Þjóðviljinn - 05.08.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.08.1964, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 4. ágúst 1964 — 29. árgangur — 173. tölublað. Sovézk verklýðsnefnd í boði ASÍ ■ Hingað til landsins er komin sendinefnd frá sovézkum verklýðsfélögum í boði Alþýðusambands íslands. í nefndinni eru þrír fulltrúar — þar af er ein kona er starfar í alþjóðanefnd Sovézka verklýðssambandsins, og einn fulltrúanna er frá verklýðsfélögum í Eistlandi. ■ Nefndin mun nú á ferðalagi um Norður- og Austurland og mun .að líkindum koma aftur til Reykjavíkur að viku liðinni. Bandarískar árásír bœSl af sjó og loftí: BANDARÍKIN BERJAST í NORÐUR-VÍETNAM Ennþá er Jón Kjartansson aflahœstur Samkv. sildveiðiskýrslu Landssambands íslenzkra útvegsmanna stunda nú 241 skip síldveiðar og var meðalafli á skip á mið- nætti s.l. laugardag 7040 mál og tunnu^. 5 skip höfðu aflað yfir 20 þúsund mál og tunnur. 9 skip 15.000 — 20.000, 46 skip 10.000 — 15.000, 82 skip 5.000 — 10.000. 49 skip 3.000 — 5.000 og 50 skip undir 3.000 mál og tunnur. Þau 14 skip sem afla'ð höfðu yfir 15.000 mál og tunnur eru: Jón Kjartanss., Eskif. 22.722 Snæfell, Akureyri, 21.801 Sig. Bjarnason, AK 20.920 Jörundnr III., Rvík 20.680 Sigurpáll, Garði, 20.403 Helga. Reykjavík, 19.429 Höfrungur III., Akr. 17.611 Arni Magnússon, Sandgerði 17.234 Helga Guðm.d., Sandgerði. 16.749 Bjarmi II., Dalvík 16.411 Faxi, Hafnarfirði, 15.563 Ól. Friðbfcrtss., Súg.f. 15.484 Eldborg. Hafnarfirði 15.134 Reynir, VE, 15.108 Síldarskýrslan í heild er birt á 9. síðu. ^WASHINGTON 3/8 — Lyndon Johnson forseti Bandaríkj- anna tilkynnti á mánudag að hann hefði gefið fyrirskipanir um að efla flota og flugstyrk, sem Bandaríkin nota til eft- irlits um Tonkinflóa utan við strönd Norður-Vietnam, og hafi hann jafnframt skipað hersveitunum að reka ekki að- eins hugsanlega árásaraðila á flótta, en gjöreyða þeim. Forsetinn skýrði frá þessu á blaðamannafundi,* sem hann boðaði til á mánudagsmorgun í Hvíta húsinu, eftir að hafa setið fund með ráðgjöfum sínum eft- ir árásina á tundurspillinn Maddox á sunnudag. Tundurspillirinn er 2.200 tonn að stærð og var á eftirlitsferð um Tonkinflóa 80 sjómílur suð- austur af Hanoi, höfuðþprg N- Vietnam og 30 sjómílúr frá ströndinni. þegar þrír tundur- skeytabátar réðust að honum. Þeir skutu þrem tundurskeytum að Maddox og einnig úr 327 mi-llimetra , fallbyssu, en hæfðu ekki og enginn af áhöfninni á Maddox 380 manns særðizt. Maddox svaraði í sömu mynt og kallaði jafnframt á aðstoð og innan stundar voru fjórar F-8 flugvélar af bandaríska flug- vélamóðui-skipinu Ticoncíeroga komnar á vettvang. Þær réðust einnig að tundurskeytabátunum. skutu að þeim eldflaugum og úr fallbyssum. Tundurskeytabátarnir voru hraktir á flótta allir mjög illa útleiknir og logaði einn. Þó þeir hafi ekki haft nein kenni merki er talið að þeir hafi ver- ið frá Norður-Vietnam, þar sem þeir komu þaðan og flúðu þang- að aftur. Forsetinn skýrði frá því að hann hefði gefið 7. bandaríska fl-otanum fleiri nákvæm fyrir- mæli. 1 fyrsta lagi skal eftir- litsferðum um Tonkinflóa haldið áfram og enn fremur verði her- sveitir þar styrktar til muna, öðrum tundurspilli bætt við og njóti þeir stöðugt aðstoðar flug- hersms. 