Þjóðviljinn - 19.01.1964, Side 3
Sunnudagur 19. janúar 1964
A-o'„ \
«.
DACINN
HðDVIUINK
SIÐA 3
Viðhorf bónbjargamannsins
Skringilegur
veruleiki
Um síðustu helgi birti Al-
þýðublaðið niðurstöður rann-
sóknar sem Hagstofa Islands
hefur gert á því hversu mikið
menn telja fram til skatts. Dró
blaðið síðan býsna víðtækar á-
lyktanir af tölum sínum. og
taldi þær sanna að hér ríkti
næsta fullkominn launajöfnuð-
ur; lægstir af vinnandi mönn-
um voru bændur og gróður-
húsaeigendur, sem tailið höfðu
fram til jafnaðar 99.000 króna
árstekjur 1962; hæstir voru yf-
irmenn á fiskiskipum sem það
mikla síldveiðár töldu fram
206.000 krónur hver að meðal-
tali; aðrar stéttir röðuðust
milli þessara marka með næsta
reglulegu millibili. En ekki
þurfti lengi að líta á þessar
töltrr til þess að sjá að í þeim
birtist næsta skringlegur veru-
leiki. Þannig reyndust „for-
stjórar og vinnuveitendur“
vera í sjötta tekjuflokki að
ofan; þeir höfðu samkvæmt
eigin frajptali haft ögn lægri
árstekjur en kennarar 1962 —
og geta menn þá nærri hvernig
ástandið muni vera nú eftir að
kjaradómur hefur lagfært kjör
kennara þó nokkuð en hagtir
atvinnurekenda versnað til
muna að sögn sjálfra þeirra.
Samkvæmt skýrslunni voru
mánaðartekjur atvinnurekenda
og forstjóra innan við 13.000
krónur að meðaltali, og má
það teljast til kraftaverka
hvemig þvílíkar tekjur hafa
hrokkið til þess að koma hér
upp hinum veglegustu lúxusí-
búðahverfum og standa undir
hverskyns munaði svo að at-
hygli hefur vakið jafnt inn-
an lands sem utan. Að minnsta
kosti mundu , hinir tekjuháu
kennarar eflaust þiggja að
kynnast því leyndarmáli
hvemig unnt er að drýgja
peningana á þennan hátt og
trúlega fal'last á það síðan að
lækka tekjur sínar ofan í at-
vinnurekendakaup til þess að
bæta kjör sín.
Varasamt
Þannig kunna ýmsir liðir i
skýrslunni fremur að vera til
marks um snilli manna í fram-
tölum en raunverulegt ástand
i þjóðfélaginu, og sönnun þess
að ríkisstjómin gæti fundið
fjármagn með ýmsu öðru móti
en því að skerða tekjur al-
mennings með nýrri verðbólgu.
En Alþýðublaðið ætti einnig
af öðrum ástæðum að varast
að draga of víðtækar ályktanir
af framtalaskýrslunni. Hag-
skýrslur ber að nota með var-
úð, einkanlega allla meðal-
talsreikninga. Til að mynda
sýndu hagfróðir menn fram á
það í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum að ,,meðalkjör“
manna væru mjög góð, og töl-
ur þeirra vroru allar réttar.
Engu að síður var það jafn ör-
ugg staðreynd að í þessu auð-
uga landi voru þá 40—50 milj-
ónir manna sem bjuggu við
skort sem var svo sár hjá stór-
um hluta þeirra að hann jafn-
gilti vonlausri neyð. Hagur
hins snauða batnaði ekki þótt
hann og einhver sem vel komst
af væru spyrtir saman á blaði
og deilt i útkomuna með
tveimur. Þegar svo er ástatt
verður útreikningur á „meðal-
kjörum“ aðeins til þess að fela
veruleikann.
Svo er hinni róttæku verk-
lýðshreyfingu fyrir að þakka
að hér er annað þjóðfélags-
ástand en í Bandaríkjunum og
ólíkt meira mark takandi á
meðaltölum. Samt skyldi rit-
stjóri Alþýðublaðsins forðasi-
að eins fari fyrir honum or>
manni nokkrum sem var á
gönguferð í Sviþjóð fyr'r
nokkKim árum. Fyrir honum
rarð stórt vatn og haa» þurfti
fslenzkt stolt
að komast yfir á fjarlægari
bakka þess. Hann sá í leiðar-
lýsingu að meðaldýpi vatnsins
var ekki nema hálfur metri
og á&vað því að vaða yfir það
til þess að spara sér stóran
krók. Hann var þó ekki kom-
inn nema nokkra metra frá
bakkanum þegar hann sökk á
bólakaf, og hefur honum ekki
skotið upp síðan.
