Þjóðviljinn - 14.01.1964, Blaðsíða 10
10 SlÐA
MÓÐVILIINN
Þriðjudagur 14. janúar 1964
NEVIL SHUTE
SKÁK-
BORÐID
Harm harmaði það ekki. Það
hafði verið dauft starf þegar
bezt lét, starf sem bjó yfir
engum framtíðarmöguleikum. —
Hann vissi ekki hvað hann vildi
nema að hann vildi gera annað
og meira en aka trukki; sem
byrjun langaði hann til að
teikna, gera teikningar við
teikniborð af vélarhlutum og
sjá þá gædda lífi af fagmönn-
um. Og hann langaði til að
að hitta Grace Trefusis aftur til
að segja henni að hann sæi eftir
þessu.
Ef hann hefði getað fengið
góða atvinnu i Nashville, getur
verið að báðar þessar hugmynd-
ir hefðu dofnað og orðið að
engu. En eins og á stóð fékk
hann ekkert að gera heimanema
við hin óæðri störf sem ætluð
eru negrum: þjónustustörf, land-
búnaðarstörf eða vegavinnu eða
vinnu við skóburstun. Viðhorf
Daves Lesurier höfðu breytzt
við ferðalög hans um heiminn;
hann fékk andúð á þessu landi
möguleikanna, sem gaf honum
ekkert tækifæri. Fyrstu vikum-
ar heima lifði hann á mála sin-
um og hugur hans snerist æ
meira um England. I samanburði
við skrautið og dýðina í heima-
landi hans hafði England engan
sérstakan Ijóma, en þó var það
honum hugstæðara.
Hann talaði um þetta við föð-
ur sinn, sem misst hafði vinn-
una þegar starfsemi Filtair dróst
eaman og starfaði nú höppum
og glöppum hjá húsameistara á
staðnum og fékk vinnukonulaun.
Lesurierfjölskyldan bjó við
kröpp kjör, en faðir hans var
sanngjam. — Ef þú álítur að þú
i getir komizt betur af í Evrópu,
Bonur minn, sagði hann — þá
Hárgreiðslon
Hárgrelðslu og
snyrtlstofa STEINtJ Og DÖDrt
Inugavegl 18 m. h. flyfta)
SlMI 84616.
P E R M A Garðsenda 81.
8lMl 33968. Hárgreiðslu- os
snyrtistofa.
Dðmur! Hárgreiðsla við
allra hæfl
TJARNARSTOFAN.
TJamargötu 10. Vonarstrætis-
megin. — SfMI 14668.
HARGREIÐSLDSTOFA
ADSTDRBÆJAR
(Marfa Guðmundsdöttlr)
Laugavegl 13 — SlMI 14658
•— Nuddstofa á sama stað. —
skalbu gera það sem þú vilt, og
hafðu engar áhyggjur af mér og
mömmu þinni. Við getum bjarg-
að pkkur. Það á margt eftir að
gerast áður en litað fólk fær
jafnrétti við hvíta, að minnsta
suðurfrá. Ef sá tími kemur ein-
hvem tíma, geturðu komið heim
aftur og gengið beint að góðri
atvinnu. En þangað til, sonur
minn ef þú hefur hugboð um
að þér muni vegna betur þama
yfirfrá, þá skaltu reyna meðan
þú átt einhverja peninga eftir.
55
Og Dave Lesurier reyndi.
Hann gekk til Charleston og fór
á skrifstofu útgerðarfélags með
skjöl sín og eftir þrjá daga fékk
hann skiprúm sem messagutti á
flutningaskipi sem átti að fara
til Durban. Hann þvoði diska
frá Charleston til Durban, frá
Durban til Sydney frá Sydney
til Calcutta og frá Calcutta til
New York. Hann kom aftur til
Bandaríkjanna eftir sjö mánaða
útivist og hafði lítið nálgazt
England, en ögn af peningum
hafði hann lagt fyrir. Þá réð
hann sig á annað skip frá New
York til Buenos Aires. Frá Bu-
enos Aires sigldi skip hans til
Avonmouth með farm af húð-
um.
Hann tók út launin sín og yf-
irgaf skipið í Avonmouth, aðeins
hundrað kílómetra leið frá
Trenarth, ellefu og hálfum mán-
uði eftir að hann lagði af stað
frá Nashville. Hann var þá
tuttugu og fimm ára gamall,
þroskaðri og ömggari í fasi en
hann hafði verið þegar hann
var áður í Englandi; hafði enn
áhuga á að gerast teiknari og
langaði enn að hitta Grace
Trefusis og segja henni, að sér
þætti leitt, hvemig hann
hefði hagað sér fyrir þremur
árum. Langt ör, ívið dekkra en
súkkulaðibrúnt hörund hans,
minnti hann á það 1 hvert sinn
sem hann leit í spegiL
Hann fór til Penzance með
lest, horfði útum gluggann á
frjósama akrana og rifjaöi upp
aðrar ferðir í hermannalestum
um þetta land. 1 Penzance
geymdi hann ferðatöskuna með
aleigu sinni i fatageymslunni á
brautarstöðinni og spurði síðan
lögregluþjón hvar hann gæti
fengið gistingu um nóttina; hann
svaf í óbrotnu gistihúsi. Um
morguninn gekk hann til Tren-
arth. Það var í september og
veðrið hlýtt og fallegt Hann
átti góð föt í töskunni, en hann
var i sjómannafötum sínum;
bláum strigabuxum, khakiskyrtu
og vindjakka. Á höfðinu var
hann með gamlan, mjúkan hatt.
