Þjóðviljinn - 16.06.1964, Blaðsíða 1
Lýðveldisfagnaður ÆFR í kvöld
Munið lýðveldisfagnað Æskulýðsfylkingarinnar í Glaumbæ
í kvöld. Sækið miða í skrifstofu ÆFR í Tjarnargötu 20. Sjá
nánar auglýsingu á 3. síðu.
Kann diplómatiska slægð
Penfíeld sendiherra setur utan-
ríkisráðherra í gapastokkinn
□ Bandaríski sendiherrann hefur nú svarað orðsendingu þeirra 72
menntamanna og listamanna sem mótmæltu harðlega dátasjón-
varpinu á Keflavíkurflugvelli og kröfðust þess sérstaklega að sýnd
yrði sú lágmarkskurteisi af hálfu Bandaríkjamanna að fella nið-
ur sjónvarpssendingar á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Sendiherrann
neitar ekki sjálfur að sýna Islendingum þessa lágmarkskurteisi en
setur utanríkisráðherra í gapastokkinn í staðinn.
★ Bréf sendiherrans er stílað til Jónasar Árnasonar og Ragnars Amalds, og er svohljóðandi í ís-
lenzkri þýðing'u sendiráösins:
, „Eins og ég skýrði yður frá, þegar þér komuð í se ndiráðið s.l. laugardag til að afhenda kröfu um, að
niður verði fellt sjónvarp frá Keflavík 17. júní, fagna ég því ævinlega að kynnast skoðunum Is-
lendinga á málefnum, sem varða sambúð íslands og Bandaríkjanna. En framkvæmd sú, sem þér
gerið kröfu til í bréfi yðar, snertir atriði, þar sem utanríkisráðuneytið er hinn rétti málsaðili..
Kröfu yðar ætti þess vegna áð stíla tii þess ráðuneytis.
Yðar einlægur, James K. Penfield, sendiherra B andaríkjanna.'“
★ í tilefni af þeim ummælum sendiherrans að 1 máli þessu beri
formlega að leita til íslenzka utanrikisráðuneytisins, hafa eftirfar-
andi spumingar verið lagðar fyrir utanríkisráðherra bréflega með
ósk um svar ekki síðar en í dag 16. júní:
2. Ræður utanríkisráðherra dagskrá sjónvarpsins og sendingar-
Rcktor afhendir Sólveigu Hauksdóttur prófskirteini sitt en því
miður vitum við ckki nafnið á hinni stúdínunni sem scst á
myndinni. — (Ljósm. A.K.).
Duxinn, Jakob Yngvason.
211 stúdentar braut-
skráðir fráMR s gær
■ í gær kl. 2 e.h. var Menntaskólanum í Reykjavík slit-
ið með hátíðlegri athöfn í Háskólabíói og brautskráðir
211 stúdentar. Er þetta langfjölmennasti stúdentahópur
sem útskrifazt hefur frá skólanum.
Níu bátar
til Vopnafjarðar
í gær komu níu skip til
Vopnafjarðar með alls 4 þúsund
mál og fór öll þessi síld í
bræðslu. Aflahæstir voru Bjarmi
II með 821 mál og Viðey með
700 mál. Síldarverksmiðjan á
staðnum er byrjuð að bræða og
gengur bræðsla vel .
Réktor Kristinn Armannsson,
flutti skólaslitaræðu og fór fyrst
nokkmm orðum um húsnæðis-
mál skólans og rakti síðan
helztu viðburði á skólaárinu en
að lokum skýrði hann frá úr-
slHum pi-ófa.
Undir árspróf milli bekkja
gengu- 670 nemendur, luku 637
prófinu og 576 stóðust próf. þar
af fengu 3 ágætiseinkunn.
Undir stúdentspróf gengu 212
nemendur, 199 innan skóla og
13 utan skóla, 112 í máladeild og
99 í stærðfræðideild. Einn lauk
ekki prófi. Af stúdentunum
hlutu 5 ágætiseinkunn, allir í
stærfræðideild. Dux skólans
varð Jakob Yngvason með 1.
ágætiseinkunn, '9,62. Aðrir sem
hlutu ágætiseinkunn eru Sven
Þórarinn Sigurðsson, 9,49, Tóm-
as Tómasson, 9,22, Þorvaldur
Ólafsson. 9,20 og Þorsteinn Þor-
steinsson, 9,07. 1 máladeild
hlutu þessir hæstu einkunn: Sig-
urður Pétursson, 8,90, Brynjólf-
ur Bjarkan (utan skóla) 8,75,
Gylfi Knudsen, 8,66 og Stefán
Egill Baldursson, 8.57.
Viðstaddir skólaslitin voru að
venju allmargir eldri stúdentar
er færðu skólanum góðar gjaf-
ir. Fyrir hönd stúdenta sem eru
eldri en 60 ára, en þeir eru nú
5 á lífi, talaði séra Sigurbjörn
Ástvaldur Gíslason.
Fyrir hönd 50 ára stúdenta
talaði Sveinn Sigurðsson rit-
stjóri. Færðu þeir skólanum
að gjöf peninga í sjóð Jóhann-
esar Sigfússonar yfirkennara.
Fyrir hönd 40 ára stúdenta tal-
aði Torfi Hjartarson tollstjóri og
færði skólanum peningagjöf í
Bræðrasjóð. Fyrir hönd 25 ára
stúdenta talaði Jóhannes Bjama-
son verkfræðingur. Gáfu þeir
skólanum bókagjöf. 15 ára stúd-
entar gáfu skólanum smásjá og
10 ára stúdentar peninga í
Bræðrasjóð en fyrir þeirra hönd
talaði Þorvaldur Þorvaldsson
arkitekt.
