Þjóðviljinn - 05.08.1964, Side 3
Sunnudagur 2. ágúst 1964
HöÐvranai
SlÐA 3
Myndirnar sem Ranger 7 sendi af yfírborði tang/sins
L,EOPOLDVIL,L,E 4/8 — Þegar I
tvær flugvélar höfðu flutt á
brott samtals 75 Evrópumenn
fyrri hluta þriðjudags frá Stan-
leyvilli í Kongó, ' héldu upp-
rcisnarhermenn inn í bæinn.
Á þriðjudagskvöld bárust
fregnir um skothríð á götum
bæjarins. Bandaríski konsúllinn
í Stanleyville hefur skýrt frá
því, að barizt hafi verið á göt-
unum utan við ræðismannsbú-
staðinn. Og margt þykir benda
til þess að stjórnarliðar verjist
vel.
Evrópumennirnir 75, sem voru
fluttir á brott flugu til Leopold-
ville. 1 fyrri vélinni voru S7
Belgar. en í næstu voru aðal-
lega starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna.
Áður höfðu fjórar aðrar flug-
vélar verið sendar til Stanley-
ville til að sækja þá hvíta menn,
sem eftir voru, aðallega starfs-
menn SÞ og fjölskyldur þeirra.
Síðustu skilaboð frá banda-
ríska ræðismannsbústaðnum
lýstu orustunni fyrir utan hann
og síðasta hljóðaði svo: Það er
skothríð á götunni hér beint
fyrir framan og ég eK 'farin
heim.
-A- ^
Talið erað u.þ.b. 600 her-
menn séu í hersveitum ríkis-
stjórnarinnar í Stanleyvillehér-
aði.
Josep Mobutu hershöfðingi
hefur lýst því yfir, að hermönn-
unum hafi verið fyrirskipað að
hertaka bæinn aftur.
Myndirnar sem Ranger 7 sendi frá tunglinu voru þúsund sinnum
greinilegri en nokkrar þær myndir sem áður höfðu verið teknar
í sjónaukum frá jöröinni. Það er talið að taka muni mánuði og
ár að kanna allar þær rúmlega 4.000 myndir sem Ranger sendi
til jarðar, en þær sem þegar hafa verið birtar hafa leitt í Ijós
margvíslega nýja vitneskju um þennan nágranna okkar sem menn
áður aðeins getið sér -til um. Þess má sérstaklega geta að
nú telja menn sig vita í fyrsta sinn fyrir vissu að eldur hefur
lifað í tunglinu og lifir jafnvel enn. Stóra myndin hér að ofan
var tekin í sömu fiarlægð og sú á fyrstu síðu og sýnir sama
svæði, en væntanlega öliu skýrar. — Myndin hér við hliðina
er tekin úr 25 km fjarlægð. Ranger hélt áfram að taka myndir
og senda til jarðar þangað til hann átti eftir um 600 metra til
tunglsins, og það eru einmitt þær myndir sem Iengst mun taka
að skilja.
Bætt sambúð Stórveldanna
MOSKVU 3/8 — Sovézkir og
bandarískir rithöfundar, vís-
indamenn og kennarar lýstu því
yfir í Moskvu á mánudag að
Iokinni vikulangri ráðstefnu, að
bæði löndin ættu að stíga frek-
ari skref til aukinna menning-
ar- og vísindasamskipta.
Ráðstefnan, sem haldin var í
Leníngrad var hin fjórða svo-
nefnda Dartmouthráðstefna og
er liður í- þeim einka samskipt-
um bandarískra og sovézkra
menntamanna, sem hófust í há-
skólanum í Dartmouth í New
Hampshire í Bandaríkjunum
1960.
Fulltrúarnir sögðu á blaða-
mannafundi á mánudag, að við-
ræður þeirra hefðu verið opin-
skáar og nytsamar. Þeir hefðu
rætt afvopnunarmál og fjölda
annarra brýnna heimsmála svo
sem og samskipti Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna.
Meðal hinna 16 bandarísku
þátttakenda voru David Rocke-
feller bankastjóri Chase Man-
hattan banka, rithöfundurinn
James Michener og prófessor
John K. Galbraith fyrrum sendi-
herra Bandariíikjanna í Indlandi.
