Þjóðviljinn - 09.05.1964, Page 7
Laugardagur 9. maí 1964
ÞJðÐVILIINN
fJÖRBROT BRCZKA
HCIMSVflDISINS
TIÐINDI
Brezka heimsveldið er ekki
nema svipur hjá sjón.
Rauðu flekkirnir á heimskort-
inu hafa dregizt ört saman þá
tvo áratugi sem liðnir eru síð-
an Churchill fræddi Rooseveit
Bandaríkjaforseta á að hann
hefði ekki tekið að sér stjórn-
málaforustu í London í þvi
skyni að stjórna upplausn
heimsveldisins. Reyndar er
ekkert heimsveldi til lengur í
bókstaflegri merkingu, það
heiti er horfið úr brezkum
stjórnarskjölum og í staðinn
komið samveldið, lausleg sam-
tök nýlenduveldisins gamla og
átján fyrrverandi nýlendna,
sem nú eru orðnar sjálfstæð
ríki. Meirihluti samveldisland-
anna er ríki litaðra þjóða í
Afríku og Asíu; þótt annað
vaeri ætlun þeirra í öndverðu
hafa ríkisstjórnir íhaldsmanna
séð sér nauðugan einn kctst að
fara að dæmi Verkamanna-
flokksstjórnarinnar þegar hún
afsalaði Bretlandi yfirráðum á
Indlandi og í Burma. Enn
blaktir þó Union Jack yfir mis-
munandi stórum landskikum
öreifðum um allar heimsálfur.
Á ýmsum stöðum í þessum
leifum heimsveldisins steðja
nú að vandamál sem valda
stjórninni í London þungum á-
hyggjum. t>að er ekki skemmti-
legt fyrir Douglas-Home for-
sætisráðherra að ganga til
kosninga við þaer aðstæður að
brezkar hersveitir eigi i bar-
dögum á mörgum stöðum sam-
tímis, ekki sízt vegna þess að
auðvelt er að sýna fram á að
vandræðin sem nú er við að
kljást stafa af því sem stjórn-
ir íhaldsmanna hafa gert eða
látið ógert undanfarinn áratug.
Ihaldsfiokkurinn brezki hefur
ævinlega verið pólitískt
heimkynni eindregnustu heims-
veldissinnanna, og hægri arm-
ur flokksins hefur ekki enn
sætt sig við þróun siðustu ára-
tuga. Flokksforingjarnir hafa,
sumir nauðugir og aðrir viij-
ugir, orðið að laga sig að
breyttum tímum og veita
hverri nýlendunni af annarri
sjálfstæði, en jafnframt hafa
þeir með ýmsum ráðum leit-
azt við að treysta brezk yfir-
ráð á þeim stöðum sem Þýð-
ingarmikiir þykja sökum hern-
aðaraðstöðu og viðskiptahags-
muna og ekki eru svo mann-
margir að afdönkuðu nýlendu-
veldi sé ofviða. Einn þessara
staða er suðvesturhom Arabiu-
skaga, þar sem nú hafa bloss-
að upp bardagar. Hafnarborg-
in Aden er eina brezka herstöð-
in sem eftir er milli Miðjarð-
arhafs og Singapore, og yrðu
Bretar að hröklast þaðan
hefðu þeir ekki lengur tök á
að verja með vopnum oliuítök
sín í furstadæmunum við
Persaflóa. í Aden eru arabisk-
ir þjóðernissinnar öflugir, og
því tók brezka stjómin þann
kost fyrir nokkrum árum að
sameina borgina soldánsdæm-
um norðan hennar og austan
og gera úr svokallað Bandalag
Suður-Arabíu. Var svo um
hnúta búið að Bretar réðu
þarna öllu með fulltingi furst-
anna sem stjórna hirðingja-
ættflokkum inni í landi. En
ættflokkamir hafa átt í illdeil-
um frá fornu fari og sumir
raunar aldrei sætt sig við
brezk yfirráð.
Nú hafa þessar gömlu erjur
blandazt saman við borg-
arastyrjöld í nágrannaríkinu
Jemen, þar sem byltingarstjóm
lýðveldissinna á í höggi við ætt-
flokka sem halda tryggð við
imaninn, hinn afsetta þjóð-
höfðingja. Menn imansis njóta
stuðnings Saudi-Arabíu og
Breta en Nasser hefur sent
herlið á vettvang til fulltingis
lýðveldissinnum. Bretar óttast
að fyrir Egyptum vaki að
hrekja þá frá Aden, og halda
þvi fram að ættflokkum sem
um langan aldur hafa átt í
höggi við brezka herinn og ar-
abiska bandamenn hans berist
nú vopn og annar herbúnaður
af nýjustu gerð frá Jemen. Fyr-
ir nokkrum vikum heimilaði
brezka stjórnin setuliðsforingj-
anum í Aden að senda flugvél-
ar til árásar á virkið Harib i
Jemen. Með þessu hugðust
Bretar sýna hinum innfæddu
vald sitt á gamalkunnan hátt,
en fengu í staðinn vítur frá
Öryggisráðinu. Skæruhernað-
urinn á yfirráðasvæði þeirra
magnaðist svo að flytja varð
herlið á vettvang loftleiðis frá
Bretlandi, og brezkir ráðherr-
ar höfðu við orð að taka hluta
af liði sínu í Vestur-Þýzka-
iandi undan herstjórn A-banda_
lagsins og senda það til Arab-
íu til að berjast við bedúína
í eyðimörkinni. Af því varð
þó ekki, en Butler utanríkis-
ráðherra var sendur til Was-
hington að leggja að Banda-
rikjastjóm að hætta allri efna-
hagsaðstoð við Egyptaland.
