Þjóðviljinn - 26.07.1964, Side 10

Þjóðviljinn - 26.07.1964, Side 10
10 *»* ---------------------------------------------------ÞJÓÐVILIINN sem Despiére sagði. — Hún hætti að brosa til gamalla vina. Despiére leit i kringum sig og dró Jack út i hom, sem var tómt í svipinn. — Viltu gera dálítið fyrir mig. Jack? spurði hann, hann var léttur i rómi og kæruleysislegur að venju, en augun sem horfðu rannsakandi á Jack, voru alvar- ieg. — Já, auðvitað. sagði Jack. — Hvað er það? Despiére stakk hendinni í innri brjóstvasann og dró upp langt, innsiglað um- slag. — Geymdu þetta fyrir mig dálítinn tima, sagði hann og fékk Jack umslagið. — Feldu það. feldu það. Jack stakk umsiaginu,, sem var stórt og fyrirferðarmikið, í vasann. — Viltu segja mér hvað ég á að gera við það? spurði hann. — Geymdu það bara fyrst um sinn. Þegar ég kem aftur, get- urðu látið mig hafa það. — Kem aftur, hvað áttu við? — Ég fer til Algier á morgun, sagði Despiére. — Ég fékk sím- skeyti' frá ritstjóminni í morg- un. Það er frétt sem ég þarf að reyna að ná i. Ég verð ekki burtu nema sex eða sjö daga. Þú verður hér enn þegar ég kem til baka. er ekki svo? — Jú. — Blaðið vffl fá nokkur þús- und um það, hversu grimmileg grimmd Aligierbúa sé, sagði Des- piére. — Ég er grimmdarrit- 6tjóri. öll almennileg tímarit hafa einn slikan. Þakka þér fyr- ir. Þú ert góður náungi. — Er nokkuð fleira sem þú ætlar að segja mér? Despiére yppti öxlum. — Tja . .V. sagði hann með hægð. — Ef ég kem ekki aftur. þá opn- aðu umslagið. — Nei, heyrðu mig nú, Jean- Baptiste. byrjaði Jack. Despiére hló. — Já, ég veit að þetta er ósköp lítið stríð, sagði hann. — En að því er mér skilst. þá nota þeir alvöru vopn. Og auk þess verða grimmdar- ritstjórar að taka allt með í reikninginn. Og eitt enn. Segðu engum að ég sé að fara til Alg- ier. Engum. endurtók hann hægt. — Hvar halda menn að þú 6ért? sagði Jack. — Ef einhver spyr. HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu og snyrtistofa STEINXJ og DÖDÖ taugavegi 18. III h. (lyfta) SlMI 24616 P E R M A Garðsenda 21 SlMI: 33968 Hárgreiðslu- og snyrtistofa Dömurl Hárgreiðsla við allra hæfi T J ARN ARSTOFAN Tjamargötu 10 — Vonarstræt- ismegin — SlMI: 14662 HARGREIÐSLUSTOFA é AUSTURBÆJAR (Maria Guðmundsdóttir) Laugavegi 13. — SÍMI: 14656. — Nuddstofa á sama stað. — I St. Moritz. Ég frétti að þar væri góður snjór. Ég er með einhverjum kunningjum. En þú veizt ekki hverjum. — Og hvað um greindna um Delaney? — Ég lýk henni þegar ég kem til baka, sagði Despiére. — Þetta er tuttugasta öldin — grimmdin á undan listinni. Hann leit á úr- ið sitt. — Ég er á seinni skip- unum. sagði hann. Hann klapp- aði á handlegginn á Jack og brosti til hans, brosið var vina- legt og drengjalegt, laust við alla illgimi. Síðan sneri hann sér við og gekk leiðar sinnar. framhjá drekkandi gestunum til litla, leynilega stríðsins sfns, íítíll. þéttvaxinn náungi í nær- skornum, ítölskum fötum. Jack stóð kyrr og horfði á eftir hon- um og tók eftír því að hann kvaddi engan. Jack kom við vasa sinn. Hann var óhugnanlega úttroðinn. Opnaðu umslagið ef ég kem ekki til baka. Allt í einu fór Jack að ryðja sér braut gegnum gestaskarann í átt að dyrunum tíl að fara á efttr Despiére. Ef maður er að fara í stríð, hversu lítíð sem það er. hugsaði