Þjóðviljinn - 18.07.1964, Side 10

Þjóðviljinn - 18.07.1964, Side 10
Ferðamá/aróð j fullskipað i Samkvæmt 11. grein laga um ferðamál • hefur samgöngumála- rá'ðuneytið skipað eftirtalda menn í ferðamálaráð. til 1. júlí j 1967. Formaður: Lúðvík Hjálmtýs- I son framkvæmdastjóri, Hátúni | 37. Reykjavík. Varaformaður: Albert Guð- mundsson, stórkaupmaður. Aðilar þeir. sem um getur í 11. gr. laga um ferðamál hafa tilnefnt eftirtalda ^fulltrúa: H.f. Eimskipafélag íslands: Sigurlaugur Þorkelsson, full- trúi. Til vara: Kolbeinn Ingólfsson. Félag sérleyfishafa: Ágúst Hafberg, forstjóri.’ Til vara: Helgi Geirsson. Ferðafélag Islands: Lárus Ottesen, framkvæmdastjóri. f Til vara: Einar Þ. Guðjohnsen. Flugfélag Islands h/f: Birgir Þorgilsson, sölustjóri. Til vara: Ingvi M. Árnason. Loftleiðir h/f: Sigurður Magn- ússon. fulltrúi. Til vara: Islaug Aðalsfeinsd. Ferðaskr'fstofa ríkisins: Þor- leifur Þórðarson, forstjóri. Til vara: Stefán Haukur Ein- arsson. Samband veitinga- Qg gisti- húsaeigenda: Pétur Daníelsson, hótelstjóri. Til vara: Sigurjón Ragnarsson. Félag íslenzkra ferðaskr;fstofa: Geir H. Zoega, forstjóri. Til vara: Niáll Sfmonarson. Leitað styrk/a úr horgarsjóði Karl O. Runólfsson hefur far- ið fram á styrk úr borgarsjóði til endurnýjunar á hljóðfærum bama- og unglingaskólalúðra- sveitanna. Þá hefur Hannes Flosason óskað eftir styrk til rekstrar Hljóðfæraskólanum og stúdentaráð Háskóla íslands beð- ið um styrk til utanfarar á heimsmeistaramót stúdenta í skák sem háð verður í sumar í Varsjá. Öllum þessum styrk- beiðnum vísaði borgarráð til sparnaðarnefndar á fundi sín- Um sl. þriðjudag. rUnga Reykja- vík'-Upp/ýs- ingarít ÆR Æskulýðsráð Reykjavíkur hef- ur nýlega gefið út myndskreytt- an bækling er nefnist Unga Reykjavík. Þar er að finna ýms- an fróðleik um störf Æskulýðs- ráðs og aðra fclagsstarfsemi ungs fólks í Reykjavík. Fremst í ritinu eru skáldleg- ar hugleiðingar um Reykjavík og næsta nágrenni. Næst er kafli um starfsemi Æskulýðs- ráðs, sem' starfað hefur síðan um haustið 1955 Ráð ð hefur til umráða húseignina að Fríkirkju- vegi 11. og er þar öllum ung- lingum opið hús. Annað tóm- stundaheimili ráðsins 'er Golf- skálinn á Öskjuhlíð. Helzta starfsemi ráðsins er að skipu- leggja tómstundaiðju æskufólks, þar er starfað að ferðamálum. ýmis námskeið haldin og auk þess starfa ýmsir klúbbar inn- an ráðsins. Þá er sagt frá starfi hinna1 ýmsu æskulýðsfélaga í borginni; Islenzkra ungtemplara, skáta, Farfugla, kirkjulegu æskulýðsstarfi, Æskulýðsfélagí hjálpræðishersins og íþróttafé- laga. Auk þess er í ritinu grein- argóð frásögn um ferðamál og ferðafélög og upplýsingar um helztu söfn sem t'l eru í borg- inni. Ritið Unga Reykjavík verðU'- afhent endurgjaldslaust í Bóka- búð Sigfúsar Eymundssonar og skrifstofu Æskulýðsráðs að Fríkirkjuvegi 11, þar er opið daglega kl. 2—6 og 3—9, sími 15937. Framkvæmdastiór’ Æ-sku- lýðsráðs er Reynir Karlsson í- þróttakennari. SÍLDARPLAN í ÓNÁÐ KIRKJUNNAR Hér er mynd af síldarplani á Raufarhöfn og ber það nafnið Síldin. Þetta er einmitt planið, sem hefur gert kirkjunnar mönnum á staðnum gramt í geði og þrengir að guðshúsinu. Síldarplanið er hinsvcgar byggt eftir nýjustu kröfum og er fullkomið á allan hátt. Aðaleigendur eru Jón Gísla- son í Hafnarfirði og Jón Einarsson á Raufarhöfn og er hann framkvæmdastjóri plansins. Þarna eru stæði fyrir áttatiu stúlkur. — (Ljósm. Þjóðv. G.M.). Sovézkir ferðamenn í 11 daga heimsókn Tuttugu og fimm