Þjóðviljinn - 16.06.1964, Side 12
Akranes 100 ára
verziunarstaður
■ I dag, 16. júní, á Akranes
100 ára afmæli sem verzlun-
arstaður. Verður þess veg-
lega minnzt, en þó verða að-
alhátíðahöldin látin falla
saman við þjóðhátíðina á
morgun. í dag kl. 18 boðar
bæjarstjórnin til hátíðafund-
ar í Bíóhöllinni. Þar mun
forseti bæjarstjórnar. Jón
Árnason flyt'ja ræðu og
Lúðrasveit Akraness leikur
á undan fundi. Bæjarstjóm
mælist til þess, að allri
vinnu sé hætt ekki síðar en
kl. 15.
Aðal hátíðahöldin verða svo á
morgun. Hefjast þau kl. 10 með
messu í Akraneskirkju. Kl.
13,15 hefst skrúðganga frá Iðn-
skólanum á Iþróttavöllinn, Þar
hefst svo skemmtun kl. 14.
Hátíðahöldin
Dagskrá skemmtunarinnar
verður sem hér segir:
1. Hátfðin sett af Jóhannesi
Ingibjartssyni. formanni há-
tíðanefndar.
2. Ræða Séra Jón M. Guð-
jó ísson.
3. Ávarp fjallkonunnar. Frú
Bjarnfríður Leósdóttir.
4. Hundrað ár í svipmyndum.
Skátafélag Akraness sér um þátt-
inn.
Framhald á 3. síðu.
Sildmattim var 150 þúsund
mól og tunnur s/. laugardag
Hítin m'ií harcí fvreto cílrl_ QC\ OAH píómí1u« TVT A Dmtfnx
Hinn 31. maí barst fyrsta síld-
in á Iand norðanlands á þessu
sumri, sem mb. Hclgi Flóvents-
son veiddi 75 sjómílur út af
Langanesi. Er það mun fyrr en
átt hefur sér stað undanfarin ár
Fá skip voru að veiðum fyrstu
dagana, en flotinn er nú almennt
byrjaður veiðar. Er áætlað að
um 250 skip stundi veiðarnar í
sumar, en voru þegar flest var
226 í fyrra.
Aðalveiðisvæðið hefur verið
Afli ein-
stakra báta
leyndarmál
í gær barst Þjóðviljan-
um fyrsta síldveiðiskýrsla
Fiskifélags íslands á þessu
sumri og var hún óvenju
stutt og laggóð, enda segir
svo í niðurlagi hennar:
„Samkvæmt tilmælum sam-
göngumálaráðuneytisins
byggt á tillögu sjóslysa-
nefndar mun sú breyting
verða á birtingu afla-
skýrslna frá síldveiðum, að
afla einstakra skipa verður
ekki getið í vikulegu
skýrslu Fiskifélagsins“.
80—200 sjómílur NA frá Raufar-
höfn og hefur veðrið verið sæmi-
legt það sem af er vertíð.
Heildarafli á land kominn á
miðnætti laugardaginn 13. júní
var sem hér segir:
Til frystingar 3.556 uppm. tunn-
ur. í bræðslu 150.706 mál.
Samtals 154.262 mál og tunnur.
Á sama tíma í fyrra var heild-
armagn á land komið 56.731 mál
og tunnur. Hæstu löndunarhafnir
eru nú Siglufjörður með 42.143
mál og Raufarhöfn með 65.294
mál.
(Frá Fiskifélagi Islands.)
Þjóðviljinn hafði í gær sam-
band við Jón Finnsson fulltrúa
bæjarfógeta í Hafnarfirði, en
hann er formaður sjóslysanefnd-
ar, og spurði hann hvers vegna
sundurliðaður afli bátanna sé-
ekki birtur eins og áður: „Við
sendum bréf til samgöngumála-
ráðherra 4. júlí síðastliðinn og
teljum þar, að birting skýrsln-
anna um aflamagn einstakra
báta orsaki óæskilega sam-
keppni, sem geti haft í för með
sér óhóflega hleðslu bátanna og
slíkt myndi draga úr þeirri
spennu, sem ríkir á síldveiðum.
Þetta er meginröksemdin og
annað hefur svo sem borið á
góma í þessum efnum.
Þannig verkar þessi skýrsla
illa á sjóménn, sem afla illa og
dregur þá niður í stemningu
fyrir veiðunum, sagði Jón
Þriðjudagur 16. júní 1964 — 29. árgangur — 132. tölublað.