hann, þá ætti vinur háns að minnsta kostí að geta farið úr kokkteilvéizlú og fylgt honum. Að minnsta kostí dá- lítið áleiðis. Að minnsta kostí að næsta leigubfl. En þegar hann kom að dyr- unurrr kom nýr gestahópur inn og varnaði honum útgöngu, oe áður en honum tókst að troðast í gegn, fann hann að hönd tók fast um olnbogann á honum og hélt aftur af honum. Jack sneri sér við og sá. að það var Stiles sem stóð þama og brosti eins og gervikarl. — Hæ, bróðir, sagði Stiles. — Ég hef ætlað að ná í yður í allt kvöld. — Afsakið mig. má það ekki bíða þangað tíl seinna, sagði Jack og reyndi að losa sig án þess að það vekti of mikla at- hygli. en Stiles. sem var stór og sterklegur. tók fastar í hann. — Svona er ekki hægt að fara að ráði sínu við gamlan vin, sagði Stiles. — Þér ætlið þó ekki að segja mér, að þér mun- ið ekki eftír mér. herra Royal. — Jú, ég man vel efttr yður, sagði Jack. Hann kipptí snögg- lega að sér handleggnum og losnaði, en Stíles var furðu snöggur að smeygja sér milli hans og dyranna. Mennimir tveir ^stóðu auglití tíl auglitis. Sttles var enn með drykkju- mannsbrosið á andlitinu og hann hlakkaði til að gera uppistand. Ég nenni því ekki. hugsaði Jack. Enda er ég búinn að missa af Jean-Baptiste. — Hvað viljið þér? spurði Jack stuttur í spuna. Hann var dálítið miður sín í návist leik- arans, fann til hlægilegrar sekt- arkenndar. — Ég hélt kannski að við tveir gætum rabbað saman í huggu- legheitum, sagði Stiles. Hann talaði á undarlega stírðlegan hátt, hreyfði naumast munninn. kvöldgrímu drykkjumannsins. — Um list og leik og þvf íkt. Ég er einn af yðar gömlu aðdáend- um. Þegar ég byriaði að , leika, reyndi ég að líta út og tala eins og þér. Hann hló andstutt- ur. — Og nú fáið þér peninga fyrrr að tala eins og ég. Lífið er svei mér skrýtíð, ha. Jack? Hann riðaði dálítíð á fótunum, rak andlitíð upp að andlití Jacks, ginþefurinn stóð útúr honum og drykkurinn i glasi hans sullaðist yfir barmaná og blettaði bux- umar hans án þess að hann tæki eftíT því. — Þér ætlið þó ekki að neita því. Jack? Þetta lymskulega baktjaldamakk. Þér voruð alltaf álitínn heiðarlegur maður — þér ætlið þó ekki að reyna að neita því, ha? — Ég hef ekki hugsað mér að neita einu eða neinu, sagði Jack. — Þér hafið séð mig leika, — já. — Þér ættuð að vera manna dómbærastur á leik minn í dag, sagði Stíles hárri röddu. — Haf- ið þér engin smáheilræði svo að ég gæti bætt mig? — Jú, sagði Jack. — Gangið í bindindisfélag. — Þér eruð hjálparhella. sagði Stíles. — Mikil hjálparhella. Þér talið fjandakomið alveg eins og hún mamma. Hann sötraði úr Marttniglasinu. — Segið mér, hvemig ég læt í eyrum! sagði hann. — Verð ég hátíðlegur og áhyggjufullur? Verð ég angur- vær og harka af mér? Eða karl- mannlegur og raunamæddur? Verður kvenfólkið hrifið af mér, Jack? örlög mín liggja í yðar 29 höndum, Jack. Kastið ekki tíl þess höndunum! — Ég kasta aldrei höndunum til neins! sagði Jack. — Þegar kvikmyndin er tílbú- ín. get ég farið i skaðabótam- m-m-ál. Stiles hló hátt að uppá- tæki sínu. — Hálfa miljón doll- ara. Ég gætí vel notað hálfa miljón dollara. Einkum þegar það fréttíst að þeir hafi orðið að senda boð eftir skrifstofúblók til að lesa inn hlutverkið mitt í Róm. Ég hlýt að hækka í verði við það, ha? — Hættíð