Þjóðviljinn - 19.01.1964, Side 10
( SlÐA
HðÐVILJINN
Sunnudagur 19. janúar '1964
NEVIL SHUTE
eins og við.
— Þeir eru ekki eins skyn-
samir, sagði hún íhugandi.
Hann brosti. — Það er satt,
sagði hann. — Náungar með
svöðusár á hausnum eins og ég,
ættu að hafa vit á því að hlaða
ekki niður börnum, enþeirhugsa
ekki allir þannig.
Hún fór niður til að hugsa
um matinn og innan skamms
færði hún honum matinn í rúm-
ið og á meðan hlustaði hann á
útvarpið. Og þegar hún kom,
slökkti hann á því, og sagði: —
Ég hef verið að hugsa um hvort
ég ætti ekki að skrifa Morgan
í Burma og segja honum frá
Dave Lesurier og Duggie Brent.
Ég veit að honum þætti vænt
um að frétta af þeim og Nay
Hthon, hún heföi gaman af því
líka. Og eftir matinn sótti Mollie
blokkina sína og hann lá útaf
og las henni fyrir langt bréf um
Trenarth og Grace Trefusis og
þessi hjónabönd sem voru smit-
andi og um Jones og Porter og
Duggie Brent. Og eftir þennan
langa lestur var hann þreyttur
og sofnaði meðan Mollie var
niðri að vélrita bréfið og síðan
svaf hann fram að tetíma, fór
þá á fætur og drakk te með
henni niðri í stofu og síðan fóru
þau í bíó. Þetta var einn af
mörgum svipuðum dögum sem
komu á eftir og ef til vill var
þetta ánægjulegasti tíminn í mis-
jöfnu hjónabandi þeirra.
Þegar honum leið vel, var
hann vanur að fara á fætur
strax eftir morgunverð og fara
með henni út að verzla, koma
síðan heim og lesa fyrir eitt eða
tvö verzlunarbréf. Hann losnaði
við síðustu vindlakassana þessa
daga og þegar hann gerði upp
sakimar kom á daginn, að hann
hafði hagnazt á þeim um þrjú
hundruð og fjörutiu pund, sem
gerði meira en að standa undir
ferðinni tU Burma. Það gladdi
hann mjög.
Þau létu ekki afskrá bflinn
heldur höfðu hann til taks til
þess að geta skroppið bæjarleið.
Þegar honum leið sæmilega, var
MoUie vön að aka honum til
Barley Mow svo sem klukku-
stund fyrir lokun. Hann hafði
ekki lengur þrek til að stjóma
samkvæminu, en þessar kvöld-
stimdir við bjórdrykkju og góð-
látlegt rabb á yfirfullum bam-
um, voru honum til mikiUar á-
nægju; hann var vanur að tala
um þær daginn eftir og gera
áætlanir um næstu ferð.
Hann tók þátt í knattspymu-
getrauninni í hverri viku. Hann
gat ekki lengur lesið smáa letrið
í fréttapistiunum, en MoUie las
’-iá fyrir hann í hverri viku og
þau fylltu út kortin og sendu
þau inn, eitt fyrir hann og ann-
að fyrir hana. Hann vann ekki
neitt, en hún vann tvö pund og
fimmtán shiUinga eina vikuna,
og það varð þeim báðum til
mikiUar ánægju.
Þegar líðan hans var verri og
hann varð að taka lyf við höf-
uðverknum, var hann í rúminu
allan daginn, syfjaður, mókandi
og hugsandi. Um miðjan októ-
bermánuð féU hann útaf í éld-
húsinu. Hann hafði veriö á
göngu með MoUie allan morg-
uninn; þegar hann kom inn í
húsið, fékk hann svima; hann
teygði sig eftir eldhúsbekknum;
tókst ekki að ná takinu og datt
og skaU með hnakkann utaní
eldavélina. 1 fallinu dró hann
með sér súpuskálina og þrjá
59
diska og þegar MoUie rann á
hljóðið ofan af lofti, kom hún
að hanum þar sem hann lá með-
vitundarlaus á gólfinu í haug af
glerbrotum.
Hún kaliaði á frú Pocock í
næsta húsi sér til hjálpar; í
sameiningu tókst þeim að bera
hann upp á loftið og koma hon-
um í rúmið. Þegar Worth læknir
kom eftir tvær klukkustundir,
var hann aftur kominn til með-
vitundar, en hann fór ekki fram-
ar út á götuna.
Frú Pocock var hjálpsemin
dæmigerð. I vöntun á einhverj-
um að tala við og fyrir aðstoð-
ina við að koma Turner upp
stigann, trúði MoUie henni fyrir
veikindasögu hans; hún skýrði
prestinum frá öUu saman. Þau
voru ekki mjög kirkjurækin —
satt að segja höfðu þau sára-
sjaldan sýnt sig þar, en prest-
urinn var góður og sanngjam
maður og hann kom í heimsókn
einn daginn þegar herra Tumer
var í rúminu og var að vélta
fyrir sér hvort hann ætti að
klæða sig fyrir te og fara síðan
út í Barley Mow.