í sameiginlegri yfirlýsingu
segir að fulltrúar hafi skipzt á
skoðunum í vinsemd, góðvilja
og hreinski’lni, sem hefði gert
þeim kleift að skilja viðhorf
og áhugamál hverra annarra.
Tekur ár að kanna
Rangermyndirnar
HVERJAR VILJA FARA TIL
GLASGOW
í 8 mánuði eða lengur. — Tvser koma til
greina.. Upplýsingar í síma 109 Hvera-
gerði, frá kl. 6—8,30 e.h.
PASADENA 3/8 — Það mun
taka marga mánuði og senni-
lega nokkur ár að Ijúka könn-
un á myndunum sem Ranger
7. sendi til jarðar af yfirborði
tunglsins, sagði einn banda-
rísku vísindamannanna, dr.
Gerhard Kuiper, í dag.
Snemma á næsta ári er ætl-
unin að senda tvö ný Ranger-
för til tunglsins, en áður en
þær tilraunir verða gerðar
verða send frá Bandaríkjun-
um tvö geimför af Mariner-
gerð til þess að taka myndÍT
af Mars. Ætlunin er að Marin-
erförin verði send á braut um-
hverfis plánetuna. Hagstæðasti
tíminn til að senda þau af
stað er í lok októbermánaðar.
Þau eiga að taka myndir af
Mars í u.þ.b. 25.000 km fjar-
lægð. Ferðin þangað mun taka
um átta mánuði.
Sovézka blaðið „Isvestía“
lauk í gær miklu lofsorði á
Rangertilraun Bandaríkja-
manna og sagði um myndirn-
ar sem Ranger sendi af tungl-
yfirborðinu væru mikilvægur
skerfur til aukinnar þekking-
ar á tunglinu. Sovézkir vísinda-
menn samfagna bandarískum
félögum sínum og senda þeim
heillaóskir, sagði blaðið. Það
tók þó fram, að bezta leiðintil
að kanna yfirborð tunglsins
myndi vera að senda geimfar
á braut umhverfis það.
Þessi tilkynning Iandvarna-
ráffuneytisíns var send út strax
eftir aff Johnson forseti hafði
kallað forystumenn þingsins 1
sinn fund til að gefa þeim
skýrslu um hraðfara þróun mála
í Suðaustur-Asíu.
Bandaríkin berjasf í Norður-Vietnam
Framhald af 1 síðu
væri greinilega liður í áætlun-
um leppstjórnarinnar í Sai-
gon, einræðisherrann í Suður-
Vietnam krefjist þess nú af
bandarískum herrum sínum, að
þeir skipuleggi alvarlegar ögran-
ir gegn alþýðulýðveldinu Norð-
ur-Vietnam.
Friður á þessu svæði verður
því aðeins tryggður, að Banda-
ríkin hætti þegar í stað öllum
afskiptum sínum í Suður-Viet-
nam, sagði fyrirlesari Moskvu-
útvarpsins.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Hanoi í Norður-Vietnam
lýsti því yfir á sunnudag að
bandarískar herflugvélar hefðu
gert loftárásir á bæi i Norður-
Vietnam. Nokkrir hafi særst og
eignatjón orðið
Fjórar bandarískar orustuþot-
ur komu úr átt frá Laos og
skutu eldflaugum að landamæra-
bænum Noong.
’Einnig var skýrt frá því að
Bandaríkin og Suður-Vietnam
hafi á föstudag sent herskip til
að gera sprengjuárásir á eyj-
arnar Hon Me og Hon Ngu inn-
an landhelgi Norður-Vietnam.
SÍÐTJSTU FRÉTTIR
Landvarnaráðuneyti Bandaríkj-
anna gerði þaff kunnugt í kvöld,
að tundurspillarnir bandarísku
Maddox og C. Turner Joy, sem
hafði verið sendur honum til að-
stoffar við ,.eftirlit“ Bandaríkj-
anna fyrir ströndum Norður-
Víetnam hefffu orðið fyrir nýrri
árás tundurskeytabáta frá Norff-
ur-Vietnam á mánudagskvöld
Sagt var að margir tundur-
skeytabátar hefðu tekið þátt í
árásinni í Tonkinflóa, en banda-
risku tundurspillarnir hefðu
hrakið þá á flótta með aðstoð
flugvéla, sökkt tveim þeirra og
laskað aðra tvo
R>ör?iinin
Framhald af 1. síðu.