1 maí síðastliðnum var skýrt frá. að i sjöunda flotanum á Kyrrahafi væri samtals 125.skip með 60.000 manna áhöfn, þeirra á meða-1 fjöldi sveita landgöngu- liða og einnig væru í" flotanum 650 flugvélar og þyrlur. Sjöundi flotinn sér -um eftirlit Banda- ríkjamanna á höfum úti frá Sí- beríu til Indónesíu. Sagt er að andrúmsloft í Hvíta húsinu hafi verið friðsam- legt á mánudag og ekki litið svo á. að atburðurinn geti leitt til alvarlegs styrjaldarástands, og ekki beri nauðsyn til ann- arra gagnráðstafana, en svara öllum ögrunum gegn Bandaríkj- unum rækilega. Bandarikin munu mótmæia þessum atburði mjög harðlega í orðsendingu, sem ákveðið er að senda stjóminni í Norð-ur-Viet- nam. Samkvæmt frétt frá fréttastof- unni Nýja Kína, hefur dagblaðið Nhan Dan í Norður-Vietnam á- sakað Bandaríkin um að hafa gert loftárásir á bæ 20 km inn- an við landamærin við Laos og á tvær eyjar í Tonkinflóa. Blaðið segir einnig að Laos- stjórnin beri þunga ábyrgð á loftárásum þéssum, þar sem hún hafi veitt bandarísku heims- valdasinnunum aðstöðu í land- inu til árása á Norður-Vietnam. Uianríkisráðuneyti Bandaríkj- anna telur þessar ásakanir gjörsamlega tilhæfulausar. 5 bandarísk orustuskip lögðu úr höfn í Hong Kong 12 tím- um fyrir áætlaðan tíma í dag. Talsmaður bandarísku land- göngusveitanna játaði þessu, en kvað það ekki hafa neina sér- staka þýðingu. Seinnipartinn í dag skýrði út- varpið í Moskvu fró sovézkum viðhorfum til atburðarins í Ton- kinflóa. Því var haldið fram að sjón- arspil það. sem Bandaríkin hefðu sett á svið í Tonkinflóa Framhald á 3. síðu. Rangermynd og km fjarlægð frá tunglinu hluta af Skýjahafinu. Minnstu gígarnir sem sjást á eru um það bil 2,5 km. í þvermál. í um 730 og sýnir myndinni fleiri á 3. síðu Síldin mjög djúpt úti og veiði treg Samkvæmt upplýsingum síldar- Ieitarinnar á Dalatanga var síldveiðin um helgina mjög dræm. Bezti aflinn var í fyrri- Vegaþjónusta FIB gafst vel um verzlunarmannahelgina Félag íslenzkra bifreiðaeig- enda hélt uppi þjónustu fyrir ferðamenn á þjóðvegum um Ólögleg laxveiði í Hafnarfjarðarhöín Fyrir nokkru urðu Hafn- firðingar þess varir að lax var farinn að skvetta sér víða í höfninni, eins og einnig varð vart í fyrrasumar. Virð- ist það vera orðið árvisst að lax leiti þar í höfnina. Trú- legt er að þetta sé lax, sem óx upp í eldisstöð við Þórs- berg ofan við Hafnarfjörð og slapp út í Hafnarfjarðarlæk fyrir nokkrum árum. Þessi lax er 4—6 pund og héfur verið nokkum tíma i læknum en farið út í sjó í fyrravor sem gönguseiði og leitar nú til uppeldisstöðvanna aftur eins og átthagavísum lax sæmir Þegar laxinn fór að sýna sig í höfninni kom veiðigleðin upp í Hafnfirðingum og margur setti stöng í sjó, en aðrir voru stórtækari og dreifðu netum um alla höfn, og fá þeir allgóða veiði í net- in. Á kvöldin þegar gott er veður er jafnan fjölmenni, sem fylgist með veiðunum af áhuga. Nú væri allt gott um þetta að segja, ef ekki vildi svo til að í veiðilögunum, sem fyrst voru sett árið 1932, er þessi setning: .,Bannað er að veiða lax í sjó“. Virðist nokkuð auðskilið að þessi layaveiði í höfninni í Hafnarfirði er bönnuð að lögum og furðulegt Framhald á 9. síðu. verzlunarmannahelgina. Einkum voru hjálparbifreiðar félagsins á Suður- og Vesturlandi og uppi í Borgarfirði. Tvær bifreiðar voru í kringum Akureyri og ein á Austf