Þjóðviljinn - 16.06.1964, Side 3
Þriðjudagur 16. Júrrf 1964 -———... .
Lögregluútboð um
alla S-Afríku
JÓHAiNNESABBOBG 15/6
ÞIÚÐVILIINN
Ól tvíbura í flugvél
Flugvél af gerðinni TU-14 var á venjulegri leið frá Habarovsk
til Moskvu. Þegar vélin var stödd yfir Jenisej-fljótinu tók kona
scm í henni var Iéttasóttina. í skyndi var einn básinn gerður
að fæðingarstofu og þar ól konan tvíbura. Allt gekk þetta vel
og á myndinni hér að ofan sjáum við Svetlönu, en svo heitir
konan, með börnin tvö. Ekki er frá því skýrt, hversu starfs-
mönnuni flugfélagsins varð við að fá þarna skyndilega tvo auka-
farþega, sem „hvergi voru á skrá.“
semur
senn vib Malasíu
Lögreglan hafði mikinn viðbún-
að um alla Suður-Afriku á
mánudag sökum þess, að búizt
var við bylgju af skemmdar-
verkum eftir Rivonia-málið svo-
nefnda. Sérstakir verðir voru
settir með öllum jámbrautarlín-
um, brúm, pósthúsum, rafstöðv-
um og yfirleitt öllum opinber-
um byggingum. Allur var þessi
viðbúnaður hafinn eftir að póst-
hús eitt fyrir utan Jóhannesar-
borg var sprengt í loft upp á
sunnudagskvöld.
Talsmaður lögfræðinga þeirra,
sem vörðu Mandela og félaga
hans í Rivonia-málinu, lét svo
um mælt á mánudag, að ekki
verði tekin ákvörðun um það
fyrr en í næstu viku, hvort á-
frýja skuli dómunum.
Luther-King
heiðursdoktor
NEWHAVEN 15/6 — Hinn
þekkti blökkumannaleiðtogi,
Martin Luther-King, var á mánu-
dag kjörinn heiðursdoktor í lög-
um við hinn þekkta Yale-há-
skóla í Newhaven. King var fyr
ir nokkrum dögum látinn laus
úr fangelsi gegn tryggingu, en
í fangelsinu lenti hann í st.
Augustine í Florida, er hann
neitaði að víkja úr veitingahúsi,
sem aðeins er ætlað hvítum
mönnum.
Bifreiðarslys
við Geldingaó
AKRANESI 15/6 — Um sjö
leytið á sunnudagsmorgun varð
bifreiðaslys við Geldingaá í
Leirársveit. Volkswagen-bíl var
ekið á ræsisstólpa með þeim af-
Ieiðingum, að bifreiðin koll-
steyptist og valt margar veltur.
Tveir menn voru í bílnum á-
samt bifreiðastjóra, og síösuð-
ust báðir. Annar farþeginn, sem
sat aftur í bílnum, hentist út
og handleggsbrotnaði; auk þess
skaðaðist hann illa í andliti.
Hinn farþeg:nn, sem í framsæt-
inu var hjá bifreiðastjóranum,
meiddist öllu meira og liggur nú
í Sjúkrahúsi Akraness, en
meiðsli hans eru ekki að fullu
rannsökuð. Bíllinn er gjöreyði-
lagður, og mega undur he'ta, að
menn skuli komast lífs af úr
slíku ferðalagi sem þessu.
Reykvíkingar
unnu Akureyr-
inga í skók
Mokkur reykvískra ská|:-
manna fór um helgina i keppnis-
ferðalag til Akureyrar. Farið
var á laugardagsmorgun, en
síðar um daginn fór fram hrað-
skákkeppni og sigruðu Reykvík-
ingar með 214 gegn 109. Á
sunnudag fór svo fram hin eig-
inlega bæjarkeppni og lauk
h'enni svo að Reykvíkingar hlutu
12 vinninga en Akureyringar 8.
Einna mesta athygli vakti skák
Inga R. Jóhannessonar er tefldi
á fyrsta borði gegn Halldóri
Jónssyni, en sú skák varð jafn-
tefli. Reykvíkingarnir dvöldust
á Hótel K.E.A og var allur að-
búuaður hinn bezti.
Það vakti nokkra furðu að
gert skyldi hlé á keppninni í
miðjum klíðum vegna knatt-
spyrnukappleiks er fram fór á
svipuðum tíma. Eigi varð þó
neinn ágre'ningur út af þessu.