þessu voli, sagði Jack, gramur út í þennan gin- flekkaða leikara sem andaði súrt framaní hann. klíndi sér upp að honum og gretti sig uppí andlitið á honum. — Þér getið sjálfum yður um kennt. — Þetta eru ömurlegustu orð sem hægt er að hugsa sér, sagði Stíles og brosti aulalega með froðu í munnvikunum. — Þér getíð sjálfum yður um kennt. Hann hreyfði höndina klunna- lega og kom við öxlina á Jack með glasinu sínu. Glasið datt glamrandi í gólfið. Stiles nennti ekki einu sinni að gá að því. — Þessu hafa þeir gott af, sagði hann og leit þrjózkulega í kring- um sig. — Þetta pakk bauð mér ekki einu sinni. Ég er boðflenn- an í partíinu. Ég er hinn útskúf- aði í Róm. En ég kom samt. Og þeir þora ekki gð segja við mig: — Hypjaðu þig, félagi. þessi veizla er fyrir dömur og pena herra. Ég kom bara til að hitta yður, Jack. Ég er einn af hin- um gömlu aðdáendum yðar, Jack. og ég kom aðeins yðar vegna. Eruð þér ekki snortínn? — Af hverju farið þér ekki heim og sofið úr yður? sagði Jack. — Þér eruð fáfróðiir, Jack. Stiles hristi höfuðið hryggur í bragði. — Svona stór og sterkur maður og þó svona fáfróður. Mig vantar ennþá hálfan lítra uppá að sofna, drengur minn, hálfpott og vel það.... — Jæja. skemmtíð yður vel. Jack bjóst til að fara, en Stiles þreif aftur í hann. Hann var skjálfhentur • en tak hans var þétt. — Bíðið andartak, Jack, sagði Stiles. — Ég er með uppástungu. Röddin varð að hásu hvísli og munnurinn varð slappur. — Far- ið héðan. Hverfið úr borginni. Segið., bófanum honum Delaney að þér hafið skipt um skoðun. Segið að þér hafið ekki geð i yður til þess. Segið að konan yðar liggi fyrir dauðanum. Hvað sem er. Farið í kvöld — gerið það. Jack. Ég spyr ekki hvað þér fáið mikið fyrir þetta, en ég skal borga yður. Borga yður fyrir að gera ekki neitt. Af mínum eigin peningum, sagði hann örvRnaður; hann deplaðd blóðhlaupnum augunum eins og hann væri að reyna að halda aftur af tárum. Farið burt og hvilið yður. Á minn kostnað. Ef þér gerið það, þá lofa ég því að ég skal ekki bragða áfengi fyrr eh myndin er tilbúin.... Hann þagnaði. Hann sleppti handleggnum á Jack. Hann hló hátt og þurrkaði sér um munn- inn. — Þvuh! Ég er bara að gera að gamni mínu. Fjandinn hafi það, mér dytti ekki í hug að borga yður svo mikið sem tíu sent. Þetta var spaug, dreng- ur minn, ég vildi bara vita hvemig þér tækjuð þessu. Hvaða máli skiptír það fyrir mig, fjandakornið? Myndin er nauða- ómerkileg hvort sem er. Kannski ræð ég yður sem minn einka- dreng. Þér getið talað inn fyrir mig í öllum mínum kvikmynd- um. Það táknar kannski nýtt Hf fyrir mig. Skemmtið yðup vel í Róm. drengur minn. Hann klappaði á öxlina á Jack og gekk síf}an teinréttur að glugga, opnaði hann með fyrirgangi og stóð kyrr og starði niður á dimma götuna og dró andann djúpt og hægt og brosti út að eyrum. Jack hefði farið á þessari stundu, þótt enn væri of snemmt að hitta Veronicu, en hann sá að Delaney gaf honum merki að koma. Hann tróð sér gegnum ilmvatnið og blaðrið í fólkinu og gekk framhjá tveim- ur læknum sem drukku greip- fruitsafa úr kampavínsglösum. — Hér er náungi, sagði annar læknanna með Minnisota-fram- burði, — sem fullyrðir að hann notí mjög óvenjulega lækningu á colitis. Hann gefur sjúkling- unum kartöflumauk í fimm daga. Á tveggja tíma