Þjóðviljinn - 15.08.1964, Síða 4
I
SIÐA
ÞJðÐVILJINN
Laugardagur 15. ágúst 1964
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl- 90,00 á mánuði.
Ofbeldisgleði
gumir íslenzkir blaðamenn virðast fylgjast með
alþjóðamálum af svipuðu hugarfari og strák-
lingur sem horfir á kúrekamynd til þess að dást
að því hvernig hetjan snjalla yfirbugar alla and-
stæðinga, ofurmannlegur að kröftum og atgervi.
Þetta viðhorf kom mjög greinilega fram í Vísi á
miðvikudaginn var, en þá birti blaðið ritstjórnar-
grein sem nefndist: „Stórfelldur álitshnekkir kín-
verskra kommúnista“. Sagði þar að vika væri lið-
in frá því að Bandaríkin gerðu árásir sínar á Norð-
ur-Víetnam, og síðan var haldið áfram: „Þó þetta
langur tími sé liðinn frá aðgerðinni bólar ekki enn
á neinum mótaðgerðum Kínverja, og er nú svo-
komið að flestir á þessum slóðum eru farnir að
skilja það að „stórveldið“ Kína er ekki stærra
en það, að það er þess algerlega vailmáttugt að
gera nokkrar skjótar gagnráðstafanir. Þannig hafa
þessir atburðir orðið kommúnistum á suðaustur
Asíu svæðinu til mikils álitshnekkis“. Viðhorf
v ; \
götustráksins og kúrekaaðdáandans leynir sér
ekki: Komdu ef þú þorir, og ég skal kýla þig!
Sí2t skal hér dregið í efa að bandaríski herinn
hafi mikinn mátt til þess að rækja þá sérgrein
sína að myrða og tortíma, en þó skyldu Vísismenn
spara sér hina takmarkalausu valdtilbeiðslu.
Bandaríkjamenn og Kínverjar hafa áður átzt við
á vígvelli í Kóreu, og um það er.lauk voru Banda-
ríkjamenn fegnir að láta samningamenn tala í s'tað
vopnanna. Og sú viðureign var enginn ævintýra-
atburður á hvítu tjaldi. heldur ógn og blóð og tor-
tíming, gereytt land, miljónir manna svip'tar lífi,
harmur og þjáningar sem enginn íslendingur get-
ur gert sér í hugarlund. Ef Kínverjar hefðu fylgt
því lögmáli sem Vísir tignar og bandaríski herinn
framkvæmir hefðu hliðstæð örlög verið kölluð yf-
ir gervalla Suðaustur-Asíu, þvílík átök hefðu á
svipstundu getað orðið að alheimsbáli og einnig
vitjað íslands, herstöðvar stórveldisins sem hóf of-
beldisárásina á Norður-Víetnam. Eflaust skemmta
blaðamenn Vísis sér einnig við spádóma um það
hverjir sígra muni í kjarnorkustyrjöld um heim
allan, en hætt er við að hvorki þeir né aðrir yrðu
til frásagnar um gildi þeirra spádóma.
gkrif Vísis vaeru ekki alvarleg ef þau væru aðeins
dæmi um viðhorfin hjá einu bemsku flóni, en
þau eiga sér öflugri bakhjarl. Þess hefur marg-
sinnis orðið vart að ráðamenn hernámsflokkanna
íslenzku marka afstöðu sína til alþjóðamála af
rómantískri tilbeiðslu á vopnavaldi hins vestræna
stórveldis, en ekki af ábyrgðartilfinningu og raun-
særri umhyggju fyrir örlögum okkar og annarra.
Og sókn Goldwaters í Bandaríkjunum er einmitt
til marks um sömu skefialausu ofbeldisgleðina
sem birtist, i Vísi, og þar eru að verki öfl sem geta
gert sjúka draumóra sína að veruleika.' — m.
rmuda-Akureyri 2:1
eftir yfirburði norðanmanna í meira
en 60 mínútur
Þessi þriðji leikur Bermuda-
liðsins er ef til vill bezti leik-
urinn sem farið hefúr fram í
sambandi við þessa þægilegu
heimsókn. Bermudaliðið náði
sízt lakari leik en í hinum, en
það sem mestu munaði var að
lið Akureyrar lék btAri knatt-
spymu en hin liðin tvö. Þetta
til samans gerði leikinn mjög
skemmtilegan, og viö það bætt-
ist að hann var sérlega drengi-
lega leikinn af beggja hálfu.