ungir sov- ézkir ferðamenn koma hingað í kvöld á vegum sovézku æsku- lýðsferðaskrifstofunnar Spútn- ik og ferffaskrifstofunnar Land- sýn. Þeir dvelja hér á landi í 11 daga og byrja á því að heim- sækja myndhöggvara hér í bæ og svo listasöfn. Annars munu leiðir þeirra liggja víða, og lengst komast þeir norður til Þingeyinga og skoða fugla við Mývatn og Dettifoss og síldar- söltun á Húsavík. Sovézkir ferðamenn eru frem- ur sjaldséðir á Islandi — en áð- ur hefur komið hingað einn hóp- ur á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins og svo einn hópur ung- menna á vegum Spútnik og Landsýnar. Spútnik býðst ann- ars til að skipuleggja ferðir ungs fólks til Sovétríkjanna og munu þær sýnu ódýrari en aðr- ar ferðir og hefur Landsýn hug á að skipuleggja slíka ferð næsta sumar. Fólk það sem nú kemur er úr ýmsjum hlutum Sovétríkjanna og þó furðumargt frá því sól- ríka fjallalandi Grúsíu suður í Kákasus. Fararstjóri er Eyvind- ur Erlendsson. SILDIN SERVERKUÐ A RAUFARHOFN Verzlanasamband- ið flytur í Skipholt unarinnar er Kolbeinn Kristins- son, sem um alllangan tíma hefur verið verzlunarstjóri í Egilskjör. Húsið, sem Verzlanasambandið og Kostakjör eru í er ekki al- veg fullgert en framkvæmdum mun haldið áfram og er von til að þeim Ijúki innan skamms. Húsið teiknuðu þeir Ásmundur Ölafsson og Gunnar Hannesson. en Skúli Norðdahl arkitekt teikn- aði innréttingu og réði 'öilufyr- irkomulagi kjörbúðarinnar. Bifreiðastöðu- bannáenn f/eiri götum Á fundi borgarráðs Reykja- vikur s.l. þriðjudag voru sam- þykktar tillögur umferðamefnd- ar um bifreiðastöðubann við eftirtaldar götur: Sunnan megin Sölvhólsgötu frá Kalkofnsvegi að Klapparstíg. Vestan megin Klapparstígs milli Sölvhólsgötu og Skúlagötu. Vestan megin Frakkastigs frá Njálsgötu að Skólavörðustíg. Leifsgötu, sunn- an megin götunnar. Norðaustan megin Nönnugötu. Norðvestan megin Bragagötu og norðvestan megin Baldursgötu. ennfremur féllst borgarráð á tillögu um- ferðamefndar um biðskyldu á Baldursgötu gagnvart umferð um Laufásveg. Banaslys á Akureyri f fyrrad. kl. 3.30 varð það slys í sundlauginni á Akureyri að 7 ára telpa, Þórey Guðmundsdótt- ir, Þingvallastræti 39 á Akur- eyri, drukknaði. Telpan hafði verið ásamt fleiri krökkum að iðka sföklc af lágum palli við dýpri enda laugarinnar. Allt í einu sagði eitt barnanna við konu sem þama var nærstödd að það lægi e:tthvað á botnin- um í lauginni. Stakk konan sér þegar í laugina og kom upp með telpuna og voru begar hafn- ar á henni lífgunartilraunir og hún síðan flutt í sjúkrahús, en ekki tókst að vekja hana til lífsins. Þórey litla var dóttir hjónanna Jónu Pedersen og Guðmundar Valgeirssonar. Verzlanasamband Islands var stofnað 1954 og voru í fyrstu stjórninni þeir Tónias Björnsson Akureyri, formaður, Sígurffur Óli Ólafsson, Sclfossi og Friffrik Þórffarson Borgarnesi. Félagið hefur siðan fært nokk- uð út starfsemi sína og er þess fyrst að geta er það festi kaup á skipi. Var þar um stofnað skipafélagið Hafskip h.f., sem nú á þrjú skip í gangi og eitt 1 smíðum. Annað fyrirtæki á vegum sambandsins er Verzlana- tryggingar h.f. Ennfremur hafa þeir með höndum rekstur fyrir- tækisins Fóðurblöndunnar h/f. Verzlanasambandið hefur skrifstofur sínar í Skipholti 37 og framkvæmdastjóri þess er Sigurður Helgason lögfræðingur. Sambýlingur Verzlanasam- bandsins í Skipholtinu er kjör- búðin Kostakjör. Gólfflötur verzlunarinnar er mjög stór og innréttingar þokkalegar. Aðal- eigandi og