Þjóðviljinn - 16.06.1964, Síða 6
g SfÐA
HÖÐVILJINN
?>ri03u<íagur 16. júnf 1964
Um 400 sovézkir iistamenn koma til Bandaríkjanna á næsta ári
Mjög aukin menningarsamskipti
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
Samningur Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um menn-
ingarskipti á árinu 1964—65 er sá umfangsmesti sem
gerður hefur verið fram að þessu og á næsta leik- og sýn-
ingarári munu fleiri sovézkir listamenn gista Bandarík-
in en nokkru sinni fyrr, eða um 400 talsins. Sovézka
myndablaðið „Ogonjok“ hefur átt viðtal við hinn fræga
bandaríska skemmtikraftamiðlara Sol Hurok, en hann
hefur dvalizt í Sovétríkjunum að undanförnu að ráða sov-
ézka listamenn til Bandaríkjanna.
— Leikórið hefst með því að
Kiroff-ballettinn fró Leníngrad
sýnir í „Metropolitan Opera“
í New York 8. september. Ball-
ettinn mun síðan ferðast um
Bandaríkin og Kanada í 14 vik-
ur og sýna m.a. .,Þymirósu“.
„Svanavatnið", ,,Hnotubrótinn“
og ,,Öskubusku“.
Þá mun Fflharmonfska hljóm-
sveltln f Moskvu halda hljóm-
leika víða um Bandaríkin und-
ir stjóm Kirils Kondrasjins. f
New York einnl mun hljóm-
sveitin halda ellcfu hljómleíka.
Einleikarar með henni verða
feðgarnir Davfð og Igor Oj-
strak og Van Cilburn og söng-
Tveir fundir um viðskipta-
mál haldnir i Strassburg
Tveir fundir, sem fjalla um
viðskiptamól, eru haldnir í
Strassburg um þessar mundir
Hinn fyrri er fundur ráðgjafar-
þings Evrópuráðsins 11. júní
-------------------------
Dýr björgun
Eins og menn muna skeöi
það f koianómu við Lengede i
Vestur-Þýzkalandi síðastliðið
haust, að námuverkamenn lok-
uðust inni og máttu dúsa ein-
ar þrjár vikur í, þessarl pris-
und. 29 manns létu lifið, en
0.4 tókst að bjarga. Sarptals
kostaði þessi björgun námufé-
lagið nœrri 6.5 miljón marka,
eða um 66 miljónir íslenzkra
króna. - ri.r’
til að ræða ársskýrslu Efna-
hags- og framfarastofnunarinn-
ar f Parfs (OECD). Slfk skýrsla
er árlega lögð fram á ráðgjaf-
arþinginu til að gefa fulltrú-
um þjóðþinga Evrópuríkjanna
tækifæri tií að fylgjast með
starfsemi OECD. — Síðari
fundurinn er aameiginlegur
fundur ráðgjafarþíngs'ns og
Evrópuþingsins, en það er
þingmannasamkoma Efnahags-
bandalags Evrópu (EBE). Um-
ræðuefni þess fundar er þátt-
ur Evrópu í heimsviðskiptun-
um. Meðal þeirra, sem taka
p þátt- í umræðunum. eru Walter
Hallstein, forseti framkvæmda-
nefndar EBE og Nino Bel Bo,
. forseti stjórnarnpfndar , , J£ola-
, og stálsamsteypunnar^
konan Galína Visnévskaja verð-
ur einnig með í förinni.
Aðrir sovézkir tónlistarmenn
sem fara til Bandaríkjanna eru
píanósnillingurinn Emil Gllels,
fiðlusnillingurinn Leoníd Kog-
an, einnig söngkonurnar Dolu-
hanova og Arhipova og píanó-
leikarinn Jakob Sak. Og næsta
vor mun hinn einstæði þjóð-
dansaflokkur Igor Molsejevs
koma vestur, en hann vakti
geysilega hrifningu þegar hann
var þar sfðast.
Það verður einnig merkur at-
burður í bandarísku leikhúslífi
þegar Listaleikhúsið í Moskvu^
heldur sýningar í Bandaríkjun-
um. Heil kynslóð Bandaríkja-
manna þekkir þetta fræga letk-
hús aðeins af umtali, en nú eru
llðin meira en 40 ór sfðan það
var ó ferðlnni f Bandaríkjun-
um. Lelkhúsið mun sýna „Þrjór
systur". „Kirsuberjagarðinn"
eftlr Tsékoff, „Dauðar sálir"
Gogols og „Klukkurnár í
Kreml“ eftir Pogodin.
