Þjóðviljinn - 15.08.1964, Page 5

Þjóðviljinn - 15.08.1964, Page 5
Largardagur 15. ágúst 1964 -- Vi/ja stuðning Ku klux klun Dean Burch, formaður Repú- blikanaflokksins bandaríska, hefur nú slegið því föstu, að flokkurinn hafi ekkert á móti þvi að njóta stuðnings Ku klux klan, þó með þeim fyrir- vara, að samtökin séu ekkert að burðast við að reyna að steypa stjóm landsins af stóli. „Við aettum nú ekki annað eftir en biðja einhvem um að vera svo vingjarnlegur og kjósa okkur ekki“, sagði flokks- formaðurinn í sjónvarpsviðtali nýlega. Burch var að því spurður i umræddu viðtali, hvernig Goldwater hefði hugsað sér að hljóta atkvæði blökku- manna ef hann nyti stuðnings Ku klux klan og hefði þar að ajuki greitt atkvæði gegn Mannréttindalöggjöfinni. Því svaraði flokksformaðurinn á þá leið, og mun flestum þykja nokkuð langsótt skýring, að Goldwater myndi hljóta at- kvæði þeirra blökkumanna. er „þráðu betri stjóm“. For- maðurinn kvaðst þess ella full- viss, að Goldwater myndi tak- ast að vinna bug* á „tilfinn- ingavandamálum" i sambandi við afstöðu hans til Mannrétt- indalöggj afarinnar. Svo kveða Svíar Vandamálið er, að hún vill nærri því alltaf hjónaband en hann aukaaðild. (Salon Gahlin). ÞlðÐVILIINN SlÐA Myndin er af hvíturn unglingaskríl I Suðurríkjum Bandaríkjanna, sem gerir aðsúg að blökkumönnum. Það er siíkt og þvílíkt glóru- la’ust ofstæki sem Goldwater hyggst Iáta verða sér til fram- dráttar í þessum hlutum landsins við forsetakosningarnar. Verkalýðsleiðtogar gegn Goldwater Ferðaðist til ísrael og fékk nazistaáróður í veganestið Samtimis því sem fréttir ber- ast af auknu fylgi Goldwaters meðal hvítra ofsatrúarmanna j Suðurrjkjum Bandaríkjanna, hafa verkalýðsleiðtogar Iands- * ins lýst andstöðu við forseta- framboð hans. í yfirlýsingu sem gefin var út eftir stjórnarfund í verka- lýðssamböndunum American Federation of Labor og Con- gress of Industrial Organiza- fions, segir, að stefnuskrá Repúblikanaflokksins eigi að- eins fyrirlitningu skilið og sé sjálfsagt að hafna henni með öllu. Verkalýðssambönd þessi telja yfir 15 miljónir félags- manna. - í- yfirlýsingunni- var oð vísu Goldwater ekki nefndur á nafn, en talsmaður verkalýðs- sambandanna lét svo um mælt, j að ef taka skyldi ummæli ! frambjöðandans alvarlega væri i svo helzt að sjá, að hann teldi I Bandaríkjunum bezt borgið án allra verkalýðsfélaga yfirleitt. j Þá kvað talsmaðurinn verka- ■ lýðssambðndin mundu styðja I með ráðum og dáð Mannrétt- indalöggjöfina og gera það sem í þeirra valdi stæði til þess að tryggja framgang hennar. 332 wállsmor8 úr Eiffelfurni 332 manns hafa nú frpmið sjálfsmorð með því að varpa sér út af Eiffelturninum í Par- ís Turninn er nú 75 ára gam- afl. Siðasta sjálfsmorðið framdi 26 ára. r^amall Frakki og kast- aði hann sér út af neðsta palli turnsins. Daginn áður hafði rúmlega þrítug kona framið sjálfsmorð með því að kasta sér frá sama stað. Enda þótt strangur vörður sé hafður um turninn tekst iafnan nokkrum rhönnum ár- lega að svipta sig lífi á þenn- an hátt. Danskur ferðamaður, stadd- ur i fsrael. varð ekki alls fyr- ir löngu fyrir óvæntri reynslu. Er hann tók að glugga í pésa þá, er ferðaskrifstofan hafði látið honum í té er hann hé't til Landsins helga, komst hann að raun um það, að einn þeirra hafði inni að halda hreinan nazistaáróður gegn Gyðingum. Hér gaf meðal annars að líta eftirfarandi: Robert Kennedy í framboði I NEW YORK 13/8 — Það er nú talið vist að innan skamms muni Robert Kennedy dómsmálaráð- herra láta af embætti og til- kynna jafnframt að hann muni bjóða sig fram í New York til öldungardeildarinnar í kosning- unum í haust. Framtíð Kenne- dys hefur verið óráðin síðan Johnson forseti tilkynnti að hvorki hann né aðrir ráðherrar kæmu til greina sem varafor- setaefni Demokrata. Hár aldur er helvíti konunn- ar. — (Ninon de Lenclos). Eins og ég var að segja hér aðan ... (Luis de León, hann tók aftur til við fyrirlestur sem rofinn hafði verið af fimm ára fang- elsisvist). AHir hafa einhvern brest, á ölluvn hittist galli. og öllum getur yfirsézt — einnig þeim á Fjalli. (Þingeysk vísa). — ísrael hefur í sannleika sagt ruðzt inn í hús annars manns, rutt húsgögnum fyrir dyrnar en komið byssum fyri>' við gluggann af ótta við héim- komu eigandans og fjölskyldu h?ms. Þetta gífurlega rán á ættlandi einnar miljónar Araba verður aldrei viður- kennt..... — Grimmileg ógnarherferð er Israel beitti í viðureigninni við hina arabísku íbúa Pales- tínu, var fordæmd af Bema- dotte sáluga greifa, sem myrt- ur vap af Gyðingum í Jerú- salem í september 1948. Þessa ógnarherferð kalla nú Gyð- ingar í kaldýðgi sinni „sigur- inn í stríðinu gegn Aröbum. .