Þjóðviljinn - 14.01.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 14.01.1964, Page 12
Geríð skii. Opið til ki. 7 í kvöld.—Happdrætti Þjóðviijans Hér sjást útlitsteikningar að nýbyggingum á Hvanneyri. — (Ljósm. Þjóöv. A. K.). 18 TlLLfóUTEIKNINGAR BÁRUST í SAMKEPPNINA ■ Sl. laugadag voru birt úrslit í verðlaunasamkeppni sem byggingarnefnd Bændaskólans að Hvanneyri efndi til í sumar um tillöguteikningar að nýjum byggingum fyrir skólann. 18 teikningar bárust og varð dómnefndin einróma sammála um að veita fyrstu verðiaun teikning- um sem arkitektamir Sigurjón Sveinsson og Þorvaldur Kristmundsson hafa gert. Er þetta í annað sinn á skömm- um tíma sem þeir bera sigur úr býtum í slíkri samkeppni. Guðmundur Jónsson skóla- stjóri á Hvanneyri gerðj grein fyrir keppninni og úrslitum hennar í viðtali við fréttamenn á laugardaginn. Sagði hann að á sl. vetri hefðu verið sett á AJþingi ný lög um búnaðar- fraeðslu. Hefði byggingarnefnd Bændaskólans á Hvanneyri síð- an ákveðið í samráðj við land- búnaðarráðherra að efna til samkeppni um teikningar að byggingum fyrir skólann. Var samkeppnin siðan boðin út í sumar og rann fresturinn til þess að skila teikningum út 9. desember sl. Þátttakan í samkeppni þessari varð meiri en nokkur dæmi eru til um áður faér á landi. Sóttu 34 keppnisgögn en 18 tillögur bárust. Voru þær að sjálfsögðu ákaflega misjafnar bæði með tilliti til staðarvals og uppbygg- ingar. Varð dómnefndin eins og áður segir einróma sammála um að veita 1. verðlaun teikn- ingum þeirra Þorvaldar og Sig- urjóns. Önnur verðlaun í samkeppn- inni hlutu þrir nemar í arkitekt- úr sem stunda nám í Stuttgart, þeir ömólfur Hall, Haukur Viktorsson og Hróbjartur Hró- bjartsson. Þriðju verðlaun hlutu einnig tveir nemar í arkitektúr er stunda nám í Edinborg, þeir Vilhjálmur Hjálmarsson og Ing. ólfur Helgason. Fyrstu verðlaun í keppninni voru kr. 100 þúsund, önnur verðlaunin kr. 50 þús. og þriðju Brúarjökull allur mikið sprunginn Á sunnudag flugu þeir Sig- urður Þórarinsson jarðfræðing- ur og Jón Eyþórsson veður- fræðingur með flugmálastjóra og tveim mönnum öðrum austur jdir Brúarjökul til þess að kanna hann. Þjóðviljinn átti í gær stutt tal við Sigurð Þórarinsson og sagðist honum svo frá að jök- ulsvæðið hefði allt virzt sprung- ið þannig að jökullinn væri að kalla allur á hreyfingu. Þoka lá yfir norðurbrún jökulsins og sást hún því ekki. Þá sáu þeir félagar að jökullinn kringum Pálsfjall hefur einnig sprungið mikið. verðlaunin kr. 25 þúsund. Þá ákvað dómnefndin að kaupa fjórðu tillöguna á kr. 15 þús. Eru höfundar hennar arkitekt- amir Þorvaldur Þorvaldsson og Jörundur Pálsson. Dómnefndina skipuðu þeir Guðmundur Jónsson skólastjóri, Bjami Óskarsson byggingarfull- trúi, Aðalsteinn Richter skipu- lagsstjóri, Hörður Bjarnason húsameistari ríkisins og Kjart- an Sigurðsson arkitekt. Bygg- ingamefnd skipa hins vegar Guðmundur Jónsson, tíjarni Óskarsson og Aðalsteinn Eiriks- son. Bændaskólinn að Hvanneyri verður 75 ára næsta vor og sagði skólastjórinn að bezta af- mælisgjöfin sem hann gæti feng- ið væri að hafizt yrði handa um byggingaframkvæmdir að Hvanneyri. Núverandi skóla- hús er byggt árið 1901, leik- fimishúsið 1911 og íbúðarhús 1920 svo að brýn þörf er orðin á endumýjun á húsakosti skól- ans. Alþingi hefur nýverið veitt kr. 1,5 millj. til byggingafram- kvæmda að Hvanneyri en að sjálfsögðu hrekkur það framlag eitt saman skammt. f gær var opnuð sýning í Bændahöllinni, 3. hæð, á öll- um teikningunum sem bárust í samkeppnina og verður hún opin í dag og á morgun kl. 2 til 10 e.h. Þriðjudagur 14. janúar 1964 — 29. árgangur — 10. tölublað. Loftleiðir lækka fargjöldin um 15% Samkvæmt fréttatilkynningu sem Þjóðviljanum barst í gær hafa Loftleiðir nú ákveðið að lækka fargjöld sín um 15% 1. april n.k. svo að þau verði áfram hlutfalls- lega lægri en fargjöld IATA-félaganna. Tilkynning Loft- leiða um þetta er svohljóðandi: ,,Stjóm Loftleiða hefur setið á fundi undanfarið og tekið end- anlegar ákvarðanir um sumará- ætlun og fargjöld. Sumaráætlunin verður með svipuðu sniði og s.l. sumar, og ferðafjöldi sá sami. Fargjöld félagsins lækka frá 1. aprfl