Þjóðviljinn - 14.01.1964, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 14.01.1964, Qupperneq 7
Þriðjudagur 14. janúar 1964 ÞlðÐVILIINN Á síðasta ári voru eitt hundrað ár liðin frá því úlfaþyturinn varð um mynd Manets, „Morgunverður undir berum himni“. — Hneykslið sem málverkið olli varð til þess, að Manet varð — gegn vilja sínum þó — brautryðjandi, sem opnaði ýmsar dyr fyrir málaralist nútímans. 1 þessari grein segir frá því sem skeði í París vordag fyrir rúmri öld. HNEYKSLIÐ, SEM OLLI ALDAHVORFUM Málverkið lundeilda „Morgunverður undir berum himni“. Vordag nokkum fyrir rúm- um eitt hundrað árum heiðr- aði Napóleon keisari III. Sal- on des Beaux Arts í París óvsent með nærveru sinni. Keisarinn kom í opinbera heimsókn til þess að líta á sýningu, sem enn hafði ekki verið opnuð almenningi. En keisarinn lét sér ekki nægja að líta á málverkin. Hann vildi einnig sjá þau, er hafnað hafði verið, og var vís- að inn í stóran sal þar sem allmörg málverk stóðu upp við vegg. Burðarmenn sýndu keis- aranum myndirnar hverja eft- ir aðra, og hans hátign lét í ljós þá skoðun sína, að þær væru sízt verri en þær er tekn- ar hefðu verið á sýninguna. Hann fór því fram á það, að dómnefndin endurskoðaði af- stöðu sína. Dómnefndin svaraði því til, að undanfarin ár hefði stigið ískyggilega tala þeirra, er veif- að gætu pensli, en teldu sig fyrir þá sök eina vera lista- menn. Nauðsynlegt væri, að „stemma stigu við slíku" þar eð ella gætu slíkir menn orð- ið ..alvarleg hætta fyrir Sal- on des Beaux Arts, svo og þjóðfélagið". Svo mörg voru þau orð. En keisarinn hafði komizt á snoð- ir um megna óánægju ýmissa málara vegna sýningarinnar og vildi nú færa sönnur á frjáls- lyndi sitt. Hann gaf þvi skipun um það, að málverkin skyldu sýnd í Palais de nndustrie, beint á móti sýningu dóm- nefndarinnar. Þar með var komið á lagg- imar Salon des Refusés, og ár- ið 1863 hefur síðan komizt inn í listasöguna sem upphafsár nútíma málaralistar. Eins og við munum sjá er þetta sann- leikur eða fullyrðing, sem taka verður með varúð. Listaskólinn Nú, liðlega hundrað árum síðar, sjáum við greinilega, að hinn opinberi listaskóli. Ecole des Beaux-Arts, sem stofnaður var 1648, var í hnignun. Síðan hafa avant- garde málarar í Frakklandi, allt fram á vora daga, hætt og fyrirlitið stofnun þá, sem tengd var skólanum, nefni- lega le Salon. sem haft hefur svo mikilvægu hlutverki að gegna í frönsku listalífi. Nafn- ið er runnið frá sýningu, sem um eitt skeið var haldin í Sal- on Carré í Louvre. Nefna má það til gamans, að hin mikla Delacroix-sýn- ing á sl. ári var einmitt hald- in í Salon Carré, en þar „sló“ Delacroix „í gegn“ árið 1822 með málverki sínu „Dante f undirheimum". Við vitum það, að málarar eins og Cézanne og vinir hans fyrirlitu innilega hina opinberu og verðlaunakrýndu Salon- málara. Bougereau var eitur i beinum Cézanne — og þó rejmdi þessi sami Cézanne árum saman að koma myndum sínum á sýninguna. Medalí- ur sýningarinnar áleit hann leið til frægðar. Eina myndin En hverfum aftur að sýn- ingu hinna, sem hafnað var. Hér gaf að líta myndir eftir málara eins og Manet, Pissarro, Jongkind, Whistler, Fantin- Latour og ýmsa aðra í fremstu röð. Manet hafði tveim