„ 1. I hverju eru fólgin yfirráð utanríkisráðherra yfir bandaríska
sjónvarpinu á Keflavíkurvelli?
tíma frá degi til dags?
3. Ef svo ber á að líta, að utanríkisráðherra sé einskonar sjón-
varpsstjóri á Keflavíkurvelli, ætlar hann þá ekki vinsamlegast
að verða við kröfu fyrrnefndra 72ja Islendinga um að ekki verði
Hverju svarar Emil? . sjónvarpað frá Keflavíkurvelli á þjóðhátíðardaginn 17. júní?
★ Guðmundur 1 Guðmundsstín utanríkisráðherra er r.ú erlendis, en Emil Jónsson gegnir störfum fyr-
ir hann á meðan. Lendir þá á nonum að geía þau svör sem Penfield sendiherra hliðrar sér hjá af
diplómatískri slægð.
Brælan er að
ganga niður
SIGLUFIRÐI í gærkvöld. — Síð-
astliðinn sólarhring hafa eftir-
talin skip landað hjá S.R. á
Siglufirði: Sólfari AK 1200 mál,
Guðrún GK 550, Sif ÍS 480, Sig-
urbjörg KE 130, Hrafn Svein-
bjarnarson GK 480, Áskell ÞH
320, Guðbjörg ÍS 140 og Hamra-
vík KE 800 mál.
S.R. á Siglufirði hefur nú
brætt 32 þúsund mál og hefur
bræðslan gengið vel.
Þá hafa eftirtalin skip landað
hjá Rauðku á sama tíma: Sig-
fús Bergman 1200 mál, Jón
Finnsson ÍS 500, Margrét SI 600,
Hafrún er væntanleg í nótt
með slatta.
Rauðka hefur nú brætt 20
'þúsund mál og eru sex þúsund
mál óbrædd og var búizt við
að bræðslu lyki seint í dag.
Síðustu fréttir af miðunum
telja að brælan sé að ganga
niður og má jafnvel búast við
veiði í nótt. — Kolbeinn.
Ráðizt var á mann og hann harinn, bundinn og rændur
■ í þessari viku væntum við
þess að allir velunnarar blaðs-
ins styðji að framgangi þessa
happdrættis. Það má kannske
segja að bessi tiðu happdrætti
séu allleiðigjörn en aðrar leið-
ir eru vart færar hjá okkur.
Hins vesar vilium við minna
á að ihuva vel. hafi þeir
ekki gert bað. hvað þeir seta
stvðia okkur
mrð hp'rri urmhæð þetta ár og
láta okkur vita sem fyrst. Og
■ Sl. sunnudagsnótt gerðist
sá atburður hér í borg að
ráðizt var á mann nokkurn á
heimili hans og hann bund-
inn og rændur.
Maðurinn sem fyrir þessu
varð hafði verið á ferli um
nóttina, eitthvað við skál og
hitti þá á götu mann sem hann
kannaðist lítilega við, tók hann
tali og bauð honum heim til sín
til drykkju. Er þeir félagar
höfðu setið að sumbli um hríð
sótti gestinn svefn og fékk hann
að leggja sig á legubekk. Hús-
ráðandi ætlaði síðan að leggja
sig hjá honum á bekkinn en þá
kom til handalögmáls á milli
þeirra.
1 þessu bili er kvatt dyra og
fór gestgjafinn fram. Voru þá
komn'r þar tveir menn er verið
höfðu í slagtogi með gestinum
fyrr um nóttina. Skipti það eng-
um togum að þeir réðust að
húsráðandanum, börðu hann í
rot og bundu. Hurfu þeir síðan
á braut eftir að hafa stolið frá
manninum pen'ngum, rafmagns-
rakvél, víni o. fl.
Er maðurinn raknaði úr rot-
inu gat hann gert vart við sig
og kom lögreglan á vettvang.
Tókst henni að hafa upp á söku-
dólgunum á sunnudagsmorgun-
inn og voru þeir sett r í vavð.
hald.
Fyrir nokkru er lokið að
dreifa mlðum j 2. fl. Happ-
20 dagar þar til
dráttur fer fram
drættis Þjóðviljans 1964. Happ-1
drætti þctta er eins og fyrri
happdrætti okkar rckin til
stuðnings Þjóðviljanum. Nokk-
uð vantar alltaf á að Þjóðvilj-
inn sé rekinn hallalaus og á
meðan við ekki höfum nógu
marga áskrifendur eða auglýs-
ingar verðum við að leita til
stuðningsmanna blaðsins um
aukafjárframlög.
Fram að þessu hefur okkur
tekizt að forðast skuldasöfnun
í rekstri. en það er mikill sig-
ur ef tekið er tillit til þess að
við erum að berjast við að
halda blaðinu úti í nýjum bún-
ingi síðan í október 1962. Við
vonum að allir séu ánægðir
með hann og að hann venjist
vel.
ekki er Það illa þegið, ef menn
geta látið af hendi rakna eitt-
hvað meira en þeim hefur ver-
ið sent í þessum flokki.
Enn eigum við um 1000
miða eftir, sem ekki hefur ver-
ið dreift og ættu þeir sem ekki
hafa fengið sent að líta inn
tii okkar á Týsgötu 3 eða
skrifa okkur og fá sér miða.
Næstu daga munum við
kynna vinningana sem dregið
verður um 5. júlí n.k.
Að lokum viljum við minna
menn á að skrifstofan er op-
in daglega frá kl. 9—12 f.h.
og 1—6 e.h. Gleymið ekki að
líta inn til okkar áður en þið
farið í sumarfríið. Það eykur
á ánægjuna í sumarfriinu.