000 lesta skip — Hve stór slkip smíðið þið í Austur-Þýzkalandi ? — Stærstu skipin eins og stendur eru 12—15.000 lesta skip. Við höldum fast við þá stærð, þótt við gætum byggt miklu stærri skip. En við sósáalísku löndin höfum eins konar verkaskiptingu okkar á milli, og hjálpumst þannig að við að koma okkur upp stór- um flota. Það eru önnur lönd, sem byggja stór skip og við skiptumst svo á. Okkar sér- grein eru flutningaskip og fiskiskip. Sovétríkin byggja stór olíuskip, Pólland enn önn- ur, o.s.frv. — Smíðið þið ekki líka öll tæki í skipin? — Jú, næstum öll. Á und- anfömum árum hefur risið upp mikill iðnaður samhliða skipasmíðastöðvunum. Við smíðum t. d. siglingatæki, sem við þurftiun áður að kaupa erlendis. Nú getum við séð um þá hliðina sjálfir. Fjarstýrð skip eftir 20 ár — Og hvaða framíðaráætl- anir eruð þið með á prjónun- um? — Næstu árin ætlum við aðeins að reyna að ná betri árangri í þessari iðnaðargrein. Við viljum byggja betur og hraðar, þótt segja megi að við höfum þegar komizt furðu langt. Og svo keppum við eftir fullkomnari tækni um borð í skipunum. Kannski ná- um við svo langt einn góðan veðurdag að smíða skip, er sigla án áhafnar, og verður stýrt úr landi. Bíðið bara ró- leg. Ég held að eftir 20 ár verði til fjarstýrð skip. Já, það er áreiðanlega nóg af verkefnum.... ERHÁRD í FRIÐAR- ÞÖNKUM ■QP k\ iv -i z//..i m — Ég vil Iíka batnandi friðar- horfur .... Norrænn tón- skáldastyrkur Menntamálaráðherrar Norð- urlanda sátu í dag fund í Hels- ingfors. Var tekin ákvörðun um það á fundinum að fela Menningamefnd Norðurlanda að veita tónskáldastyrk, sem i nemur 50.000 dönskum krón- i um. Einnig studdi fundurinn til- lögu Menningamefndarinnar um að háskólapróf verði sam- ræmd á Norðurlöndum. Fundur verður aftur á morg- un. I .... og til þess þurfum við at- ómvopn!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.