Það gerði að sjálfsögðu þægi-
lega spennu í leikinn að lið
Akureyrar hafði yfirburði í
leik og möguleikum allan fyrri
hálfleikinn og nokkuð fram í
síðari hálfleik. Hitt urðu líka
vonbrigði hve þeim tókst illa
að notfæra sér hin mörgu góðu
tækifæri.
Það var engu líkara en að
þetta mótlæti hefði að lokum
lamandi óhrif á leik, þeirra.
því þegar 20/ mín. voru af síð-
ari hálfl^eik tóku Bermudamenn
að gerast all nærgöngulir við
mark Akureyrar, og hlífði þá
að þeir notuðu illa tækifærin.
Spennan og spurningin var nú
orðin um það hvort Akureyri
tækist að standast storminn
eða snúa vörn í sókn og sigra,
en það tókst ekki og Bermuda
skoitar 7 mín. fyrir leikslok ög
tryggir sér þar með eina sigur-
inn í heimsókninni.
Eftir gangi leiksins ekki rétt-
lét úrslit, því Akureyri hefði
eftir sipn góða leik í meira en
60 mínútur átt að geta haft
minnst tveggja marka fórskot.
Eftir sóknarlotu Bermuda í lok
leiks og þau tækifæri sem þeir
- fengu -hefði •iafntefli verið nær
sanni, og Akureyri þó . nær
■ sigrinum.
■ Kári skorar eftir 3 mínútur
Það setti að sjáifsögðu
spennu í leikinn að Akureyri
tókst að skora eftir gott áhiaup
þegar á þriðju mínútu leiksins.
Var það Valsteinn sem sendi
Kára knöttinn en hann var
prýðilega staðsettur og skaut
óverjandi fyrir Siddle í mark-
ið. i
Það líða1 ekki nema 4 mínút-
ur þar til iitlu munar að þeir
skori annað mark. sem að vísu
hefði orðið heppnismark.
Spyrnt er knetti alllangt í átt-
ina að marki.v og sér mark-
.maður hvar hann muni detta
niður, og fer á móti honum og§>
ætlar að taka .hann þegar hann
" sprettur upp, en í viðbragðinu
rennur hann og hann mó liggj-
andi horfa á knöttinn. svífa yf-
ir sig og í átt að tómu mark-
inu.
Varnarmaður hefur þó tóm
til að elta hinn hoppandi knött
og hleypur allt hvað af tekur
og. nær honum fast við línu
og bjargar.
Þó lítið gerist alvarlegt
næstu 25 mínútumar, er sótt
og varizt á báða bóga. og eru
Akureyringar þó meira í sókn.
og mátti oft sjá góða knatt-
spyrnu. Á 30. mínútu á fram-
vörðurinn Guðni Jónsson mjög
gott skot á mark en mark-
maður sló yfir,
A næstu mínútu eiga Berm-
udamenn hættulegt skot en
Samúel varði vel. Stuttu síðar
er Kári kominn innfyrir og
manni virðist sem ekkert sé
eftir annað en sora, en mark-
maðurinn kemur vel út og lok-
ar og ver ótrúlega.
Litlu síðar er Skúli Ágústs-
son kominn innfvrir og í góðu
færi en markmaðurinn ver í
horn.
Á síðustu mínútu fyrri hálf-
leiks sækia Bermudamenn all-
fast og vill svo illa til að vam-
armaður hittir knöttinn illa.
svo að hann fer út til vinstri
oc Leveroek eltir hann eins og
elding og skaut bótt markið
væri lítið. og knötturinn fór
í rnarkið. sem má kalla svo-
lítla heppni.
Það er__ naumast tími til að
byrja á nýjan leik, svo litlu
munaði að þeim taekist að
jafna, og hefði það sagt betur
til um gang fyrri hálfleiksins.
Bemiudamenn sækja í sig
veðrið
Til að byrja með hafa Ak-
ureyringar sömu tök á leikn-
um og fyrr, þó átti Lewis gott
skot á mark Akureyringa en
Samúel bjargar vel í hom. Og
nokkru síðar er Philpott á
vítateig, en skotið fór himin-
hátt • yfir. og fóraaði hann
höndum yfir þessu óhappi
sínu!
