Þjóðviljinn - 16.07.1964, Side 6

Þjóðviljinn - 16.07.1964, Side 6
T g SfÐA ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. júlí 1964 ÆSK m OGI SOSiA LISM m ÚTG.: ÆSKULÝÐSFYLKINGIN — RITSTJÓRAR: HRAFN MAGNÚSSON OG RÖGNVALDUR, HANNESSON. HelgarferB ÆFR,út íb/áinn' Nú um næstu helgi efna Fylkingurdeildirnar í Reykjavík og Hafnarfirði til helgarferðar „út í bláinn“. Ákvörðunarstaður verður ekki kynntur fyrr en þangað er komið. Lagt verður af stað n.k. laugardag kl. 2 frá Tjamargötu 20 stundvíslega. Þátttaka tilkynnist í skrifstofu ÆFR, sími 17513, og hjá ferðaskrifstofunni Landsýn, sími 22890. Þetta verður ódýrasta helgarferð ÆFR og ÆFH á þessu sumri og er öllu æskufólki heimil þátt- taka. Ari Jósefsson F. 28/8 1939 D. 18/6 1964 Ari Jósefsson er dáinn. Það er undarlegt, að svo mikill lífskraftur skuli allt í einu vera horfinn. Það verður tómlegra á eftir, Gamlir menn hafa lokið flestu, sem þeir geta gert. Ungir menn eiga flest ógert. Þeim er framtíðin mikilvægari en fortíð- in. Þegar Ari dó, missti framtíðin efnileg- an liðsmann. Ari var góður félagi í Æskulýðsfylking- unni. Við hörmum lát hans. Vandamönn- um hans sendum4við samúðarkveðjur. Ast Varir okkar hafa gróið saman utanum tvö lítil og skrítin dýr sem iða af ást og njótast inní heitum og rauðum heimi sem varir okkar hafa iokast um StriÍ Undarlegir eru menn sem ráða yfir þjóðum Þeir berjast fyrir föðurland eða fyrir hugsjón og drepa okkur sem eigum ekkert föðurland nema jörðina einga hugsjón nema lífið ARI JÓSEFSSON. ER NATÓ Á GRAFARBAKKANUM? HoH lexía fyrir FUJ og Varðberg U Höfundur þessarar grein- ar, sem birtist í „Tross Alt“ málgagni stúdentafélags jafnaðarmanna við háskól- ann í Osló (Arbeiderparti- ets Studentlag), er Hans Stokland, sem á sæti í rit- nefnd blaðsins. Grein þessi er holl lexía fyrir unga krataforingja hér á landi, sem og aðra Varðbergspilta. Hún gefur fyrst og fremst til kynna, að íslenzki krata- flokkurinn hefur fyrir löngu gefizt upp í baráttunni gegn erkióvininum, þ.e. í- haldinu, og er orðinn eins konar hjáleiga stórgróða- manna og annarra misind- ismanna þjóðfélagsins. Vonlaus aðstaða „Postular kalda stríðsins eru komnir í vonlausa aðstöðu. hvað snertir rök til varnar málstað sínum. Almenningur gleypir ekki lengur hráa hverja þá áróðursbeitu, sem að hon- um er rétt. Söngurinn um út- þenslustefnu kommúnismans og yfirgang Sovétríkjanna á eng- an hljómgrunn lengur. Rússa- grýlan heyrir fortíðinni til. t dag er NATO ekki svipur hjá sjón; Full ástæða er til að staldra við og íhuga þá fullyrðingu, að NATO sé lif- andi raunveruleiki. Vegna stefnu de Gaulle er bandalag- ið komið á fallandi fót, stefna Mao hefur sýnt Kreml í nýju Ijósi og Bonn-stjórnin notar NATO til að koma óskum sín- um fram. de Gaulle hefur átt drjúgan þátt í því að koma NATO fyrir kattarnef. í fyrsta lagi tók hann meginhluta franska hcraflans undan stjórn Kana, því næst mcinaði hann Bretum inngöngu í Efnahagsbandalagið og viðurkenning á stjórn Kínverska alþýðulýðveldisins er siðasta ráðstöfun hans í þá átt. — Myndin hér að ofan sýnir hvernig skopteiknari hugsar sér sambúð Breta og Frakka um þessar mundir. de Gaulle og Banda- ríkin de Gaulle hefur gerzt svam- asti andstæðingur forystuhlut- verks Bandaríkjanna meðal