Þjóðviljinn - 18.07.1964, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 18.07.1964, Qupperneq 4
SiÐA ÞI6ÐVILJINN Laugardagur 18. júlí 1964 Sigraði í Tour de France í 5. sinn Otgelandi: Sameiningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19, Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 5 mánuði Iskyggilegar horfur jþegar Kennedy Bandaríkjaforseti var myrtur í illræmdri afturhaldsborg í heimalandi sínu, var því spáð víða um heim að það voðaverk yrði mikið áfall fyrir ofstækismenn vestanhafs; þeir stjórnmálamenn sem hefðu hamazt gegn sam- komulagsstefnu Kennedys í alþjóðamálum og auknu jafnrétti í innanlandsmálum ættu sér ekki viðreisnarvon, allra sízt hinn ruddafengni og al- ræmdi Barry Goldwater. En þessir spádómar hafa sannarlega ekki ræ’tzt. Öllu heldur virðist morð- ið á Kennedy hafa magnað ofstækismenn í Banda- ríkjunum; morðum og hryðjuverkum linnir ekki gegn þeim sem berjast fyrir auknum mannrétt- indum; og Barry Goldwater sem í upphafi var talinn vonlaus í sókn sinni til framboðs hrósar nú eftirminnilegum og algerum sigri í flokki sínum. Jþví skyldu menn varlega trúa spádómum um það að stríðsæsingamanninum frá Arizona muni aldrei takast að ná húsbóndavaldi í Hvíta hús- inu í Washington. Á bak við þennan ófrýnilega stjórnmálamann standa öfl sem eru ofursterk í bandarísku þjóðlífi, auðhringar sem æskja harð- vítugrar útþenslustefnu um heim allan, hergagna- framleiðendur sem óttast afleiðingarnar ef frið- samleg sambúð festist í sessi, forréttindaöfl sem vilja koma í veg fyrir aukin mannréttindi og jafn- ræði í Bandaríkjunum. Þetta eru nákvæmlega sömu öflin og á sínum tíma lyftu Adolf Hitler til valda í Þýzkalandi, þessum fráleita stjórnmála- manni sem heimurinn 'taldi hlægilegt fyrirbæri unz hann hafði allt í einu náð valdi á örlögum mannkynsins. Og reynslan hefur þegar sýnt að Barry Goldwater á auðvelt með að skírskota til sjúkdómseinkennis sem virðist furðulega algengt í Bandaríkjunum, minnimáttarkenndar sem magnast þrátt fyrir völd og auðlegð og birtist einatt sem ranghverfa í ofstæki og voðaverkum. því mun öruggast fyrir menn að búas't við öllu illu, og það þeim mun fremur sem Barry Gold- water myndi ekki aðeins ná tökum á heimalandi sínu heldur á öllu herstöðvakerfi Bandaríkjanna, valdastöðum sem spenna um hálfan hnöttinn. Einnig herstöðvarnar á íslandi yrðu þá tæki í hendi þess manns sem hefur tilkynnt að hann vilji beita vopnavaldi til þess að ákveða þjóð- skipulag allra ríkja á hnettinum. Þeir íslendingar eru — enn sem komið er — fáir sem vilja af ráðn- um hug tengja þjóð sína þvílíkri stefnu, en sá háski blasir óhiákvæmilega við okkur ef við höld- um áfram að láta nota okkur sem viljalaus verkfæri í höndum erlendra afla. Hin ófrýnilega stjórnmálaþróun í Bandaríkjunum er áminning til allra íslendinga um það hver nauðsyn það er okk- ur að vera frjálsir og óháðir í heiminum, velja og hafna einvörðungu í samræmi við skoðanir okkar og lífsviðhorf, en láta aldrei andlega van- þróuð stórveldi taka af okkur ráðin. — m. ANQUETIL, HJÓLREiÐA KAPPI0G ÞJÓÐHETJA Margir halda því nú fram, að Fransmaðurinn Jacques Anquetil sé mesti hjólreiðakappi allra tíma. Ástæðan er sú að hann hefur nú sigrað í hinni frægu hjólreiðakeppni „Tour de France“ í fimmta sinn í röð. Vegalengdin í þessari erf- iðu hjólreiðakeppni er 4500 km., en keppendur eru jafnan frá mörgum löndum. Antjuetil er 30 ára að aldri, ljóshærður og ættaður frá Normandie. Hann er nú dýrk- aður sem þjóðhetja í landi sínu, þar sem mikill og aimennur áhugi rikir fyrir hjólreiða- íþróttinni. Anquétil er ekki aðeins góður hjólreiðamaður, heldur þekkir hann leiðina í þessari keppni mjög vel og er mjög ,,taktiskur“ í keppni sinni. Stundum fer þessi hag- kvæmni hans út yfir allt vel- sæmi. Þannig hvílir sá skuggi yfir sigri hans nú, að hann var dæmdur í 50 franka sekt og 20 sekúndna tímatap fyrír að láta félaga sína ýta sér upp bratta brekku í Pyrenea- fjöllum. Loðinn um lófana Anquetil mun vera manna ríkastur í hópi atvinnumanna í hjólreiðum. Keppninni lauk sl. þriðjudag, en það er þjóð- hátíðardagur Frakklands. Þeg- ar Anquetil kom inn á ieik- vanginn, þar sem keppninni lauk í París, æpti mannfjöld- inn í ofsahrifningu: ,,Guð, guð” ' Guðinn vann keppnina í þetta sinn á nýjum mettíma. Fyrir þennan sigur hlaut hinn nýi guð Frakka 3,5 milj- ónir króna. Margar sögur eru á kreiki um það hvaða Anque- til hafi auðgazt á atvinnu- mennsku sinni í íþróttum, en engin þeirra verður staðfest. Það mun þó varlega áætlað að hann hafi grætt 120 milj- ón krónur á síðustu 7 árum. Þetta fé hefur runnið í sjóð hans ýmist sem sigurlaun, samningsþóknun eða auglýs- ingafé. Fé sitt hefur hjól- reiðakappinn fest í fjölmörg- um hlutafélögum og gróðrafyr- irtækjum, þannig að fjárhagur hans stendur traustum fótum. Hann er einn af fimm rík- ustu atvinnu-íþróttamönnum heimsins. Feímínn guð Anquetil er maður hógvær og af hjarta lítillátur. Hann er mjög hlédrægur og leiðist allt stússið i kringum afrek hans. Meira en miljón manns er í félagi því, sem stofnað var af æstustu aðdáendum hans í þeim tilgangi einum að dýrka hetjuna. Hefur hann oft vald- ið félagsmönnum miklum von- brigðum fyrir að standa sig illa í stöðunni sem þjóðhetja, þegar hylling hefur átt að fara fram. Úrslit í Tour de France að þessu sinni: Anquetil (Fr.) 127.09,44 Poulidor (Fr.) 127.10,39 Bahamontes (Spáni) 127.14,28 Anglade (Frakkland) Groussard (Frakkland) Foucher (Frakkland) Jimenez (Spáni) Desmet (Belgíu). í Fœreyjum Islenzka landsliðið í hand- knattleik kepp'r í kvöld við lið Færeyinga í Þórshöfn. Is- lenzka liðið fór til Færeyja í gær. I því eru allir landsliðs- mennirnir frá því í vetur, nema Ragnar Jónsson og Einar Sigurðsson. Á morgun keppir svo B- landslið íslands í knattspýmu við færeyska landsliðið. Þessir kappleikir eru háðir í tilefni 25 ára afmælis íþrótta- sambands Færeyja. Tugþrautar- landskeppni Island, Noregur og Svíþjóð heyja landskeppni í tugþraut í Reykjavík dagana 8. og 9. ágúst n.k. Tveir menn frá hverju hinna þriggja landa munu keppa. Norðmenn munu efna til úr- tökumóts hjá sér til að velja þátttakendur 25. og 26. júlí. Hvíldarstund í Tour de France. Anquetil situr uppréttur, Hærra og hærra í stangarstökki Hin tíðu met í stangarstökki fyrir tilstuðlan glerfíberstangarinnar eru orðin mörgum íþrótta- leiðtogum og íþróttamönnum þymir í auga. Nú eru þeir famir að skipta tugum, sem stokkið hafa yfir 5 metra í stangarstökki. Það eru örfá ár síðan að