Þjóðviljinn - 16.07.1964, Page 2
2 SIÐA
ÞJÖÐVILJINN
Fimmtudagur 16. júlí 1964
CREINARGERÐ FRÁ PÓST'■
OC SÍMAMÁLASTJÓRN
Þjóðviljanum hefur borizt
eftirfarandi greinargerð frá
póst- og símamálastjóminni
varðandi talstöðvaþjónustu
vegna síldarsaltenda og útvegs-
manna:
Þar sem talsverðrar óánægju
og misskilnings hefur orðið
vart, varðandi talstöðvaþjón-
ustu vegna sildarsaltenda og
útvegsmanna, þykir póst- og
símamálastjórninni rétt að
koma á framfæri eftirfarandi
athugasemdum:
Hin almenna tilhögun um
viðskipti milli lands og skipa
v';ð strendur þess er sú, að
símastjómir viðkomandi lands
reka strandarstöðvar, sem
annast þessa þjónustu.
Vegna staðhátta hér á landi
og að ýmsu leyti sérstæðrar
aðstöðu, meðal annars vegna
þess, að. símakerfi landsins er
víða ekki opið til þjónustu
talsverðan hluta sólarhringsins,
hefur póst- og símamálastjórn- 1
in fallizt á að leyfa útvegs-
mönnum og síldarstöðvum tak-
markaða notkun talstöðva,
vegna atvinnureksturs síns.
Alþjöðareglur kveða skýrt á
um skiptingu tíðnisviða milli
hinna mismunandi greina fjar-
skiptanna. Er lögð rik áherzia
á, að ekki sé gengið framhjá
þeirri skiptingu, svo komizt
verði hjá truflunum, svo sem
frekast er unnt.
Vegna eindreg nna óska for-
ráðarhanna bátaflotans, var þó
fallizt á það hér að leyfa tal-
stöðvum útgerðarmanna og
síldarsaltenda viðskipti á tíðn-
um, sem eingöngu eru ætlaðar
til viðskipta milli skipa og þá
þvi aðeins, að ekki væri not-
uð meiri sendiorka en 20 wött.
Skemmtilegt fordæmi
Einn er sá staður á jörðinni
þar sem friðsamleg sambúð
gengur með hvað mestum á-
gætum — enda er hann langt
frá taugastrekkingi höfuðborg-
anna. Þessi staður er Suður-
póllinn. Eins og litla myndin
sýnir kæra menn þar sig koll-
ótta um opnibera viðurkenn-
ingu á ríkisstjórnum og flagga
á einni stöng með sovézka,
tékkneska, bandaríska, aust-
ur-þýzka og franska fánanum.
Vísindamenn frá þessum
löndum vinna þarna saman í
bróðerni að ransóknum sem
skipulagðar eru á alþjóðlegum
vettvangi og fara fram m.a.
vegna þess að sólin er víst
mjög „róleg“ á þessu ári. —
Stærri myndin sýnir flugvél
koma með vistir til sovézku
rannsóknarstöðvarinnar Vost-
ok, sem staðsett er i 3500
metra hæð. skammt frá syðra
segulpól jarðar og um leið
kuldapól hennar. Það er hreint
ekkert spaug að vinna þarna,
því menn hljó'a að starfa í
áttatíu gráða kulda og í ákaf-
lega þunnu lofti. En hitt hafa
menn fyrir satt, að fáir menn
séu ánægðari með sitt hlut-
skipti í tilvérunni en einmitt
heimskautakönnuðir — enda
leynist í okkur öllum dálitið
af Kólumbusi, Einstein og Rób-
inson Krúsó.
Rekstur þessara talstöðva er
og háður því skilyrði, að ekki
berist kvartanir vegna þeirra.
Þess má geta, að póst- og
símamálastjóminni er ekki
kunnugt um, að starfrœksla
slíkra stöðva sem þessarra sé
leyfð annarsstaðar en hér á
landi, að minnta kosti er slíkt
ekki leyft í nágrannalöndum
okkar.