“ furðulega ferðaskrifstofubæk- lngi talað um fjöldamorð Gyð- inga, sem hvergi komist í hálf- kvisti við framferði SS. Bæk- lingnum lýkur með þeim orð- um, að lausn Palestínuvanda- málsins sé ekki fólgin í skaða- bótum, heldur þurfi breytingar á landamæraskipun að koma þar til. Sá heitir Henry Cattan. sem skráður er höfundur að þessu „upplýsingariti". og er ritið prentað í Jerúsalem í prent- .verki hinnar grísku kirkju þar í borg. Það var í Árósum, sem ferðamaðurinn fékk ritið í hendur og kom í ljós, að ferðaskrifstofan hafði ekki haft fyrir því að kynna sér efni þess og innihald. Upplagið verður nú eyðilagt. _ Ennfremur er í þessum Skutu Natófánann \ í Færeyjum niður ■ í herstöð Atlanzhafsbandalagsins, sem staðsett er í Dimmadal í Faereyjum, skeði ekki alls fyrir löngu hádramatískur atburður. Tveir óbreyttir danskir her- menn, sem löngu voru leiðir á stöðu sinni sem út- verðir hins vestræna lýðræðis í Færeyjum, héldu smá- vegis hóf og þótti viðeigandi hápunktur veizlunnar að skjóta niður Natófánann sem yfir herstöðinni blakti. Þeir tóku sér sinn hvorn riffilinn í hönd, skutu á fánalínuna úr 300 m fjaríægð — og hittu. Hægt og einkar virðulega sveif fáninn til jarðar, eyjaskeggj- um til óblandinnar ánæg’ju. ■ Blaðið 14. september í Færeyjum, sem frá þessu skýr- ir, segir að soldátarnir hafi fyrst um sinn mátt dúsa nokkra daga í myrkrastofu herstöðvarinnar. Síðan voru þeir sendir heim t’il Danmerkur — og hver 'ú’eit nema til þess hafi leikurinn verið gerður. ■ Krafan um það að þetta vígbúnaðarhreiður Atlanz- hafsbandalagsins í Færeyjum verði niður lagt hefur undanfarin ár verið borin fram af æ meira afli. Von- andi er þetta fánamál fyrirboði þess, að við þeirri kröfu verði orðið áður en langt um líður. I ,,Og hefur þú þá f-yrirgjört bæði fé og friði. En ef þú sigr- ast á Haraldi konungi, 'þá muntu heita drottinsviki". Jarl studdi og þessa ræðu með Finni. En er Hákon hugsaði þetta fyrir sér, þá lauk hann það upp, er honum bjó í skapi; segir svo: „Ég mun sættast við Harald konung, ef hann vill gifta mér Ragnhildi, dóttur Magnúss konungs Ölafssonar, frænd- konu sína, með þvílíkri heimanfylg.iu, sem henni sómir og henni líkar" Finnur segir að hann vill þessu játa af konungs- hendi. Staðfesta þeir þetta máí milli sín. Síðan fer Finnur norður aftur til Þrándheims. Settist þá niður þessi ófriður og agi (óró), svo að konungur hélt þá enn ríki sínu í friði innan lands, því að þá var niður drepið sambandi því öllu, er frænd- ur Indriða höfðu haft til mótstöðu við Harald konung. En er sú stefna kom, er Hákon skyldi vilja þessara einkamála, þá fór hann á fund Haralds konungs. En er þeir taka tal sitt, þá segir konungur, að hann vill halda allt það af sinni hendi, sem í sætt hafði komið með þeim Finni. „Skaltu, Hákon“, seg- ir konungur ,,tala mál þetta við Ragnhildi, hvort hún vill sam- þykkja þetta ráð. En eigi er þér og engum öðrum að ráðanda (fært að ráðast í það) að fá Ragnhildar, svo að eigi sé henn- ar samþykki við“. Siðan gekk Hákon á fund Ragnhildar og bar upp fyrir hana bónorð þetta. Hún svarar svo: ,,Oft finn ég það, að mér er aldauði Magnús konur.gur, faðir minn, ef ég skal giftast bónda einum, þó að þú sért fríður maður eða vel búinn að íþrótt- um. Ef Magnús konungur lifði, þá mundi hann eigi gifta mig minna manni en konungi. Nú er þess eigi von, að ég vilji giftast ótignum manni“. * i t * 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.