Þjóðviljinn - 19.08.1964, Side 1

Þjóðviljinn - 19.08.1964, Side 1
Miðvikudagur 19. ágúst 1964 —29. árgangur — 185. tölublað. Unga fá/kið athugi skyldur sínur við hinu öldruðu Dr. Réne Schubert dvelst nú hér á landi í boði EHiheimilisins Grundar. Hann er yfírlæknir i Nurnberg og kemur nú í þriðja sinn til Islands. Gísli Sigur- björnsson forsetjóri Elliheimilis- ins boðaði fréttamenn á fund með dr. Schubert í gær og ræddi hann þau mál er viðkoma hjálpinní við gamla fólkið yfir- leitt. Hinir öldruðu vilja oft dvelja á heimilum barna sinna en börnin setja sig'stundum á móti slíku. Reyndar er það bezt að gamla fólkið dveljist sem lengst á heimilum en það er aðeins unnt í örfáum tilfellum‘, sagði yfirlæknirinn. Hann sagði og að þegar heimilunum sleppti yrði eitthvað að bíða gamla fólks- ins, sem lagt hefði fram krafta sína í þágu þjóðfélagsins. Rétti staðurmn fyrir hina öldruð;' væru elliheimilin þar sem unn‘ væri að veita þeim aðhlynnn- Framhald á 3. síðu. Einnig mótmceli frq stjórn B.S.R.B.: Krefst viðræðnutil að bæta úr dýrtíð og skattpyndingu ■ Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja samþykkti á fundi sínum s.l. mánudag að fara fram á viðræður við ríkisstjórnina til þess að leita eftir úrbótum nú þegar vegna sívaxandi dýrtíðar og skattpíningar. Legg- ur stjórn B.S.R.B. til að viðræður þessar verði sameiginlegar viðræðum beim sem A.S.Í. hefur farið fram á. Íslenzkur sagnfræðingur kannar merkar söguheimildir: Rikisstfómin dunska áfármaði 1864 að afhenda Prússlandi og Austurríki íslund ■ Traustar heimildir hafa nú fundizt fyrir því að ríkisstjórn Danmerkur reyndi fyrir 100 árum að afhenda ísland Prússlandi og Austurríki í skiptum fyrir Norður-Slésvík. Það gerðist í frið- arsamningunum í _Vín, eftir ósigur Dana í stríð- inu 1864. 1 Heimildirnar hafa nú í t'vrsta sinn verið kannaðar af íslendingi- Sverrir Kristj- ánsson sagnfræðingur skýrði frá því í fréttaauka útvarps- ins í gærkvöld að hann hafi í sumar kynnt sér frumheim- :ldir þessara mála í dönsk- um skjalasöfnum og haft með sér heim myndir af beim. '1 Fyrirmæli dönsku ríkis- stjómarinnar um að samn- Bjarni Benedikts- son forsætisráðh. í Hvíta húsinu Á hádegi í gær tók Johnson Bandaríkjaíorseti á móti Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í Hvíta húsinu. Forsetinn þakkaði hlýlegar móttökur á íslandi síð- aStliðið haust og lét í Ijós að- dáun sína á íslenzku þjóðinni og kvaðst meta mikils vináttu ís- lendinga. Bjami Benediktsson þakkaði forseta vinsamlegt heimboð og þann sóma sem ís- landi væri sýndur. Forsetinn og forsætisráðherr- ann ræddust við í hálfa klukku- stund um almenn mál. Thor Thors sendiherra var í fylgd með forsætisráðherranum. SR. HACKING DÓ 1 GÆRMORGUN Sr. Josep Hacking. sóknar- nrestur í Landakoti lézt í gær- morgun eftir langa vanheilsu. Hafði hann verið rúmfastur í tæpa sex mánuði alls er hann dó. ingamenn Dana í Vín skyldu bjóða ísland og Vestur-Ind- íur Dana í skiptum fyrir Norður-Slésvík eru dagsett 18. ágúst 1864 — svo að öld er liðin frá þeim atburði. Ályktun stjórnar B.S.R-B. er svohljóðandi: „Vegna sívaxandi dýrtíð- ar og þess ástands, sem nú ríkir sakir skatta- og út- svarsálagningar á þessu ári, samþykkir stjórn B.S.R.B. að óska eftir viðræðum um þessi mál við ríkisstjórnina til að leita eftir úrbótum nú þegar, og á þeim grundvelli, sem B.S.R.B. hefur markað með álýktunum sínum í þess- um málum. Þessar viðræður verði sameiginlegar viðræð- ur Albýðúsambands íslands við ríkisstjórnina um þessi mál“. > BB Ályktun þessi var sam- þykkt einróma, en í stjórn B.S.R.B. eiga sem kunnugt er sæti Sjálfstæðisflokks- menn og Alþýðuflokksmenn