Þjóðviljinn - 19.01.1964, Blaðsíða 4
\ SfÐA
ÞJÖÐVILIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: fvar H. Jónsson, Ma&nús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 80 á mánuði.
Gerðardómssnaran á lofti
ITrakyrði og fullyrðingar Morgunblaðsins um
-*•■■■ Trésmiðafélag Reykjavíkur og forystu þess
eru ekki einungis ósvífinn áróður manna sem
taka að sér að verja slæman málstað, heldur er
staðreyndum þar alveg snúið við, ef verða mætti
til þess að menn sem ekki þekkja til trúi því að
hinir traustu og farsælu forystumenn Trésmiða-
félagsins séu misindismenn eins og Morgunblaðið
vill vera láta.
Ctrax er rétt að geta tveggja staðreynda, að
^ Meistarafélag húsasmiða léf sig hafa það að
fella samkomulag um 15% hækkun tímakaups
húsasmiðanna, líklega einu afvinnurekendurnir
sem svo hafa gert síðustu vikur. Og baráfta stjórn-
arklíku Vinnuveitendasambandsins fyrir því að
'trésmiðir semji nú um gerðardóm, sem ákveði til-
tekið atriði í kaup- og kjaramálum, er ekki vin-
sælli en svo meðal meistaranna sjálfra að
Vinnuveitendasambandið og Meistarafélagið hafa
nú gripið til þess örþrifaráðs að boða verkbann,
vegna þess að ofstækisframkoman dugði ekki og
farið var að vinna um allan bæ eftir taxta Tré-
smiða'félagsins. Það eru þannig Vinnuveitenda-
sambandið og Meistarafélagið sem reyna að halda
áfram stöðvun í húsbyggingum þvert gegn vilja
og hagsmunum mikils hluta félagsmanna sinna.
¥|að er gersamlega tilhæfulaus ásökun að Tré-
* smiðafélagið hafi ekki verið til viðtals um
leiðréttingar á verðskránni í ákvæðisvinnu. í
greinargerð sem félagið birti sl. sunnudag var
sýnt fram á með Ijósum dæmum að núgildandi
verðskrá, sem samin er í sameiningu af sveinum
og meisturum er í ýmsum atriðum hagstæðari
húsbyggjendum en fyrri verðskrá sem meistarar
sömdu einir. Á verðskrá þessari, frá 1962, hafa
verið gerðar á annað hundrað breytingar, einnig
með samkomulagi sveina og meisfara. Og fyrir
sameiginlegri nefnd þeirra um þessi mál liggja
nú engar óafgreiddar breytingartillögur frá meist-
urum.
¥?nda er hitf aðalatriðið eins og formaður Tré-
smiðafélagsins, Jón Snorri Þorleifsson, lýsti
yfir í blaðaviðtali, að félagið neitar að samþykkja
gerðardómsákvæði inn í kaup- og kjarasamninga
Trésmiðafélagsins, og sömu afstöðu taka önnur
iðnsveinafélög. Og segja má að það sé hámark
hræsninnar þegar Vinnuveitendasambandið og
Meistarafélag húsasmiða vilja telja fólki trú um
að barátta þeirra fyrir slíku gerðardómsákvæði
sé umhyggia fyrir lítilsmegandi húsbyggjendum.
Þörf væri að taka alla þá „umhyggju“ til ræki-
legrar atbugunar. Vel gæti þá fundizt að miðalda-
kerfið með meistara. sveina og nema, sem er raun-
ar að verða á við broslega skrítlu í þjóðfélags-
háttum á sjöunda tug tuttugustu aldar, væri slík
maðkaveita óþarfra milliliða, sem forréttindi
hefðu til að skófla gróða af vinnu annarra og okra
á húsuyggiendum. að siálft kerfið yrði aftekið og
eðlilegri nútímaskipan komið á þau mál. Vöm tré-!
smiðanna gegn gerðardomsasókn Vinnuveifenda-
sambandsins er vörn fyrir grundvallaratriði sem
varðar alla verkalyðshreyf’nguna og a skilið eln-
dreginn stuðning og samúð. — s. ,
Surmudagur 19. janúar 1964
Knattspyrr.^
Keflvíkingar unnu
innanhúss-mótið
Það voru Keílvíking-
ar sem báru sigur úr
býtum í innanhússmót-
inu í knattspyrnu.
