Þjóðviljinn - 09.05.1964, Blaðsíða 3
Laugardagur 9. mai 1964 -----
yrði settur íslenzkur texti. Við
erlendar tónlistarmyndir er og
auðvelt að gera íslenzkt tal.
Þá hefur sérstök athugun ver-
ið gerð á skilyrðum þess að taka
upp íslenzkt skólasjónvarp, en
með því er átt við dagskrá. sem
beint vaeri inn í skólana og
nemendur tiltekinna bekkja
horfðu á i kennslustundum i
skólanum. Sérstök ástæða er til
þess að benda á þýðingu sjón-
varpskennslu fyrir dreifbýli, þar
sem erfitt er að njóta starfs
sérmenntaðra kennara í einstök-
um greinum og dýr kennslu-
tæki eru ekki til ráðstöfunar.
Svo sem kunnugt er. eru mis-
munandi kerfi notuð við sjón-
varp og eru þau auðkennd með
línufjölda í mynd hvers og eins.
Helztu kerfin eru brezka kerfið,
sem hefur 405 línur, ameríska
kerfið, sem hefur 525 línur og
evrópska kerfið, sem hefur 625
línur. Allir, sem til hefur verið
leitað, eru sammála um, að
hér á landi eigi að taka upp
Evrópukerfið, 625 línur. Það
hentar þeim rafstraumi, sem hér
er notaður, og er talið betra en
hin kerfin að ýmsu leyti. Sjón-
varpsstöð varnarliðsins á Kefla-
víkur notar ameríska kerfið. Af
þeim sökum eru öll móttöku-
tæki, sem flutt hafa verið til
landsins ýmist framleidd til að
taka á móti sendingum þess
kerfis eða þeim hefur verið
breytt í það horf. Hins vegar er
talið auðvelt að breyta tækjum
þannig, að þau geti tekið við
sendingum samkvæmt evrópska
kerfinu.
Skipulagsmál
Um skipulagsmál íslenzks
sjónvarps er það að segja. að
sjónvarpsnefndin telur tvímæla-
laust hagkvæmt og skynsamlegt,
að sjónvarp verði deild í Ríkis-
útvarpinu við hlið hljóðvarps.
Við það sparist verulegt fé. þ.
e. ekki burfi þá sérstakt skrif-
stofuhald til að stjóma sjón-
varpinu og margvíslegur kostn-
aður annar geti verið sameigin-
legur. Segir í skýrslunni, að í
nágrannalöndum, sem fregnir
fari af, hafi sjónvarpið vaxið
upp undir handarjaðri hljóð-
varps, og eigi þetta jafnt við
um ríkisstofnanir í Evrópu sem
einkafyrirtæki í Ameríku. Hins'
vegar telur nefndin rétt, að þeg-
ar tveggja til þriggja ára
reynsla hafi hlotizt af íslenzku
sjónvarpi, þá sé tímabært að
taka heildarlöggjöfina um út-
varp til endurskoðunar. enda sé
hún í meginatriðum orðin 30 ára
gömul.
Ákvörðun bráðum
Þessi eru þá aðalatriði skýrslu
sjónvarpsnefndarinnar, sem
starfað hefur undanfama mán-
uði og hefur nú nýlokið störf-
um. Ég tel nefndina hafa unn-
ið hið ágætasta starf og mjög
ánægjulegt. að hún skuli hafa
orðið sammála um n'ðurstöður
6Ínar. Ég tel athuganir nefnd-
arinnar hafa leitt í ljós, að
stofnun íslenzks sjónvarps er
vel framkvæmanleg frá fjár-
hagslegu sjónarmiði, og tel því
engan vafa á, að í slíkt verði
ráðist. Takmarkið hlýtur og að
vera það, að allir Islendingar
eigi þess kost að njóta sjón-
varps, svo mikilvægt menning-
artæki. sem það getur verið.
Spumingin er sú, hversu langan
tíma eigi að ætla til þess að
byggja dreifingarkerfi fyrir
landið allt og hvemig eigi að
afla fjár til framkvæmdanna og
til þess að standa undir reks.tr-
arkostnaði sjónvarpsins. Það
mál þarf að sjálfsögðu rækilegr-
ar athugunar. En eins og ég gat
um áðan, eru ekki nema nokkr-
ar vikur síðan ríkisstjórnin fékk
hina ítarlegu skýrsiu sjónvarps-
nefndarínnar i hendur. Þessar
vikur hafa verið annatími, svo
sem háttvirtum þingmönnum er
manna bezt kunnugt um, og
mun því varla nokkur sann-
gjam maður ætlast til þess, að
ríkisstjómin hafi þegar tekið
endanlegar ákvarðanir í svo
mikilvægu máli. Hins vegar
mun ríkisstjómin hraða umræð-
um sínum og athugunum eftir
föngum. og er það von mín, að
ákvarðanir í bessu m'kilvæga
máli verði teknar innan mjög
skamms tíma.