Reisn
atvinnurekenda
Framtöl íslenzkra atvinnu-
rekenda eru ekki aðeins hag-
fræðilegar staðreyndir, heldur
og mjög athyglisverð félagsleg
trúa á gagnsemi auðvaldsþjóð-
félagsins og reyna að lýsa at-
vinnurekendum sem forustu-
liði og dugmiklum athafna-
mönnum sem beri þjóðfélagið
á herðum sér. Einmitt við-
re'snin, sem þó átti að færa
sönnur á yfirburði þess þjóð-
skiplags, hefur sýnt almenn-
ingi að íslenzku gróðastéttinni
er það gersamlega um megn
að stjórna efnahagsmálum
án þess að af hljótist botn-
laus glundroði. Því mæna for-
ustumenn stjórnarflokkanna á
erlenda atvinnurekendur og
vilja fá þá til íslands, til að
færa sönnur á stjómmáilahug-
myndir þær sem innlendir at-
vinnurekendur rísa ekki undir.
í Morgunblaðinu bendir til þese
að nú séu ákvarðanir skammt
undan. Þannig sa,gði Morgunbl.
í forustugrein á fimmtudag-
inn var: „Sem betur fer gera
þó æ fleiri sér grein fyrir því
hve geysiilegan hag við gætum
haft af því. ef erlendir aðilar
feng.just til að taka þátt í stór-
iðju hér á landi. í því efni
mættum við gjarnan taka
Norðmenn til fyrirmyndar, en
eins og kunnugt er hafa þeir
byggt upp ýmsan stóriðnað
á þann veg að heimila útlend-
ingum þátttöku, og reynslan
hefur orðið slík að þeir hafa
sótzt eftir meiru erlendu fjár-
magni. . . Hér á landi verð-
ur að rísa stóriðja. ef okkur
í engu sjálfstæðt
ríki
Islenzkir valdhafar hyggja
á allt annað en það að fylgja
hinu varkára fordæmi Norð-
manna; þeir eru aðeins í
blekkingaskyni að láta eins
og þjóðirnar séu jafnstórar og
ámóta öflugar efnahagslega.
Ekkert hefur verið látið uppi
um það hvað fyrirhuguð alú-
miníumverksmiðja og virkjun í
hennar þágu myndi kosta.
Erik Brofoss sagði hins vegar
í fyrirlestri þeim sem áðan
var vitnað t:l, að heppilegasta
stærð fyrir álúminíumverk-
þessi röksemd á nákvæmlega
eins v:ð um erlend stórfyrir-
tæki. Þess eru mörg dæmi —
m.a. úr sögu okkar sjálfra —
hversu háskalegt það er að
eiga afkomu sína undir er-
lendum aðilum sem einvörð-
ungu hugsa um gróða sinn; til
að mynda mátti eyjan Malta
sanna það þegar' Bretar lögðu
n'ður flotastöð sína og stór-
athafnir fyrir nokkrum árum
og leiddu alvarlegustu örðug-
leika yfir eyjarskeggja.
Þessi röksemd sannar okkur
hitt. að við megum aldrei
binda afkomu okkar við nein
fyrirtæki — hvorki innlend né
erlend — sem séu svo stór- að
hrun þeirra ríði okkur að fullu,
eins og gjaldþrota alúminíum-
verksmiðja myndi til dæmis
gera. Stærð fyrirtækja á Is-
landi ber að miða við fjölda
landsmanna og fjárhagsgetu,
og við okkur blasa óþrjótandi
verkefni sem við ráðum sjálf-
ír við. Er þar efst á blaði
fullkominn fiskiðnaður með
nútímatækni, en fiskveiðar Is-
lendinga eru sem kunnugt er
miklu arðbærari en nokkur
stóriðja sem vitað er um í
veröldinni.
