Þjóðviljinn - 19.01.1964, Qupperneq 1
Sunnudagur 19. janúar 1964 — 29. árgangur — 15. tölublað.
Bandariskir diplomaíar reknir heim
Minni horfur á sáttum
á milli Panama og USA
PANAMA 18/1 —■ Augljóst er nú að erfiðara ætlar að
reynast að kcxma á sáttum aftur milli stjóma Panama og
Bandaríkjanna, og virðist ekkert hafa orðið úr því sam-
komulagi sem tilkynnt var á miðvikudag að st'jómmála-
samband myndi aftur tekið upp milli ríkjanna og hefur
Panamastjóm nú rekið alla bandaríska stjómarerindreka
og skyMulið þeirra úr landi.
Bandaríkjastjóm tilkynnti í
gærkvöld að Fanamastjóm hefði
ákveðið að kalla heim alla
sendimenn sína í Washington
og hefði sendiráði Cogta Rica
verið falið að gæta hagsmuna
Panama í Bandaríkjunum.
Jafnframt hefði Bandaríkja-
stjóm verið beðin um að kalla
heim alla sína œndimenn í
Panama og í morgun var stað-
fest í Panamaborg, að þeim
Leikdómur um Læðurnur
SL fimmtudagskvöld var finnska Ieikritið Læðumar frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu og birtist leikdómur Ásgeirs Hjartarsonar á 2.
blaðshm í dag. Myndin er úr einu atriöi Ieiksins.
Lmdleiðir krefjast
lögbanns á Frama
■jc Þau tíðindi hafa nú gerzt í verkfalli bílstjóra á sérleyfisbif-
reiðum að Landleiðir hafa krafizt lögbanns á þær aðgerðir Bif-
retðastjórafélagsins Frama að stöðva f fyrradag akstur tveggja
skrifetofumanna hjá Landleiðum á leiðinni Reykjavík — Hafnar-
fjörður, þeirra Eiríks Stefánssonar og Hróbjarts Jónseonar.
★ . Kl. 4 í gær átti Frami að leggja fram vöm í málinu og Land-
leiðir að leggja fram 100 þúsund króna tryggingu fyrir lögbanns-
aðgerðinni. Bjóst Bergsteinn Guðjónsson formaður Frama við því
í gser að úrskurður um lögbannið yiði felldur á morgun, mánudag.
★ Engir samningafundir höfðu verið boðaðir i deilunni er blaðið
átti tal við Bergstein síðdegis í gær.
Gerið skii fyrir
kl. 7 á mánudug
Þeir sem enn hafa ekki lokið
fullum skilum við Happdrætt'
Þjóðviljans eru beðnir um a*
Ijúka þeim fyrir klukkan 7 síðdegis á morgur
mánudag. Að öðrum kosti verða miðarnir, sem
þeir hafa í vörzlu, reiknaðir þeim sem seldir. —
Happdrætti Þjóðviljans.
hefði verið vísað úr landi.
Hafa þeir og fjölskyldur þeirra.
einnig stafsmenn hinna svo-
nefndu „friðarsveita“, haldið til
bandaríska hemámssvæðisins
við Panamaskurð og bíða þar
heimfgrðar.
Þegar uppþotin urðu við Pan-
amaskurð fyrir síðustu helgi og
tugir ungra Panamabúa féllu
fyrir bandariskum byssukúlum
ákvað Panamastjórn að slíta
stjórnmálasambandinu við
Bandaríkin, en á miðvikudaginn
tilkynnti Rusk utanríkisráðherra
í Washington að náðst hefði
samkomuiag um að taka það
upp aftur og var búizt við að
því yrði komið á fyrir þessa
helgi.
Þetta hefur farið á aðra leið
og stafar það vafalaust af því
að Chiari forseti hefur neyðzt
til að láta undan kröfu lands-
manna um fulla e’liurð í við-
skiptunum við Bandaríkin.
