Þjóðviljinn - 15.07.1964, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 15.07.1964, Qupperneq 1
Sæmileg síldveiði var í fyrrinótt 1 fyrrinótt var sæmileij veiði á svæðinu frá Hvalbak norður á Tangaflak og fengu 53 skip (tar samtals 30.900 mál. I gærdag var Jioka á mið'- unum og engin veiði en síð- degis í gær voru skipin far- in að kasta afitur. Hjá verksmiðjunum á Aust- urlandi eru nu allar þrær fullar og löndunarbið sum- staðar a.m.k. fram á fimmtu- dag. Hins vegar eru flutn- ingaskip stöðugt í síldarflutn- ingum norður og hafa þeir gengið vel. Lokatilraun gerð tií að stöðva sigurgöngu stríðsæsingamanna í Repúblikanaflokknum Christian Herter teflt gegn Goldwater. sem enn er talinn alveg viss um sigur SAN FRANCISCO 14/7 — Á morg'un, miðvikudag, verður gengið til at- kvæða á flokksþingi Repúblikana í San Francisco til að velja forsetaefni '•'Mri’a í kosningunum í haust. Hinir ráðsettari og skynsamari menn flokks- ins reyna nú á síðustu stundu að koma í veg fyrir framboð Barry Gold- waters öldungadeildarmanns og stöðva þannig sigurgöngu stríðsæsinga- manna sem mótað hafa stefnuskrá flokksins og standa einhuga að bak' Goldwater. Litlar sem engar líkur eru taldar til þess að þeim heppnist þ* og ber öllum saman um að Goldwater muni hljóta útnefningu þegar fyrstu atkvæðagreiðslu, og það með miklum meirihluta. Síðasta örþrifaráð andstæðinga Goldwaters og stuðningsmanna helzta keppinautar hans, Scrant- ons fylkisstjóra, var að tefla fram Christian Herter, utanrík- isráðherra í stjórn Eisenhowers. Honum var falið að leggja til við flokksþingið að það breytti þeim kafla stefnuyfirlýsingar- innar sem fjallar um í hvers valdi það skuli vera að ákveða að kjarnasprengjum skuli beitt, en Goldwater hefur lýst því yf- ir að hann teldi að herforingjar á vígstöðvum ættu einir að ráða því. Stefnuyfirlýsingin var sam- þykkt með miklum meirihluta í dagskrámefnd þingsins. Þá var einnig ætlunin að reyna að fá breytt þeim kafla yfirlýsingarinnar sem fjallar um kynþáttamálin. Öruggir um sig Fylgismenn Goldwaters voru sagðir vissir um að þeir myridu auðveldlega geta komið í veg fyrir breytingar á stefnuyfirlýs- ingunni. Samkvæmt síðustu könnun hefur Goldwater tryggt sér stuðning 714 af 1308 full- trúum á Ðokksþinginu. Stuðn- ingsmenn Scrantons voru sjálfir sagðir vondaufir um að þeir gætu komið nokkru máli fram á þinginu. Pólitískt nátttröll Larigflest blöð í Bandaríkjun- um fylgja Repúblikönum að málum og enda þótt sum þeirra séu óánægð með framboð Gold- waters eru þau þó fleiri sem styðja hann, leynt og ljóst. önnur bandarísk blöð fara ekki dult með ótta sinn við þá þróun mála sem leitt hefur til þess að maður á borð við Gold- water virðist viss um að verða í framboði fyrir annan aðal- stjórnmálaflokk Bandaríkjanna. „New York Times” segir í dag að viðhorf Goldwaters geti orð- ið ógnþrungin bæði fyrir banda- rísku þjóðina og allan heiminn, ef til þess skyldi koma að þau mótuðu stjómarstefnu Banda- ríkjanna. Blaðið kallar Gold- water pólitískt nátttröll, sem ekki eigi heima í þeirri veröld sem við lifum í. Hröktust sólarhríng í gúmmíbát Um kl. 6 síðdegis í gser bjargaði mb. Mjöll, RE 10, tveim mönnum er hún fann á reki í gúmmíbát 18 sjó- mílur norðviestur af Garðsbaga. Voru þeir búnir að hrekjast í gúmmíbátnum í nær sólarhring eftir að þeir urðu að yfirgefa bátinn sem þeir voru á, Brimil, RE 100, eftir að eldur kom upp í honum. Brimill var átta tonna bátur og voru mennirnir á handfæra- veiðum. Kom skyndilega upp eldur i lúkar bátsins er þeir voru báðir að vinna aftur í bátn- um og fengu þeir ekkert við eld- inn xáðið. Er talið líklegt að kviknað hafi í út frá olíukynd- ingu sem. var í bátnum. Þeir félagar sem heita Jón Ein- ar Konráðsson og Guðlaugur Jónsson, báðir til heimilis að Höfönborg 52. fóru um borð í 10 manna gúmmíbát sem þeir höfðu með sér. Reyndu þeir margsinn- is að gera vart við sig með því að skjóta neyðarblysum því að þeir sáu marga báta nálægt sér en það bar engan árangur. Þó fóru þeír svo nálægt tveim bát- um að þeir sáu menn að störf- um um borð í þeim. Má það íurðulegt heita að enginn skyldi verða þeirra var þar sem gúmmí- báturinn er stór og gulur að lit og því alláberandi. Ekki varð mönnunum neitt meint af volk- inu í