Þjóðviljinn - 08.07.1964, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 08.07.1964, Blaðsíða 4
4 SlÐA Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýdu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19, Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 5 mánuði ,Svikin vara og itta nothæf' pjeimsókn hertogans af Edinborg til forseta ís- lands virðist hafa haft í för með sér miklar truflanir á taugastarfsemi ýmissa framámanna Sjálfstæðisflokksins. Ritstjóri Morgunblaðsins var t.d. jafnan fremstur í flokki af blaðamannaskara, sem vöktuðu nákvæmlega hvert fótmál hertog- ans, eins og um opinbera heimsókn væri að ræða. Og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, reynir í Reykjavíkurbréfi sínu s.l. sunnudag að nota heimsóknina sér til pólitísks framdráttar; hlýjar móttökur, sem ges’t'urinn fékk, túlkar hann sem kórónu á „vinsældum“ undansláttarsamnings rík- isstjómarinnar í landhelgisdeilunni við Breta. Hefði þó verið sæmst fyrir forsætisráðherra að tengja þessi mál ekki saman, því það hefði verið andstætt íslenzkri gestrisni að láta hertogann gjalda þess í móttökum hér, þegar hann var per- ónulegur gestur forseta íslands en ekki opinber full’frúi brezkra stjómarvalda. þó keyrir um þverbak, þegar Vignir Guðmunds- son blaðamaður Morgunblaðsins er sendur með slíka sagnfræði í ríkisútvarpið. Það er fáheyrð ósvífni, að menn skuli leyfa sér að halda því fram, að það hafi í raun og veru verið „fámenn stétt“ brezkra útgerðarmanna en ekki brezk stjórnar- völd, sem bar ábyrgð á hernaðarofbeldi Breta gegn íslendingum. Eða þá að aldrei hefði komið til landhelgisdeilunnar 1959, ef „rauðliðar“ hefðu ekki farið með þau mál þá, rétt eins og útfærsla landhelginnar í 12 mílur hafi eingöngu verið á- hugamál þeirra, sem Vignir Guðnyundsson kallar „rauðliða“. En fróðlegt væri að heyra álit Morgun- blaðsmanna á því, hvers vegna Bretar settu lönd- unarbann á íslenzkan fisk, þegar íslendingar færðu landhelgina út um eina mílu 1952, en þá fór Bjarni Benediktsson með landhelgismál. Rökvís- in er ekki alltaf hin sferka hlið Morgunblaðs- manna, þegar þeir ráðast gegn pólitískum and- stæðingum. Jgn erindi Vignis Guðundssonar í útvarpið var þó greinilega fyrst og fremst að hella rætnustu persónulegum svívirðingum yfir stéttarbræður sína og pólitíska andstæðinga. Góðlátlegt grín Þjóðviljans um viðbrögð Morgunblaðsmanna, meðan stóð á heimsókn drottningarmannsins brezka hefur orðið taugum þeirra ofraun. Svo langt var þessi píslarvottur hinnar konunglegu brezku heimsóknar leiddur, að grín um Morgun- blaðsmenn var orðið að hinni ferlegustu móðgun við hertogann. Þetta er tvennt ólíkt, og er hér með skorað á Morgunblaðið að færa sönnur á það, að Þjóðviljinn hafi á einn eða annan hátt reynt að óvirða þennan gest forseta íslands. — En það var eftir öðru, að Morgunblaðsmaðurinn tók sér síðan fyrir hendur að kasta hnútum að Norðmönn- um fyrir þjónustu, sem hann hefði orðið aðnjót- andi, er hann dvaldi þar í landi fyrir skemmstu. Málflutningi Vignis Guðmundssonar í útvarpinu verður bezt lýst með hans eigin orðum; það var „svikin vara og illa nothæf“, — og allra sízt þó í ríkisútvarpinu. Slíkur málflutningur er í hæsta lagi „nothæfur“ á síðum Morgunblaðsins. — b. --------- ÞJÓÐVILJINN Fyrsta deildarkeppnin: Valursigraði XR með 1 gegn 0 íjöfnum leik □ Það var ekki fyrr en á 87. mín. sem mark- ið kom, það sem gerði út um að bæði stigin lentu hjá Val. En það var þá svo eftirminnilegt að margir munu lengi minnast þess sem sérlega glæsilegs marks, af um 30 m færi í bláhorn marksins og markmaður KR fékk ekki við það ráðið. Sá sem skoraði þetta skemmtilega mark var Matthías Hjartarson framvörður vinstra meg- in. Annars var leikur þessi held- ur dauíur og tilþrifalítill og ekki mikið sem gerðist er gam- an var að. en vera má að hinn háli völlur og