Þjóðviljinn - 19.08.1964, Síða 3

Þjóðviljinn - 19.08.1964, Síða 3
. Ihudagur 19. ágúsl 1964 MÚÐVILJINN SIÐA 3 Lagt fast að Grikkjum að draga ekki lið frá Nató Aðflufningsbanni aflétt á Kýpur PARÍS, NICOSIA 18/8 — Eins og kunnugt er af fréttum hefur gríska stjórnin tilkynnt það, að hún muni kalla heim mikinn hluta hersveita sinna í Atlanzhafsbandalaginu, og gildir þetta jafnt um landher, flugher og flota. Lemnitzer, yfirmaður herliðs bandalagsins, hefur nú sent grísku stjóm- inni orðsendingu og lagt fast að henni að hætta við þessar fyrirætlanir. Fréttir af þessum tilmælum Lemnitzers bárust frá París í dag, en ekki er enn kunnugt um Kaninn vilj'ugur að borga brúsann LEOPOLDVILLE 18/8 — G. Hennen Williams, varautanrík- isráðherra Bandaríkjanna, gaf það í skyn í dag, að Bandarík- in gætu hugsað sér að greiða kostnaðinn af setu afríkansks herliðs í Kongó. Áður hefur ver- ið tilkynnt, að Moise Tsjombe, forsætisráðherra í Kongó, hafi beðið Líberíu, Eþíópíu, Senegal og Madagaskar um herlið til þess að vinna bug á uppreisn- armönnum í landinu. NÝR FORSETI í LÍBANON BEIRUT 18/8 — Menntamála- ráðherrann í Libanon, Charles Helou, verður að öllum líkind- um 'fjórði forseti landsins. Það er þjóðþingið, sem forsetann kýs og er talið fullvíst, að Helou hljóti meira en tilskilda tvo þriðju hluta atkvæða. undirtektir grísku stjómarinnar. Á Kýpur hefur það helzt borið til tíðinda, að Makarios, forseti, og Galo Plaza, sérlegur sendi- maður Ú Þants, hafa komizt að samkomulagi. sem í raun aflétt- ir aðflutningsbanni því, er grísk- ir eyjarskeggjar hafa sett á tyrkneska. Lá við hungursneyð Um það bil mánuður er nú frá því Grikkir á Kýpur lokuðu flutningaleiðum tyrkneskra manna og hefur legið við hung- ursneyð meðal þeirra af þeim sökum. Þótt flutningabanninu Arás á birgða- stöð Víetkong SAIGON 18/8 — Tíu flugvélar stjómarinnar í Suður-Vietnam, en nokkrum þeirra var flogið af bandarískum flugmönnum, gerðu í dag mikla árás á birgða- stöð Víetkong við Ba Dong í óshólmum Mekongfljótsins, um það bil 115 km suður af Saigon. í tilkynningu Saigonstjórnar segir, að mikið tjón hafi orðið af árásinni, flugvélarnar hafi flogið mjög lágt með stórskota- hríð og sprengjuvarpi. Sýknudómur í Suður-Afríku JÓHANNESARBORG 18/8 — Dómstóll í Jóhannesarborg sýkn- aði j dag félagsfræðinginn frú Helenu Joseph, en hún var á- kærð fyrir að vera meðlimur óleyfilegra samtaka og fyrir að hafa í fórum sínum bannaðar bókmenntir. Frú Joseph er 58 ára að aldri Og af enskum ættum. Var hún dæmd eftir hinum andkommún- E- Gamla fólkið Framhald af 1. siðu. ingu í bezta máta. En dr. Schubert benti réttilega á að kostnaðarhliðin við bygg- ingu slíkra heimila skipti miklu máli og unnt væri að komast af með minna fé til fram- kvæmda með því að hafa allt1 sem mest á sama staðnum. Yfirlæknirinn ræddi einnig það vandamál, sem skapazt hef- ur við ráðningu starfsfólks á elliheimilin og benti hann á þá lausn að með þvf að beint sam- band væri á milli elliheimila annarsvegar sg sjúkrahúsa hins vegar þá mætti skipta starfslið- inu um ákvéðinn tíma á sinn hvom staðinn. Hann skýrði frá þvi að höf- uðatriðið væri að unga fólkið vaknaði til skyldunnar gagn- vart hinum öldruðu og væri þá stórt spor stigið í rétta átt. istísku lögum frá 1962 og hélt ákærandinn því fram, að hún hefði, auk áðurgreindra ákæru- atriða, tekið við fé af fyrrver- andi aðalritara samtakanna ANC, Afríkanska þjóðþingsins, en þau samtök eru bönnuð í landinu. Dómstóllinn komst þó að þeirri niðurstöðu, að ekki hefðu verið færðar nægilegar sannan- ir fyrir sekt frúarinnar, og var hún því sýknuð. Walter Sisulu, aðalritari áðurgreindra samtaka, situr nú í fangelsi og hefur ver- ið dæmdur til fangelsisvistar ævilangt. verði nú að mestu aflétt munu Grikkir enn banna að flytja til tyrkneskra svæða á eynni ýmsar þær vörutegundir, sem þeir telja að gagni mega koma í hemaði. Opnað fyrir vatn Þá verða opnaðar á ný vatns- leiðslur til tyrkneskra manua í Ktima á suðvesturhluta eyjar- innar. Þeir Makarios og Plaza hafa náð um það samkomulagi. að ekki verði hindraðir matvæla- aðdrætt'ir Tyrkja, í Nicosia mun- Rauði krossinn sjá úm matvæla- dreifingu til tyrknesku hverf- anna, og er