Þjóðviljinn - 15.08.1964, Page 4

Þjóðviljinn - 15.08.1964, Page 4
I SIÐA ÞJðÐVILJINN Laugardagur 15. ágúst 1964 Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19, Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl- 90,00 á mánuði. Ofbeldisgleði gumir íslenzkir blaðamenn virðast fylgjast með alþjóðamálum af svipuðu hugarfari og strák- lingur sem horfir á kúrekamynd til þess að dást að því hvernig hetjan snjalla yfirbugar alla and- stæðinga, ofurmannlegur að kröftum og atgervi. Þetta viðhorf kom mjög greinilega fram í Vísi á miðvikudaginn var, en þá birti blaðið ritstjórnar- grein sem nefndist: „Stórfelldur álitshnekkir kín- verskra kommúnista“. Sagði þar að vika væri lið- in frá því að Bandaríkin gerðu árásir sínar á Norð- ur-Víetnam, og síðan var haldið áfram: „Þó þetta langur tími sé liðinn frá aðgerðinni bólar ekki enn á neinum mótaðgerðum Kínverja, og er nú svo- komið að flestir á þessum slóðum eru farnir að skilja það að „stórveldið“ Kína er ekki stærra en það, að það er þess algerlega vailmáttugt að gera nokkrar skjótar gagnráðstafanir. Þannig hafa þessir atburðir orðið kommúnistum á suðaustur Asíu svæðinu til mikils álitshnekkis“. Viðhorf v ; \ götustráksins og kúrekaaðdáandans leynir sér ekki: Komdu ef þú þorir, og ég skal kýla þig! Sí2t skal hér dregið í efa að bandaríski herinn hafi mikinn mátt til þess að rækja þá sérgrein sína að myrða og tortíma, en þó skyldu Vísismenn spara sér hina takmarkalausu valdtilbeiðslu. Bandaríkjamenn og Kínverjar hafa áður átzt við á vígvelli í Kóreu, og um það er.lauk voru Banda- ríkjamenn fegnir að láta samningamenn tala í s'tað vopnanna. Og sú viðureign var enginn ævintýra- atburður á hvítu tjaldi. heldur ógn og blóð og tor- tíming, gereytt land, miljónir manna svip'tar lífi, harmur og þjáningar sem enginn íslendingur get- ur gert sér í hugarlund. Ef Kínverjar hefðu fylgt því lögmáli sem Vísir tignar og bandaríski herinn framkvæmir hefðu hliðstæð örlög verið kölluð yf- ir gervalla Suðaustur-Asíu, þvílík átök hefðu á svipstundu getað orðið að alheimsbáli og einnig vitjað íslands, herstöðvar stórveldisins sem hóf of- beldisárásina á Norður-Víetnam. Eflaust skemmta blaðamenn Vísis sér einnig við spádóma um það hverjir sígra muni í kjarnorkustyrjöld um heim allan, en hætt er við að hvorki þeir né aðrir yrðu til frásagnar um gildi þeirra spádóma. gkrif Vísis vaeru ekki alvarleg ef þau væru aðeins dæmi um viðhorfin hjá einu bemsku flóni, en þau eiga sér öflugri bakhjarl. Þess hefur marg- sinnis orðið vart að ráðamenn hernámsflokkanna íslenzku marka afstöðu sína til alþjóðamála af rómantískri tilbeiðslu á vopnavaldi hins vestræna stórveldis, en ekki af ábyrgðartilfinningu og raun- særri umhyggju fyrir örlögum okkar og annarra. Og sókn Goldwaters í Bandaríkjunum er einmitt til marks um sömu skefialausu ofbeldisgleðina sem birtist, i Vísi, og þar eru að verki öfl sem geta gert sjúka draumóra sína að veruleika.' — m. rmuda-Akureyri 2:1 eftir yfirburði norðanmanna í meira en 60 mínútur Þessi þriðji leikur Bermuda- liðsins er ef til vill bezti leik- urinn sem farið hefúr fram í sambandi við þessa þægilegu heimsókn. Bermudaliðið náði sízt lakari leik en í hinum, en það sem mestu munaði var að lið