Unnu þeir a-lið Fram í
úrslitaleik með 6:5.
Leikir síðara leikkvöld inn-
anhússmótsTns voru skemmti-
iegir, og talsverður spenning-
ur um úrslit undir lokin.
Leikir fóru þannig:
fBK a — KR a 6:5
Fram a — Víkingur a 4:3
KR b — ÍBK b 8:3
Fram c — Balur a 5:4
f undanúrslitum fóru leikar
þannig:
Fram a— Framc 6:5
(eftir framlengdan leik).
Keflavlk a — KR b 8:3
Úrslitaleikurinn var svo
milli a-liða Keflvíkinga og
Frani, Keflvikingar sigruðu
með 6:5, og var sigurmarkið
skorað á síöustu sekúndunum.
Reynir Karlsson sleit mótinu
og afhenti verðlaun. Sigurveg-
ararnir fengu silfurbikar að
verðlaunum, og sömuleiðis a-
lið Fram.
Þjálfaranámskeið
Námskeið fyrir knattspymu-
þjálfara verður hald ð á vegum
Knattspyrnusambands Evrópu
í Leipzig frá 21. til 27. júní
n.k.
Þeir, sem áhuga hefðu á að
sækja þetta námskeið, ættu að
hafa samband við K.S.f. sem
fyrst, þar sem tilkynna þarf
þátttöku fyrir n.k. mánaðar-
mót.
Afmælisskeyti
LAS VEGAS 17/1 — Hinn
frægi bandaríski hnefaleikari,
Cassius Clay, er 22 ára í dag,
en hann á að keppa við Sonny
Liston um heimsmeistaratitil-
inn í þungavigt 25. febrúar n.k.
L:ston hefur notað afmæ’i
Clay til nokkurs auglýsinga-
gamans, eins og títt er í
bandarískum íþróttum. Hann
sendi afmæ'lisbarninu svohljóð-
— Kæri Cassius. Það er
til Cassiusar
heppilegt að þú skulir eiga af-
mæli svona snemma. þvi ég
vil giarnan fá þig í afmælis-
gjöf síðar. Sjálfur hef ég gjöf
handa þér, en ég vildi gjam-
an bíða til 25. febrúar og af-
henda þér hana þá persónu-
lega. Gættu þess nú að ofgera
þér ekki svo í veizlufagnaðin-
um að þú verðir ekki fær um
að taka við gjöfinni frá
mér. —
EHympíumeistarinn 1960. 'VlZl
RECKNAGEL hátíðlega á indjánavísu þegar hann kom til Squaw
Valley 1960. Þar sigraði hann í skíðastökki, og norski stökkvar-
inn Torbjörn Yggeseth spáir því að hann sigri einnig í Innsbruck.
Bandaríkjamenn æfir vegna óhagstæðrar niðurröðunar
RÁSARÖÐ í BRUNIOG SVIGI
OL-LEIKANNA ÁKVEÐIN
Stjórn Alþjóða-skíðasambandsins hefur nú á-
kveðið rásröð keppenda í bruni, svigi og stór-
svigi á vetrarolympíuleikunum í Innsbruck. í
fyrstu 15 sætunum í hverri grein eru eingöngu
menn frá Alpa-löndunum í Evrópu, nema hvað
tveir Bandaríkjamenn eru í 11.—13. sæti í bruni.