bátnum. Stríðsyfirlýsing Annað áhrifaríkt blað, ,,Wash- ington Post”, segir að þeir kafl- ar stefjiuskrár Repúblikana sem um utanríkismál fjalla jafngildi stríðsyfirlýsingu. — Flokkur og frambjóðandi sem kosinn er á grundvelli þessarar stefnuskrár verður annaðhvort að lýsa sig opinberlega andvígan henni, eða þá að búa sig undir stríð, seg- ir blaðið. Stefnuskráin tekur af allan vafa um það að þeir sem hana sömdu og samþykktu eru reiðu- búnir að hóta hervaldi eða beita því til að ná settum markmið- um. I þessu er fólgin sú hætta að öll þjóðin farist í kjarnorku- stríði, segir „Washington Post” ennfremur og bætir við: — Það er ekki furða þótt dag- skrámefndin hafi jafnframt samþykkt tillögu um breytingu á stjórnarskránni til að ýta und- ir almenna bænargerð þjóðar- innar. Komist flokkur til valda sem hefur bundið sig á slíkan hátt eigum við ekki annars úr- kosta en að leggjast á bæn. Ráðizt á Johnson Hatfield. fylkisstjóri í Oregon, hélt á fundi flokksþingsins í gær aðalframsöguræðu þess og réðst af hörku á stjórn Johnsons for- seta, sem hann sakaði um tví- skinnung bæði í kynþáttamálun- um og utanríkismálum. Johnson Framhald á 3. síðu. Goldwater fagnað við komuna til San Francisco Vilja afnema takmörk fiskiandana í Grimsby Brezka blaðið „Fishing News“ segir frá því nýlega, að fiskkaupmenn í Grimsby vilji takmarkanir á löndunum færeyskra fiskiskipa í Englandi. Hafa samtök fiskikaup- manna sent samtökum vinnuveitenda beiðni um að fá að landa fiski úr færeyskum skipum og „öðrum erlendum fiski, þegar nauðsyn krefur“. Takmarkanir á löndun fisks úr færeyskum fiskiskipum voru settar, þegar Færeyingar stækk- uðu landhelgi sína í 12 milur, en þá var sett bann við að fær- eyskir fiskimenn lönduðu meiri fiski árlega en sem nemur and- virði 850 þúsund sterlingspunda á ári. Er árinu skiþt niður í fjögur tímabil, og má ekki nota ,,yfirdrátt“ á milli þeirra, þótt löndun nái ekki settu hámarki á fyrri tímabilum ársins. Það voru samtök togaraeigenda, yf- irmanna á skipum og hafnar- verkamarina, sem stóðu að á- kvörðuninni um þær löndunar- takmarkanir. er að ofan greinir. „Til helvítis með kvótann" En nú vilja fiskikaupmenn í Grimsby fá þessum takmörkun- um aflétt. Formaður samtaka þeirra, George Coulbeck, lét meðal annars hafa eftir sér í vikublaði einu: „Til helvítis með löndunarkvótann. Við ætl- um okkur að landa fiski“! Hafa samtök kaupmanna nú leitað til atvinnurekenda í því skyni að þeir beiti áhrifum sín- um í þá átt, að landa megi fiski Gylfi til Kína ■ Gylfi Þ. Gíslason mennta- málaráðherra og kona hans munu fara j opinbera heim- sókn til Kínverska alþýðu- lýðveldisins í - haust í boði menntamálaráðuneytisins SS Menntamálaráðherra upphaflega boðið til Kína sambandi vil heimsókn Pek- íng-óperunrrT t'l íslands fyr- ir nokkrum árum. Þáði hann boðið en gat þá ekki komið því við að fara vegna anna. En nú hefur verið gengið frá heimsókninni í haust; mun menntamálaráðherra fara til Kína frá Japan þar sem hann ■ækir þingmannafund. Munu menntamálaráðherra og kona hans koma til Kína snemma ! septembermánuði og dvelj- ast þar eina til tvær vikur. frá Færeyjum og „öðrum er- lendum fiski“ eins og það er orðað, þegar nauðsyn krefur. Leggur G. Coulbeck áherzlu á, að oft og tíðum sé færeyskur fisk- ur og „annar erlendur fiskur“ stór hluti af þeim fiski sem landað er í Grimsby. Þessar landanir séu ekki síður nauð- synlegar fyrir Grimsby-búa. Enn fremur leggur hann áherzlu á, Framhald á 3. síðu. Skipverji ú Uranusi slas- ast illa I gærmorgun kom tog&rinn tjranus hingað til Reykjavíkur með mann sem hafði slasazt mikið um borð í togaranum er hann var að veiðum út af Snæ- fellsncsi um kl. 21,30 í fyrra- kvöld. Var maðurinn illa slas- aður í andliti. særður á auga, kjálkabrotinn og meira meidd- ur. Maðurinn var að laga ventil niðri í vélarrúmi er slysið vildi til. Var hann að losa skrúfur er ventilkúlan skyndilega losn- aði og þeyttist framan í hann af miklu afli. Skipstjórinn á Oranusi, Sverr- ir Erlendsson lét þegar taka trollið inn og hélt til hafnar með hinn slasaða mann. Kom skipið til Reykjavíkur um kl. 7 í gærmorgun og var maðurinn þegar í stað fluttur í Landspít- alann þar sem gert var að meiðslum hans.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.