auk ■ stjórnarandstæðinga- ■ Stjórn Alþýðusambands íslands hefur fyrir sitt leyti lýst sig samþykka því að sá háttur verði hafður á viðræð- unum við ríkisstjórnina sem stjórn B.S.R.B. hefur lagt til. Myndin hér aö ofan er af Umferðarmiðstöð inni og er hún tekin í vor. 1 sumar hefur verið steypit plan framan við húsið og cinnig unnið nokkuð viö það sjálft en framkvæmdir liggja nú niðri að sinni. Áœtlað aS tilbúin til Þjóðviljinn snéri sér í gær til Brynjólfs Ingólfssonar ráðuneytisstjóra og spurðist fyrir um það hvað byggingu Umferðarmiðstöðvarinnar liði og hvenær ráðgert væri að hún gæti tekið til starfa. Sagði ráðuneytisstjórinn að hugmyndin væri sú að hægt yrði að tai;a Umferðarmið- stöðina í notkun næsta vor en 1 talsvert fé vantaði enn til þess að ljúka byggingunni og væri nú verið að athuga fjáröflunarleiðir. Umferðarmiðstöðin verði notkunar ó nœsta vori Það er ríkið sem kostar bygginguna að mestu leyti og hefur það lagt til hennar hálfa til eina miljón króna á ári nokkur undanfarin ár. Þá hefur Reykjavíkurborg lagt fram 1 miljón króna til byggingarinnar og einnig hef- ur póstsjóður lagt fram nokk- urt fé. Afgangurinn hefur hins vegar verið fenginn með lánum. Sagði skrifstofustjór- inn að uppkomin myndi byggingin væntanlega kosta 15—16 miljónir króna ef reiknað væri með vaxtakostn- aði. í Umferðarmiðstöðinni eiga að verða afgreiðslur fyrir all- ar sérleyfisbifreiðir til fólks- flutninga út á land, ennfrem- ur pósthús. veitingastofa, snyrtiherbergi o.s.frv. Hins vegar verður 'þama ekki rúm fyrir afgreiðslur vöruflutn- ingabifreiða en komið hefur til tals að byggt verði sér- stakt hús fyrir þær annars staðar á lóðinni. Yngsti áhorfandinn Ljósmyndarinn sagði að hann hefði tekið þessa mynd af yngsta áhorfandanum á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld er KR og Liver- pool kepptu. Hann virðist þó eftir myndinni að dæma hafa haft meiri áhuga fyrir öðru en leiknum a.m.k. þá stundina sem hún var tekin, enda vafamál að hann hafi séð mikið fyrir hinum tíu þús- und áhorfendunum. — (Ljósm. Bj. Bj.). Meðalafli á skip er nær 9 þús. m. og t: Samkvæmt síldveiðiskýrslu Landssambands íslenzkra út- vegsmanna er meðalafli 241 síld- veiðiskips 8970 mál og tunnur miðað við miðnætti sl. laugar- dag. Þrjú skip hófu veiðar í sl. viku og eru þau ekki reikn- uð með í meðaltalinu. 90 skip hafa aflað yfir 10 þús mál og tunnur en 154 þar undir.. Meðalaflinn miðað við stærð skipanna er þessi: 94 skip yfir 140 rúmlestir: 13.117 mál og tunnur. 103 skip 70—140 rúm- lestir: 7.075 mál og tunnur, 44 skip undir 70 rúmilestir: 4.548 mál og tunnur. 26 skip hafa aflað yfir 16 þús- und mál og tunnur og fer skrá yfir þau hér á eftir: 46 ' Jörundur III, Rvík 29692 Jón Kjartansson, Eskifirði 28557 SnæfeÚ, Akureyri 25.349 Sigurpáll, Garði 24.241 Sigurður Bjarnas., AE 24158 Höfrungur III. Akranesi 22986 Helga, Reykjavík 22283 Bjarmi II Dalvík 21879 Helga Guðmundsd. Patr. 21584 Hafrún, Bolungarv. 20105 Árni Magnúss., Sandg. 19694 Ólafur Friðbertss., Súgf. 19596 Þórður Jónassion, Rvk. 19421 Faxi, Hafnarfirði 18844 Guðrún Jónsd., ísafirði 185g5 Loftur Baldvinss., Dalv. 18247 Sólfari, Akranesi 17831 Eldborg,1 Hafnarfirði 17825 Lómur, Keflavík 17790 Jón Finnsson, Garði 17764 Vigri, Hafnarfirði 17148 Reynir, Vestm.eyjum 17135 Ófeigur II, Vestm.eyjum 16809 Halldór Jónsson, Ólafsvík 16492 Margrét. Siglufirði 16244 Jörundur II, Rvík 16027 Æ.F.H. fer út í bláinn í kvöld Út í bláinn — Út í bláinn. Síðasta ferð í kvöld. Farið kl. 8 frá Álfafelli. ÖHum heimil þátttaka. Upplýsingar í síma 50308. Æ.F.H.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.