Þjóðviljinn - 16.06.1964, Síða 2
2 SÍBA
MÖÐVItJINN
Þriðjudagur 16. jdnf 1964
Gjcrfir í
Vísindasjóð
Borgar-
sjúkra-
_ hússins
Vísindásjóði Borgarsjúkra-
hússins sem stofnaður var til
minningar um Þórð Sveinsson,
jrfrlækni- og ,Þórð , Úlfársson,
flugmann, var 14. júní afhent
kr. 10.000,00 frá v'num og
asskufélögum • Þórðar Olfars-
sonar. en þann dag hefði Þórð-
ur Olfarsson orðið 25 ára.
Om sama leyti afhentu
vandamenn Vísindasjóðnum
kr. 15.000,00.
Skv. sambykkt borgar-
st.iórnar* 1 greiðir' borgarsjóðUr
jafnháa upphæð í Vísindasjóð-
inn.
Sjóðsstiórnin þakkar þessar
góðú gjafir.
Framlögum í sjóðinn verður
fyrst um sinn veitt móttaka í
skrifstofu Sjúkrahúsnefndar
Reykjavíkur, He'lsuverndar-
stöðinni.
(Frá Vísindasjóði Borgar-
sjúkrahússins).
Aukin samstaða vinstri aflanna í Frakklandi hefur komið fram á ýmsan hátt að undanförnu, m.
a. í miklum kröfugöngum og útifundum um allt iandið til að mótmæla kjarnorkuvígbúnaðinum.
Myndin er af einni slíkri kröfugöngu í einni útborg Parísar.
U M FI reisir greiðasöiu í
Þrasfaskógi í sumar
Sjóvá greíddi 9Í,5
mi!j» / tjénabætur
■ Um þessar mundir er
Ungmennafélag íslands að
hefja framkvæmdir austur
í Þrastarskógi við að koma
þar upp söluskýli og greiða-
sölu og er ætlunin að þarna
rísi upp hótel í framtíðinni
í stað þess sem herinn tók
á stríðsárunum og brann þá.
Samkvæmt upplýsingum sem
Þjóðviljinn aflaði sér er
þegar búið að grafa fyrir grunni
söluskáláns en hann verður 100
fermetra hús einnar hæðar.
timburbygg'ng reist á steyptum
grunni og er ætlunin að bygg-
ingunnj verði lokið um miðjan
næsta mánuð.
Þarna á að verða söluskáli
þar sem hægt verður að fá
keypt kaffi, gosdrykki o.fl. en
síðan er ætlunin að byggja við
skálann og koma upp gistihúsi.
Er byggingin reist á grunni
gamla gistihússins. Þrastaskógur
er sem kunnugt er mjög fagur
staður og mikið sóttur af ferða-
fólki svo að nauðsynlegt er að
koma þar upp greiðasölu og
igististað. Þá hefur ÚME& nú
fengið ve'ðirétt í Soginu fyrir
öllu landi sínu. -og verðá vænt-
anlega seld veiðileýfi þarna í
greiðasölunni síðar meir.
ÚMFÍ er einnig að láta brjóta
lanH undir íþróttasvæði í Þrasta-
skógi og hefur verið unn ð að
því verki tvö síðustu árin.
Aðalfundur Sjóvátrygg:ngar-
félags Islands h.f., var haldinn
föstudaginn 5. júní. Formaður
félagsstjórnar, Sveinn Bene-
diktsson framkvæmdastjóri
minntist í upphafi fundarins
rreips hluthafa sem látizt hafði
frá síðasta aðalfundi, Leifs
Böðvarssonar. forstjóra.
Formaður gat þess að á s.l.
vetri hefði Halldór Kr. Þor-
steinsson skipstjóri óskað þess
að verða leystur frá stiórnar-
störfum, þótt kjörtímabil hans
rynni ekki út fyrr en árið
1965. Sveinn Benediktsson
hafði þá tekið við störfum
formanns, en Ágúst Fjelsted
hrl. kom í stjórnina frá sama
tíma.