fresti í fimm daga. Ekkert annað. Fjögur kíló á dag. — Hvað sagði hann við þig? spurði Delaney, þegar Jack komst til hans og brosti tíl Tui- cino og Barzelli og Tesseti. — Stíles, á ég við. — Hann kvartaði yfir því að hann skyldi ekki vera boðinn hingað í kvöld. sagði Jack. — En það hindraði svínið ekki í því að koma, sagði Delaney. — Sagði hann fleira? — Hann bauðst tíl að borga mér fyrir að hverfa frá Róma- borg í kvöld, sagði Jack. — Fyr- ir að hætta að tala inn. — Jæja, hann veit það þá. sagði Delaney. — En Maurice þó, sagði Tu- cino og brosti með umburðar- lyndi. — Hvemig gaztu búizt við öðru? Við erum í Róm. Enginn hefur getað haldið neinu HiólbarðovlSgerSir OPIÐ ALLA DAGA (LlKA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA) FRAKL. 8TIL22. Cnmmívinnustofan h/{ Skipholti 35, Rcykjavík. minningarspjöld •k Minningarspjöld Sjálfs- bjargaT fást á eftirtöldum stöðum I Reykjavík: Vestur- bæjai Apótek, Melhagi 22. Reykjavíkur Apótek. Austur- stræti. Holts Apótek. Lang- holtsvegi. Garðs Apótek. Hólmgarði 32. Bókabúð Stef- áns Stefánssonar, Laugavegi 8. Bókabúð Isafoldar, Austur- stræti. Bókabúðin Laugames- vegi 52. VerzL Roði, Lauga- vegi 74. — I Hafharfirði: Val- týr Sæmundsson, öldug. 9. Sunanudagur 26. júlí 1964 Skrá yfir umboðsmenn Þjóðviljans úti á iandi AKRANES: Ammundur Gíslason Háholti 12. Sími 1467 AKUREYRI: Pálmi Ólafsson Glerárgötu 7 — 2714 BAKKAFJÖRÐUR: Hilmar Einarsson. BORGARNES: Olgeir Friðfinnsson DALVÍK: Tryggvi Jónsson Karls rauða torgi 24. EYRARBAKKI: Pétur Gíslason GRINDAVÍK: Kjartan Kristófersson Tröð HAFNARF.TÖRÐUR: Sófus Bertelsen Hringbraut 70. Sími 51369. HNtFSDALUR: Helgi Biörnsson HÓLMAVÍK: Ámi E Jónsson, Klukkufelli. HÚSAVÍK: Amór Kristjánsson. HVERAGERÐI: Verzlunin Reykjafoss h/f. IIÖFN, HORNAFIRÐI: Þorsteinn Þorsteinsson. ÍSAFJÖRÐUR: Bókhlaðan h/f. KEFLAVÍK: Magnea Aðalgeirsdóttir Vatnsnesvegi 34. KÓPAVOGUR: Helga Jóhannsd. Ásbraut 19. Sími 40319 NESKAUPSTAÐUR: Skúli Þórðarson. YTRI-NJARÐVÍK: Jóhann Guðmundsson. ÓLAFSF.TÖRÐUR: Sæmundur Ólafsson. ÓLAFSVÍK: Gréta Jóhannsdóttir P ATTPAPHnTPþJ- rtiiðrnirndllT Lúðvíksson. REYÐARFJÖRÐUR: Biörn Jónsson, Reyðarfirði. • SANDGERÐI: Sveinn Pálsson, Suðurgötu 16. SAUÐÁRHPÓHUP • Hulda Sigurbiörnsdóttir, Skagfirðingabraut 37. Sími 189. SELFOSS: Magnús Aðalbiarnarson. Kirk'juvegi 26. SEYÐISFJÖRÐUR: Sigurður Gíslason. SIGLUFJÖRÐUR: Kolbeinn Friðbjarnarson, Suðurgötu 10. Sími 194. SILFURTÚN, Garðahr:. Sigurlaug Gísladóttir, Hof- túni við Vífilsstaðaveg. SKAGASTRÖND: Guðm. Kr. Guðnason. Ægissíðu. STOKKSEYRI: Frímann Sigurðsson, Jaðri. STYKKISHÓLMUR: Erl. Viggósson. VESTMANNAEYJAR• Jón Gunnarsson, Helga- fellsbraut 25. Sími 1567. VOPNAFJÖRÐUR: Sigurður Jónsson. ÞORLÁKSHÖFN: Baldvin Álbertsson. ÞÓRSHÖFN: Hólmgeir Halldórsson. Nýir áskrifendur og aðrir kaupendur geta snúið sér beint til þessara umboðsmanna blaðsins. Sími 17-500. FERDIZT MED LANDSÝN • Seljum farseðla með flugvélum og skipum Greiðsluskilmálar Loftleiða: • FLOGIÐ STRAX - FARGJALD GREITT SlÐAR • Skipuleggjum hópferðir og ein- stakiingsferðir REYNIÐ VIÐSKIPTIN FERÐASKRIFSTOFAN L A N TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 462 — REYKJAVÍK. UMBOÐ LOFTLEIÐA. — ■ Auglýsið í ÞjóðvHjanum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.