Þjóðviljinn - 01.07.1964, Side 5

Þjóðviljinn - 01.07.1964, Side 5
Miðvikudagur 1. júlí 1964 ÞIÓÐVILIINN SlÐA MEISTA I HANDKNATTLEIK Glæsilegur sigur Noregs yfir Danmörku varð til þess að hinar ungu og óreyndu handknattleikskonur íslands urðu Norðurlandameistarar 1964. íslenzku stúlkurnar höfðu vel til þessa sigurs unnið eftir frammistöðuna fyrsta kvöldið, er þær náðu jafntefli við Dani og sigruðu Svía, og síðast en ekki sízt er þær unnu Noreg í gærkvöld í æsispennandi leik. Norð- menn komu fimmta sæti. í annað sæti, Danir í þriðja, Svíar í fjórða og Finnar í Aldrei hefur önnur eins „stemmning" verið við lok eins móts og í gærkvöld á Laugar- dalsvellinum. Hinir yfirleitt þöglu áhorfendur hér slitu af sér öll bönd hins hljóðláta borgara og tjáðu gleði sína með langvarandi hrópum. Fyrst fyr- ir hinum sigursælu norsku stúlkum sem einnig fögnuðu einlæglega sigri sínum yfir Dönum, og ekki sízt þegar sjálf- ir meistararnir — íslenzku stúlkurnar hlupu inn á völlinn með þjálfara sinn Pétur Bjamason í broddi fylkingar. Þetta var ógleymanleg stund fyrir íslenzkan handknattleik og íslenzkar íþróttir. og stærsti íþróttaviðburður til þessa á landi hér. Island sneri 5:7 í 9:7 á 10 mínútum! Það leyndi sér ekki þegar ledkur Islands og Noregs byrj- aði að nokkur taugaóstyrkur var í stúlkunum og þá ekki síður hjá þeim íslenzku. Fyrsta markið kom á 1. mínútunni og skoraði Sigríður það úr víta- kasti, en á næstu mínútu jafn- ar Astrid Skei fyrir Noreg. Enn tekur Island forustuna með hörkuskoti frá Sigríði, og nú gera þær norsku þrjú mörk í röð, og skoraði Astrid 2 og Randy Huseby 1 og tóku þar með forustuna. Sigrún Ingólfs- dóttir jafnar sakimar með prýðilegum skotum og leikar standa 4:4. Það gaf liðinu líka nokkurt ðryggl að Rut varði vítakast, en hún hafði til þessa ekki sloppið bezt við taugaóstyrkinn, og það gaf henni líka sjálfs- traust, þannig að hún stóð sig ágætlega eftir það. Á 13. mínútu skorar Sigrð- ur úr víti, en rétt fyrir leiks- lok skorar Astrid fyrir Noreg og jafnar, og í hálfleik stóðu leikar 5:5. Dómarinn Knud Knudsen hafði í tvö skipti blístrað of fljótt og hafði af Islandi tvö mörk í hálfleiknum, og það sama kom fyrir hann í síðari hálfleik gegn Norðmönnum. Síðari hálfleikur byrjaði hálf illa, því fyrsta skotið sem þær norsku skutu kom í vamar- mann og stýrði hann knettin- um í mark, svo Rut íékk ekki ! við neitt ráðið, og nokkru síðar fá þær norsku vítakast sem Astrid skorar úr. Ekki bætir það úr skák, að á 7. og 10 mínútu er dæmt vítakast á Noreg, en nú brást Sigríði okkar bogalistin í bæði skipt in, og skýtur framhjá og í stöng. <«>- Leynivopnið Almennt mun þetta haía verið talið tapað með tvö mörk und'r og síðari hálfleikur hálfn- aður! En á varamannabekkjum sat ung stúlka, ein sú yngsta í liðinu, sem lítið hafði verið höfð í frammi og því ókunnug mótherjunum, Pétur tekur þá þetta „leynivopn” sitt Sigrúnu Guðmundsdóttir fram, og ekki líður á löngu þar til hún hefur skorað mjög skemmtilegt mark, sem hafði mjög örfandi áhrif á allt liðið. Enn fær Is- land vítakast, og þrátt fyrir ó- höpp Sigríðar rétt áður hefur hún fullt traust Péturs sem sendir hana fram til að taka það, — nokkuð djarft — en Sigríður brást ekki Pétri eða okkur áhorfendum. Hún skor- ar örugglega og jafnar. Þetta þjappar stúlkunum saman. gegn hinum sterku og hörðu norsku stúlkum, sem ógna hvað eftir annað, en bæði út- hald og vörn ætla að halda. Enn eru 5 mín. til leiksloka. Á 17. mín. er það Sigrún enn, sem gefur íslandi forustuna með þrumuskoti, sem hinn á- gæti markmaður Noregs ræður ekki við. Og rétt fyrir leikslok er það Sigríður Sigurðardóttir sem rekur endahnútinn á mörkin í leiknum með glæsilegu skoti. Höfðu þær norsku þá ekki skorað í fimm mínútur, og seg- ir það nokkuð um styrkleika íslenzka liðsins. Leikurinn einkenndist af spennu úrslitaleiksins, þótt hann væri það ekki nema að vissu