Þjóðviljinn - 30.06.1964, Side 1
*
Inönu i London og
Papandreú í París
Ennþá hafa samningar ekki
tekizt við Sovétríkin.
Leitarstöð KrabbameinsféL
agsins verður opnuð í dag
Krabbameinsfélag íslands hefur nýjan áfanga í baráttu
sinni gegn krabbameini í dag, með opnun nýrrar krabba-
meinsleitarstöðvar í húsakynnum félagsins að Suðurgötu
22. Áformað er að skoða allar konur í landinu á aldrinum
25—60 ára, til þess að kveða niður krabbamein í legi og
leghálsi kvenna, en sá sjúkdómur færist í aukana hérlend-
;s. Rannsókn er framkvæmd konum að kostnaðarlausu.
Sýna ís/enzka
og sænska
þjóðdansa
SÆNSKUR þjóðdansaflokkur er
hér í boði Þjóðdansafélags
Reykjavíkur og ferðaðist víða
um nágrenni Reykjavíkur
núna um helgina ásamt ís-
lenzkum þjóðdansaflokki og
sýndu þjóðdansa.
ÞESSI mynd er tckin að lokinni
danssýningu í skrúðgarðinum
í Borgarnesi á sunnudag og
skarta hér bæði ísienzkar og
sænskar stúlkur á þjóðbún-
ingum. Fleiri myndir og frá-
sögn eru á 12. siðu — (Ljósm
Þjóðv. G.M.).
Treg humarveiði
Sautján humarbátar leggja nú
upp í Hafnarfirði og hafa gæftir
verið slæmar að undanförnu og
afli frá 2 til 3 tonnum í róðri.
Þó lagði Stefnir upp 5 lestir f
gærmorgun.
Krabbameinsfélag fslands
skorar á allar konur á aldrinum
25—60 ára að bregðast vel við
málaleitan félagsins, að þær
komi til skoðunar i Krabba-
meinsleitarstöð B., þar sem leit-
að er að krabbameini í legi og
leghálsi kvenna. Prófessor Niels
Dungal gat þess í ræðu við opn-
un stöðvarinnar í gær, að það
væri hvað nærtækast að eiga
við þessa tegund krabbameins,
þar sem sigurhorfur væru einna
beztar í baráttunni við hana.
Skýrslur sýndu að þessi sjúk-
dómur, sem er tiltölulega al-
gengur víða i menningarlöndum
hefði færzt ; aukana hérlendis
fram eftir þessari öld, og nú
þyrfti að stöðva þessa þróun og
væru ríkar ástæður til að gera
sér vonir um góðan árangur, og
kæmi þar einkum til, að þetta
' krabbamein ætti sér langan að-
draganda, skemmsti meðgöngu-
tími væri 6 ár. Jafnvel 10—15
árum áður en sjúkdómurinn
verður illkynjað æxli, sem
ræðst á hvað sem fyrir er, má
sjá fyrstu merki um hann og
gera þá þegar smávægilega að-
gerð, sem getur bjargað lífi kon-
unnar. Prófessor Niels Dungal
taldi góðan árangur, ef hægt
væri að bjarga tíu mannslífum
árlega og þá sérstaklega sem
þessi líf væru öðrum dýrari,
vegna þess að sjúkdóm þenn-
an fengju helzt konur á bezta
aldri og öðrum fremur margra
barna mæður.
Krabbameinsfélag fslands
kostar allan rekstur stöðvarinn-
ar, sem er áætlaður um miljón
krónur á ári. Áætlað er að
Framhald á 3. síðu.
Næturdrottningin í
Listamannaskála
Blómasýningin i Listamanna-
skálanum sem opnuð var á
laugardag vckur almenna at-
hygli í bænum vegna fjölbrcytni
og failegrar uppsetningar. Um
3000 manns komu á sýninguna
uai hélgina, og var hún svo
heppin að fá til sýningar á
sunnudagskvöld ágætt eintak af
kaktusinum Næturdrottningunni,
roeð fjórum stórum blómum.
Kaktus þessi blómgast sjaldan
og blómin standa ekki ncma
eina nótt.