það þóttu lygilegir framtíðarórar, að nokkrum tækist að stökkva yf- ir 5 metra í stangar- stökki, en nu er heimsmetið komið upp í 5,23 m. Vest- ur-Þjóðverjinn Wolfgang Rein- hardt setti ný- Evrópumet í stangarst., m. Hann er nú þriðji á Drengiamótið Drengjamestaramót íslands í frjálsum íþróttum fer fram á Akureyri 25. og 26. júlí næst- komandi. Keppnisgreinar: Fyrri dagur: 100 m. hlaup, kúluvarp, hástökk, 800 m. hl., spjótkast, langstökk og 200 m. grindahlaup. — Síðari dagur: 110 m. grindahlaup (91,4 cm.), kringlukast, stangarstökk, 300 m. hlaup, þrístökk, 1500 m hlaup og 4x100 m. boðhlaup. afrekaskrá heimsins í ár. — Skráin lítur þannig út, og geta menn nú spreytt sig á að spá einhverjum þessara af- reksmanna olympíusigri í Tókíó f haust: Fred Hansen (USA) 5,23 m. John Pennel (USA) 5,15 m. Wolfgang Reinhardt (Þýzkal.) 5,11 m. Don Meyers (USA) 5,10 m. Dave Tork (USA) 5,08 m. Manfred Preussger (Þýzkal.) 5,02 m. Pentti Nikula (Finnl.) 5,00 m. Sjúan Kvang-Jang (Foimósu) 5,00 m. Mel Hein (USA) 5,00 m. Ron Morris (USA) 5,00 m. Þessi listi er nokkurnveginn samhljóða heimsafrekaskrá allra tíma. Br:an Stemberg (USA) stökk þó í fyrra 5,08 m., og átti heimsmetið um tíma, en hann slasaðist alvarlega og keppir aldrei framar. Ron Morris stökk 5,02 m. í fyrra. Búast má við því að ýms- ar nýjar stangarstökksstjömur taki að skína á næstunni, því margir nýir menn hafa komið óvænt fram á sjónarsviðið i þessari grein undanfarið. sitt af hverju ★ Á austurþýzka meistara- mótinu í frjálsum íþróttum, sem háð var í Jena fyrir skömmu, setti sveit SC Leip- zig nýtt austurþýzkt met i 4x100 m. boðhlaupi á frá- bærum tíma — 39,8 sek. í sveitinni voru: Eberstrosser, Berger, Wallach og Krebs. Joachim Singer frá Karl Marx-Stadt vann 400 m. grindahlaup á 50,9 sek, Man- fred Losch frá Leipzig sigr- aði í sleggjukasti með 64,36 m. Annar varð Baumann með 63,68 m. Gertrud Schm- idt setti austurþýzkt met í 400 m. hlaupi kvenna — 54,3 sek. ★ Margir eru farnir að spá því hver muni sigra í hin- um ýmsu greinum frjáls- íþrótta á olympíuleikunum í haust. Fyrir skömmu vakti Norðmaðurinn Terje Petersen heimsathygli fyrir nýtt met í spjótkasti, 87,12 m. Gamla kempan, Janusz Sidlo frá PóIIandi, hcfur einnig vakið athygli fyrir að vera enn einu sinni kominn í frcmstu röð spjótkastara. Skráin yfir beztu spjótkastarana í ár til þessa lítur þannig út; Peter- sen (Nor.) 87,12 m.; Sidlo (PóII.) 8,03 m,; Kinnunnen (Finnl.) 84,42 m.; Kulcsar (Ungvl.) 8/,24 m.; Salomon (Þýzkal.) 81,90 m.; Aksenov (Sovétr.) 80,87 m.; Nevala (Finnl.) 80,74 m.; Tipton (USA) 80,42 m.; Macquet (Frakkl.) 80.25 m., Covelli (USA) 79,83 m. ★ Danir unnu Svía i ung- lingalandskeppni í knattsp. 3:0. Höfðu dönsku piltarnir mikla yfirburði í leik. Þetta var 400. Iandslcikur Dan- merkur í knattspyrnu, þegar bæði Iandsleikir fullorðinna og unglinga eru taldir nvð. Þótti þetta góður afmælis- leikur af þessu tagi fyrir Dani, og skemmtileg afmæl- isgjöf fyrir danska knatt- spyrnusambandið, sem er 75 ára í ár. Unglingalandsliðin á hinum Norðurlöndunum fá mörg tækifæri til að spreyta sig í keppni. Þetta var t.d. 15. unglingalandsleikur Norð- manna og Dana í knatt- spyrnu. utan úr i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.