marki, og gekk það svo- lítið út yfir hinn leikandi létta handknattleik hjá báðum iið- um. Síðari hálfieikur íslenzka liðsins var mjög vel leikinn miðað við aðstæður. Beztar voru Sigríður Sigurðardóttir, sem þó um stund var svolítið miður sín af spennunni, en það stóð ekki lengi, og verður hún að teijast bezta leikkonan í mótinu. Hún átti meiri hlut- deild i þessum glæsilega sigri, en nokkur ein stúlka og stóðu þær sig þó allar vel. Af þeim norsku var Astria langbezt, og einnig markmað- ur þeirra. sem oft varði af mikilli prýði. Dómari leiksins Knud Knud- sen slapp enga veginn vel frá starfinu, þrátt fyrir mikla reynslu sem slíkur. og kom nokkuð fram munur á túlk- un hans og íslenzkra dómara, sem er nær anda leiksins. Á- horfendur voru 4000. Taugar dönsku stúlknanna réðu úrslitum er Noregur vann — 8:4. Yfirleitt var gert ráð fyrir því að danska liðið myndi sigra það norska, eftir frammi- stöðu þess við Svía á sunnu- daginn og sigri þess yfir Finn- um fyrr í gærkvöld! En það kom fljótt í ljós að þéim tókst aldrei að ná þessum hröðu og leikandi á- hlaupum, sem einkenndi leik þeirra undanfarið. Leikurinn varð því jafn til að byrja með, og skoruðu Danir fyrsta mark- ið á 4. mín. Þeim norsku tekst ekki að jafna fyrr en á 14. mínútu og gerði Astrid það. Þær fara að verða nærgöng- ulli, og á 14. mín. skellur knött- urinn í báðar stengur en ekki innfyrir. Tveim mín. fyrir Ieikslo:k er Astrid enn að verki með góð skot, sem hinn ágæti markmaður Dana réði ekki við og hún bætir öðru marki við lslenzku stúlkurnar, sem urðu Norðurlandamcistarar í handknattlcik kvcnna 1964. Myndin cr tekin eftir sigur þeirra yfir norska landsliðinu í gærkvöld. Fremst er þjálfarinn, Pétur Bjarnason. Frcmri röð frá vinstri: Sylvía Hallsteinsdóttir, Hrefna Pétursdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Jónína Jóns- dóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Rut Guðmundsdóttir og Sigrún Ingólfsdóttir. Aftari röö frá vinstri: Sigríður Kjartansdóttir Helga Emilsdóttir, Svana Jörgensdóttir, Siguriína Björgvinsdóttir, Díaua Óskarsdóttir, Margrét Hjálmarsdóttir og Guðrún Helgadóttir. (Ljósm. Bj. Bj.). rétt fyrir leikhlé og staðan er 3:1 fyrir Noreg. Óneitanlega hækkar hagur og vonir íslands því allt er undir því komið að frændum vorum frá Nor- egi takist að sigra eða gera jafntefli við þær dönsku. Þegar á fyrstu mínútu síð- ari hálfleiks skorar Astrid fjórða mark Noregs. En þá er settur sérstakur vörður um Astrid, en þá losnar um Jorun Tveit, sem áður hafði sýnt að þar var góð skytta, og skorar hún tvö mörk í röð, og standa leikar 6:1 og 5 mínútur af leik. Á 6. mínútu tekst Toni Röscl- er að skora annað mark Dan- merkur og 3 min síðar skorar Kirsten Nilsson þriðja mark Dana, og þar hefði dómarinn ÞVÍ EKKI í HEIMS- MEISTARAKEPPNI? segir Pétur Bjarnason, þjálfari íslenzka liðsins f flFERÐIR i VIKULEGA IUtil^ BRETLANDS Sagt eftir lcikinn Sigríður Sigurðardóttir: Þetta var dásamlegt. Við börðumst eins og við gátum, og sérstaklega var síðari hálfleik- urinn sterkur af okkar hálfu að ég held. Ég bjóst alltaf við að við myndum vinna þótt illa liti út ’jm stund, en baráttu- viljinn í stelpunum var mikill og það gerði gæfumuninn. Þetta var langerfiðasti leikurinn okk- ar, og að mínu áliti langbezti leikur liðsins í mótinu. Annars var þetta allt svo dásamlegt að ég get varla sagt neitt, varla búin að átta mig á þessu. Dómarinn- Ekki góður, of fljótur á sér. og vont að átta sig á honum. Pétur Bjarnason? Ég bjóst ekki við þessum ár- angri. þær voru betri en ég bjóst við. Þær léku léttara og meir leikandi en liðin hafa gert áður, og léku meira eftir á- kveðnu skipulagi. Sérstaklega var ein leikaðferðin sem við æfðum okkur notadrjúg. Ég hafði engan samanburð við hin liðin því kvennalið okkar hefur ekki leikið landsleik síðan 1960. Satt að segja hélt ég að út- haldið myndi bila. og eins að vörnin