Ingólfur Davíðsson grasafræð-
mgur kynnir Næturdrottning-
una þannig í bókinni Stofublóm:
„Næturdrottningin (Seleniser-
eus grandiflorus eða Cereus
grandiflorus). Frœgur kaktus
með langa strenda greinótta
stöngla sem eru undnir eða
hlykkjóttir og þymóttir, grænir
með rauðleitum blæ og brún-
loðnir í oddana. Er ekki drottn-
ingarleg daglega. En blómin eru
stór og fögur með sterkum ilm.
Þau eru um 20 cm í þvermál.
Blómblöðin fremur mjó, brún
Framhald á 3. síðu.
Opið til kl. 9
í kvöld
Nú er aðeins tæp vika þar
til dregið verður um Trabant
bílinn og 5 ferðavinninga.
Við komum til með að hafa
skrifstofuna á Týsgötu 3 opna
þessi kvöld sem eftir eru og
í dag höfum við opið frá kl. 9
til 12 f.h. og i til 9 e.h. E>að
eru vinsamleg tilmæli til
allra þeirra sem ekki hafa
litið inn til okkar að þeir
noti tækifærið sem fyrst til
þess að létta undir með okk-
ur síðustu dagana.
Röð deildanna hefur breytzt
þó nokkuð síðan á sunnudag
og eru flestar deildir sem
hafa skilað einhverju, en efla
þarf þessa sókn sem hafin
er og sem flestar deildir
þurfa að ná 100% fyrir helgi.
Trúnaðarmenn happdrættis-
ins í deildunum eru beðnir
um að hafa samband við
skrifstofu Sósialistafélagsins
og happdrættisins þessa
daga sem eftir eru sem oft-
ast til þess að fylgjast með
gangi mála.
Röð deildanna er nú þann-
ig:
1. 13 d. Herskólahv. 50%
2. 5. d. Norðurmýri 35%
3. 1 d. Vesturbær 33%
4. 3 d. Skerjafj. 32%
5. lOb d. Vogar 31%
6. 4a d. Þingholt 30%
7. 15 d. Smálönd 30%
8 4b d. Skuggahv. 26%
Framhald á 3. síðu
6 dagar
eftir
LONDON, PARÍS, NIKOSÍA
29/6 — Forsætisráðherra Tyrk-
lands, Ismet Inönu, lauk í dag
viðræðum sínum við brezka for-
sætisráðherrann, Douglas-Home.
Hinn gríski starfsbróðir hans,
Papandreú, ræddi í dag Kýpur-
vandamálið við forseta Frakk-
iands, de Gaulle,
Opinber tilkynning var send
út í London um viðræðurnar.
Þar segir áð ráðherramir hafi
rætt m.a. hvemig á beztan hátt
sé unnt að tryggja frið og ein-
ingu á Kýpur. Inönu og Pap-
andreú virðast sammála um að
nauðsynlegt sé að finna varan-
lega lausn á Kýpur-vandamál-
inu hið allra bráðasta.
1 Fadili Kutchuk, foringi tyrkn-
eska þjóðarbrotsins á Kýpur,
sagði að tillaga Grivasar, fyrr-
verandi foringja EOKA-hreyf-
ingarinnar, um friðsamlega sam-
búð á eyjunni væri ekki í sam-
ræmi við ræðu er hann hélt í
Nicosiu síðdegis á sunnudag,
þar sem hann sagði að baráttan
myndi halda áfram.
Brælunni lokið
143. tölublað.
Síldarflotinn iét úr höfn fyrir
hádegi í gær og hélt á miðin
eftir Iandleguna um helgina,
Mörg skip lágu í vari á Aust-
fjarðarhöfnum svo scm á Seyð-
isfirði, Loðmundarfirði og
Norðfirði. Vitað var um nokkur
skip í gærkvöldi, sem voru byrj-
uð að kasta á Digranesgrunninu
og norður undir Bakkaflóa.
Fram — Valur 2:2
I gærkvöld fór fram úrslita-
leikur Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu milli KR og Fram
á Melavellinum. Úrslit náðust
ekki og varð jafntefli 1:1 eft-
ir venjulegan leiktima. Leikn-
um var framlengt um finjmtán
mínútur og brá svo við, að enn-
þá varð jafntefli 1: 1 og verð-
ur að hefja nýjan leik síðar.