Halldór Kr. Þorsteinsson hef-
ir verið í stjötn fétagsfrts' fvá
stofndegi þess. en formaður fé-
lagsstjórnarinnar óslitið frá
því í janúar 1938.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Stefán G. Bjömsson, flutti
skýrslu um rekstur- og hag fé-
lagsins, en árið 1963 var 45.
starfsár þess. Jafnframt skýrði
hann hina ýmsu liði ársreikn-
inganna.
Samanlögð iðgjöld sjó-,
bruna-, bifreiða-. ábyrgða- og
endurtrygginga námu um
108,6 miljónum króna, en af
líf- og lífeyristryggingum um
4,2 miljónir, eða samtals um
112.8 miljónir. Er það um 20
miljón krón-um hærri iðgjalda-
upphæð en árið 1962.
Fastur eða samningsbundinn
afsláttur til viðskiptamanna er
þegar frádreginn í upphæðum
þessum, svo og afsláttur eða
bónus til bifreiðaeigenda.
Stærsta tryggingadeildin er
Sjódeild, iðgjöld rúmlega 57
miljónir en næst Bifreiðadeild
með 28,6 miljóna iðgjöld.
1 tjónabætur voru greiddar
um 91.5 miljónir, en í laun og
kostnað um 10 miljónir.
Iðgjalda og tjónvarasjóðir,
svo og vara- og viðlagasjóðir
eru nú um 72 miljónir króna.
Er líftryggingadeildin ekki tal-
in með í þessum tölum.
Iðgjaldasjóður- vara- og við-
lagasjóðður hennar eru hins-
vegar tæplega 50 miljónir kr.
Nýtryggingar í Líftryggingar-
deild námu tæplega 6,8 milj-
ónum, en samanlagðar líf-
tryggingar í gildi um s. 1. ára-
mót voru tæplega 130 miljón-
ir.
Samanlögð verðbréfaeign var
um 106 miljónir og lán út á
líftryggingarskírteini um 10,5
miljónir.
Stjórn félagsins skipa, Sveinn
Benediktsson, Lárus Fjelsted,
hrl. Ingvar Vilhjálmsson út-
gerðarmaður, Ágúst Fjelsted
hrl. og Björn Hallgrímsson,
stórkaupmaður.
Endurskoðendur voru endur-
kjörnir: Bnðvar Kvaran full-
trúi og Teitur Finnbogason,
stórkaupmaður.
Gylfi
heldur ræðu
Gylfi Þ. Gíslason, við-
skiptamálaráðherra hefur
haldið ræðu á fundi hjá
Kaupmannasamtökum Is-
lands. Nú eru það að vísu
minnstu tíðindi sem til eru
að þessi ágæti ráðherra haldi
T'æðu, því ekki er kunnugt
að hann hafi verið þögull á
nokkru mannamóti sem hann
hefur mætt á undanfarin átta
ár. en engu að síður hefur
þessi sérstaka ræða vakið
nokkra athygli og orðið bæði
Alþýðublaðinu og Morgun-
blaðinu tilefni til leiðara-
skrifa. Ráðherrann sagði
nokkuð sem kaupmönnum ís-
lands þótti ánægjulegt að
heyra; hann sagði að eftir
samkomulagið við alþýðu-
samtökin færi að verða tíma-
bært að afnema allt verð-
lagseftirlit og gefa kaup-
mönnum frjálsræði til að á-
kveða álagningu sína,
Sumum hefur gengið illa
að finna samhengið milli
þess að kaupgjald verkafólks
verði bundið með samning-
um í eitt ár og að kaupmenn
skuli fá frelsi til að hækka
kaup sitt eins og þeim sýnist.
En engu að síður er boð-
skapur ráðherrans rökréttur.
Það var eitt atriði í sam-
komulaginu við verklýðs-
samtökin að grunnkaup
mætti ekki hækka, enda þótt
hagskýrslur sýni að þjóðar-
framleiðslan hefur aukizt um
15% á undanförnum tveim-
ur árum. Aukning þjóðar-
framleiðslunnar á sem sé að
lenda hjá öðrum, og Gylfi Þ.