Nú nýlega hafa komið fram
háværar kröfur um meiri lang-
drægi þessarra stöðva, ýmist
vegna breyttra aflabragða eða
dreifingu veiðisvæðanna og
afstöðu þeirra til afskipunar-
hafna. Hafa af þessu spunnizt
nokkrir árekstrar milli póst-
og símamálastjómar'nnar og
útvegsmanna en á síðastliðn-
um vetri náðist um það sam-
komulag fyrir millgöngu síma-
málaráðherra, að leyfðar yrðu
langdrægari stöðvar, ef óskað
yrði, en þeim aðeins leyfð af-
not af send'tíðni á tíðnisviði.
sem ætlað er strandarstöðvum,
í samræmi við alþjóðareglur.
Jafnframt er sömu aðilum
heimilt að hafa, eftir sem áð-
ur, aflminni stöðvar til v'ð-
skipta á milliskiptatíðnunum.
Reglur þessar gilda jafnt um
alla, án undantekninga.
Reynt hefur verið að ganga
e:ns langt til móts við útvegs-
menn og fært þykir í þessu
atriði og eini sjáanlegi agnú-
inn á því, að þessi tilhögun
komi að notum er sá, að stjóm-
endur skipanna hafi ekki áhuga
á því að samband náist.
Að lokum skal á það bent,
að stöðvar þessar, sem um
hefur verið rætt hér að fram-
an. em eingöngu reknar með
e'ginhagsmuni viðkomandi síld-
arkaupenda og útvegsmanna
fyrir augum. En þess misskiln-
ings hefur einmitt gætt í sam-
bandi við þessi mál, að hér
væri um hina almennu radíó-
þjónustu póst- og símamála-
stjómarinnar milli sipa og
lands að ræða.
Póst- og símamálastjómin
'únnur stöðugt að því, að bæta
’iónus.tu strandarstöðva sinna,
'->æði með endumýjun tækja
stöðvanna, svo og með end-
urbótum og aukningu síma-
kerfisins í landinu.
Vorið 1960 var tekin í notk-
un fullkomin strandarstöð á
Raufarhöfn, til þess að bæta
þjónustuna við bátaflotann fyrir
norðausturlandinu. Samskonar
þjónusta við bátaflotann var
opnuð á Norðfirði vorið 1963
og er nú verið að stórbæta
allan tækjabúnað þeirrar stöðv-
Þess má að lokum geta, að
í Vestmannaeyjum annast
strandarstöð póst- og síma-
málastjómarinnar alla fyrir-
greiðslu fyrir bátaflotann sam-
kvæmt sérstökum reglum. Hef-
ur það fyrirkomulag gefið á-
gæta raun og hafa útvegsmenn
víðar sýnt áhuga á því' og
hafa það til athugunar.
Póst- og símamálastjómin.
Allur
er varinn góður
Það leynir sér ekki að
skrif Morgunblaðsins um
Barry Goldwater eru nú óð-
um að breytast. í upphafi fór
blaðið háðulegum orðum um
baráttu hans fyrir framboði:
það taldi hann auðsjáanlega
vonlausan og þvi óþarft að
votta honum hollustu. En
eftir þvi sem honum hefur
vaxið fiskur um hrygg heí-
ur Morgunblaðið farið um
hann mildari höndum. og i
fyrradag birti blaðið for-
ustugrein þar sem búið er í
haginn fyrir algera kúvend-
ingu. Það segir að menn megi
ekki leggja mikið upp úr því
þótt Goldwater sé talinn aft-
urhaldssamur; „Hugtök eins
og íhaldssamur og frjálslynd-
ur eru hvergi nærri glögg.
enda ekki furða þótt erfitt
íé að skilgreina stefnur borg-
araflokka. þegar höfð er hlið
sjón af þeim umbyltingum os
hraða sem við eigum við að
búa, þar sem stöðugt er vi'ð
ný viðfangsefni að fást. Þess
vegna eru líka víðast sama"
í flokkum menn, sem teljp
5ig ihaldssama og frjálslynda
og það er siður en svo að
alltaf sé auðvelt að greina
í hverju frjálslyndi hinna
síðamefndu birtist og ihalds-
semi hinna fyrrnefndu. Engu
að síður er líklegt, að það
hafi hjálpað Goldwater og
hans mönnum, að þeir hafa
barizt undir þeim vígorðum,
að þeir ætluðu ýmsu að
breyta Qg hefðu nýmæli á
stefnuskrá sinni.“
Þannig vill Morgunblaðið
ekki lengur kveða upp dóm
um það hvort Goldwater sé
heldur íhaldssamur eða
frjálslyndur og gefur raunar
í skyn að hann sé framfara-
maðurinn sem vilji breyta og
taka upp nýmæli. Munu rit-
stjórar Morgunblaðsins nú
taka upp hin varkárustu
skrif meðan þeir eru að átta
sig á því hvorum muni betur
vegna í forsetakosningunum.