Akureyrar lék btAri knatt- spymu en hin liðin tvö. Þetta til samans gerði leikinn mjög skemmtilegan, og viö það bætt- ist að hann var sérlega drengi- lega leikinn af beggja hálfu. Það gerði að sjálfsögðu þægi- lega spennu í leikinn að lið Akureyrar hafði yfirburði í leik og möguleikum allan fyrri hálfleikinn og nokkuð fram í síðari hálfleik. Hitt urðu líka vonbrigði hve þeim tókst illa að notfæra sér hin mörgu góðu tækifæri. Það var engu líkara en að þetta mótlæti hefði að lokum lamandi óhrif á leik, þeirra. því þegar 20/ mín. voru af síð- ari hálfl^eik tóku Bermudamenn að gerast all nærgöngulir við mark Akureyrar, og hlífði þá að þeir notuðu illa tækifærin. Spennan og spurningin var nú orðin um það hvort Akureyri tækist að standast storminn eða snúa vörn í sókn og sigra, en það tókst ekki og Bermuda skoitar 7 mín. fyrir leikslok ög tryggir sér þar með eina sigur- inn í heimsókninni. Eftir gangi leiksins ekki rétt- lét úrslit, því Akureyri hefði eftir sipn góða leik í meira en 60 mínútur átt að geta haft minnst tveggja marka fórskot. Eftir sóknarlotu Bermuda í lok leiks og þau tækifæri sem þeir - fengu -hefði •iafntefli verið nær sanni, og Akureyri þó . nær ■ sigrinum. ■ Kári skorar eftir 3 mínútur Það setti að sjáifsögðu spennu í leikinn að Akureyri tókst að skora eftir gott áhiaup þegar á þriðju mínútu leiksins. Var það Valsteinn sem sendi Kára knöttinn en hann var prýðilega staðsettur og skaut óverjandi fyrir Siddle í mark- ið. i Það líða1 ekki nema 4 mínút- ur þar til iitlu munar að þeir skori annað mark. sem að vísu hefði orðið heppnismark. Spyrnt er knetti alllangt í átt- ina að marki.v og sér mark- .maður hvar hann muni detta niður, og fer á móti honum og§> ætlar að taka .hann þegar hann " sprettur upp, en í viðbragðinu rennur hann og hann mó liggj- andi horfa á knöttinn. svífa yf- ir sig og í átt að tómu mark- inu. Varnarmaður hefur þó tóm til að elta hinn hoppandi knött og hleypur allt hvað af tekur og. nær honum fast við línu og bjargar. Þó lítið gerist alvarlegt næstu 25 mínútumar, er sótt og varizt á báða bóga. og eru Akureyringar þó meira í sókn. og mátti oft sjá góða knatt- spyrnu. Á 30. mínútu á fram- vörðurinn Guðni Jónsson mjög gott skot á mark en mark- maður sló yfir, A næstu mínútu eiga Berm- udamenn hættulegt skot en Samúel varði vel. Stuttu síðar er Kári kominn innfyrir og manni virðist sem ekkert sé eftir annað en sora, en mark- maðurinn kemur vel út og lok- ar og ver ótrúlega. Litlu síðar er Skúli Ágústs- son kominn innfvrir og í góðu færi en markmaðurinn ver í horn. Á síðustu mínútu fyrri hálf- leiks sækia Bermudamenn all- fast og vill svo illa til að vam- armaður hittir knöttinn illa. svo að hann fer út til vinstri oc Leveroek eltir hann eins og elding og skaut bótt markið væri lítið. og knötturinn fór í rnarkið. sem má kalla svo- lítla heppni. Það er__ naumast tími til að byrja á nýjan leik, svo litlu munaði að þeim taekist að jafna, og hefði það sagt betur til um gang fyrri hálfleiksins. Bemiudamenn sækja í sig veðrið Til að byrja með hafa Ak- ureyringar sömu tök á leikn- um og fyrr, þó átti Lewis gott skot á mark Akureyringa en Samúel bjargar vel í hom. Og nokkru síðar er Philpott á vítateig, en skotið fór himin- hátt • yfir. og fóraaði hann höndum yfir þessu óhappi sínu! Hvað' eftir annað leika Akur- eyringar knettinum léttilega og leikandi á milli sín að marki Bermuda, en þeim tekst ekki að opna vömina nóg. Á 13. mínútu er Kári kominn. hættu- lega nærri marki og lítið eftir nema að skora, en Weinwright lokar skemmtilega og eyðilagði . möguleikann, og á næstu mín. er það Sævar sem ógnar Berm- uda með hörkuskoti sem mark- mpður ver alveg snilldarlega í hom. Nú tóku Akureyringar held- ur að gefa sig. og ekki ósenni- legt að ^hin mörgu misnotuðu tækifæri hafi haft lamandi á- hrif á þá, og líklegra að sú bafi verið ástæðan fremur en úthaldsleysi. Á 16. mínútu á Philpott hörkuskot sem Samuel varði mjög vel í hom. Á 20, mínútu, fær Valsteinn knöttinn út til vinstri og ein- leikur fram og endar með skoti í stöngina. og litlu síðar er Valsteinn í góðu færi á mark- teig, en skotið fór rétt yfir. 'Á næstu 5 mínútum eiga Bermudamenn nær óslitna sókn. og á þessum mfnútum eiga þeir þrjú opin tækifæri, sem Samuel á mestan heiður- ’inn af að verja. , Sóknaröldumar skella á vöm Akureýringa hvað eftir annað og eiga þeir í vök að verjast. Ætlar Philpott nú að gera út um þetta með góðu skoti úr opnu færi en allt kom fyrir ekki. Samuel varði! Þar kom þó ,að þeir fengu ekki staðizt sókn Btermuda. Wright. eltir knöttinn upp að endamörkum vinstra megin og tekst að koma honum fyrir markið, en þangað er þá kom- inn hægri framvörður Ingham öllum að óvörum og skallar fast og örugglega í markið, 6- verjandi fyrir Samúel! Eins og fjarrænt sælúbros breiddist yf- ir þeldökkt og breitt andlit- ið. og hleypur hann til stöðu sinnar, en áður en varði sóttu félagar hans að honum, föðm- uðu hann og kysstu í einlægri gleði yfir því að hafa nú tek- ið forustuna' Þrátt fyrir nokkrar tilraun- ir tókst Akureyri ekki að jafna, við þetta sat til leiks- loka. Bermudamennimir tóku sér stöðu við útganginn frá vellinum og stóðu heiðursvörð er mótherjamir gengu út af vellinum. Síðan gengu þeir spölkom útá völlinn. hneigðu sig í þakklætis- og kveðju- skyni. Smekklegt og einlægt eins og þessir geðþekku menn voru. Og það var mál manna að þarna á Akureyri hefði aldrei verið leikinn eins skemmtileg- ur og drengilegur leikur, og fengu gestimir mikið lófatak þar sem þeir stóðu inni á vell- inurri og eins er þeir sýndu góð tilþrif í keppninni. Skemmtilegur leikur Akureyringa Eins og lið Akureyrar lék í fyrri hálfleik og langt fram í síðari sýndi það betri leik en ég hef séð í sumar hjá ís- lenzku liði, það mátti segja að það gengi eins og vel smurð vél þar sem hjólin féllu hnökralaust hvert að öðru. Þeir ráða allir yfir góðri leikni, og þeir hafa tileinkað sér leikandi samleik, sem meira að segja se<V svo gott lið. eins og Bermuda er. svo útaf laginu að þeir höfðu tögl og hagldir langtímum. Þeir eiga mjög gott með að finna hver annan, og þeir temja sér mjög innanfótar sendingar þar sem knötturinn „skríður" í grasinu. og skiptingar þeirra og hreyfingar eru þannig. að það virðist vera svo auðvelt að gera þetta. Hinar stuttu óvæntu hliðar- sendingar. til mannsins sem er viðbúinn settu oft Bermuda- mennina útaf laginu. Þeir ,kunnu líka í undragóðum stíl að láta knöttinn ganga fram og aftur án þess að tefja