ListahátíðarEok
á föstudagskvöld
■ Listahátíðinni lýkur á föstudaginn með samkvæmi að
Hótel Sögu, og verður forseti íslands heiðursgestur.
Veizlustjóri verður dr. Páll ísólfsson en Tómas Guðmunds-
son flytur aðalræðuna undir borðum. Að borðhaldi loknu
leikur hljómsveit Svavars Gests fyrir dansi.
Fjérlr llsfamenn hlutu
sffrki Mennfamálaráðs
Nýlega ákvað Menntamálaráð
að taka upp þá nýlundu að
veita árlega um 300 þús. krón-
ur úr menníngarsjóði til að
styrkja íslenzka listamenn til ut-
anfara.
Ráðgert er að 10 listamenn
njóti styrkja þessara ár hvert
og fái allt að 30 þúsund krónur
hver. Skulu styrkhafar dveljast
þrjá mánuði og kynna sér nýja
strauma og stefnur i listgrein-
um sínum. Fjórum listamönnum
hefur verið úthlutað slíkum
styrkjum og eru það þeir Bene-
dikt Gunnarsson listmálari,
Gunnar Gunnarsson skáld,
Steindór Hjörleifsson leikari og
Þórarinn Jónsson tónskáld.
Styrkimir munu að nokkru
veittir samkvæmt umsóknum, en
einnig mun Menntamálaráð
veita nokkra styrki árlega án
umsókna viðkomandi listamanna.
Ekki hefur endanlega verið á-
kveð:ð hve margir styrkir verða
afgreiddir samkvæmt umsóknum
og hve margir listamenn hljóta
stvrki að ákvörðun Menntamála-
ráðs.
Tveir þeirra. er siytkinn fengu
við 'pessa fyrstu úthlutun, höfðu
sótt um h?nn. þeir Steindór og
Benedikt. Báðir hyggja þeir á
utanferð í haust og ætlar Bene-
dikt til Mexíkó, en Steindór til
Norðurlanda, þar sem hann
hyggst kynna sér nýjungar í
leiklist og leikkennslu.
Sem áður segir skulu styrkir
Menntamálaráðs notaðir til ut-
anfara og æskilegt þykir að
stvrkhafar fari utan innan árs
frá styrkveitingu.
Neðsta röð: Rósa, Elín, Ölafur, Laufey Arnalds, Ásgerður. Næsta
röð: Ásmundur, Ása, Laufey Þorgeirsdóttir. Þriðja röð: Þórir,
Sveinn, Eggert. Efsta röð: Jóhann, Gunnar, Hjalti, Lárus. Á mynd-
ina vantar Kristinn Bergþórsson.
Norðurlandamótíð í
brídge heíst / dag
■ í dag hefst í Osló Norð-
urlandamót í bridge og er
full þátttaka frá öllum Norð-
urlöndunum, þ.e. tvær karla-
sveitir og ein kvennasveit
frá hverju landi.
íslenzku þátttakendurnir eru
þessir, en þeir fóru utan s.l.
laugardag.
Kvennasveit: Fyrirliði Elín
Jónsdóttir, Rósa Þorsteinsdóttir,
Ásgerður Einarsdóttir, Laufey
Arnalds, Ása Jóhannsdóttir og
Laufey Þorgeirsdóttir.
A-sveit karla: Kristinn Berg-
þórsson, Jóhann Jónsson, Lárus
Karlsson og Gunnar Guðmunds-
son, fyrirliði.
B-sveit karla: Hjalti Elíasson,
Eggert Benónýsson, Þórir Sig-
urðsson og Ásmundur Pálsson,
fyrirliði.
Með karlasveitunum er eitt
varapar, Sveinn Helgason og
Ólafur Þorsteinsson. og mega
þeir spila með hvorri sveitinni
sem er. Ólafur er jafnframt fyr-
irliði (spilar ekki) hjá kvenna-
sveitinni og fulltrúi •Bridgesam-
bands Islands á mótinu. Árang-
ur karlasveitanna er lagður
saman, þegar reiknuð er út
röð landanna og það skal tek-
ið fram. að dregið var um það,
hvor sveit yrði A-sveit og hvor
B-sveit.
Á mótinu verða spilaðir tveir
40 spila leikir dag hvem, en
mótinu lýkur laugadaginn 20.
júní.
Núverandi Norðurlandameist-
arar eru Svíar, bæði í karla- og
kvennaflokki og sigruðu þeir
árið 1962 í Kaupmannahöfn.