bví þeir eru drengir góðir n«
■’infastir
Tíl-
Klökkunarefpí
Moreunblaðið birtir mynd-
'v af Goldwater dag eftir dag
í hinum sérkennilegustu gerv-
um. Á sunnudaginn var sýndi
blaðið hanp í kúrekabúningi
með heljarmikla byssu og
sagði með aðdáun: „Barrv
Goldwater hinn hvithærði.
grannholda og skarpleiti öld-
ungadeildarþingmaður frá
Arizóna sómir sér vel í hlut-
verki sínu sem vörður laga
og réttar í vilta vestrinu". f
gær birtist svo mynd af hon-
um í Indíánabúningi þar sem
hann er að dansa striðsdans
og kyrja striðsöskur, Qg seg-
ir Morgunblaðið að þetta geri
hann „til að afla siálfum sér
fylgis", erda sé það mjög til
fyrirmyndar að „bandarískir
stjórnmálamenn taka ekki
sjálfa sig alltof hátíðlega".
Takist Goldwater að afla
sér nægilegs fvlgis með þess-
um baráttuaðferðum verða
bær eflaust einnie teknar upn
hér. Það verður tilhlökkunar-
efni að sjá Biama Benedikt.s-
■son í vikinesservi með kvr-
horn á höfði og bitandi :
skjaldarrendur, til að mynd=
þegar hann þarf að vríio -
cænska menntamenn.
— Austri.
A ðstoðariæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis II. við lyflæknisdeild Land-
spítalans er laus til umsóknar frá 1. október 1964.
Staðan veitist til 2ja ára. Laun samkvæmt kjara-
samningum opinberra starfsmanna. Umsóknir með
upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf
sendist til stjórnarnefndar ríkisspítalanna, Klapp-
arstíg 29, fyrir 16. ágúst n.k.
Reykjavík, 15. Ijúlí 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Stúlka óskast
til skrifstofustarfa í skrifstofu borgarstjóra. Góð
vélritunarkunnátta æskileg. Launakjör, > samkv.
kjarasamningi borgarstarfsmanna.
Umsóknum með upplýsingum um fyrri störf skal
skilað í skrifstofu borgarstjóra eigi síðar en 24.
júlí n.k.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
15. júlí 1964.
Fé/agsmá/aráðunautar
í Kleppsspítalanum er laus staða félagsmálaráðu-
nautar. Laun samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna. Ætlazt er til að umsækjandi
hafi lokið sérnámi í umræddum störfum. Umsókn-
ir með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri
störf sendist til stjórnarnefndar ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29, fyrir 16. ágúst n.k.
Reykjavík, 15. ijúlí 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Síldarstúlkur
Nokkrar, yaflar. ,síldars|pjkur vantar á söltunarstöðina
SÓKN á Seyðisfirði. Upplýsingar á skrifstofu Baldurs
Guðmundssonar, Vesturgötu 5, Sími 16021.
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar nú þegar í eldhús Kleppsspítalans.
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 38164.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Hjartkær eiginmaður minn
SIGMUNDUR ÞORGRÍMSSON,
Melgerði 19
andaðist aðfararnótt 15. júlí á Landakotsspítalanum.
Catharine Þorgrímsson.
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa
SIGURSTEINS JÚLÍUSSONAR
Njálsgötu 86, *
fyrrum bónda í Brakanda í Hörgárdal, fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 17. þ.m. kl. 1,30 e.h.
Lilja Sveinsdóttir, synir,
tengdadætur og barnabörn.
)