Til Reykjavíkur kom flohkur-
inn svo aftur á sunnudagskvöld
eftir ánægjulegt ferðalag.
Vill heimshing
kommúnista
VARSJÁ 15/6. — Wladxslaw
Gomulka, leiðtogi pólskra komm-
únista, hvatti til þess á mánu-
dag, að kölluð verði saman
heimsróðstefna kommúnista til
þess að finna lausn á hug-
myndafræðideilunni milli Kína
annarsvegar og Sovétríkjanna
hinsvegar.
Gomulka gerði þetta að til-
lögu sinni í ræðu, er hann hélt
við opnun flokksþings pólskra
fíommúnista í Varsjá. Hann kvað
Íólska kommúnista myndu gera
að sem í þeirra valdi stæði til
ess að eining mætti á kom-
ást. Ella gagnrýndi hann kin-
Verska kömfnúnista, sem hann
tyvað setja einn mælikvarða
fýrir aðra kommúnista en ann-
an fyrir sig sjálía.
Akranes
Framhald af 12. síðu.
Karlakórinn Svanir syngja.
6. Þjóðdansar. Flokkur úr
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur
sýnir.
7. „Kaupmenn í sendiferð’’.
Lúðrasveit Akraness mun
leika á milli atriða.
Barnaskemmtun.
Kl. 17 hefst svo barnaskemmt-
un á Akratorgi. Þar verða eft-
irtalin atriði til skemmtunar:
1. Gamanþáttur. Klemens
Jónsson.
2. ’lúkkudans. Þorgrímur Ein-
arsson.
3. Tónlistartrúður. Jan Mora-
vec annast.
4. Tvöfaldur kvartett í ýms-
um gervum skemmtir. Stjóm-
andi Klemens Jónsson.
5. Ömar Ragnarsson skemmtir.
Dansað verður að skemmtiat-
riðunum loknum.
Kvöldvaka.
Klukkan níu hefst svo kvöld-
vaka á Akratorgi. Þar mun
Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri. flytja ávarp. Kjartan Ól-
afsson, brunavörður flytur
kveðju frá Átthagafélagi Akra-
ness. Karlakórinn Svanir syng-
ur. Fjórða atriðið er „Skiptar
skoðanir”, flytjendur eru Þor-
valdur Þoiwaldsson og Sólrún
Ingadóttir. Þau Eygló Viktors-
dóttir og Erlingur Vigfússon
munu syngja einsöng' og tvf-
söng og Ævar Kvaran flytja
skemmtiþátt. Lúðrasveit Akra-
ness leikur ó milli skemmtiat-
riða.
Dansleikur
Að kvöldvöku lokinni verð-
ur dansleikur á Akratorgi, og
verður dansað til kl. 2 um nótt-
ina. Tvær hliómsveitir munu
leika fvr'r dansi Þá er og rétt
að geta aff f dag 16. júnf.
er darsk'”í ’-íkisútvarpsins helg-
uð Akranesi.
TÖKÍÓ 15/6 — Fullvíst er nú,
að beinir samningar muni hefj-
ast milli Indónesíu og Malasíu.
Er til marks um það sú ákvörð-
un Indónesa, sem tilkynnt var
á mánudagskvöld, að draga til
baka skæruliða sína frá þeim
svæðum á Borneó, er Malasía
ræður.
Enn er þó ekki vitað, hvenær
af þessum samningafundum
verður. Utanríkisráðherrar Indó-
nesíu, Malasíu og Filippseyja
bíða fregna af því, að raunveru-
lega sé hafinn brottflutningur
skæruliðanna, en þá getur hafizt
undirbúningur undir fund æðstu
Rætt um aðgerðir
gegn apartheid
NEW YORK 15/6 — Fulltrúi
Norðmanna í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Sivert Nielsen,
lagði það til á fundi ráðsins á
mánudag, að komið verði á fót
nefnd sem í eiga sæti fulltrú-
ar allra þeirra landa, sem nú
eiga sæti í ráðinu. Skuli nefnd-
in rannsaka möguleikana á því
að gera þær efnahagsaðgerðir
gegn Suður-Afríku er hrífi, svo
landið láti af apartheid-stefnu
manna landanna. Tveir hópar
eftirlitsmanna frá Thailandi
komu til Bomeó á þriðjudag og
eiga' þeir að fylgjast með því,
hvernig gangi brottflutningur-
inn. Sem kunnrgt er af frétt-
um hefur Malasía jafnan neit-
að að taka upp samninga við
Indónesíu fyrr en skæruliðamir
væru á brott.