Ársþing Bridgesambands 'Is-
lands var haldið 30. maí 8.1.
og voru mættir fulltrúar víðs
vegar af landinu. Samþykkt var
á þinginu að bjóðast til þess að
halda í Reykjavík Norðurlanda-
mótið 1966 og einnig var ákveð-
ið að reyna að senda sveit til
þátttöku í Evrópumeistaramót-
inu í Brussel 1965.
Stjórn Sambandsins var end-
urkjörin, en hana skipa:
Forseti: Sigurjón Guðmunds-
son, ritari: Þórður H. Jónsson,
gjaldkeri: Kristjana Steingríms-
dóttir. Fyrir Norðurland: Hörð-
ur Amþórsson og Mikael Jóns-
son. fyrir Suðurland: Bjöm
Sveinbjörnsson og Óskar Jóns-
son. Framkvæmdastjóri Bridge-
sambands Islands er Brandur
Brynjólfsson.
f kvöld verður sýnd í Þjóð-
leikhúsinu er nefnist Myndir úr
Fjallkirkju Gunnars Gunnars-
sonar. Hafa þeir Lárus Pálsson
og Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi tekið saman þættina og
hefur Lárus. leikstjómina á
hendi.
18. júní verður svo í sambandi
við Listahátíðina frumsýnd ný
íslenzk kvikmynd í Laugarás-
bíói og er sagt nánar frá henni
á öðrum stað í blaðinu.
Hátíðinni lýkur svo eins og
áður segir með hófi í Súlnasal
Hótel Sögu á föstudagskvöldið.
Hefst það með borðhaldi og
kostar aðgöngumiðinn kr. 450
og er þar innifalinn matur og
aðgöngueyrir. Verða aðgöngu-
miðar seldir í anddyri Súlna-
salarins í dag kl. 4—6 síðdegis
og þar verður einnig tekið á
móti borðapöntunum.
Sautlánda púní hátíðar-
Ungmennasambantl Austur
Húnvetninga efnir til hátíðadag-
skrár sautjánda júnl að Blöndu-
ósi vegna tuttugu ára afmælis
lýðveldisins.
Hátíðin hefst með guðsþjón-
ustu i Blönduóskirkju klukkan
hálf ellefu um morguninn. Síð-
ar um daginn flytur Páll S.
Pálsson, hæstaréttarlögmaður
aðalræðu dagsins. Þá syngur
Karlákór "Bólstaöahlíðarhrepps
og Skúli Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri U.M.F.f. flytur
kvæði og svo* fer fram fána-
hylling skáta.
Þá verður farin skrúðganga
út á íþróttavöll og háð íþrótta-
keppni þar. Um kvöldið verða
þrjár leiksýningar á leiknum
..Hreppstjórinn á Hraunhamri”
og að lokum dansleikur.
U.S.A.H. var stofnað af nokkr-
um ungmennafélögum árið 1912.
Fyrstu stjóm skipuðu Jón
Pálmason frá Akri, formaður,
Hafsteinn Pétursson frá Gunn-
steinsstöðum og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir.
-,T.S.A.H. hefur til dæmis séð
um Húnavökuna allt frá upp-
hafi eða síðan 1946 og nefndist
hún þá sæludagar.
Þá hefur U.S.A.H. styrkt skák-
þing Norðurlands 1 þau tvö
skipti, sem það hefur verið háð
að Blönduósi. Einn af félögum
sambandsins varð einmitt skák-
meistari .Norðuriands árið 1964,
en það er Jónas Halldórsson
frá Leysingjastöðum.
Núverandi stjórn U.S.A.H.
skipa þessir menn: Kristófer
Kristjánsson frá Köldukinn,
formaður, Pétur Sigurðsson frá
Skeggjastöðum. gjaldkeri, Stef-
án A. Jónsson frá Kagaðarhóli,
ritari.
Sex skip
bíða losunar
Norðaustan bræla er á miðun-
un út af Raufarhöfn og hefur
verið lítil veiði, en nokkur skip
komu þaðan í gær með slatta.
Sex skip bíða nú losunar á
Raufarhöfn. Sigurvon 300 mál,
Amfirðingur 1000, Skagaröst 650,
Höfrungur III 1900, Otur 700,
Þorleifur Rögnvaldsson 500, Ás-
þór 650, Víðir SU 800, og Dofri
150.
Hý, íslenzk kyikmynd
frumsvnd á fímmtudag
Fimmtudaginn 18. júní kl.