áhlaup- ið. það var sótt að markinu í fullum hlaupum, en þeir virð- ast skilja og vita að knöttur- inn fer margfalt hraðar en maðurinn sem hleypur með hann. Skotin virtust vera þeirra heldur véika hlið, eða ef til vill óheppni f þéssum leik. Það má segja að þetta sé kpmungt lið, 9 þeirra eru 21 árs og yngri. Jón Stefánsson er aldursforsetinn. Af mönnum þeim sem lefka úti á vellinum er erfltt að gera mikið upp á milli manrjanna. Það er ef til vill styVur liðs- ins hve jafnt það er, og hve líkan skilning þeir virðast hafa á því hvemig eigi að leika knattspymu. Ef til vill mætti nefna Kára sem vann mjög mikið og féll miklu betur iriní þetta lið en hann hefur gert í úrvalsliðum í sumar, einnig Guðna og Magnús Jónatansson meðan hans naut við, en hann meiddist í ökla, og getur senni- lega ekki leikið meira í sumar. en ungi maðurinn Pétur Sig- urðsson virtist kunna ýmislegt fyrir sér þó hann fyllti ekki alveg skarð Magnúsar. Sævar Jónsson lék í stöðu miðherja í stað Steingríms sem er veik- ur á fæti og gerði margt lag- lega. En sem sagt eins og liðið lék á móti Bermuda-mönnum v»- einginn veikur hlekk’- þess að um „stjörnur' ræða 1 þess orðs mer! Hinn ungi markmað ins. Samúel Jóhannsson. lofar mjög góðu, og leikur hans var framúrskarandi og vona ég að ég megi segja þennan sann- leika, og að það verði ekki til þess að skemma þetta góða efni, en þó vel hafi tekizt þetta kvöld er leiðin enn löng til hinnar ðruggu fullkomnun- ■ar, það skyldu allir ungir menn hafa í huga. Þó hér hafi verið sagt að þetta Akureyrarlið hafi leikið betri knattspymu en ég hef séð í sumar. er ekki þar með sagt að það hljóti að vinna alla leiki, svona ungt lið geta keppnisreynd lið brotið niður. En það breytir engu um það , að það er mín bjargfasta trú að þessir ungu menn séu á réttri leið, og ef þeir halda saman ætti í þeim að búa skemmtilegt framtiðarlið, sem ætti að geta gefið fordæmi. Beztu menn Bermuda voru markmennirnir. og ef til vill hægri framvörðurinn Ingham, 6em gerði margt mjög skemmtileet. Daniels var einn- Framhald á 3. síðu. Meistaramót íslands hefst á Laugardalsvelli í dag Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum verð- ur haldið um þessa helgi. Þátttaka er nú meiri en verið hefur í mörg ár, um 70 keppendur frá 9 íþróttafélögum. Tekst Jóni Þ. Ólafssyni að ná lágmarksaíroki á CL? Til þess þarf hann að stökkva 3.06 m á meistaramótinu í dag. Þetta er í 39. sinn sem meistaramótið er haldið og hefst keppni í dag kl. 3 á Laugardalsvellinum og verður fram haldið á, sama tíma á morgun. f dag verður keppt í 200 m hl., kúluvarpi, hástökki, 800 m hl„ 5000 m hl„ spjót- kasti, langstökki, 400 m grinda- hlaUpi og 4x400 m boðhlaupi. Samhliða meistaramótinu verður keppt í fimmtarþraut kvenna og 80 m grindahlaupi kvemna. flestir beztu frjálsíþrótta- menn landsins taka þátt í mót_ inu og er talsverð þátttaka ut- an af landi. Búast má við skemmtilegri keppni í flestum greinum og góðum árangri. Sérstaklega eru menn spennt- ir að vita hvort Jóni Þ. Ólafs- syni tekst að ná lágmarkshæð í hástökki til að komast á OL, bað er 2.06 m Friálsíþróttadeild KR sér um mótið. yfirdómari er Eiríkur Pálsson og leikstjóri Einar Frí- mannsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.