yrði ekki nógu þétt, en hvortveggja þetta varð betra en mig óraði fyrir. Það átti vissulega sinn þátt í þessum árangri að flokkurinn var mjög samstilltur, og ég hef aldrei haft með jafn skemmti- lega samstillt kvennalið að gera og þetta var. Hvað er framundan? Ég veit ekki af neinu á- kveðnu fyrir landsliðið. en mér fyndist rétt að fara að athuga með þátttöku í Heimsmeistara- keppni eftir þennan árangur. En hvað sem um það verður finnst mér sjálfsagt að þessi samstillti hópur haldi saman með séræfingum einu sinni í viku. Mér finnst líka sjálfsagt að kvennalindslið okkar fái landsleiki við og við, ekki sjaldnar en annað hvort ár, þeim er nauðsynlegt að öðlast vissa reynslu í stórum leikjum, sagði Pétur að lokum. Því má bæta hér við að það voru glaðar og þakklátar stúlk- ur sem gáfu þjálfara sínum kossa á vangann, um leið og hann baðst hálfgert afsökunar á öllu nöldrinu og kröfunum sem hann gerði til þeirra, en þær hrópuðu einum munni: munni: Það er allt gleymt Pét- ur minn og staðfestu það með kossi. þó átt að telja skrefini Þetta lítur ekki vel út, og við þetta bætist að tveim stúlkum norskum er vísað,,út áf leikvelli með nokkru milli- bili í 2 mín., en þeim tekst að verjast mörkum á meðan. Hálfleikurinn er vel hálfnaður og leikar stánda 6:3 og allt get- ur skeð. en þá sleppur Astrid laus og skorar enn. Danska liðið er alltaf heldur dauft og eins og því hamli einhver taugaspenna, sem það getur ekki hrist af sér. Þær bæta þó fjórða markinu við og skor- aði Lise Lock það, og standa þá leikar 7:4. Nokkrar mínút- ur eru enn til leiksloka, en varla getur það farið svo að Norðurlandameisturunum tak- ist að verja titil sinn, og hindra Noreg í þvi að ná öðru sæti, og að ísland verði meist- ari að þessu sinni. Dönsk stúlka verðu að víkja af leikvelli í tvær mínútur. Tíminn líður og örstutt til leiksloka og enn hefur Astrid ekki sagt sitt sfðasta orð, því rétt fyrir leikslok skorar hún 8. mark Noregs og þannig lauk þessum spennandi leik fyrir Noreg, og Island sérstaklega, og raunar ekki síður fyrir Dan- mörk, en að þessu sinni urðu þær að láta sér nægja þriðja sætið. Stemningin meðal áhorfenda var sem Island væri að leika en ekki erlendur flokkur, enda má s.egja að þarna hafi komið t;l norsk og íslenzk samvinna. Leikur norsku stúlknanna var mun samfelldari og á- kveðnari, og þær voru ekki eins taugaóstyrkar. Þær börð- ust um sitt annað sæti og sætan sigur yfir Dönum og það segir ekki svo lít'ð fyrir norsk- an handknattleik Langbeztar í nöreka liðinu voru Astrid og markmaðurinn, sem varði af mikilli snilld. 1 danska liðinu voi*u beztar Hélgá' Hansen í markinu og Toni Röscler, en í heild náðu þær ekki fram því sem í þeim býr. Dómari var Hans Carlsen og dæmdi nokkuð sæmilega. Danmörk — Finnland 19:1 Þetta var fyrsti leikur kvöldsins, og það fór sem all- ir voru sannfærðir um, að Danir unnu stórsigur. í hléi var staðan 7:1, og í seinni hálfleik skoruðu þær dönsku 12 mörk, en finnsku stúlkum- ar ekkert. Dönsku stúlkumar lögðu áherzlu á að skora sem flest mörk, og tryggja sér þannig sigur á markamismun, ef svo skyldi fara að Norð- menn töpuðu bæði fyrir danska og íslenzka liðinu. Þá hefðu ísland og Danmörk orð- ið jöfn að stigum, en danska liðið staðið framar vegna stór- sigra yfir Svíum og Finnum. Þetta var mjög ójafn leik- ur, og markatalan gefur nokk- uð rétta hugmynd um yfir- burði dönsku stúlknanna yfir hinu veika finnska liði. Karl Jóhannsson dæmdi leikinn og dæmdi vel. Svíþjóð — Finnland 9:2 Þetta var baráttan á botni mótsins. Hvorugt liðið hafði hlotið stig fyrir leikinn. Það byrjaði að rigna þegar leikurinn hófst. Knötturinn varð háll og háði það stúlkun- um nokkuð. Þær sænsku höfðu greinilega yfirburði. I hléi var staðan 4:1. Bæði liðin misnot- uðu tvö vítaköst. Dómari var Norðmaðurinn Bjöm Borgersen og dæmdi vel. I i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.