21,00 verður sýning í Laugarás-
bíói á nýrri íslenzkri kvikmynd
frá Geysismyndum. „Fjarst í ei-
Iífðar útsæ“ eftir Reyni Odds-
son. Myndin er tekin i tilefni af
20 ára afmæli lýðveidis á ís_
landi og er ljóðræn Iýsing á
landi og þjóð, gerð fyrir breið-
tjald og í Eastmaniitum.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
kvikrnyndalist er tekin á dag-
skrá íslenzkrar Þ'stahátíðar og
vonandi á hún eftir að skipa
þar virðulegan sess i framtið-
inni.
Með íslenzku myndinni verð-
ur sýnd japanska kvikmyndin
Harakiri, sem er eitt af öndveg-
isverkum kvikmyndalistar síð-
ustu ára og vakti óhemju um-
tal og hrifningu á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes 1963.
Fólki er vinsamiega bent á
að taka ekki börn með sér á
þessa sýningu.
Aðgöngumiðar verða seldir
í Laugarásbíói.
Hefðbundin þjóðhátíð á 20
ára afmæli lýðveldisins
■ Þjóðhátíðin í Reykjavík verður í ár með sama sniði
í höfuðdráttum og mörg undanfarin ár, en 20 ára afmæli
lýðveldisins mun þó að sjálfsögðu setja sinn sérstaka svip
á þau að þessu sinni.
Árdegis verður athöfn við
leiði Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu og
lúðrasveitir barna- og unglinga
leika við elliheimilin Grund og
DAS. Eftir hádegi verða skrúð-
göngur, venjuleg hátíðaathöfn
við Austurvöll, barnaskemmtun
á Arnarhóli og íþróttamót á
Laugardalsvelli. Kvöidvaka verð-
ur svo á Arnarhóli og loks dans
í miðbænum.
Fjalikonuávari) eftir Tómas
Við guðsþjónustuna f Dóm-
kirkjunni syngur Magnús Jóns-
son. óperusöngvari, einsöng, en
séra Bjarni Jónsson vígslubisk-
up prédikar í fjarvenx biskups
Isfands. Ávarp fjallkonunnar
hefur Tómas skáld Guðmunds-
son samið að þessu sinni i til-
efni dagsins, og flytur Gerður
Hjörleifsdóttir það af svölum
Alþingishússins.
Barnaskemmtunin á Arnarhóli
samanstendur af tónleikum, söng
og leikþáttum, Reynir Karlsson,
f ramkvæm dastj óri /Eskulýðsráðs
Reykjavíkur, flytur ávarp, tvö-
faldur kvartett úr Þjóðleikhúss-
kórnum syngur og kemur fram
í ýmsum leikgerfum, sýnt verð-
ur atriði úr barnaleikritinu
Mjallhvít, hljómsveit leikur und-
ir stjórn Carls Billich og fl.
Frumflutningur kórverks
Hljómleikar verða á Austur-
velli kl. 4,30 síðdegis. Þá leikur
Lúðrasveit Reykjavíkur nokkur
Iög undir stjórn Páls P. Pálsson-
ar og karlakórar borgarinnar
syngja undir stjóm Jóns S.
Jónssonar og Ragnars Björns-
sonar. Munu Fóstbræður flytja
í fyrsta skipti opinberlega tón-
verkið Fi'elsisljóð, sem Árni
Björnsson, tónskáld samdi við
Ijóð Kjartans J. Gíslasonar frá
Mosfelli í tilefni lýðveldisstofn-
unarinnar 1944. Einsöngvari með
kórnum verður Erlingur Vig-
fússon.
Á Laugardalsvelli verða í-
þróttasýningar og keppni i
frjálsum íþróttum. Til nýlundu
má telja að stúlkur og drengir
sem þátt hafa tekið að undan-
förnu í íþróttanámskeiðum
Reykjavíkui’borgar keppa þar i
boðhlaupi og auk þess fer fram
knattspyrnukeppni milli úrvals-
liðs 4. flokks úr Vesturbæ og
Austurbæ.
‘ uk venjulegra atriða á kvöld-
vökunni flytur Richard Beek.
prófessor, nú að bessu sinni
kveðju frá Vestur-Islend:ngum,
Eyglo Viktorsdóttir og Erlingur
Vigfússon syngja tvísöng. flutt-
ar verða myndir úr Fjallkirkju
Gtinnars Gunnarssonar undir
| stjórn Lárusar Pálssonar, Asjk-
enasí og Frager leika einleik og
tvíleik á píanó og Fjórtán Fóst-
bræður syngja.