Mollie vísaði honum upp í
svefnherbergið. — Hér er herra
Holden kominn að finna þig,
Jackie, sagði hún. Við prestinn
sagði hún: — Það er mjög vin-
gjamlegt af yður að líta inn.
Hún skildi þá eftir saman og
fór niður til að ljúka við að
stjúka þvottinn. Hálftíma seinna
heyrði hún að presturinn var á
leið útúr pvefnherberginu og
kom til móts við hann í and-
dyrinu til að fylgja honum til
dyra.
Herra Holden sagði: — Hann
virðist vera hress og kátur, frú
Tumer.
— Það er satt, svaraði hún.
— Það er eins og ekkert komi
honum úr jafnvægi.
— Nei; hann tekur þessu ákaf-
lega vel. Hann hugsaði sig um
stundarkom. — Auðvitað er það
augljóst, að hann hefur aldrei
verið það sem við köllum trú-
aðan mann, sagði hann ogbrosti.
Hún velti fyrir sér með hálf-
gerðum kvíða, hvað Jackie hefði
eiginlega sagt við hann. — Ef
ég get orðið yður að einhverju
liði, frú Tumer, þá látið mig
vita. Og ef yður finnst sem
hann vildi gjarnan tala við mig
aftur — það kemur stundum fyr-
ir, skiljið þér — þá skal ég
koma undir eins. Hvenær sem
er.
Hún sagði: — Það er mjög
vinsamlegt af yður, herra Hold-
en. Ég er viss um að það gleður
hann að heyra það.
Hann fór og hún slökkti á
jáminu og fór upp í svefnher-
bergið. — Ég var að fylgja herra
Holden til dyra, sagði hún. —
Viltu fá teið þitt hingað upp
Jackie, eða ætlarðu á fætur?
— Ég ætla að klæða mig,
svaraði hann. — Mér líður á-
gætlega núna. Ég býst við að
við getum farið út eins og við
töluðum um.
Hún spurði: — Hvað sagði
herra Holden?
— Ég veit það varla — eitt-
hvað um að trú og allt það.
Hann þagnaði. — Ég spurði
hann hreint út hvað yrði um
mig — hvert fer ég eftir dauð-
ann? sagöi ég. En hann veit í
rauninni ekki neitt. Hann talaði
heilmikið um dóm og himnaríki
og helvíti, en hann virðist bara
ekki sjálfur trúa á hélvíti, ekki
í alvöru. Eiginlega sagði hann
ekki annað en það, að maður
yrði að trúa þvi að Guð sendi
mann þangað sem maður ætti
skilið, en hann veit ekki hvar
það er eða hvað gerist þegar
þangað kemur. Mér finnst það
nú ekki beinlínis fullnægjandi.
Umræður um andleg efni
höfðu sjaldan átt sér stað milli
þeirra. — Ég myndi ekki hafa
áhyggjur af þvi, Jackie, sagði
hún. — Það er bara að taka
því sem að höndum ber.
Hann þagði nokkra stund og
var djúpt hugsi. — Ég hef verið
að brjóta heilann um þetta, sagði
lann loks. — Eiginlega líkar
mér bezt við hugmyndir Búdda-
irúarmanna — þeim sem Morg-
an og Nay Hthon trúa á. Ég
iæri mig ekki um að láta dæma
nig, ekki ennþá. Ég hef gert
ýmislegt slæmt á ævinni, ýmis-
Legt sem þú veizt ekkert um,
viðskiptum og þess háttar.
Maður kemst varla hjá því nú
i dögum ef maður ætlar að
soma undir sig fótunum, eins
>g skattamir eru orðnir. Ef það
etti að dæma mig núna og
jenda mig annaðhvort í Himna-
iki eöa Helvíti, þá veit ég vel
tivar ég lenti.
— Það geturðu ekki vitað
íeitt um, Jackie, sagði hún. —
Þetta er tóm vitleysa í þér.
— Ojæja, ég fer nú víst nærri
um það, svaraði hann. — En
pessir Búddatrúarmenn, þeir
ægja að ef þú hefur h'tið gott
;ert á ævinni, þá endurfæðistu
í lægra stigi, til dæmis sem ind-
rerskur götusópari eða ennþá
ueðar sem hross eða hundur.
>að gefur þér annað tækifæri
;il að reyna betur. Og hversu
íeðarlega sem maður lendir, þá
sndurfæðist maður alltaf og
;etur unnið sig upp aftur með
)ví að lifa þeirra lífL Þetta
agði Nay Hthon. Mér þætti
>etta mjög góð tílhugsun.
— Kannski verður það líka
>annig, sagði hún lágri rödd.
— Ég held þú þurfir engar á-
hyggjur að hafa af því.