árum áður hlotið vinsamleg ummæli fyrir verk á sýningunni, en nú var öllum þrem málverkum hans hafnað. Nokkrir af þeim, er ekki komust að, höfðu áður tekið þátt í sýningunni. En af öllum þeim 781 mál- verkum. sem sýnd voru á sýningu þeirra, er hafnað hafði verið, er aðeins eitt, sem mun- að er eftir. Það er málverk Manets, sem nú er löngu frægt orðið. ,,Le dejeuner sur l’herbe“, eða „Morgunverður undir berum himni“.Málverk þetta er eitt aðalverk franskrar málverkalistar og er nú geymt í málverkasafni impressjón- istanna í París. Menn geta orðið með ýmsu móti frægir. Góð athugasemd í alþingisumræðum á það til að gera mann ódauðlegan. Hitt er sjaldgæfara, að eitt einstakt listaverk geri upphafs- mann sinn frægan, Til þess þarf eitthvað annað og meira. Og svo var hér. Þetta málverk af morgun- verði út í guðsgrænni náttúr- unni er í hæsta máta fígúra- tív mynd. Hún sýnir fjórar persónur í skógarferð, tvo karlmenn og tvær konur. Karlmennimir liggja værðar- lega í grasinu, þeir eru ólast- anlega klæddir í Ijósgráar bux- ur og svarta jakka, með öðr- um orðum háborgciralegir á að sjá. Maðurinn til hægri heldur á litlum staf í hendi, og með hinni undirstrikar hann með bendingu það sem hann segir. Hinn hlustar ró- legur. Sama máli virðist gegna um konuna sem situr allsnak- in milli þeirra, hún virðist ekki hafa svo ýkjamikinn á- huga á samræðum þeirra karl- mannanna sökum þess, að augu hennar leita nánast hins ókunna, er skoðar málverkið, hver sem hann kann nú að vera. Hin konan í kvartettin- um virðist fá sér fótabað í læk eða lítilli tjöm í bak- grunni landslagsins, en það er í djúpum, grænum tónum. Myndin var sýnd undir nafn- inu Le Bain (baðið). Nefna má einnig körfu með ávöxtum, víni, brauði og öðru góðgæti til morgunverðar, þetta lífgar allt upp vinstra hom mynd- arinnar. 15. maí 1863 var sýningin Salon des Refusés opnuð al- menningi. Keisarinn og keis- arafiúin komu 1 formlega heimsókn. Fyrir framan mynd Manets fengu þau smávegis taugaáfall. Keisarafrúin þóttist ekki sjá myndina. Keisarinn skoðaði hana nákvæmlega og á að hafa sagt: „Þessi mynd er móðgun við blygðunartil- finninguna — ce tableau off- ense la pudeur“. Og þar með var það sagt, er segjast þurfti. Manet varð frægur, ekki fyrir listrænt gildi myndar sinnar, heldur fyrir þá sök, að hún hafði vakið siðferðilega vandlætingu. AUir þeir, sem staðið höfðu gegn þeim er hafnað var, fengu nú aukið vatn á myllu sína — „hvað sögðum við ekki?“ Napóleon III. reyndi ekki aftur að leika hlutverk hins frjálslynda listunnanda — það hlutverk var nú einu sinni ekki við hans hæfi — og sýningin Salon des Refusés var ekki endurtekin. Tuttugu ár áttu eftir að líða áður en listamenn fengu aftur sama tækifæri og sama frelsi. Listamaðurinn Sagan um Manet og mynd- ina af skógarferðinni á sér vissa hliðstæðu í málaferlum þeim, er Flaubert lenti í nokkrum árum áður þegar hann skrifaði Madame Bovary. Sú bók var sökuð um að vera árás á trú og siðgæði, hið listræna skipti minna máli. Flaubert var sýknaður, og Madame Bovary varð langra lífdaga auðið. Sama hefur skeð með Man- et og ,,Morgunverð“ hans. TVENNIR TÓNLEIKAR Tónleikar Tónlistarfélagsins Söngkonan Betty Allen frá Bandaríkjunum