Flokkurinn
Fundur í Sósíalista-
félaginu
if Sósíalistafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund kl. 8.30 ann-
að kvöld, mánudag, að Tjam-
argötu 20.
ic Rætt verður um verka-
lýðsmál og sagt frá flokksstjórn-
arfundi Sósíalistaflokksins.
SEiNT EN
ALDREI
-fci Holman borinn losar
manninn við hinn hvim-
leiða hristing sem fylgir
Ioftþrýstibornum og hefur
eyðilagt hcilsu margra
manna. Hann hefur vcrið
á heimsmarkaðinum í átta
ár en er nú fyrst að sjá
dagsins Ijós hér á landi.
Eklti er árvckninni fyrir að
fara. — (Ljósm. Þjóðv.
A. K.),
Sjá frétt á 12. síðu
um gröft Fossvogs-
ræsisins.
Sunnudagur — sunnu-
dagsblað Þjóðviljans og
Óskastundin, barnablað-
ið í nýju formi, fylgja
blaðinu í dag.
Sjö fluttir af
slysstað
Síðdegis í gær, rétt áður en
blaðið fór í prentun, varð meiri-
háttar bifreiðarsJys á Suður-
landsvegí, rétt hjá Lögbergi.
Voru tvær sjúkrabifreiðir send-
ar á vettvang og fluttu þær sjö
slasaða menn í bæinn.
Krústjoff í ræðu í Kalínín:
„Þaí eru aðeins óvitar eða
flón sem óttast ekki stríð"
MOSKVU 18/1 — Krústjoff forsætisráðherra lýsti fullum
stuðningi Sovétríkjanna við frelsisbaráttu Panamabúa í
ræðu sem hann hélt í Kalínín í gær að Fidel Castro
viðstöddum.
í greipum sér. Sovétríkin styddu
allar þjóðir sem berðust fyrir
frelsi sínu og sjálfstæði, en meg-
ináherzlu legðu þau á að tryggja
Krústjoff sagði að heimsvalda-
sinnar mjmdu fyrr eða síðar
verða hraktir burt úr öllum
þeim löndum sem þeir héldu nú
Castro i sleðaferð í Moskvu
friðlnn í heiminum. Frá þetrrí
stefnu myndu þau aldrei hvika.
— Því er ekki að neita að til
eni þeir félagar í öðrum löndum
sem segja að Krústjoff skjátlist,
að hann sé lafhræddur við stríð.
En það eru aðeins óvitar eða
flón sem ekki óttast stríð. Við
vitum hvað stríð er og hvers
mannkynið hefði að vænta af
því. Þess vegna gerum við allt
tiil að foröa stríði. En við grát-
bænum engan um frið. Ráðist
fjandmenn á okkur, munu þeir
hafa verra af.
Tul efstur
eftir þrjár
Eins og frá var sagt hér i
blaðinu í gær voru biðskákir
úr þrem fyrstu umferðum
Reykjavíkurskákmótsins tefldar í
fyrrakvöld. Þrem skákum varð
þó ekki lokið en það eru skák-
ir Guðmundur og Inga, Guð-
mundar og Gligoric, Jóns og
Trausta.
Eftir þessar þrjár umferðir
var staðan þessi: 1. Tal 3 v.,
Friðrik 2%, 3^ Gligoric 2
og 1 bið, 4.—5. Johannessen og
Ingvar 2, 6. Gaprindasjvili 1%.
7. Guðmundur 1 og 2 bið, 3.
Ingi 1 og 1 bið, 9. Wade 1, 10.
Jón Vt og 1 bið, 11,—13. Magn-
ús, Arinbjöm og Freysteinn
14. Trausti 0 og 1 bið.
V2,
Fjórða umferð var tefld í gær
og verða fréttir af henni ef ein-
hverjar berast áður en blaðið
fer í prentun birtar annars
staðar. Fimmta umferð verður
tefld í dag. og eigast þá þessir
við: Ingi og Graprindasjvíli
Johannessen og Friðrik, Magnús
og Freysteinn, Gligoric og Arin-
bjöm, Jón og Tal, Wade og
Guðmundur, Ingvar og Trausti.
*