Bandaríkjamenn auatur
Fleiri bandarfskir. listamenn
en nokkru sinni áður munu
einnig gista Sovét.ríkin. Sinf.ón-
fuhljómsveitin f Cleveland und-
ir stjórn George Szell heldur
hljómleika, einnig hin fræga
kammerhljórnsveit „Promusi-
cal“. Isaac' Stern og Eugin
Istomín munu halda hljómleika
í Moskvu og víðar. Arthur Ru-
binstein heldur Chopin-hljóm-
le’ka í Moskvu og söngkonan
i'Mary Costa og söngvarinn Jer-
ome Hayns munu syngja í
Moskvu og fleiri borgum.
í lok viðtalsins spyr blaða-
maður „Ogonjoks" Hurok hvort
hann, sem nú er kominn á
áttræðisaldur sé ekki farinn að
þreytast á því erilsama starfi
að miðla skemmfikröftum. Hu-
rok sagðist jafnan svara slík-
um spurningum með þessari
sögu: — Hótelgestur hringdi
í sífellu í dyravörðinn og spurði
með ófergju hvenær barinn
myndi verða opnaður. Loks
stóðst dyravörðurlnn ekki mát-
ið og sagði við gestinn að hon-
um yrði alls ekki hleypt inn á
barinn ef hann léti svona. —
En ég ætla alls ekki inn. Ég
vll komast út. Ég er lokaður
inni....
ÉVGÉNI MOGÍLEVSKÍ æflr sig
Keppni Elísabetar drottningar
Atján ára gamall sovézkur
píanósnillingur sigraði
-4
16 til 20 daga utanlandsferð
fyrir aðeins 8000 til 8500 krónur
Ferðaskrifstofan LANDSÝN
býður yður upp á 16—20
daga ferð á Eystrasaltsvik-
una í Austur-Þýzkalandi fyr-
ir aðeins 8000 til 8500 krón-
ur — allur kostnaður inni-
falinn.
☆ ☆ ☆
Eystrasaltsvikan stendur yf-
ir 4 til 17. júlí. Gert er ráð
fyrir meiri þátttöku frá öll-
um Eystrasaltslöndunum og
fjölbreyttari skemmtiskrá en
nokkru sinni fyrr.
☆ ☆. ☆
Að Eystrasaltsvikunni lok-
inni verður farin 2ja til 3ja
daga ferð um Austur-Þýzka-
land með viðkomu ( Berlín.
Flogið verður báðar leiðir
Til Kaupmannahafnar 1„ 3
eða 5. júli og heim um 20
júli.
☆ ☆ ☆
Þátttökupantanir þarf að
leggja inn til okkar fyrir
18. júní.
FERÐASKRIFSTOFAN
LANDSYN ’f
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890.
Einhver harðasta keppni
tónlistarmanna er sú sem
haldin er fyrir píanóleikara
í Brussel ó vegum Elísabet-
ar ekkjudrottningar. Á und-
anförnum órum hafa sov-
ézkir píanóleíkarar oftast
gengið með sigur af hólmi
og þannig fór einnig nú^
fyrír nokkrum dogúm. Sér-
staka ' athygli vekur óð
snillingurinn sem sigraði í
þetta sinn er aðeins átján
óra gamall.
Þegar að lokakeppninni kom
var enginn hinna 2.000 áheyr-
enda legur í neinum vafa um
hver myndi hljóta fyrstu verð-
laun og 3.000 dollara sem þeim
fylgja. Évgéni Mogílevskí, átj-
án ára unglingur frá Odéssa,
var sá eini af 70 keppendum
sem áheyrendur fögnuðu með
því að rísa úr sætum sínum.
Dómnefndin var áheyrend-
um sammála og veitti Mpgil-
evskí fyrstu verðlaun og er
hann yngstur allra sem þau
hafa hlotið. ' Tónlistargagnrýn-
endur belgiskra blaða luku á
hann slíku lofsorði að fágætt
er.
Þetta var í sjötta skipti sem
sovézkir píanóleikarar vlnna
fyrstu verðlaun i Brussel, en
þeir hafa tekið þátt i keppn-
inni ellefu sinnum. Einn af
fyrri sigurvegurum er Vladim-
is Askenasi. Og þeir létu sér
ekki nægja fyrstu verðlaunin
i þetta sinn, heldur tóku einn-
ig önnur og sjöundu.
Þátttakendur i keppninni
voru sjötíu talsins frá 28 lönd-
um og langflestir frá Banda-
Aukið daður
með Madrid
og Bonn
Utanrikisráðherra Spánar,
Fernando Maria Castella, hef-
ur boðið hinum vestur-þýzka
starfsbróður sínum, Gerhard
Schröder. að sækja Spán heim.
Það er vestur-þýzka utanríkis-
ráðuneytið sem þetta tilkynn-
ir.