kom hér fram á vegum Tónlistarfé- lagsins fyrir 4 árum og hreif þá marga hlustendur með söng sínum. Svo var og á þriðjudagskvöldið 7. þ.m., er hún söng aftur fyrir styrktar- menn sama félags við ágætan undirleik Árna Kristjánsson- ar. Efnisskráin var fjölbreytt, — óperulög eftir Mozart, Thomas og Bizet, Ijóðsöngv- ar eftir Schubert, Brahms, Grieg og Sinding, lög eftir þrjá miður kunna höfunda, Virgil Thomson, David Dia- mond og Howard Swanson, og svo að lokum nokkrir and- legir söngvar frá heimalandi söngkonunnar. Allt þetta flutti Betty AUen mjög vel og margt með ágætum, svo tónlist sem sumt í lögum Schuberts og Brahms og sérstaklega at- riðið úr óperunni „Carmen” eftir Bizet, sem hún fór raun- ar einnig með, þegar hún söng hér í fyrra sinnið. Þakkar- verð voru þrjú ágæt lög eft- ir Grieg og tvö eftir Sinding (ekki sízt hið gullfallega lag hins síðamefnda „Sylvelin”), en með þeim hefur söngkon- an eflaust viljað heiðra ís- lenzka hlustendur svo sem grein á hinum norræna meiði, og í svipuðum anda var það gert, er hún söng að lokum „Draumaland” Sigfúsar utan efnisskrár, — á furðu- góðri íslenzku. Betty Allen gegndi einnig veigamiklu hlutverki á tón- leikum Sinfóníusveitarinnar, Betty Allen. sem fram fóru í samkomusal Háskólans 9. þ.m. Hún söng þar sem sé „Ljóð íörusveins’' eftir Gustav Mahler við undirleik hljómsveitarinnar. Þetta mun vera i fyrsta sinn, að hljómsveitin flytji verk eftir Mahler, og er hann þó með merkustu sinfóníuskáld- um siðari tíma (f. 1860, d. 1911). ,,Ljóð förusveins’’ er fagurt tónverk, samið af djúpri og sannri tilfinningu. Hin mikla og sérkennilega rödd söngkonunnar naut sín sérstaklega vel í þessu hlut- verki. Slík er fylld raddarinn- ar, að henni er hægðarleikur að hafa í fullu tré við hljóm- sveitina og virðist aldrei hætt við að hverfa þar i skuggann, eins og stundum vill verða, þegar einsöngvara er teflt á móti heilli sinfón- íusveit. — Af mikilli list flutti hún því næst aukalag- ið ,,Che faró senza Euridice’’, hina frægu aríu úr óperunni „Orieifur og Evrýdíka” eftir Gluck. En þó að þau tónverk, sem nú voru nefnd, séu bæði ger- semar, hafði hljómsveitin jafnvel enn þá meiri dásemd- ir að bjóða þetta kvöld, þar u sem var forleikur sá eítir Brahms, sem nefnist ,,Trag- ische Ouverture”, og C-dúr- sinfónía Schuberts hin mikla, eitt af allrafegurstu og stór- fenglegustu snilldarverkum heimstónmenntanna. Hér var því að öllu samanlögðu um fágætlega verðmæta efnis- skrá að ræða, og verður ekki annað sagt en að hljóm- sveitin og stjómandi hennar, Róbert Abraham Ottósson, hafi hér færzt mikið í fang, — og þó engan veginn of mikið, þvi að hljómsveitin skilaði yfirleitt sínu verkefni með miklum sóma og náði víða sínum beztu tökum og tilþrifum. Stjórnandinn gat glaðzt yfir góðum árangri elju sinnar, kunnáttu og vandvirkni, dómgreindar og ástar á viðfangsefnunum. Ánægjulegt var að sjá þama fullskipaða áheyrenda- bekki í hinum mikla sam- komusal og vita svo marga hlustendur eiga þess kost að njóta þessara merku tónleika. B. F. Tónleikar Sinfóníusveitarinnar ------------------- SÍÐA 7 Sjálfur var Manet sízt af öllu uppreisnarmaður eða bylting- arseggur. Að ættemi og upp- eldi tilheyrði hann frönskum