Umtalsveri verð-
hækkun saitsíldar
Hertoginn
kemur í dag
í dag kl. 5 síðdcgis er Filipp-
us hertogi af Edinborg væntan-
legur hingað til Reykjavikur í
fjögurra daga heimsókn. Kemur
hann hingað með konungssnekkj-
unni Britannia og mun stiga á
Iand á Loftsbryggju og aka það-
an að Alþingishúsinu þar sem
formleg móttaka fer fram. Á
morgun fer hertoginn m.a. til
Þingvalla og upp í Borgarfjörð
en heldur síðdegis til Akureyrar
og þaðan til Mývatns þar sem
hann dvelst við fUglaskoðun á
fimmtudag. Heimleiðis heldur
hann svo fljúgandi á föstudag.
SÍLDARSÖLTUN LEYFÐ
FRÁ HÁDEGI í DAG
■ í gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá Síldarútvegsnefnd um leyfi til síldarsöltunar á
Norður- og Austurlandi:
Síldarútvegsnefnd ákvað á ®
fundi sínum 29. júní að heimila
löggiltum sildarsaltendum norð-
anlands og austan, söltun sildar
frá kl. 12.00 á hádegi, þriðjudag-
ínn 30. júní. Skilyrði fyrir sölt-
un er, að síldin sé a.m.k. 20%
feit og fullnægi einnig að öðru
leyti stærðar- og gæðaákvæðum
þegar gerðra samninga.
□ Verðlagsráð sjávarútvegsins ákvað verð á síld
til söltunar s.l. laugardag, og er það kr. 230 á
hverja uppmælda tunnu og kr. 313 á hverja upp-
saltaða tunnu. Er hér um nokkra hækkun að ræða
írá því í fyrra, eða um 15 krónur á hverja upp-
saltaða tunnu og um 10 krónur á hverja upp-
mælda tunnu.
(þ.e. verð uppmældrar tunnu).
Það sem þá kemur út skal dreg-
ið frá uppmældum tunnufjölda
frá skipshlið og kemur þá út
mismunur, sem er tunnufjöldi
úrgangssíldar, sem bátnum ber
að fá greiddar sem bræðslu-
síld. Þeim tunnufjölda úrgangs-
síldar skal breytt í mál með því
að margfalda tunnufjöldann með
4 og deila í útkomuna með 5,
og kemur þá úrgangssíld báts-
ins út i málafjölda.”
Hver uppmæld tunna (120 lítr-
ar) kr. 230,00.
Hver uppsöltuð tunna (með 3
lögum í hring) kr. 313,00.
Verð þetta er miðað "við að
seljendur skili síldinni í söltun-
arkassa eins og venja hefur ver-
ið á undanfömum árum.
Þegar gerður er upp síldar-
úrgangur frá söltunarstöðvum,
sem kaupa sild uppsaltaða af
veiðiskipi, skal viðhafa eftirfar-
andi reglu:
„Uppsaltaður tunnufjöldi
margfaldist með kr. 313,00 og í
þá útkomu deilt með kr. 230,00
Ofanrituð regla um uppgjör á
úrgangssíld frá söltun byggist á,
að úr hverri upppsaltaðri tunnu
fáist 22,5 kg. hausar og slóg og
2,5 kg. síldarúrgangur eða sam-
tals 25 kg. úr tunnu, sem er
það sama og gert er ráð fyrir
við verðlagningu á uppmældri
síld.
Síld til heilfrystingar:
Hver uppmæld tunna (120 lítr-
ar) kr. 230,00.
Verðið er miðað við ógallaða
vö'ru og að seljendur skili síld-
inni í flutningstæki við skips-
hlið.”
Allverulegar hækkanir hafa
orðið á síld á erlendum mörkuð-
um undanfarið, og byggist hækk-
un síldarverðsins að sjálfsögðu
á því. Nú mun vera búið að
semja um sölu á um 300 þúsund
tunnum, en ósamið er enn við
Sovétríkin um síldarkaup í ár.
Fréttatilkynning Verðlagsráðs
sjávarútvegsins um saltsíldar-
verðið fer hér á eftir í heild:
„Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins þann 27. þ.m. varð sam-
komulag um . eftirfarandi lág-
marksverð á fersksíld veiddri
á Norður- og Austurlandssvæði,
þ.e. frá Rit norður um að
Hornafirði, er gildir á surriar-
síldarvertíö 1964.
Síld til söltunar:
Þriðjudagur 30. júní 1964
29. árgangur
t
4