Tumer sagði: — Ég hef þær
ekki heldur. Það er ekkert við
þessu að gera héðan af og til-
gangslaust að sýta. En mér lík-
ar vel við þessa Búddatrúarhug-
mynd — þannig vildi ég að
þetta væri. Hann brosti til henn-
ar. — Og ef þú sérð lítinn hund
hér að sníglast næsta ár sem
þú hefur ekki séð áður og þú
kallar Jackie og hann kemur,
þá gefðu honum gott bein.
— Og á ég ekki líka að hella
úr bjórflösku í skálina hans?
sagði hún. Hún gekk til dyra
og hló við. — Þú skalt þá koma
á fætur ef þú ætlar að klæða
þig í dag. Ég ætla niður og
setja tevatnið yfir.
I annað skipti sagði hann: —
Ég hef verið að hugsa um þetta
litaða fólk sem ég kynntist, Nay
Hthon og Deve Lesurier. Veiztu
það, að þau virðast ekki vera
nokkum skapaðan hlut öðru vísi
en við, nema hvað þau eru öðru
vísi á litinn. Ég hélt einu sinni
að svoleiðis fólk væri öðru vísi.
Þau hafa meira að segja ýmis-
legt fram yfir okkur — þau eru
yfirleitt háttvísari. Það mætti
segja mér að við gætum lært
talsvert af þeim.
Konan hans sagði: — En þú
verður að muna að þessi tvö
voru betur sett en margir aðrir
meðal litaðs fólks, Jackie. Þetta
var menntað fólk.
— Satt er það, sagði hann
hugsi. — Kannski er þá eitt-
hvert vit í því að borga fyrir
allt þetta skólahald.
Ég tók á móti herra Tumer
hinn 30. október í stofu minni
í Harleystræti samkvæmt beiðni
frá heimilislækni hans, Worth
lækni. Ég hitti hann klukkan
fjögur síðdegis og ég átti ekki
fleiri vitjanir eftir, enda datt
mér í hug að ég þyrfti að fara
með hann á sjúkrahúsið i frek-
ari myndatöku.
Aðstoðarstúlka mín vísaði
honum inn. Konan hans kom
með honum, hélt létt um hand-
legg hans; hún virtist ekki vilja
sleppa af honum hendinni. Hún
fylgdist með honum þegar hann.
settist og sagði síðan: — Ég skal
bíða frammi læknir.
— Nei, þér getið verið inni
ef þér viljið, svaraðl ég. — Svo
framarlega sem herra Tumer
hefur ekkert á mótl því.
— Allt í lagi mín vegna, sagði
hann.
Hann var dálftið loðmæltur og
þvoglulegur í tali. Hann var
ennþá • hressilegur í framkomu
en ég sá samstundis að óþarfi
væri að taka af honum frekari
röntgenmyndir. Það var áberandi
lömun í hægri handlegg. Vinstra
augað var starandi og virtist
honum gagnslaust og hið hægra
hafði látið á sjá. Hann hafði
lagt mjög mikið af og fötin sem
eitt sinn voru fullaðskorin á
honum, héngu nú losaralega ut-
aná honum. Enn var roði í vöng-
um hans en kringum augun og
gagnaugun var blýgrár fölvi.
Mér sýndist hann ekki eiga
mjög langt eftir.
Ég hafði starfað meira en
þrjátíu ár að sérgrein minni.
Sumir segjast verða ónæmir fyr-
ir þessu, en ég hef aldrei getað
unnið bug á samúð minni í garð
þeirra manna sem eins er ástatt
fyrir,
Ég bauð honum sígarettu og
teygði mig yfir borðið og kveikti
í henni hjá honum.
Ég sagði: — Jæja, herra Tum-
er, hvað hafið þér nú haft fyr-
ir stafni síðan við sáumst síð-
ast?
ENDIR.
Þetta var ekkert sérstaklega spcnnandi kvöld, en það var gaman
að fylgjast með örvæntingarfullum tilraunum Jóa til að leyn* þvf
að hann átti aðeins tuttugu og fimm kall!
SVEFNSÓFAR
- SÓFASETT
HNOTAN, húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1
UTBOÐSL ÝS/NG
á 4 stórum dieselrafstöðvum sem óskast tfl kaups,
verður afhent á skrifstofu vorri, Ránargötu 18.
næstkomandi mánudag og þriðjudag.
Innkaupastofnun ríkisins.
MUSICA NOVA
AUKA TÓNLBIKAR
í dag (sunnudag) kl. 3.30 í Þjóðleikhúskjallaranum.
Einar Sveinbjörnsson og Þorkeli Sigurbjörnsson leika
Rómönsu eftir dr. Hallgrím Helgason.
Sónötu í G dúr eftir Beethoven.
Bagatellur eftir Þorkel Sigurbjömsson.
Mósaik eftir Leif Þórarinsson.
Aðgöngumiðar við innganginn. — Styrktarfélagar fá
afslátt á aðgöngumiðum.
?:freiðaleigan HJÓL