blauti hafi að nokkru truflað ieikmenn. Send- ingar þeirra voru satt að segja ótrúlega ónákvæmar, og voru Valsmenn þar heldur lakari. Hvað það snertir er naumast hægt að nota blautan völl sem afsökun á ónákvæmni í send- ingum, til þess eru leikmenn þessara beggja liða orðnir það vanir grasi. Til að byrja með voru Vals- menn heldur meira í sókn. en ---------------------æ> Stökkqlaðar mefstálkur Norska stúlkan Berit Töien bætti enn Nörðurlandamet sitt í langstökki kvenna á brezka meistaramótinu um síðustu helgi. Hún stökk 6,45 metra, en varð þó að láta sér nægja annað sætið í keppninni. Enska stúlkan Mary Bignal-Rand stökk 6,58, sem er brezkt met og 12 sm. skemmra en heims- metið, sem Tatjana Tsjelka- nova, Sovétrikin, setti fyrir fá- einum dögum í Moskvu. Ákveðið er að dómarinn á landsleiknum Island—Skot- land, sem fram á að fara í Reykjavík 27. júlí n.k. verð- ur Erling Rolf Olsen frá Osló. Línuverðir á leiknum verða síðar skipaðir af dómnefnd K.S.I., en nefndina skipa þeir Guðmundur Guðmundsson. sem er formaður, Halldór Sig- urðsson og Ingi Eyvinds, annars var leikurinn mög jafn; áttu bæði liðin sín tækifæri og það opnasta hafði Sveinn Jónsson innherji KR. þegar hann var kominn innfyrir vörn Vals á 85. mínútu, en skotið fór langt fyrir utan markið. Nokkru áður var Hermann nærri búinn að skora en skot- ið lenti í liggjandi markmanni KR. KR-ingar skutu heldur meira og þá sérstaklega Ellert Schram, sem átti nokkur ágæt skot, en þau fóru flest fram- hjá. Bæði liðin náðu við og við laglegum samleik en í honum var ekki sá hraði sem verulega ógnaði eða skapaði hættu. Og þegar upp að marki kom var sem framherjarnir ættu erfitt með að átta sig á því hvar þeir ættu að vera og fóru Valsmenn þar oft illa með endirinn á áhlaupum sínum. Útherjar KR voru heldur virkari en Vals og opnaði það oft leiðina að marki Vals, en vöm Vals var nokkuð þétt. Nokkrar breytingar á liði KR voru í þessum leik, þar sem Gunnar Felixson var ekki með og í hans stað iék Theodór Guðmundsson, og örn Stein- sen var heldur ekki með, en í hans stað lék Hörður Markan, ungur leikmaður. sem minnir mjög á Gunnar Guðmannsson, bæði hvað hreyfingar, knatt- meðferð og stærð snertir. Er þar vafalaust efni á ferðinni. Sveinn Jónsson var innherji og féll ekki sem skyldi inn í iín- una. 1 heild náði framlína KR ekki eins saman og oft áður og satt að segja hefur hún missti töluvert af sóknarmætti sínum við fjarveru Sigurþórs. Gunnar Guðmannsson var lang- bezti maður sóknarinnar. Vöm KR var allgóð. með Þorgeir sem bezta mann og stöðugt vaxandi. Framlínu Vals gengur enn illa að ná saman, og kemur Miðvikudagur 8. júlí 1961 þar tvennt til sérstaklega. I fyrsta lagi of rækil hneigð til einleiks, sem allir meira og minna eru haldnir af, Her- mann og Reynir þó lakastit hvað það snertir, og í öðru lagi voru sendingar þeirra allt- of ónákvæmar. Gylfi Hjálmarsson í marki varð að yfirgefa völlinn eftir að hafa tognað í viðbragði, en Björgvin Hermannsson kom í hans stað og stóð sig með mik- illi prýði, en þetta skeði á 17. mínútu síðari hálfleiks. Þetta voru dýrmæt stig fyr- ir Val sem nú ætti að vera búinn að bjarga sér úr mestu fallhættunni. Dómari var Hannes Þ. Sig- urðsson og dæmdi mjög vel. Áhorfendur voru margir. þótt veðrið væri heldur leiðin- legt. — Frímann. L Kemur Bonlieu hingað? Heyrzt hefur að hinn heimskunni skíðagarpur Francois Bonlie komi hingað í sumar á vegum ÍR. Ekki mun ennþá fullvíst hvoi Bonlieu geti komið hingað, en það er lofsvcrt framtak að reyn að fá slíkan afreksmann hingað til eflingar skíðaíþróttinn Francois Bonlieu sigraði í stórsvigi á vetrar-olympíuleikunui í Innsbruck í vetur, og hann hefur unnið marga glæsilega sigr á alþjóðamótum. í sumar er ráðgert að halda skiðamót í Ker ingafjöllum, en þar er nú nægur snjór og ágætt skíðafæri. - Myndin er af Bonlieu í