Gíslason telur sjálfSagt að
kaupmenn fái bætta aðstöðu
til að hremma sinn hlut af
henni.
Hitt kann að vera vafamál
hvort blíðmæli ráðherrans
við kaupmenn verði fram-
kvæmd; hann er kunnur að
því að segja ævinlega það
sem áheyrendum hans hverju
sinni þykir bezt að heyra.
Og það voru raunar mistök
af Alþýðusambandinu að
leyfa þessum tungumjúka
ráðherra ekki að halda ræðu
þegar samkomulagið um
kjaramálin var undirritað;
verkamenn hefðu þá trúlega
fengið engu ómerkari fyrir-
heit en kaupmenn nú.
Fall-
hlífarhermaðurinn
— Ég legg sjálfur mat á
fréttagildið, sagði Thorolf
Smith, starfandi fréttastjóri
ríkisútvarpsins. þegar hann
var spurður hvers vegna hann
hefði naumast talið umtals-
verð mótmæli meira en 70
menntamanua og listamanna
gegn dátasjónvarpinu, en ör-
stutt frásögn um mótmæli
þeirra kom einna aftast í
sópdyngju þeirri sem nefnist
hádegisfréttir og ekki orð í
aðalfréttunum á laugardaginn
var. Og víst er um það að
viðhorf Thorolfs Smiths til
dátasjónvarpsins virðast vera
ákaflega persónuleg. Þannig
er mönnum það naumast úr
minni liðið að fréttastofa rík-
isútvarpsins mat það sem
einn af stóratburðum tilveru
sinnar þegar sýslumaðurinn
í Borgarnesi sendi skeytið til
félags sjónvarpsglápenda og
taldi dátastöðina tákn um
vestrænt frelsi, mannréttindi
og lýðræði. Var skeyti þetta
rakið orði til orðs í mörgum
fréttatímum útvarpsins; hug-
myndimar um fréttagildi
sýslumannsins voru sannar-
lega ekki smávaxnar.
Spurningin er aðeins sú
hvaða mælikvarða Thorolf
Smith notar til þess að meta
i gildi hinna ýmsu atburða.
Hann er sem kunnugt er ekki
aðeins gamalreyndur og vel
verki farinn fréttamaður,
heldur var hann fyrir nokkr-
um árum gerður heiðursfé-
lagi í þeirri sveit banda-
rískra fallhlífahermanna sem
nefnist „82nd Airborn”. Síð-
an hefur mönnum stundum
fundizt hann líta á sig sem
fallhlífahermann sem kastað
hefði verið niður í óvinaland
langt að baki víglínunnar og
þyrfti samkvæmt heraga að
gæta hagsmuna sveitar sinn-
ar. — Austrí.
Búnaðarbankinn opnar tvö
útibú um nœstu múnaðamót
Að undanfömu hafa staðið
yfir samningar milli Búnaðar-
banka ís'ands og Sparisjóðs
Sauðárkróks um að bankinn
setti upp útibú á Sauðárkróki
og yfirtæki jafnframt við-
skiptastarfsemi Sparisjóðs
Sauðárkróks. Samningum þess-
um er nú Iokið, og er gert ráð
fyrir, að útibú Búnaðarbank-
ans á Sauðárkróki taki til
starfa 1. júlí n. k.
Sparisjóður Sauðárkróks á
verulegar eignir og mun starfa
áfram til þess að annast um-
sýslu og ráðstöfun þeirra eigna,
en öll viðskiptastarfsemi Spari-
sjóðsins yf rfærast til útibús-
ins.
Sparisjóður Sauðárkróks er
mjög traust peningastofnun og
hefir gegnt mikilvægu hlut-
verki í héraðinu. Búnaðar-
bankinn hefir haft mikil við-
skipti við Skagfirðinga, og
hafa oft borizt óskir um það
til bankans, að hann setti upp
útibú á Sauðárkróki, til þess
að bæta þjónustu við viðskipta-
vini sína í Skagafirði.