--------------MttmiDiN-------------------------------------------—-----S,DA 3
Svar Kínverja við sovézkri tilögu:
Alþjóðaþing
og rækilegan
undirbúning
PEKING 8/5 — Kínverskir kommúnistar hafa hafnað til-
lögu frá Kommúnistaflokki Sovétríkjanna um að flokk-
arnir hæfu viðræður í því skyni að reyna að jafna á-
greininginn milli þeirra. Viðræður þessar áttu að standa
fram eftir sumri og verða undirbúningur að alþjóðaráð-
stefnu kommúnistaflokka. Kínverjar segja í svari sínu
að slíka ráðstefnu beri ekki að halda fyrr en eftir ræki-
legan undirbúning, sem gæti tekið mörg ár.
Þeir hafria þó ekki algerlega
sov.ézku tillögunni um viðræður
milli flokkanna, en telja ekki
tímabært að hefja þær fyrr en í
maí n.k.
Frá þessu er skýrt i skjali sem
birt var í Peking í dag ásamt
sex öðrum sem öll varða ágrein-
inginn milli kommúnistaflokka
Kína og Sovétríkjanna.
Vilja þing í haust
Samkvæmt þessum skjölum
sendi sovézki kommúnistaflokk-
urinn þeim kínverska bréf 7.
marz s.l. og lagði þar til að
flokkarnir ættu með sér viðræð-
ur í maí, júní og júlí til undir-
búnings alþjóðaráðstefnu sem
haldin yrði ekki síðar en á
hausti komanda.
Kínverjar segja í svari sínu að
McNamara enn
til Saigons
WASHINGTON 8/5 — Robert
McNamara, landvarnaráðherra
Bandartkjanna, fer i næstu viku
i enn eina ferð til Suður-Viet-
nams og þykir það benda til
þess að Bandaríkjastjórn sé ugg-
andi um ástandið þar, enda hafa
skæruliðar stöðugt verið að
færa sig upp á skaftið, en her-
menn stjómarinnar í Saigon
farið miklar hrakfarir fyrir
þeim.
McNamara lagði af stað í dag
til Bonn til viðræðna um land-
varnamál við vesturþýzka ráða-
menn, en þaðan fer hann til
Saigon. _____
leiðtogum sovézkra kommúnista
liggi svona mikið á að halda
ráðstefnu kommúnistaflokkanna
vegna þess að þeir standi fyrir
samsæri um að sundra alþjóða-
hreyfingu þeirra og ráðstefnuna
eigi að halda í þeim tilgangi.
Forysta sovézka kommúnista-
flokksins myndi bera alla ábyrgð
á sundrung í hinni alþjóðlegu
hreyfingu, ef hún kveddi saman
slíkt alþjóðaþing í því skyni að
útskúfa kínverskum kommúnist-
um.
Fjögur-fimm ár
Kínverjar segja að slíkt al-
þjóðaþing verði að undirbúa
rækilega. svo að það leiði til
einingar en ekki sundrungar. En
eins og sakir standa nú, gæti
slíkur undirbúningur tekið fjög-
ur-fimm ár, eða jafnvel enn
lenggri tíma. Þess er getið til að
Kínverjar setji þennan frest,
vegna þess að þeir búist við að
Krústjoff verði ekki lengur leið-
togi sovézkra kommúnista að
honum lofcnum.
Grein í „Pravda"
„Pravda" birtir í dag grein þar
sem Kínverjar eru sakaðir um
refjar og undirferli í samskipt-
um við þjóðir Asíu og Afríku.
þeir virðist ætla að reisa einhvers
konar kínverskan múr milli
manna eftir hörundslit þeirra.
Við sama tón kvað í ræðu
sem sovézkur fulltrúi hélt á ráð-
stefnu sem hófst í dag í Bakú
í Aserbadsjan, en hana sitja
menn frá átján löndurn í Asíu
og Afríku, ásamt fjölda fúlltrúa
frá sovézku lýðveldunum í Asíu.
Sovétríkin veita
Alsír mikia aðstoð
MOSKVU 8/5 — Sovétríkin ætla
að veita Alsír mjög verulega
efnahags- og tækniaðstoð til við-
bótar þeirri sem þegar hefur
verið samið um.
Frá þessu var skýrt í orðsend-
ingu sem gefin var út að lokn-
um viðræðum þeirra Krústjoffs
forsætisráðherra og Ben Bella
forseta í Moskvu.
Sovétríkin munu þannig veita
Serkjum um 5,5 miljarða króna
lán með hagstæðum kjörum.
Þau munu einnig byggja mikið
málmiðjuver 1 Alsír og leggja
því til allar vélar og útbúnað.
Þá verður byggð vísindastofnun
til olíurannsókna og tæknihá-
skóli fyrir 2.000 stúdenta, og
verður hann gjöf sovétstjórnar-
innar. Þá munu 300 sovézkir
hjúkrunarmenn fara til starfa í
Alsír á næstu mánuðum.