Þetta heimboð stendur að
öllum Hkindum i sambandi við
það, að ráðherrafundur Efna-
hagsbandalagsins hefur nú á-
kveðið að taka upp viðræður
við Spán um efnahagsvanda-
mál landsins.
ríkjunum, eða 20. Síðan Van
Cliburn vann sinn freega sig-
ur i Moskvu um árið og varð
heimsfrægur á samri stund
hefur það verið keppikefli
ungra bandarískra tónlistar-
mnnna að fara sömu leið.
En þótt bandaríska sveitin
væri fjölmenn varð hún að
láta í minni pokann. „Time“
segir að Bandaríkjamennirnir
hafi æft sig aldrei skemur en
tólf tíma á dag og sumir langt
fram á nætur. Þeir sovézku
létu sér nægja að æfa { fjór-
ar stundir daglega, en styttu
sér annars stundir við knatt-
leik.
Dómsmáiaráðherrar Evrópu-
r>r rt f r» (?!(ffíd *'
rikja á fundi í íriandi
Frá dómsmálaráðuneytlnu
hefur ÞJÓBVILJANUM borizt
Cftirfarandi um þriðju ráð-
stefnu dómsmálaráðherra Evr-
ópuráðhcrra.
Þriðja ráðstefna dómsmála-
ráðherra Evrópuríkja var hald-
in f Dublin í írlandi dagana
26,-28. maí 1964.
Ráðstefnuna sat dómsmála-
ráðherra Islands, Jóhann Haf-
stein, og með honum Baldur
Möller, ráðuneytisstjóri. og
Pétur Eggerz, sendiherra, fasta-
fulltrúi fslands hjá Evrópuráð-
inu.
Á ráðstefnunni mættu fuli-
trúar 16 ríkja af þe'm 17, sem
eiga aðild að Evrópuráðinu, og
áheyrnarfulltrúar frá tveimur
ríkjum, Finnlandi og Spáni,
Voru á ráðstefnunni rædd-
ar leiðir til þess að auka enn
samstarf Evrópuríkja 5 löggjaf-
armálefnum. í því sambandi
var athuguð þróun þeirra mála
frá síðasta fundi dómsmála-
ráðherranna, sem hald’nn var
í Róm 1962, Síðan hafa verið
samþykktir þrír nýir viðauk-
ar við. Mannréttindasáttmála
Evrópu, —
Það vekur athygli, að ýms
hin nýju ríki í Afríku og Ásiu
hafa við samningu nýrrar
stjómarskrár stuðst við ákvæði
Mannréttindasáttmálans.—Enn-
fremur hefur Ameríkuríkja-
samband'ð (Organisation of
American States), að verulegu
leyti byggt uppkast að Mann-
réttindasáttméla fyrir þau ríki
á Evrópusáttmélanum.
Þéss var gétið á ráðstefn-
unni. að laganefnd sú, sem
Evrópuráðið hefur stofnað
samkvæmt ábendingu dóms-
málaráfiherranna tekur til
starfa í næsta mánuði Full-
trúi fslands f henni er Pétur
Eggerz.
Niðurstaðan af starfi dóms-
málaráðherranna á þessari
ráðstefnu kemur fram í 7 á-
lyktunum.
Meðal málefna þeirra, sem
hér voru til meðferðar má
nefna:
Ráðstafanir til að stuðla að
auknum rannsóknum á saman-
burðar-lögfræði, sem hefur sí-
vaxandi þýðingu vegna auk-
inna og nánari samskipta milli
landanna. — Dómsmálaráð-
herra frlands, Charles J.
Haughey bar þetta málefni
fram á fundinum, en hann
var jafnframt forseti ráðstefn-
unnar.
Þá vonu rædd vandamál i
sambandi við löghelgi (Immun-
ity) rfkja f sambandi við milli-
ríkjaviðskipti. —
Ennfremur ráðstafanir til
þess að tryggja samræmda
túlkun é sáttmálum Evrópu-
ríkjanna,
Loks kom fram á ráðstefn-
unni mikill áhugi fyrir auknu
starfi á sviði refsiréttarins.
Voru f því sambandi séretak-
lega ræddir samningar urn
refsingu fyrir umferðabrot út-
lendinga og um eftirlit með af-
brotamönnum er hlotið hafa
Bkilorðsbundna dóma eða skil-
orðsbundna eftirgjöf refúnga.
en dvelja utan heimalands
síns,
Dómsmálaráðherra Þýzka-
lands bauð til 4. . ráðstefnu
dómsmálaráðherranna í Þýzka-
landi á árinu 1966.
Móttökur og gestrisni íra
voru með ágætum, en írska
rfkisstjómin bauð til þessarar
váðstefnu. Dómsmálaráðherra
íra hafði veg og vanda af
skipulagi og starfi fundarins
og na”t tj1 bo<,.e flðstoðar fram-
kvæmdast ióra Éyrópuráðsins
og starfsliðs frá því.