Hann kom í barinn á Hvíta
Hirtinum um leið og opnað var
og fyrsta manneskjan sem hann
sá var Lessie Frobisher bakvið
barinn.
Hún heilsaði honum hlýlega.
— Við höfum oft verið að tala
um hvort nokkur af ykkurstrák-
unum myndi koma hingað og
heilsa upp á okkur, sagði hún.
— Við fréttum af sumum. Sam
Lorimer skrifaði um jólin; það
var reglulega gaman að frétta
af honum. Nú er hann giftur
og á heima í borg sem heitir
Detroit, þar sem þeir búa til
bíla eða eitthvað þess háttar.
Hún brosti til hans. — Ert þú
búinn að gifta þig?
Hann hristi höfuðið. — Nei,
nei.
Hún hló. — Vill þig engin?
Hún spurði hann hvað hann
hefði haft fyrir stafni og fékk
að heyra allt um ferðalög hans.
— Að hugsa sér, sagði hún. Svo
fór hún og kallaði á föður sinn.
— Pabbi Dave Lesurier er
kominn hingað! og hann var að
segja sögu sína upp á nýtt. Og
svo kom herra Penlee, bóndinn
inn á barinn og hann þurfti að
segja hana í þriðja sinn.
Herra Frobisher fór með hann
inn í borðstofu sína og gaf hon-
um miðdegisverð, meðan Lessie
afgreiddi á bamum; hún hafði
borðað áður en opnað var. Eftir
ábætinn, gaf svertinginn gest-
gjafa sínum sígarettu og sagði:
— Það var reglulega fallegt
af þér að gefa mér að borða,
herra Frobisher. Hann hikaði. —
Ef ég hugsaði mér að vera nótt,
hefðir þú þá nokkurt rúm? Ég
get borgað fyrir mig.
— Já, já, sagði gestgjafinn. —
Ég get holað þér einhvers stað-
ar niður. Ætlarðu að vera í
nokkra daga?
— Ég veit það ekki, herra
Frobisher. Svertinginn hikaði. —
Það var töluvert uppistand þeg-
ar ég var héma síðast, sagði
hann loks. — Ætli fólk muni
ennþá eftir því?
— Ojá, já, sagði herra Frobis-
her. — Það man eftir því. Það
var hreint ekki lítið sem á
gekk.
— Fyrst svo er, sagði Lesurier,
— þá ætti ég kannski að hafa
mig á burt.
— Ekki frekar en þú vilt, sagði
gestgjafinn. — Flestir voru
þeirrar skoðunar að það hefði
verið farið illa með þig.
— Það yrðu engin vandræði
þótt fólk sæi mig hér, út af því
sem ég gerði?
— Það held ég komi ekki til,
sagði gestgjafinn með hægð. —
Ekki nema Grace Trefusis eða
mamma hennar færu að setja sig
á háan hest, og mér finnst það
heldur ólíklegt.
Lesurier spurði: — Er ungfrú
Grace hér ennþá?
— Já, sagði gestgjafinn. —
Hún vinnur ennþá hjá Robert-
son. Hefur verið þar allan tim-
ann.
Það varð löng þögn.
— Jæja, þakka þér kærlega
fyrir, sagði blökkumaðutinn
loks. — Ég kem aftur um fimm
eða sexleytið 1 kvöld, herra Fro-
bisher, og læt þig vita hvort
ég þarf á gistingu að halda.
— Ágætt, sagði gestgjafinn. —
Hafðu það eins og þú vilt. Rúm-
ið bíður þín ef þér sýnist.
Dave Lesurier fór út og stóð
á götuhominu og reykti þangað
til kirkjuklukkan sló tvö. Þá
sneri hann við og gekk hægt upp
götuna að nýlenduvöruverzlun
Robertsons, fór inn og gekk
beint til Grace Trefusis sem stóð
bakvið búðarborðið og sagði
lágt: — Tíu Players, þökk fyrir.