n. k. um nálægt 15%, og verða því áfram hlutfallslega lægri en fargjöld þau, sem taka gildi hjá IATA félögunum frá sama tíma. Fargjöld þessi gilda á sama tíma og hin lækkuðu fargjöld IATA félaganna, eða um 10% mánuð á ári. IATA félögin hafa ekki lækk- að fargjöld innan Evrópu, og þar með Islands og meginlands- ins, þótt stjóm Loftleiða telji eðlilegt að þar hefði lækkun einnig átt að verða, þar sem sú flugleið er hluti af Norður-Atl- antshafsflugleiðum. Vegna vaxandi samkeppni hefur stjóm félagsins í athugun kaup á skrúfuþotum, en þær eru mun hagkvæmari, en aðrar farþegaflugvélar“. Töfluröð kepp- enda á mótinu 1. Nona Gaprindasjvíli 2. Friðrik Ólafsson 3. Ingvar Ásmundsson 4. Svein Jóhannessen 5. Ingi R. Jóhannsson 6. Magnús Sólmundarson 7. Gligoric 8. Jón Kristinsson 9. Robert Wade 10. Guðmundur Pálmason 11. Mikael Tal 12. Arinbjöm Guðmundsson 13. Freysteinn Þorbergsson 14. Trausti Bjömsson. Landiiðið hélt stjórn Sjómannaféiagsins ★ Enn einu sinni hefur mörg hundruð manna Iandlið ríkisstjómar- flokkanna ráðið úrslitum í kosningum í Sjómannafélaginu, og bend- ir minnkandi kosningaþátttaka til þess að sjómenn telji i vaxandi mæli þýðingarlaust að taka þátt í kosningum við það fáránlega fyrirkomulag sem viðhaldið er í félaginu. En þar er sem kunnugt er mörg hundruð manna haldið í fullum félagsréttindum ævilangt sem ekki ættu að hafa til þess neinn rétt og hefðu ekki í öðrum verkalýösfélögum. En litið er hirt um þó starfandi sjómenn á Reykjavíkurflotanum séu utan félagsins. ★ Úrslitin í stjómarkosningunum urðu þau að listi stjómarinnar og landliðsins hlaut 668 atkvæði og alla sína kosna, en hlaut 698 í fyrra. Listi starfandi sjómanna, B-listinn, hlaut nú 385 atkvæði en fékk 399 í fyrra. Auðir seðlar voru 15 og ógildir 6. ! SKÁKMÓTIÐ HEFST í DAG GAPRINDASJVÍLI ÞÝÐIR DÓTTIR FLUGSINS ■ Meðan blaðamenn þyrptust á Sögu að fá fréttir af því mikla skákmóti sem hefst í dag, höfðu þau Tal, fyrrverandi heimsmeistari og Nona Gaprindasjvíli, heimsmeistari kvenna tekið sér sæti í forstofu og léku hraðskák af miklum tilþrifum. Þau ætluðu sannarlega ekki að láta neinn tíma fara til spillis. Nona Já við erum nýkomin, sagði Nona, og það er verið að spyrja mig hvemig mér lítist á umhverfið — ég get því miður engu svarað ennþá. — En ég er ánægð með á- rangurinn á Hastingsmótinu — ég varð efst í mínum riðli. Þetta var fyrsta alvarlega mótið erlendis þar sem ég keppi við karlmenn. En heima hef ég auðvitað oft keppt við það kyn. — Hvemig hefur yður gengið á meistaramóti Grús- íu? — Ég hef verið í fimmta — sjötta sæti og þriðja — fjórða en þátttakendumir eru venju- lega sextán — átján, allt karimenn auðvitað. (Þvi má skjóta inn i að Grúsía á marga ákaflega sterka skák- menn, stórmeistara og hvað- eina). — Hvenær byrjuð þér að tefla? — Ég lærði að tefla fimm ára, en eiginlega byrjaði ég ekki fyrir alvöru fyrr en ég var tólf ára — Það var árið Míkhaíl Tal fyrrum heimsmeistari í skák og Nona Gaprinda- sjvíli, heimsmeistari kvenna. Sigrar þessarar tuttugu og tveggja ára gömln stúlku hafa verið skjótari og ótvíræðari cn menn þekkja dæmi til úr skákheimi. 1953 að ég var valin i úr- valslið Serdidi, sem er smá- borg í Grúsíu; þar fæddist ég. Ég þótti standa mig nokkuð vel, c~ hef ég teflt mikið síðan. Ég er núna stúdent við tungumálaháskólann í Tblisi og legg stund á ensku. Og ef spurt er um áhugamál mín önnur en skák þá mundi ég nefna tónlist, ballet og leik- hús — ég veit ekki hvort ég get gert upp á milli þessara lista . . . Þar stóð Arinbjöm Guð- mundsson og talaði um hugs- anlega vanlíðan ef hann mjmdi tapa fyrir Nonu, og við spurðum hvernig karl- menn brygðust við slikum á- föllum. Hún sagðist ekki geta svarað fyrir þá, en sjálfsagt fyndist þeim það leiðinlegt... — _Nei, ég get ekki sagt að ég sé orðin leið á skák, allra sízt svona mótum — en ég er nú líka nýbyrjuð að taka þátt í þeim. Og ef slíkur leiði skyldi grípa mann, nú þá er ekki annað fyrir en að hvíla sig. — Segið mér Nonna, þýðir ættarnafn yðar eitthvað sér- stakt á grúsisku? — Já, gaprinda þýðir fljúg- andi og svjíli er sonur — Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.