Síðastur í björgunarhylkið,
sem er ekki nema 44 cm að
þvermáli var foringi námumann-
anna Andre Martinet, þéttvax-
inn kraftakarl, sem hafði hjálp-
að félögum sínum með glaðlyndi
sínu til að leggjast ekki í vol og
víl ' í þessari löngu innilokun.
Áður en hann kom upp hafði
hann beðið björgunarsveitimar
að reiða fram rauðvín og kampa-
vínsflöskur.
Meðan verið var að draga
þessa níu upp. var haldið áfram
að börá í átt til þess staðar. þar
sem áður í vikunni hafði heyrzt
barsmíð neðan úr námunni. Enn
er fimm manna saknað, en síð-
astliðna 48 tíma hefur ekkert
heyrzt frá þessum stað og eru
þeir því taldir af, þó ekki sé
alveg útilokað að einhverjir
þeirra séu enn á lífi, þótt þeir
hafi hvorki fengið vott né þurrt
i átta daga.
Fyrsta lífsmark úr Champag-
nole námunni barst á þriðju-.
daginn var. degi síðar en nám-
an hrundi saman. Björgunarstarf
var þegar hafið. en gekk hægt
framan af.
Björgunarútbúnaður sá sem
nú hefur reynzt svo vel var not-
aður í fyrsta skipti við námu-
slys í Lengode í Vestur-Þýzka-
landi í fyrra,' þar sem 14 námu-
mönnum var bjargað með þess-
um hætti, en þeir höfðu dvalið
13 daga neðanjarðar.
Kynþáttaóeirðir breiðast
út í Norðurfylkjum USA
JERSEY CITY 4/8 — Á mánu-
dag brutust út miklar kynþátta-
óeirðir í Jersey city í New Jers-
ey skammt frá New York. Lög-
reglan barðist við blökkumenn,
sem höfðu verið í kröfugöngu og
í átökunum var grjóti og flösk-
um kastað að lögreglunni og hún
skaut aðvörunarskotum. Þá var
brotizt inn í fjölda búða og rúð-
ur brotnar í óeirðunum.
Fjöldi manns særðist i óeirð-
unum bæði óbreyttir borgarar
og lögregluþjónar.
Á þriðjudag var tveim heima-
tilbúnum íkveikjusprengjum kast
að í bænum, annarri að lög-
reglubíl, en i honum voru lög-
reglumenn, sem voru að rann-
saka óeirðimar frá deginumáður
í blökkumannahverfi borgarinn-
' ar. Sprengjan lenti ekki í bíln-
um. en í ljósastaur og slapp bill-
inn óskemmdur. Þetta er í
fyrsta skipti sem sprengjum er
varpað í Jersey city um há-
bjartan dag.
Rúmlega hundrað lögreglu-
þjónar með stálhjálma, vopnað-
ir kylfum og skotvopnum voru
í dag á verði í blökkumanna-
hverfinu, þar sem enn logar und-
ir niðri.
Slökkvilið bæjarins verður
fyrir miklu ónæði af íkveikju-
tilraunum og fölskum bruna-
köllum.
Samkvæmt fréttum lögregl-
unnar voru 20 manns handteknir
í óeirðunum. Tveir blökkumenn
voru skotnir og 42 særðust.
Fyrr um daginn hafði borgar-
stjórinn Thomas Whelam lýst
því yfir, að það vereta væri nú
afstaðið. En eftir það var se:
sagt sprengjunum tveim kastað
Samningaviðræður borgarstjó
ans og leiðtoga blökkumanna
staðnum um ráðstafanir til þe
að koma í veg fyrir nýjar óeirð
leiddu ekki til neins.
Forystumaður Sameinuðu a
rísku þjóðemisfylkingarinnar
Bandaríkjunum, blökkumaðurir
James Lawson skýrði frá þvi
fundi { blökkumannahverfir
Harlem í New York á laugarda
að 100.000 blökkumenn mu'
taka þátt í mótmælafundi, se
haldinn verður í New York u:
næstu helgi.
Þetta var á fyrsta fundi. se
haldin er í Harlem síðan ky:
þáttaóeirðirnar blossuðu þar ui
á dögunum. Ekki kom til nein:
átaka.
Uppreisnarherinn
tók Stanleyville