Hún leit upp í skyndi og sá
hver þetta var og mætti augna-
ráði hans. Stundarkom var eins
og tíminn stæði kyrr. Hún var
orðin þremur árum eldri næst-
um tvítug; hún hafði þroskazt
líkamlega, hún var myndarlegri
og fallegri en hræðslulega ung-
lingsstelpan sem hann hafði áð-
ur þekkt. Hún vissi líka meira
um karlmenn; hún hafði oft far-
ið í bíó og með fleiri en einum
pilti og nokkrir þeirra höfðu
kysst hana í skugganum, síðan
blökkumaðurinn hafði faðmað
hana um árið með hinum hryggi-
legu afleiðingum. Hún horfði 1
augu hans og sem snöggvast
fann hún til gamla óttans, en
svo brosti hún.
— Ö.... sagði hún. — Ert það
þú?
Um leið var hann gagntekinn
sömu feimninni. Blóðið þaut
fram í kinnar hans og hann kom
ekki upp orði, en óskaði þess
eins að hann gæti sagt eitthvað
fjörlegt og sniðugt, en honum
datt ekkert í hug. Þess í stað
varð vandræðaleg þögn og hon-
um datt ekkert annað í hug
að segja við hana en endurtaka:
— Tíu Players þökk fyrir.
Síðasti óttinn hvarf eins og
dögg fyrir sólu; hún vissi að
hún þurfti aldrei að óttast þenn-
an feimna, unga mann þótt þel-
dökkur væri. Orð bandaríska
liðsforingjans komu aftur upp
í huga hennar, en þau hafði hún
geymt sér í minni í þrjú ár: —
Ef hann hefur dáðst að yður,
ungfrú Trefusis, þá er það ekk-
ert saknæmt. Sú aðdáun hafði
ekki fært honum neitt annað en
sjálsmorðstilraun, sjúkrahúsvist
og smán og nú eftir þrjú ár
var hann aftur kominn hingað.
Hún þreifaði ósjálfrátt upp í
hilluna eftir sígarettunum og
sagði mildum rómi. — Ertu þá
laus úr hemum núna?
Hann kingdi og sagði: — Já,
ungfrú.
Hún hélt á pakkanum en fékk
honum hann ekki. — Og hvað
gerirðu þá núna? spurði hún.
Hann leit upp og horfði á
hana og hún brosti til hans á
sama hátt og hún hafði alltaf
gert þegar hann keypti af henni
sígarettumar, en hún var ennþá
fallegri en hann minnti. Hann
fékk hugrekkið aftur og hann
sagði: — Ég fékk vinnu á flutn-
ingaskipi, hjá brytanum og við
lögðum upp í Avonmouth. Mér
fannst það svo nærri og mér
datt í hug að líta hingað. Hann
mætti aftur augnaráði hennar.
— Mig langaði hálfpartinn til
að vita hvort þú værir héma
ennþá til þess að ég gæti sagt
þér að mér þætti mjög leiðinlegt
hvemig þetta gekk fyrir sig hér
um árið.
Hún roðnaði og hló vandræða-
lega. — Ó, það er allt í lagi.
Og svo spurði hún forvitnis-
lega: — Komstu alla leið frá
Avonmouth til að segja mér
þetta?
— Já, ungfrú, sagði hann blátt
áfram.
Hún hafði einu sinni komizt
alla leið til Exeter í sextíu kíló-
metra fjarlægð, en hún vissi að
það var miklu lengra til Avon-
mounth og henni fannst það
óraleið. Hún sagði veikum rómi:
— Að hugsa sér....... Og svo
bætti hún við: — Þú hefðir ekki
Ætlarðu ekki að dansa við
mig Andrés? Auðvitað geri
ég það næst þegar þeir leika
vals.
Ö, þetta er vals komdu.
Svona. gjörið þér svo vafc
herra minn.
SKOTTA
Ég er viss um að ég gæti orðið alvarlega ástfangin af honum
ef hann væri ekki einmitt sú manngerð sem mamma vill að ég um-
gangist.
Sendisveinar
óskast strax, hálfan eða allan daginn.
Upplýsingar í skrifstofu Þjóðviljans
sími 17 500.
Þjóðvi/jinn
Vertíðarfólk
Vertíðarfólk óskast, konur og karlar á
komandi vetrarvertíð — fæði, húsnæði og
vinna á sama stað.
Upplýsingar gefur Stefán Runólfsson,
símar 2042 og 2043, Vestmannaeyjum.
Fiskiðjan h.f., Vestmannaeyjum
Laus staða
í Landspítalanum er laus staða fyrir karl eða konu
við stjóm á heilaritunartæki spítalans. Æskilegt
er, að umsækjandi hafi stúdentspróf, og er við það
miðað, að náms- og æfingartími í meðferð tækis-
ins taki 1 til 2 ár. Aðrar upplýsingar um stöðuna,
kjör o.fl. verða veittar á Skrifstofu ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist til Skrifstofu ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29 fyrir 20. febrúar n.k.
Reykjavík, 10. janúar 1964.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
SVEFNSÓFAR
- SÓFASETT
HN0TAN. húsgagnaverzlun
Þórsgötu t
Bifreiðaleiqan HJÓL
Hverfisgötu 82
Simi 16-370
i
i
1