vestrænna þjóða. Á skömmum tíma hefur hann þvívegis hrellt Bandaríkjastjórn. Fyrst tók hann meginhluta franska her- aflans undan stjórn NATO. Því næst meinaði ■ hann Bret- um inngöngu í Efnahagsbanda- lagið. Og viðurkenning á Pekingstjórninni er síðasta hrollvekjandi ráðstöfun hans. Endalok kalda stríðsins Mao hefur fyrir sitt leyti hafið baráttu gegn forystuhlut- verki Sovétríkjanna meðal fiora að bugsa s/álfstætt' D, 'r. Linus Pauling- hefur löngum verið umdeildur maður, enda býr hann yfir miklu hugrekki og fer aldrei í laun-. kofa með sannfæringar sínar. Hann hef* ur alla tíð beitt sér mjög gégn tilraunum með kjarnorkuvopn, og fyrir það var um tíma réyrit að koma á hann komm» únistastimpli, eins og víða er mikill siðug þegar menn þora -að hugsa sjálfstætt, A’rMuðTrHge^riTiok'u“rh.'' gekk"’S’vo lángtT íum var synjað um ve| Þessi pistill hér að ofan er úr Lesbók Morgunblaðsins síðastlið- inn sunnudag, Æskulýðssíðan hefur hér litlu við að bæta en spyr aðeins: Hvernig væri að ungir íhaldsmonn reyndu að koma á sig „kommúnistastimpli“? En til þess þurfa þeir að sjáifsögðu að „búa yfir miklu hugrekki“ og „þora að hugsa sjálfstætt“. sósíalísku landanna. Stefna Mao hefur leitt til þess, að nú virðist fremur stafa hætta af stefnu Sovétríkjanna i Austurálfu en á Vesturlöndum. Hinu kalda stríði síðasta ára-<í>- tugs er lokið. Reynslan hef- ur leitt í Ijós, að kenningin um órofa samheldni kommún- istaríkjanna á ekki við meiri rök að styðjast en þjóðsagan um samheldni ríkja Atlanz- hafsbandalagsins. Erindrekar stórveldanna eru enn einu sinni komnir á stúfana. Hin- ar gömlu valdasamsteypur eru að falli komnar. ^lgangur NATÓ? Það er í dag harla erfitt að sjá að Atlanzhafsbandalag- ið þjóni nokkrum tilgangi. Rússagrýlan sameinar þá ekki lengur. Það örlar ekki á nein- um sameiginlegum baráttu-l grundvelli. Ahugamenn um vestræna samvinnu eiga við jafn erfitt verkefni að glima, þegar skapa á eldmóð í þágu varnarbandalagsins, eins og „Folk og forevar" (e.k. norskt Varðberg.-innsk.þýð.), þegar um er að ræða að skapa hem- aðaranda meðal þjóðarinnar. Ofurlítinn baráttuneista væri ef til vill mögulegt að tendra við að sameina NATO og Var- sjárbandalagið til mótstöðu gegn Mao! Öfl innan NATÓ Sú hætta, sem í dag steðjar að vestrænnm þjóðum á frem- ur rætur sínar að rekja til afla innan NATO en utan. Þýzkalandsvandamálið verður æ hættulegra. A þessu ári, 50 árum eftir að fyrri heimstyrj- öldin brauzt út og 25 árum eftir að Hitler hleypti af stað síðari heimsstyrjöldinni, er það enn á ný Þýzkaland, sem skapar mesta ófriðarhættu í álfunni, Bonn-stjómin sviíst einskis til að fá kröfum sínum fram- gengt, vígbýst af kappi, og hrifsar til sín æ meiri völd Framhald á 9. siðu. María Krist- /ánsdóttir form. ÆFH María Kristjánsdóttir. 8. -júlí síðastliðinn hélt Æskulýðsfylkingin í Hafnar- firði aðalfund sinn. Kosið var í stjórn og skipa hana þessir félagar: María Kristjánsdóttir, formaður, Páll Ámason, vara- formaður, Þjóðbjörg Þórðar- dóttir, ritari, Sveinn Frímanns- son, gjaldkeri. Andrés Sig- valdason, oiga Magnúsdóttir og Örlygur Bencdiktsson með- stjórnendur. Nánar verður sagt, frá aðal- fundinurn og starfsemi ÆFH í næstu Æakulýðssíðu. I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.