þeirri stofnun sam- kvæmt samkomulaginu ætlað mikilvægt hlutverk við fram- kvæmd þess. Fagna Sovéthjálp 1 gær kom sérlegur sendimað- ur Makaríosar erkibiskups. Vassos Lyssarides, frá Moskvu. Hann lýsti því yfir við heim- komuna, að aðstoð Sovétríkj- anna við Kýpur myndi hafa úr- slitaþýðingu ef Tyrkir reyndu aftur að ráðast á eyna. Tilboð Sovétríkjanna um hjálp ef á Kýpur verður ráðizt. hefur vakið almennan fögnuð á eynni. Hafa jafnvel hægrisinnuð blöð í Nico- sia haft orð á því, að tímabært væri fyrir Makaríos að taka nokkra kommúnista í stjórn sína, en Kommúnistaflokkurinn er fjölmennur á eynni. Tuomioja Frá Genf herma fréttir, að Sakari Tuomioja. sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna á Kýpur, sé enn alvarlega veikur. Ekkert er enn vitað hver verða muni eftirmaður hans í starfi. og eru enn sem fyrr aðallega tilnefndir þeir Dean Acheson, fyrrum ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna. og dr. Galo Plaza. Mannfall með skæruliðum KUALA LUMPUR 18/ 8 — í opinberri tilkynningu Malasíu- stjórnar í dag segir, að herlið Malasíu hafi fellt tvo indó- nesíska skæruliða og tekið all- marga aðra til fanga. Skærulið- ar þessir gengu á land í gær í Suður-Malaya og hefur Mala- síustjóm kært landgönguna fyr- ir öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Fró hardögunum í Ktima á Kýpur Þessi mynd er tekin í Ktima á Kýpur í miklum átökum milli þjóðarbrotanna ekki alls fyrir löngu. Grískir Kýpurbúar sjást hér sækja fram yfir rúst ir byggingar, sem sprengd var í loft upp í átökun- um. Áður höfðu Tyrkir í bænu m gert árás á grískt markaðstorg. Samsæri enskra lestarræningja LONDO'N 18/8 — Innanríkis- ráðuneytið í Englanfdi tilkynnti það í gær, að komizt hefði upp um samsæri þess efnis að leysa úr haldi nokkra af mönnum þeim, er dæmdir voru til lang- varandi fangelsisvistar fyrir þátttöku i lestarráninu mikla norður af London í ágústmán- uði í fyrra. , Fyrir , fimm dögum flúði einn af höfuðpaurum lestarránsins, Charles Frederick Wilson, úr vel vörðu fangelsi hjá Birming- ham. Voru það að öllum líkind- um menn úr hópi lestarræningj- anna sem hann aðstoðuðu við flóttann. Lögreglan í Birming- ham hefur enn ekki haft uppi á Wilson, og er talið nær fullvíst, að hann hafi sloppið úr landi. í tilkjmningunni var aðeins frá því skýrt, að samsæri hefð: verið gert til að ná úr fangelsi nokkrum lestarræningjum, en ekki sagt nánar frá tildrögum. Ógrynni fjár varð ræningjunum að bráð við lestarránið í fyrra, og hefur aðeins lítill hluti þess komið í leitimar. ATHUGIÐ Auglýsendur eru vinsamlaga beðnir að athuga að auglýsingar, sem eiga að birtast í blaðinu. á sunnudögum, þurfa að hafa borizt auglýsinga- skrifstofunni fyrir klukkan 6 sd. á föstudögum ÞJÖÐVILJINN Framboð í blóra við Goldwater NEW YORK 18/8 — Kenneth Keating. öldungadeildarmaður Repúblikanaflokksins fyrir New York, tilkynnti það á þriðjudag, að hann muni bjóða sig fram á ný við kosningamar í nóvem- ber. Lét Keating þessu ennfrem- ur getið, að hann myndi heyja kosningabaráttu sína án nokkurs tillits til stefnu Goldwaters, en vitað er. að öldungadeildarþing- maðurinn er ósammála honum í ýmsum atriðum. Robert Kenne- dy, dómsmálaráðherra Banda- ríjanna, hyggur sem kunnugt er á framboð til öldungadeildar í þessu kjördæmi. Auglýsið i Þjóðviljanum Snittmaster „SNITTMASTER" er handhægt tæki við allan raatvæla- iðnað - sérstaklega í matvöruverzlunum. Tekur lítið pláss, er einfalt í notkun — og ódýrt. Þar sem efnið til pökkunar er í rúllum, en ekki örkum, fæst betri nýting á efninu, sem er CRYOVAC-filma. Pökkunum er lokað við lágan hita méð. TEFLON-klæddri hitaplötu. Við höfum alltaf ó lager í rúllum, hinar velþekktu CRYOVAC-filmur í ýmsum gerðum og breiddum. Sérstak- lega viljúm við benda á XL-filmuna, sem framleidd er fyrir alls konar grænmeti, ávexti og ferskt kjöt. Einnig S-fiImuna, ^ sem aðallega er ætluð fyrir ost, ýmsar unnar og ðunnár kjöt- vörur og fitumikil matvæli svo sem. reykta síld, reyktan lax og hákarl. S-fiIman er einnig tilvalin utan um hvers konar bökunarvörur. LEÍTIÐ UPPLÝSINGA' - GiSLI JÓNSSONfiGfl.HF. SKÚLAGÖTU 26 S'lMI 11740 '

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.