Fiskveiðar Islcndinga eru miklu arðbærari en nokkur stóriðja.
og sálfræðileg fyrirbæri. I
öflugum auðvaldsþjóðfélögum
þykir atvinnurekendum það
styrkur og metnaðarauki að
auglýsa sem bezta afkomu
fyrirtækja sinna og greiða sem
hæst opinber gjöld; þanmg
færa þeir sönnur á að þeir
séu svokallaðar máttarstoðir
þjóðfélagsins. En hér þykir sá
atvinnurekandi fremstur sem
er mestur snillingur í því að
berja sér og kann að losna
við allar þjóðfélagslegar skuld-
bindingar. Þetta er raunar af-
leiðing af því að atvinnurek-
endur hér lifa yfirleitt pólitísku
sníkjulífi; þeir fá afhenta fjár-
muni allmennings í bönkum til
þess að „eignast“ fyrirtæki sín,
og það er síðan helzta verk-
efni ríkisstjóma og alþingis
að finna upp á endalausum
úrræðum til þess að bjarga
rekstri þeirra, gengislækkun-
um. uppbótakerfi, og hvað þau
nú heita öll þessi hagfræði-
legu snilldarbrögð. Menn sem
ekki eru neitt af sjálfum sér,
heldur lifa á pólitísku betli,
eru ekki líklegir til að sýna
mikla reisn í framkomu sinni;
það er i samræmi við annað
þegar þeir keppasl vi<* að aug-
lýsa fátækt sína á framtals-
eyðublöðum skattstofunnar.
Erlent fjármagn
Það er ekki að undra þótt
fvamkoma af þessu tagi renni
fi&ikn Aioasau^a iil Á&a t&m
llöngunin í erlent fjármagn
hefur mótað alla pólitíska
hugsun stjómarflokkanna síð-
ustu árin. Þeir gerðu sér á sín-
um tíma vonir um að það
vandamál leystist sjálfkrafa
með aðildinni að Efnahags-
bandalaginu, en eftir að sú
von brást eru hafnar alvarlegar
samningaviðræður við erlend
auðfélög um fyrirtæki hér á
landi, alúminíumverksmiðju,
olíuhreinsunarstöð o.fl. Þann-
ig er ætlunin að bjarga auð-
valdsskipulaginu á Islandi og
sýna almenningi framan í
sanna kapítalista sem ekki
leggi kapp á að lýsa sjálfum
sér um einhverjum undirmáls-
mönnum <í þjóðfélaginu.
Eftirvæntingar-
tónn
Það er í samræmi við venjuleg
pólitísk vinnubrögð á íslandi,
að almenningur fær ekkert að
vita um samninga þá sem
staðið hafa yfir við auðhring-
ana um langt skeið. Hér í
blaðinu hefur margsinnis ver-
ið krafizt greinargerða um
málavexti, en engin svör hafa
heyrzt. 1 staðinn hefur komið
almennur áróður um það hví-
líkur happafengur erlend auð-
fyrirtæki yrðu þjóðinni. Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra
kemur þessum áróðri að í
hverri ræðu sem hann flytur,
Víoutodi efárv^sn.fel£3ftáa»
á að auðnast að bæta lífskjör-
in verulega.”
Ósvífin fölsun
Ástæða er til að rifja það
enn einu sinni upp að rök-
semdin um fordæmi Norð-
manna er ósvífin fölsun. 1 er-
indi sem Erik Brofoss, banka-
stjóri Noregsbanka, flutti við
Háskóla Islands í septmeber-
mánuði 1961 Skýrði hann svo
frá að þá næmi erlend hluta-
bréfaeign í Noregi 455 mi'lj-
ónum norskra króna; það jafn-
gildir um það bil 2.700 milj-
ónum íslenzkra króna, en sú
eign hefur safnazt saman á
mörgum áratugum. Miðað við
fólksfjölda væri hliðs.tæð er-
lend fjárfesting hér á landi
rúmar hundrað miljónir ís-
lenzkra króna. Sú mikla er-
lenda fjárfesting sem talað er
um f Noregi og talin er for-
dæmi fyrir Islendinga jafngild-
ir semsé því, að erlendir að-
ilar ættu tvo stóra togara hér
á landi! Auðvitað þyrfti fjár-
festing af silíku tagi ekki að
vera hættuleg Islendingum,
hún myndi á engan hátt sporð-
reisa efnahagskerfi okkar eða
veita útlendingum hættulegt
áhrifavald; hins vegar er vand-
séð hver ávinningur væri að
smiðju væri 100.000 tonn. „I
slíkri alúminíumverksmiðju á-
samt orkuveri. sem er svo að
segja óaðskiljanlegur hluti
hennar, myndi heildarfjárfest-
ingin vera 1.000—1.100 milj.
no. kr.“ Kostnaðurinn yrði
þannig 6—7 þúsund miljónir
islenzkra króna eða semsvar-
ar öllum útflutningstekjum
Islendinga í tvö ár! Erlend
fjárfesting af þessu tagi fyr-
irfinnst ekki í nokkru sjálf-
stæðu ríki á jarðarkringlunni.