Ekki hefur frétzt nákvæm-
lega hverju Johnson og
Rusk svömðu beiðni banda-
manns síns, en talið er að
Butler hafi þótt undirtektir
þeirra daufar. Brezki utanrík-
isráðherrann fór ekki aðeins
fram á efnahagslegar þvingun-
arráðstafanir af hálfu Banda-
ríkjanna við Egiptaland, held-
ur einnig Indónesíu. Einkum
er brezku stjórninni umhugað
um að Bandaríkin hætti
vopnasölu til Indónesa, en
undanfarin misseri hefur ríkt
hernaðarástand milli þeirra og
skjólstæðinga Breta á Mal-
akkaskaga. Eins og rakið var
á sínum tíma í þessum þáttum
afhentu Bretar malajum á
Malakkaskaga yfirráð yfir
Norður-Borneó til að fá þá til
að fallast á að taka hina kín-
versku borg Singapore í ríki
sitt. Indónesía hefur aldrei
viðurkennt rétt Breta til að
ráðstafa nýlendum sínum á
norðurströnd Borneó á þennan
hátt, en mikill meirihluti eyj-
arinnar telst til Indónesíu.
Skæruhernaður er háður í
fjöllum Borneó, þar sem lands-
lag er þannig að Bretar eiga
þess engan kost að halda uppi
landamæraeftirliti. Sukarno
Indónesiuforseti og Rahman
forsætisráðherra Malajsíu hóta
hástöfum að iáta vopnin skera
úr, en Bretum finnst allt ann-
að en fýsilegt að heyja frum-
skógastyrjöld við fjórða fjöl-
mennasta riki Asíu. Eftir við-
ræðumar i Washingto.n hélt
Butler til Suðaustur-Asiu og
fer þar milli höfuðborga að
túlka málstað Breta í deilunni
við Indónesiu.
Brezka stjórnin hefur boðað
samveldisráðstefnu i Lond-
on í júlí. Þar á að bjóða vel-
komin í samveldið nýju ríkin
i Austur-Afríku, sem öðlazt
hafa sjálfstæði síðan síðasta
ráðstefna var haldin. En fleiri
vilja sækja ráðstefnuna en
boðnir eru. Ian Smith, nýi for-
sætisráðherrann 5 stjórn
brezkra landnema i Suðaustur-
Rhodesiu, krefst þess að fá
að sitja fundinn. Smith varð
forsætisráðherra í síðasta mán-
uði, eftir að hann hafði stjórn-
að uppreisn í stjórnarflokkn-
um gegn Winston Field frá-
farandi forsætisráðherra. Land-
nemum sem staðráðnir eru í
að varðveita yfirráð sín yfir
Mannfjöldi í Sanaa , :vv!iir lýðveldisstjórnina og krefst hefndar fyrfe loftárás
Brcta frá Aden.
SlÐA ^
Blóðbaðið í Sharpeville, skammt frá Jóhannesarborg, þar sem lögrcgla Suður-Afríkustjórnar
skaut niður á annað hundrað Afrikumenn á fáum mínútum. — A neðri myndinni scst valur-
margfalt fteiri Aíríkumönnum
í Suður-Rhodesíu þótti Field
ekki nógu eindreginn að túlka
málstað þeirra gagnvart brezku
stjórninni. Nágrannaríki Suð-
ur-Rhodesíu, Nyasaland og
Norður-Rhodesía, fá sjálfstæði
á þessu ári, og þar hafa Afr-
íkumenn þegar tekið við stjórn-
artaumum. Smith og skoðana-
bræður hans í Suður-Rhodes-
íu hóta að lýsa yfir sjálfstæði
þess ríkis án samþykkis brezku
stjórnarinnar, en hún er skuld-
bundin til að sleppa ekki yf-
irráðum yfir landinu án breyt-
inga á stjórnarskránni sem
tryggi Afríkumönnum aukin
réttindi. Skömmu eftir að
Smith komst til valda voru
foringjar stjórnmálasamtaka
Afríkumanna teknir höndum.