embættisaðli, og honum var í æsku ætlað að verða lögfræð- ingur. Eftir að hann hætti við að ganga embættisveginn var það ætlun hans að öðlast frægð og frama á Salon des Beaux Arts. Hann var sam- kvæmismaður og borgari hmn mesti, og lét sig ekki dreyma um að verða nokkurs konar leiðtogi róttækra málara. Sem ungur maður heimsækir hann dag nokkum Delacroix til þess að fá leyfi hans til þess að kópera „Dante-bátinh“ — mynd sem í raun réttri gæti staðið sem upphafsmynd nútíma málaralistar, ef hugs- að er til állra þeirra ágætu málara. sem líkt hafa eftir henni. En ella voru það Fen- eyjamálaramir miklu ásamt Velasques og Goya, sem áttu eftir að verða fyrirmyndir hans og veita honum innblástur. En ,,hneykslissigur“ sá er Manet vann 1863 varð til þess að hann skipaði sér í hóp hinna raunverulegu uppreisn- armanna, nefnilega impressjón- istanna, en hin nýja litarsýn þeirra er e.t.v. það markverð- asta í sögu málaralistarinnar á síðustu öld. 1910 olli svo kúbisminn aftur tilsvar^ndi byltingu. Manet var á vissan hátt „klassiker'*. Að vísu verkaði litameðferð hans ný og ó- reglubundin. Manet málaði með hreinum litflötum. og var meira að segja sakaður um það að mála spil án skugga í gamaldags skilningi. Þetta „bjarta’* málverk Manets (peinture claire) verkaði and- stætt hinum akadémísku regl- um, en samkvæmt þeim unnu menn málverkið frá myrkri upp í ljós, Manet byrjaði með hinum ljósu hlutum, og með- an málningin var ennþá rök fléttaði hann inn hálftóna og dekkri hluti í flötum, djörf- um strokum. Þessa persónu- legu tækni sína, sem líktist mjög tækni þeirri, er meist- arar einsog Velasques og Frans Hals notuðu, þroskaði Manet upp í hreina snilld. Myndir þær, er hann málaði síðar. meir eftir tækni imperssjón- istanna, verka hvorki eins persónulegar né fastar. Vandlæting En þótt áhorfendur snetust öndverðir gegn því hve „flatt“ hann málaði, var það hátíð hjá þeirri siðferðilegu vand- lætingu, sem hann vakti með mótívum sínum. Morgunverðurinn \ vakti hneyksli, satt er það. Það hneyksli var þó hégóminn einn hjá þeim úlfaþyt, sem varð tveim árum síðar vegna mynd- arinnar ,,Olympia“. A þeirri mynd sjáum við nakta stúlku taka við blómvendi frá blakkri þjónustustúlku sinni. Dagblöð- in skrifuðu um hina „hálfrotn- uðu Olympiu herra Manets“, og Degas, sem þekktur var fyr- ir hnitmiðuð tilsvör sín sagði við Manet: ,,Nú eruð þér orð- inn álíka þekktur og Gari- baldi!“ Það er til dæmis um hneysklunina, að Zola, sem bá var listgagnrýnandi í blaðinu Lévenement, var rekinn fyrir það að skrifa sem svo: Nú hlægjum við að Manet, en synir okkar munu heillast af myndum hans. Lesendur blaðs- ins mótmæltu svo kröftuglega, að blaðið neyddist til að segja honum upp starfi. Annars stóð Baudelaire við hlið Manets og barðist fyrir málstað hans. Monet hefur sagt, að sýning á myndum Manets hafi ,,opn- að augu sín“ — og það var eðlilegt, að ungir, róttækir imperssjónistar skoðuðu hann sem brautryðanda. Næstu ár eftir ,,hneyslin“ hppuðust þeir um hann og litu á hann sem leiðtoga sinn. En fyrir Manet var það hreint ekki auð- velt að vera settur sama bás og ungir uppreisnarmenn, Framhald á 9. síðu. i t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.