Heimsverzlunar-
ráð stofnað
GENF 15/6 — Hin alþjóðlega
efnahagsráðstefna í Genf ákvað
á mánudagskvöld, án formlegr-
ar atkvæðagrciðslu, að koma á
fót heimsverzlunarráði. Er þá
einingu náð um það, hvernig
hátta skuli hcimsverzluninni í
stórum dráttum.
Áður hafði nokkur ágreining-
ur ríkt um þessi atriði með full-
trúum hinna iðnvæddu þjóða
og 75 fulltrúum þróunarland-
anna svonefndu. Samkvæmt
málamiðlunartillögunni, sem
samþykkt var, skulu Asiu- og
Afríkuþjóðir hafa 22 sæti j ráð-
inu, iðnaðarlöndin 15, Austur-
Evrópa fimm og Rómverska
Amerika níu.
Lýð veldisfagnaður Æskulýðsfylkingarinnar
verður í Glaumbæ í kvöld og verður samkoman sett með ávarpi
klukkan 9.
Meðal skemmtiatriða verður: Savannatríóið og enska söngkonan
Josephine Stahl.
Hljómsveit Finns Eydal leikur fyrir dansi til kl. 2.
17. júní hátíðahöld í Hafnarfírði 1964,
á 20 ára afmæli lýðveldisins
Hátíðadagskrá:
Kl. 8 árd. Fánar dregnir að hún.
Kl. 1 e.h. Sa'fnast saman við
Bæjarbíó til skrúðgöngu, geng-
ið til kirkju.
Kl. 1.30 e.h. Helgisfund í Hafn-
arfjarðarkirkju. Síra Garðar
Þorsteinsson próf. prédikar.
Kl. 2 e.h. Skrúðganga frá kirkju
að Hörðuvöllum.
Kl. 2.20 e.h. Útihátíð sett, form.
17. júní nefndar Þorgeir Ibsen.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leik-
ur. Sfjórnandi: Hans Ploder.
Fánahylling.
Ræða: Dr. Sigurður Nordal.
Kórsöngur: Karlakórinn Þrest-
ir. Stjórnandi Páll Kr. Pálsson.
Ávarp Fjallkonunnar: Hulda
Runólfsdóttir.
Einsöngur Guðmundur Jónsson
Hátíðarljóð: Eiríkur Pálsson
og Þóroddur Guðmundsson.
Glíma (ísl. glíma).
Skemmtiþáttur skáta.
Handknattleikur (pokahand-
knattleikur)). Stjórnandi Hall-
steinn Hinriksson.
Stjórnandi dagskrár á Hörðu-
völlum og kynnir. Sigurgeir
Guðmundsson skólastjóri.
Kl. 5 e.h. Barnaskemmtanir í
báðum kvikmyndahúsunum.
Kvikmyndasýningar og
skemmtiatriði: Árni Tryggva-
son, Bessi Bjarnason, Ragnar
Magnússon og Sigurður Krist-
insson.
KI. 8 e.h. Kvöldvaka við Bæjar-
útgerð. — Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar og Karlakórinn Þrestir.
Ávarp: Hafsteinn Baldvinsson,
bæjarstjóri.
Einsöngur: Guðm. Jónsson.
Þj óðleikhúskvartett.
Skemmtiþáttur: Árni Tryggva-
son og Klemenz Jónsson.
Savannatríóið leikur og syngur.
Stjórnandi kvöldvöku og kynn-
ir: Hermann Guðmundsson
frkvst.
Kl. 10 e.h. Dans við Bæjarútgerð
og á Strandgötu við Thorsplan.
Hljómsveit við Bæjarútgerð:
Sólókvintett, stjórnandi Þor-
kell Árnason.
Hljómsveit Þorsteins Eiríksson-
ar leikur á Strandgötu, ein-
söngvari: Jakob Jónsson.
KI. 11 e.h. skemmtir Jón Gunn-
laugsson með Sólókvintettin-
um við Bæjarútgerð, en kl. 11.15
með hljómsveit Þorsteins Ei-
ríkssonar á Strandgötu.
Nýir og gamlir dansar
17. Júní NEFND I HAFNARFIRÐI.
Sölufólk óskast
til að selja merki Þjóöhátíðardagsins 17. júní.
Há sölulaun eru greidd.
Merkin eru afgreidd hjá Innkaupastofnun Reykjavík-
urbæjar, Vonarstræti 8, í dag og á morgun.
ÞJÓÐHÁTlÐARNEFND.