Hvað' eftir annað leika Akur-
eyringar knettinum léttilega og
leikandi á milli sín að marki
Bermuda, en þeim tekst ekki
að opna vömina nóg. Á 13.
mínútu er Kári kominn. hættu-
lega nærri marki og lítið eftir
nema að skora, en Weinwright
lokar skemmtilega og eyðilagði .
möguleikann, og á næstu mín.
er það Sævar sem ógnar Berm-
uda með hörkuskoti sem mark-
mpður ver alveg snilldarlega
í hom.
Nú tóku Akureyringar held-
ur að gefa sig. og ekki ósenni-
legt að ^hin mörgu misnotuðu
tækifæri hafi haft lamandi á-
hrif á þá, og líklegra að sú
bafi verið ástæðan fremur en
úthaldsleysi.
Á 16. mínútu á Philpott
hörkuskot sem Samuel varði
mjög vel í hom.
Á 20, mínútu, fær Valsteinn
knöttinn út til vinstri og ein-
leikur fram og endar með skoti
í stöngina. og litlu síðar er
Valsteinn í góðu færi á mark-
teig, en skotið fór rétt yfir.
'Á næstu 5 mínútum eiga
Bermudamenn nær óslitna
sókn. og á þessum mfnútum
eiga þeir þrjú opin tækifæri,
sem Samuel á mestan heiður-
’inn af að verja.
, Sóknaröldumar skella á vöm
Akureýringa hvað eftir annað
og eiga þeir í vök að verjast.
Ætlar Philpott nú að gera út
um þetta með góðu skoti úr
opnu færi en allt kom fyrir
ekki. Samuel varði!
Þar kom þó ,að þeir fengu
ekki staðizt sókn Btermuda.
Wright. eltir knöttinn upp að
endamörkum vinstra megin
og tekst að koma honum fyrir
markið, en þangað er þá kom-
inn hægri framvörður Ingham
öllum að óvörum og skallar
fast og örugglega í markið, 6-
verjandi fyrir Samúel! Eins og
fjarrænt sælúbros breiddist yf-
ir þeldökkt og breitt andlit-
ið. og hleypur hann til stöðu
sinnar, en áður en varði sóttu
félagar hans að honum, föðm-
uðu hann og kysstu í einlægri
gleði yfir því að hafa nú tek-
ið forustuna'
Þrátt fyrir nokkrar tilraun-
ir tókst Akureyri ekki að
jafna, við þetta sat til leiks-
loka. Bermudamennimir tóku
sér stöðu við útganginn frá
vellinum og stóðu heiðursvörð
er mótherjamir gengu út af
vellinum. Síðan gengu þeir
spölkom útá völlinn. hneigðu
sig í þakklætis- og kveðju-
skyni.
Smekklegt og einlægt eins og
þessir geðþekku menn voru.
Og það var mál manna að
þarna á Akureyri hefði aldrei
verið leikinn eins skemmtileg-
ur og drengilegur leikur, og
fengu gestimir mikið lófatak
þar sem þeir stóðu inni á vell-
inurri og eins er þeir sýndu
góð tilþrif í keppninni.
Skemmtilegur leikur
Akureyringa
Eins og lið Akureyrar lék í
fyrri hálfleik og langt fram í
síðari sýndi það betri leik en
ég hef séð í sumar hjá ís-
lenzku liði, það mátti segja að
það gengi eins og vel smurð
vél þar sem hjólin féllu
hnökralaust hvert að öðru.
Þeir ráða allir yfir góðri
leikni, og þeir hafa tileinkað
sér leikandi samleik, sem
meira að segja se<V svo gott
lið. eins og Bermuda er. svo
útaf laginu að þeir höfðu tögl
og hagldir langtímum. Þeir
eiga mjög gott með að finna
hver annan, og þeir temja sér
mjög innanfótar sendingar þar
sem knötturinn „skríður" í
grasinu. og skiptingar þeirra og
hreyfingar eru þannig. að það
virðist vera svo auðvelt að
gera þetta.
Hinar stuttu óvæntu hliðar-
sendingar. til mannsins sem er
viðbúinn settu oft Bermuda-
mennina útaf laginu. Þeir
,kunnu líka í undragóðum stíl
að láta knöttinn ganga fram og
aftur án þess að tefja áhlaup-
ið. það var sótt að markinu í
fullum hlaupum, en þeir virð-
ast skilja og vita að knöttur-
inn fer margfalt hraðar en
maðurinn sem hleypur með
hann.