Ljóst er að hann og samstarfs-
menn hans eru staðráðnir í að
gera Suður-Rhodesíu að kyn-
þáttakúgunarríki eftir fyrir-
mynd Suður-Afríku. Óhugs-
andi er að brezka íhaldsstjórn-
in beiti hervaldi gegn land-
nemunum rétt fyrir kosning-
ar, en leyfi hún þeim að fara
sínu fram hljóta ríki Afríku-
manna að taka það óstinnt
upp.
* fleiðingar kynþáttakúgunar
II í Suður-Rhodesíu verða
þær sömu og í Suður-Afriku,
en þar eru forustumenn stjórn-
málasamtaka Afríkumanna nú
fyrir rétti sakaðir um að und-
irbúa skæruhernað og skemmd-
arverk. Varnarræða foringja
þeírra, Nelsons Mandela, birtist
fyrir skömmu hér i blaðinu.
Suður-Afrika er ekki lengur
í brezka samveldinu, en þar
með er Bretland ekki laust
allra mála. Mikill meirihluti
ríkja SÞ krefst þess að al-
bjóðasamtökin láti ástandið í
Suður-Afríku til sín taka. Þeg-
ar Öryggisráðið samþykkti að
skora á ríki samtakanna að
banna vopnasölu til Suður-
Afrikustjórnar. skarst brezka
stjórnin úr leik og kvaðst
myndi halda vopnaútflutningi
til hennar áfram. Nú sjást
þess merki að Afríku- og As-
iuríkin ætli að láta til skar-
ar skríða gegn Suður-Afriku-
inn eftir skothriðina.
stjórn Fyrir skömmu skoruðu
fuiltrúar 57 rikja á Öryggis-
ráðið að halda fund hið fyrsta
til að ræða ráðstafanir til að
afstýra þeirri hættu sem friðn-
um í Afríku stafi af kynþátta-
kúguninni | Suður-Afriku.
Sérfræðinganefnd á vegum
SÞ hefur komizt að þeirri nið-
urstöðu að efnahagslegar refsi-
aðgerðir gegn Suður-Afríku
séu framkvæmanlegar, eink-
um myndi aðflutningsbann á
oliu og gúmmí reynast áhrifa-
rikt, Vel getur svo farið að
SÞ samþykki með tveim þrið.iu
atkvæða framkvæmd refsiað-
gerða, og þá verða brezk
stjórnarvöld að hrökkva eða
stökkva. Aðflutningsbann yrði
ekki framkvæmt öðru vísi en
með hafnbanni. Neiti Bretar og
Bandaríkjamenn að leggja til
flota til þeirra aðgerða, má
búast við að Sovétríkin taki
þær að sér ein á vegum SÞ.
Þar með væru Vesturveldin
búin að fyrirgera áhrifum
sinum j Afríku sunnan Sahara.
Allt útlit er fyrir að mál Suð-
ur-Afríku komist á oddinn-;
í sumar. Frestur sem Suður-
Afríkustjóm var settur til að
framkvæma ályktun SÞ um
stjóm Suðvestur-Afriku, en
bað landsvæði er eitt af um-
boðsstjórnarsvæðum Þjóða-
bandalagsins gamla, er runn-
inn út. Verði kveðinn upp
dauðadómur yfir Mandela og
félögum hans, má búast við
að Afrikuríkin krefjist skjótra
aðgerða til að binda endi á
kynþáttakúgunina í Suður-
Afríku eitt skipti fyrir öll.
Bretar og Bandarikjamenn
gera vafalaust eins og áður
allt sem í þeirra valdi stend-
ur til að hamla á móti að-
gerðum, ep allsendis óvíst er
að þeir fái hindrað samþykkt
á Allsherjarþinginu með tveim
þriðju atkvæða. Eftir öll frýju-
orðin sem þessi ríki hafa beint
til Sovétrikjanna eiga þau erf-
itt með að gripa sjálf til neit-
unarvalds í Öryggisráðinu.
M.T.Ó.
«>-
Verð á skógt rrpl öntui n
iroríð 1964
Minnsta pöntun af hverri tegund
250 »tk. 50 stk. undir 50 *tk.
Birki, ódreifsett 1.50 2.00 3.00
— dreifsett 3.00 4.00 6.00
Blágreni, dreifsett 2.25 3.00 4.50
Hvitgreni, dreifsett 3.00 4.00 6.00
Rauðgreni, dreifsett 2.25 3.00 4.50
Sitkagreni, dreifsett 3,00 4.00 6.00
Sitkabastarður, dreifsett 3.00 4.00 6.00
Lerki, dreifsett 3.00 4.00 6.00
Bergfura, ódreifsett 1.50 2.00 3.00
— dreifsett 2.25 3.00 4.50
Stafafura, ódreifsett 2.25 3.00 4.50
— dreifsett Skógrækt ríkisins. 3.00 4.00 6.00