Krústjoff hefur þegið boð
Ben Bella um að koma í opin-
bera heimsókn til Alsír, en ekki
er tekið fram hvenær úr henni
verður.
FCRÐABILAR
17 farþega Mercedes-Benz hópferðabílar af nýjustu gerð,
til leigu ! lengri og skemmri ferðir. — Afgreiðsla á
Sendibílastöðinni f sima 24113, á kvöldin og um helgar.
Sími 20969.
HARALDUR
EGGERTSSON,
Grettisgötu 52.
aðeins eftir mikinn
Fyrsta maí var að venju fagnað í Peking með miklum hátíðahöldum, skrúðgöngum og hljóðfæra-
slætti á Ténanmen-torgi eins og efri myndin sýnir. Á þeirri neðri sjást þeir Líú Sjaosji forseti,
Sjú Enlæ forsætisráðherra og aðrir leiðtogar í miðju mannhafinu.
Bretar hætti stríði
sínu í Suður-Arabíu
NEW YORK 8/5 — Fulltrúar
átta ríkja lögðu í dag fram í
nýlendumálanefnd allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna til-
lögu þar sem þess er krafizt að
Bretar hætti hernaði sínum gegn
ættflokkum sem risið hafa gegn
þeim í Suður-Arabíu.
Brezka herstjómin þar segir
að sveitir hennar sæki enn fram
og hafi tekið nokkur virki upp-
reisnarmanna og þannig náð á
sitt vald mikilvægri hæð, Jebel
Mahlay, sem gnæfir yfir austur-
hluta Wadi Taym.
Bretar eru sagðir leggja fast
Krústjofí kemur til
Egyptaiands í dag
Spánn:
Verkfall
námumanna
er algert
MADRID 8/5 — Verkfall
kolanámumanna í Asturi-
asfylki á Spáni er nú
nærri þvi algert og er við-
urkennt í Madrid að um
32.000 af 40.000 kolanámu-
mönnum þar hafi lagt nið-
ur vinnu. Heita má að
námuvinnsla liggi þar nú
alveg niðri.
ALEXANDRÍU 8/5 — Krústjoff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
kemur árdegis á morgun, Iaug-
ardag. til Alexandríu og hefst
þá 16 daga opinbcr heimsókn
hans í Egyptalandi.
Meginviðburður heimsóknar-
innar verður vígsla stíflunnar
miklu í Níl við Assúan. en þar
mun Krústjoff og föruneyti hans
dveljast í fjóra daga. Stíflan og
þau miklu mannvirki sem gerð
verða í sambandi við hana, raf-
stöðvar og áveitukerfi, eru reist
fyrir sovézkt fé og undir stjóm
sovézkra verkfræðinga. Þetta
verður eitt mesta mannvirki í
heimi og mun gerbreyta öllum
þjóðarhag Egypta.
Upphaflega höfðu vesturveld-
in lofað aðstoð í þessu skyni, en
sviku loforð sín, þegar Egyptar
þjóðnýttu Súez-skurðinn og
hlupu Sovétríkin þá í skarðið.
Sagt er að undanfarið hafi
margir forystumenn egypzkra
kommúnista verið látnir lausir,
en þeir hafa flestir setið í fang-
elsum síðan árið 1958.
Nasser, forseti Egypta, hefur
tvívegis verið í Moskvu, en
þetta er í fyrsta sinn sem Krúst-
joff kemur til Afríku.
að jemenskum kaupsýslumönn-
um í Aden, en þeir eru þar
margir, að beita áhrifum sínum
til að Jemenstjórn hætti að&toð
sinni við upppreisnarmenn.
Enginn samning-
ur um njósnaflug
HAVANA 8/5 — Sovézki sendi-
herrann á Kúbu, Alexeéff, neit-
ar þvi í dag í viðtali við blað-
ið „Revolución" í Havana, að
sovétstjómin hafi nokkurn ítma
fallizt á njósnaflug Bandaríkja-
manna yfir Kúbu. Hún styðji
þvert á móti heils hugar Kúbu-
stjórn þegar hún fordæmi þetta
njósnaflug og krefjist þess að
Bandaríkin virði fullveldi ann-
arra ríkja, stórra sem smárra.
Helgi Þorkelsson
endurkjörinn for-
maður Skjald-
borgar
Aðalfundur Skjaldborgar var
haldinn s.l. miðvikudag og fóru
þar fram venjuleg aðalfundar-
störf. Formaður félagsins, Helgi
Þorkelsson, var endurkjörinn, en
aðrir í stjórn eru Gísli Halldórs-
son varaformaður, Haraldur
Einarsson ritari, Kristín Einars-
dóttir gjaldkeri og frú Margrét
Sigurðardóttir, meðstjórnandi.
t
I