jörðum. Þjóðviljinn hafði í gær tal af skrifstofu FÍB og var tjáð að ferðamenn hefðu notað mikið þjónustu félagsins. Ekki var Ijóst hversu mikil aðstoð var veitt á vegum félagsins í hefld en skýrslur voru komnar frá átta bifreiðum sem aðstoðuðu alls 83 bíla á vegunum. Alls voru bílarnir 15, þar af ein sjúkrabifreið sem flutti táls- vert af slösuðu fólki einkum úr Þórsmörk til Reykjavíkur og Selfoss. Mikil bót var að þessari þjón- ustu bifreiðaeigenda. Höfðu þeir í frammi mikila auglýsingastarí- semi og’ talstöðvar í öllum bíl- um til þess að vegfarendur gætu sem bezt vitað hvert leita bæri um aðstoð. Vel heppnaðar skemmt- anir um verzlunar- mannahelgina. — Sjá síðu 12. Eldflaugarskot á hádegi í dag? ■ Eldflaugarskoti Frakkanna sem átti að verða á mið- nætti síðastliðna nótt var frestað vegna veðurs að þvi er tíðindamaður blaðsins fregnaði á Eðlisfræðistofnun Háskólans í gærkvöldi. ■ Fyrirhugað er að skjóta eldflauginni á loft um hádegið í dag og var veðurútlit hagstætt í gærkvöldi til þess að svo gæti orðið. nótt en þá fengu 39 skip samtaL rösklcga 30 þúsund mál og tunn- ur. Síldin veiddist nú mjög langt undan landi og voru skipin á þrem svæðum í gær, 150, 200 og 250 sjómílur út af Dalatanga, og eru skipin á annan sólarhring að sigla til Seydisfjarðar þau sem eru lengst undan. Engin síld hefur veiðzt nær landi en þetta. Þó var síldarleitinni á Dalatanga kunnugt um eitt skip er hafði fengið 1000 tunnur um 80 sjómílur norðaustur af Rauf- arhöfn. Sxldin fer langmest í bræðslu enda er hún bæði misjöfn og orðin gömul, þegar skipin koma með hana að landi. I fyrrakvöld fengu þó 5 eða 6 bát- ar góða síld af þeim sem voru grynnst undan. Kyrrt veður var á miðunum í gær en þoka og súld. Níu námumönnum bjargað í gær eftir viku innilokun CHAMPAGNOLE 4/8 — Allir níu frönsku námuverka- mennirnir, sem hafa verið innilokaðir í kalksteinsnámu í Champagnole í Austur-Frakklandi síðan á mánudag í fyrri viku náðust heilir á húfi upp á yfirborð jarðar í kvöld. Kl. 16.16 komst fyrsti verkamaðurinn upp og 85 mínútum síðar var sá síðasti verkstjórinn Martinet kominn hress í bragði. Flestir verkamannanna voru miklu betur á sig kommr en við hafði verið búizt eftir svo langa dvöl neð- an’járðar. Það lá vel á verkamönnunum niður í námunni, þegar stóri bor- inn kom nið'ur úr þakinu á gryf ju þeirri, sém þeir I 'rðust í og foringi þeirra Andre Marin- et gat með jöfnu millibili gefið skýrslu um að allt gengi vel og þeir biðu þess þolinmóðir að sjá björgunarhylkið koma niður. Þetta gerðist fyrir hádegi í morgun, síðan var unnið að því að stýrkja göngin, klæða þau innan með stálþynnum og loks var björgunarhylkið. sem er úr stáii sent niður. Fyrstur upp á yfirborðið var Michel Jacques, og var stra: bundið fyrir augu hans, sv hann skaðaðist ekki á sjón efti að hafa setið svo iengi í myrkr inu. Hann virtist bara vel hald inn, þegar hann var studdur a sjúkrabílnum. sem ók honur beint sjúkrahúsið til rann sóknar. Ástvinir verkamannanna höfð fengið boð um það. að þeir gæt ekki hitt þá fyrr en að lokinr rannsókn á sjúkrahúsinu og bið- því þar. En aðrir íbúar, Champ agnole höfðu tekið sér stöð' meðfram veginum frá námunn og inn í bæinn. Lögreglan va og á verði meðfram veginum. Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.