Dæmi um hana er einvörð-
ungu að finna í nýlendum og
hálfnýlendum, svo sem ýmsum
ríkjum Afríku og rómönsku
Ameríku. Hvarvetna hefur
reynslan orðið sú að hin er-
lendu auðfyyjrtæki hafa
drottnað yfir hag landsmanna,
ráðið öllu sem þau vildu, og
baráttan gegn ofurvaldi þeirra
hefur einpiitt sett sérstakan
svip á sögu síðustu ára.
Röksemd gegn
risafyrirtæki
I áróðursgrein sinni segir
Morgunblaðið að hættulegt sé
fyrir Islendinga að stofna stór-
fyrirtæki með erlendum lán-
tökum, „því að aldrei er fyrir-
fram öruggt með öllu að þau
verkefni sem ráðizt er í, skili
arði. Þannig getur orðið um
stórfelldar tækniframfarir að
ræða, sem geri tiltöíulega nýtt
fyjártæki óacdga^alegt'V Eu
Það er til marks um niður-
lægingu íslenzkrar hugsunar á
þessum hemámstímum, að hér-
lend stjómarvöld leggja ofur-
kapp á að búa landsmönnum
þau örlög sem öll önnur ný-
frjáls ríki vilja umfram allt
forðast. Það íslenzka stolt sem
um má lesa í fomum sögum
og skáldskap er horfið víðar
en af skattaframtölum hér-
lendra atvinnurekenda. Hvar-
vetna blasa við dæmin um
viðhorf b'ónbjargamannsins,.
Nýlega var til að mynda sagt
frá því í blöðum, að hemáms-
liðið væri að hugsa um að
leggja hitaveitu á Keflavíkur-
flugvöll, samkvæmt þeirri
kenningu að vel skuli vanda
það sem lengi á að standa. I
frásögn Morgunblaðsins fylgdi
það með að ráðmenn Keflavík-
ur og Njarðvíkur hefðu haft
mikinn áhuga á þessari ráða-
gerð, því þeir væntu sér að
,.njóta góðs af“. Þannig átti
að gera þessa myndarlegu
fiskibæi að halaklepp á her-
stöðinni að þessu leyti. Um
þessar mundir er það einnig
helzta verkefni Guðmundar t.
Guðmundssonar utanríkisráð-
herra að berjast gegn því að
Bandaríkjamenn fækki ís-
lenzku starfsliði á herstöð
sinni, enda hafa skjólstæðing-
ar hans jafnt í fríhöfninni
sem verktakaframkvæmdum
sýnt mjög eftirbreytnisvert
framtak að undanfömu. Ekki
stendur heldur á því, að þús-
undir manna telji það fagn-
aðarefni að eiga þess kost að
„horfa ókeypis" á áróðurssjón-
varp erlendrar henstöðvar. Það
er þetta viðhorf sem valdhaf-
arnir vilja innræta þjóð sinni,
það betlandi hnigarfar sem er
sérkenni hinna snauðu íslenzku
atvinnurekenda; og takist það
mega þeir vissulega með
nokkrum hætti teljast fomstu-
stétt á Islandi. — Austri.
Hjálparsjóður
Magnús Sigurðsson, skóla-
stjóri Hlíðaskóla hefur afhent
biskupsembættinu til vörzlu
kr. 100.000,00. Er það ágóði,
sem orðinn er af sýningum
kvikmyndarinnar: Ur dagbók
lífsins.
Með framlagi þessu hyggst
Magnús Sigurðsson stofna sjóð,
Hjálparsjóð æskufólks, er hafi
það markmið að bæta böl
barna og unglinga, sem í raun-
ir rata, og flýta fyrir byggingu
heimila fyrir afvegaleidda
æsku.