Það hefur úrslitaþýðingu
fyrir keppendur í þessum
greinum að komast sem fremst
í rásröðina, því brautin versn-
ar stöðugt eftir því sem fleiri
nota hana, og þegar líða tekur
á keppnidaginn myndast oft
svellbungur í henni, er sólskin
er. Rásröðin verður sem hér
segir á olympíuleikunum í
Innsbruck:
SVIG;
1. Jos Minsch, Sviss 0
Wolfgang Bartels Þýzk 0
E. Zimmermann Austur. 0
4. Léo Lacroix Frakkl. 3.39
5. Karl Schranz Austurr. 2.47
J Heini Messner Austurr. 2.61
7 Adalbert Leitner Aust. 2.65
B Emile Viollat Frakkl. 2.84
9 Gerhard Nenning Aust. 3.60
10. Ludwig Leitner Þýzk. 3.80
11. Carlo Senoner Ítalíu 6.80
12. Buddy Werner USA 7.50
William Marolt USA 7.50
14. Guy Périllat Frakkl. 7.52
15 Yves Bienvenu Frakkl 8.08
STÓRSVIG:
1. Gerhard Nenning Aust. 0
2. Pepi Stiegler Austurr. 2.20
3. Jos Mínsch Sviss 2.41
4 Georges Mauduit Fr. 3.81
5. Jean-Claude Killy Fr. 5.25
6. Martin Burger Aust. 5.33
8. Karl Schranz Austurr. 6.05
7. Ludwig Leitner, Þýzk. 5.55
9. Hias Leitner Austurr. 6.68
10. Rob. Grúnenfelder Sv. 7.13
11. Wolfgang Bartels Þýzk 8.05
12. Hugo Nindi Austurr. 8.25
13 Guy Périllat Frakkl. 9.70
14 MiChel Arpin Frakkl. 10.79
15. G. Grúnenfelder Sv. 11.46
SVIG:
1. Guy Périllat Frakkl. 0
Pepi Stiegler Austurr. 0
3. Francois Bonlieu Fr. 0.22
4. Hias Leitner Austurr. 0.52
Ludwig Leitner Þýzk. 0.52
6. Italo Pedroncelli ftal. 1.45
7. Jean-Claude Killy Fr. 2.02
8. Wolfgang Bartels Þýzk. 3.10
9. Marting Burger Aust. 3.96
10. Ádalbert Leitner Aust. 3.97
11. Karl SChranz Austurr. 4.72
12. Miehel Arpin Frakkl. 4.79
13. Charles Bozon Frakkl. 4.90
14. Gerhard Nenning Aust. 5.62
15. Carlö Senoner ítalíu 5.93
an á mörgum mótum, enda
stutt og auðvelt að ferðast
milli þessara landa (Frakk-
land, Austurríki, Vestur-Þýzka-
land, Sviss og Ítalía). Skíða-
menn frá Ameríku, Austur-
Evrópu og Norðurlöndum hafa
sjaldan tækifæri til að taka
þátt í þessum mótum, sem lögð
eru til grundvallar við niður-
röðun rásnúmera á vetrar-ol-
ympíuleikunum.
Reiðir Ameríkanar
Bandaríkjamenn eru mjög
reiðir yfir þvi hvað þeirra
menn eru neðarlega á ráslist-
anum. Benda þeir á, að skíða-
menn frá USA hafi verið í
þriðja sæti í alpagreinum sam-
anlagt á heimsmeistaramótinu
í Chamoix á eftir Austurríki
og Frakklandi, en á undan
Þýzkalandi, ítalíu, Sviss og
Noregi. Þá vekja þeir athygli
á því að helzta stjarna þeirra,
Buddy Werner, sigraði Jos
Minsch < keppni í bruni í
Bandaríkiunum á siðastliðnum
vetri. Minsch er nú \ fyrsta
sæti á ráalistanum, en Wern-
er i 12 Fleiri þjóðir hafa
kvartað yfir einokun Mið-Evr-
ópuríkianna é fvrstu rásnúm-
erunum,
Handknafftaik*'
mnfií * fcvSM
I kvöld verða háðir tveir
leikir í 1. deild að Hálogalandi.
Annar leikurinn er milli Fram
og KF en hinn milli Víkings
og FH. Fvrr’ ío'Vt— -- hefst
kl. 8.15.
Tölurnar fyrir aftan hvern
mann eru stigin sem FIS gefur
keppendunum, og fá Þá beztu
mennimir 0 stig.
Á síðustu skíða-heimsmeist-
arakeppni í Chamoix 1962 voru
allir sigurvegarar meðal 10
fyrstu í rásröð. Niðurröðun
sína byggir Fis á skíðamótum
i Mið-Evrópu undanfarið. Þar
keppa flestir afreksmenn sam-
Buddy Wemer er helzta tromp Bandaríkjanna á vetrar-
olympíuleikunum.