Skotin virtust vera þeirra
heldur véika hlið, eða ef til
vill óheppni f þéssum leik.
Það má segja að þetta sé
kpmungt lið, 9 þeirra eru 21
árs og yngri. Jón Stefánsson
er aldursforsetinn.
Af mönnum þeim sem lefka
úti á vellinum er erfltt að gera
mikið upp á milli manrjanna.
Það er ef til vill styVur liðs-
ins hve jafnt það er, og hve
líkan skilning þeir virðast hafa
á því hvemig eigi að leika
knattspymu. Ef til vill mætti
nefna Kára sem vann mjög
mikið og féll miklu betur iriní
þetta lið en hann hefur gert
í úrvalsliðum í sumar, einnig
Guðna og Magnús Jónatansson
meðan hans naut við, en hann
meiddist í ökla, og getur senni-
lega ekki leikið meira í sumar.
en ungi maðurinn Pétur Sig-
urðsson virtist kunna ýmislegt
fyrir sér þó hann fyllti ekki
alveg skarð Magnúsar. Sævar
Jónsson lék í stöðu miðherja
í stað Steingríms sem er veik-
ur á fæti og gerði margt lag-
lega.
En sem sagt eins og liðið lék
á móti Bermuda-mönnum v»-
einginn veikur hlekk’-
þess að um „stjörnur'
ræða 1 þess orðs mer!
Hinn ungi markmað
ins. Samúel Jóhannsson. lofar
mjög góðu, og leikur hans var
framúrskarandi og vona ég að
ég megi segja þennan sann-
leika, og að það verði ekki til
þess að skemma þetta góða
efni, en þó vel hafi tekizt
þetta kvöld er leiðin enn löng
til hinnar ðruggu fullkomnun-
■ar, það skyldu allir ungir
menn hafa í huga.
Þó hér hafi verið sagt að
þetta Akureyrarlið hafi leikið
betri knattspymu en ég hef
séð í sumar. er ekki þar með
sagt að það hljóti að vinna
alla leiki, svona ungt lið geta
keppnisreynd lið brotið niður.
En það breytir engu um það
, að það er mín bjargfasta trú
að þessir ungu menn séu á
réttri leið, og ef þeir halda
saman ætti í þeim að búa
skemmtilegt framtiðarlið, sem
ætti að geta gefið fordæmi.
Beztu menn Bermuda voru
markmennirnir. og ef til vill
hægri framvörðurinn Ingham,
6em gerði margt mjög
skemmtileet. Daniels var einn-
Framhald á 3. síðu.
Meistaramót íslands hefst
á Laugardalsvelli í dag
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum verð-
ur haldið um þessa helgi. Þátttaka er nú meiri
en verið hefur í mörg ár, um 70 keppendur frá
9 íþróttafélögum.
Tekst Jóni Þ. Ólafssyni að ná lágmarksaíroki á CL? Til þess
þarf hann að stökkva 3.06 m á meistaramótinu í dag.
Þetta er í 39. sinn sem
meistaramótið er haldið
og hefst keppni í dag kl. 3 á
Laugardalsvellinum og verður
fram haldið á, sama tíma á
morgun. f dag verður keppt í
200 m hl., kúluvarpi, hástökki,
800 m hl„ 5000 m hl„ spjót-
kasti, langstökki, 400 m grinda-
hlaUpi og 4x400 m boðhlaupi.
Samhliða meistaramótinu
verður keppt í fimmtarþraut
kvenna og 80 m grindahlaupi
kvemna.
flestir beztu frjálsíþrótta-
menn landsins taka þátt í mót_
inu og er talsverð þátttaka ut-
an af landi. Búast má við
skemmtilegri keppni í flestum
greinum og góðum árangri.
Sérstaklega eru menn spennt-
ir að vita hvort Jóni Þ. Ólafs-
syni tekst að ná lágmarkshæð
í hástökki til að komast á OL,
bað er 2.06 m
Friálsíþróttadeild KR sér um
mótið. yfirdómari er Eiríkur
Pálsson og leikstjóri Einar Frí-
mannsson.