verzlunarstjóri verzl- Myndin scm hér fylgir er tekin fyrir skömmu á Raufarhofn, er veriff var að serverka síld hjá söltunarstöðinni Hafsilfri, cn fyrsta síldin sem söltuff var fór mest í sérverkanir. Þrekna konan fremst á myndinni er að blanda kryddið, en hún heitir Sjöfn Hclgadóttir og er kryddmeistari hjá Hafsilfri. Er hún mörgum kunn þvi hún hefur ferðazt mikið um landið á undanförnum árum og selt Eldhúsbókina. — (Ljósm. Þjóðv. G.M.). Pan American opn- ar í Reykjavík ÆFR og ÆFH •fr Fylkingardeildimar í R- vík og Hafnarfirði efna til helgarferðar út í bláinn í dag. Lagt verður af stað frá Tjam- argötu 20 kl. 14. -ir Þátttökutilkynningar í síma 17513 og hjá ferðaskrif- stofunni Landsýn í síma 22890. ★ ATHUGIÐ að þetta er ein ódýrasta helgarferðin, sem völ er á um þessa helgi. Morræna lýðháskól- anum lauk í gær í gær var síðasti dagur Nor- ræna lýðháskólans sem starf- ræktur hefur verið hér í Reykja- vík um tíma. Viff skólaslitin talaði Gunnar Thóroddsen fjár- málaráðherra. formaffur Nor- ræna félagsins, og einnig talaði Christian Brönding, forstöðu- maffur Nordisk Pressebureau, sem annazt hefur daglega stjórn skólans. Gunnar Thóroddsen ræddi nokkuð um Norrænahúsið sem á að reisa hér í Reykjavík og skýrði hann m.a. frá því að á- ætlaður kostnaður við byggingu hússins væri nú orðinn 20 miljónir króna, en í fyrstu var áætlað að það myndi kosta 12 miljónir. Upphaflega var ætl- unin að ísland tæki ekki þátt í byggingarkcstnaðinum en af Islands hálfu hefur verið ósk- að eftir því að svo verði. Ætlun- in er að hefja byggingarfram- kvæmdir á næsta ári. Christian Brönding skýrði frá því að á hinum Norðurlöndun- um væri mikill áhugi fyrir nor- rænum lýðháskóla á Islandi og væri í ráði að halda hér þrjú eða fjögur námskeið á næsta sumri. Er m.a. í ráði að halda hér námskeið fyrir norræna kennara, norræna blaðamenn og fl. Forstöffumenn aðalumboðs Pan American á íslandi opnuðu í gær nýja skrifstofu að Hafnar- stræti 19 í Reykjavík. Þeir eru Ragnar Borg viðskiptafræðingur, sem er forstjóri G. Helgason og Melsted og framkvæmdastjóri aðalumboffsins, Bolli Gunnars- son. Þotur Pan American fljúga nú til 114 borga í 86 löndum. Að- eins þetta eina erlenda flug- félag heldur uppi reglubundn- um ferðum til Islands. Vélar félagsins koma á þriðjudags- morgnum frá N. Y. Síðan er farið héðan til Glasgow og Berl- ínar með stuttri viðkomu og svo hingað aftur og þá til New York um kvöldið. Allar þotur félagsins fara um Keflavíkurflugvöll og það hefur þar skrifstofur. 28. júlí 1939 fór fyrsta flug- vélin frá Pan American með farþega yfir Atlanzhaf, frá New York til Marseille í Frakklandi. 1 fyrstunni fóru vélar félagsins aðeins eina ferð í viku yfir Atl- anzhafið, en nú eru ferðirnar orðnar 222 á viku, auk þess sem félagið hefur í notkun sinni vélar um allan heim. G. Helgason og Melsteð hafa haft aðalumboð fyrir Pan Am- erican allt frá 1947 og yfirmaður þess fyrirtækis hefur verið Ein- ar Faretsveit. Pan American er stöðugt að bæta við sig nýjum' leiðum og má þar nefna flugleiðina New York — Moskva, sem lengi hef- ur verið i undirbúningi. Fjal/skilagjald í Reykjavik 25 kr. á kind Fjallskilagjald fjáreigenda í Reykjavík hefur verið hækkað í 25 krónur á kind. Var þetta samþykkt á síðasta borgarráðs- fundi, þar sem ennfremur var lögð fram reglugerð um búfjár- hald í Reykjavik með áritaðri staðfestingu félagsmálaráðu- neytisins. i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.