keppni. Loksins höfum við eignazt mann . . . Það hcfur einhver vanstill- ing hlaupið i ritstjóra Vísis. Leiðarar hans undanfarið hafa verifj samsafn fúkyrða um pólitíska andstæðinga, en all- ar málefnalegar staðreyndir látnar lönd og Ieið. T.d. hefur hann varið drjúgu plássi und- anfarið til þess að fjasa um gagnsleysi Framsóknarflokks- ins í íslenzkum stjórnmálum. Sá flokkur er með öllu óþarf- ur að dómi ritstjóra Vísis; hann á að hverfa! Og eftir mikinn fúkyrðaflaum í leiðara blaðsins 6. júlí, Iýsir ritstjór- inn því yfir, að nú verði „kommúnistar þurrkaðir út úr íslenzkum stjórnmálum“ áður en langt um Iíður. Já, þinn er mátturinn og dýrðin, ritstjóri góður; það tekur þig sannar- lega ekki Iangan tíma að hreinsa til í íslenzkum stjórn- málum. Og mikið má þjóðin vera þakklát fyrir að hafa nú Ioksins eignazt slikan mann! ■ Öfug áhrif Annars má það heita undar- leg árátta hjá svo miklum „Iýðræðissinna“ að vilja endi- lega losa, sig við alla pólitíska andstæðinga, Og ekki ^r það nú öldungis áreiðanlegt, að stjórnarandstaðan á íslandi „þurrkist út“, þótt einhver van- stilling grípi ritstjóra Vísis um sinn, og hann sé að reyna að hugga sig við þess háttar vangavcltur. Að minnsta kosti cru skrif hans þannig, að þau munu síður en svo stuðla að þróun í þá áttina, — sem bct- ur fer munu flestir segja. ■ Margsinnis flutt á alþingi En það sem hefur valdið þessu útþurrkunaræði hjá Vísi, eru skrif Þjóðviljans um sam- komulag verkalýðssamtakanna við ríkisstjórnina um leiðir til þess að stöðva verðbólguna. Þjóðviljinn hefur nefnilega bent á þá staðreynd, að það voru verkalýðssamtökin, sem knúðu ríkisstjórnina til að undirrita loforð um allveruleg- ar endurbætur á sviði húsnæö- ismála, orlofslöggjafar og lof- orð um verðtryggingu kaup- gjalds. Allt eru þetta mál, sem í eðli sinu heyra fremur undir stjórnarvöld og löggjafa en bcina kjarasamninga verka- lýðssamtakanna. En ríkisstjórn- in hafði ekkert frumkvæði um nein þessara mála á alþingi; öll meginatriði samkomulagsins snerta mál, sem margsinnis hafa verið flutt á alþingi af þingmönnum Alþýðubandalags. ins. Þar hafa þessi mál ýmist vcrið felld af þingmeirihluta rikisstjórnarinnar eða séð til þess á annan hátt, að þau næðu ckki fram að ganga. En það er raunar ekki nýtt hér á Iandi, að verkalýðshreyfing- in verði að knýja fram á samn- ingum við ríkisvald eðp. at- vinnurekendur þau hagsmuna- mál, sem fulltrúar hennar á þingi hafa borið þar fram en ekki fengið samþykkt. ■ Og samt — hún á þakkir skilið En það er broslegast af öllu, þegar málgögn ríkisstjórnar- innar ætla að fara að eigna henni mál, sem hún hefur bar- izt gegn allt frá því að hún kom til valda; hrósa henni af samningum, sem hún átti ekki cinu sinni frumkvæðið að. Það er hins vegar alveg hárrétt hjá Vísi, að það er ríkisstjórn- in sem gefur formlega út bráðabirgðalögin um 1% launa- skattinn, afnám banns við visitölutryggingu kaups o.fl., enda segir ritstjóri Vísis af mikilli þykkju: „Það er ríkis- stjórnin, sem á þær þakkir, en ekki þeir‘-. (En þesslr „þeir“ eru kommúnistar á máli ritstjóras, og gefur hann það heiti öllum þeim sem stóðu að samningunum fyrir hönd verkalýðssamtakanna, — vafalaust í virðingarskynl). Já, sé það orðið sérstaklega þakk- arvert að dómi Vísis, að ríkis- stjórnin standi við loforð. sem hún hefur hátiðlega gefið og staðfest með undirskrift for- sætisráðherra, bá skal fyllilega undir það tekið: Ríkissfcjórnin á þakkir skilið. ■ Bæta gráu ofan á svart Vanstilling Vísis stafar af þeirri einföldu ástæðu, að hann finnur, að rikisstjórnin var ekki vaxin þeim vanda, sem hún átti að ráða fram úr. En það bætir einungis gráu ofan á svart og auglýsir þá staðreynd cnn frekar fyrir al- þjóð, þegar Vísir hyggst bjarga stjórninni úr þeirri klípu með skrifum sínum. — Skafti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.