Af hálfu bankáns og spari-
sjóðsins er þessi ráðstöfun
hugsuð til þess að bæta við-
skiptaaðstöðu viðskiptavina
beggja stofnananna.
Bankaútibússtjóri verður
Ragnar Pálsson, núverandi
sparsjóðsstjóri.
Útibúið á Sauðárkróki er
þr'ðja útibú Búnaðarbankans
utan Reykjavíkur, sem ákveð-
ið hefur verið að taki til starfa
á þessu ári. Fyrr á árinu opn-
aði bankinn útibú að Hellu og
sameinaðist Spar'sjóður Holta-
og Ásahrepps því útibúi.
Hefir þróun þessara útibúa
verið mjög hagstæð. Þá er á-
formað að opna samtímis úti-
búinu á Sauðárkróki útibú
frá Búnaðarbankanum í Stykk-
.Jeþftlpi, .sem,.,yí;ýtekiJiL storfe.
Jseáái Spáfisjóðs Stykkishóhns..
Starfrækir Búnaðarbankinn
þá sex útibú utan Reykjavík-
ur. Eru hin útibúin á Akur-
eyri. Blönduósi og Egilsstöð-
um.
Er með útibúum þessum
stefnt að því að bæta þjón-
ustu v'ð viðskiptavini bankans
í viðkomandi héruðum.
(Frá Búnaðarbankanum)
Evrópskt
menningasetw
Fyrir gjafafé frá svissneskri
konu, Madame L‘Orsa-Eseh-
ekke, hefur vferið sett á fót
stofnun, sem hefur að mark-
miði að koma upp menningar-
setri, þar sem „hinar ýmsu
greinar evrópskrar hugsunar
og menningar megi blómgast
í anda friðar”. Gjöfinni fylgir
landsvæði í Arbéa v:ð Lugano-
vatn í svissnesku kantónunni
Tossin. — Ráðherranefnd
Evrópuráðsins hefur veitt gjöf
þessari viðtöku. I stjórnarnefnd
stofnunar þessara verða m. a.
framkvæmdastjóri Evrópu-
ráðsins og fulltrúi ríkisstjóm-
ar Svisslands.
Ný frímerki
Póst- og símamálastjórnin
gefur út fjögur ný frímerki méð
blómamyndum. Verðgildi merkj-
anna eru fjögur, kr. 0.50 með
mynd af hornblöðku og kr 2.00
mynd af jöklasóley, kr. 1.50 með
með mynd af smára. Merkin
eru prentuð hjá Courvoisier S.
A., La Chaux-de-Fonds. Frí-
merkjasalan í Reykjavík tekur
,'á móti pöntunum i merkin ö»sf
iveitir nánari upplýsingar.
Áhaldasmiður
•
Staða áhaldasmiðs við áhaldadeild Veðurstofu fslands er
laus til umsóknar. — Laun samkv. 12. launaflokki kjara-
samnings starfsmanna ríkisins. — Nánari upplýsingar í
áhaldadeild Veðurstofunnar Sjómannaskólanum í Reykja-
vík.
Umsóknum um stöðu þessa ósamt upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf, óskast skilað til Samgöngu-
málaráðuneytisins fyrir 30. þ.m.
VEÐURSTOFA ÍSLANDS.
AðaUundur
Sölusambands ísl. fiskframleiðenda
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu föstudaginn 19. júní,
1964 kl. 10 f.h.
DAGSKRÁ:
1. Formaður stjórnar setur fundinn.
2. Kosning fundarstjóra, ritara Og kjörbréfanefndar.
3. Skýrsla stjórnarinnar fyrir árið 1963.
4. Reikningar Sölusambandsins fyrir árið 1963.
5. Önnur mál.
6. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
Blikksmiðir! Járnsmiðir!
Aðstoðarmenn!
Óskum eftir að ráða menn í ofannefndar
stöður.
Nánari upplýsingar gefur:
Nýja Blikksmiðjan
Höfðatúni 6. — Síma- 14672 o<r 14804.