Þjóðviljinn - 22.08.1964, Blaðsíða 5
taugardagur 22. ágúst 1964
ÞIÖÐVILJINN
SÍÐA 5
Þcssi mynd birtist í Dagbladet daginn eftir hinn sögulega leik G jövik/Lyn gcgn Eik. Þar sést greinilcga að övind Andcrsen leið-
togi Eik, scm stendur við marksúlu, setur fót fyrir boltann og hin drar að boltinn fari í mark. Þetta mark hefði getað nægt Gjövik/
Lyn til að vinna sig upp í 1. deild.
Eitt mesta hneyksli í
norskri knattspyrnu
I knattspyrnuleik, sem fór
fram í Gjövilt í Noregi *.l.
laugardag, kom fyrir atvik, sem
hefur orðið mjög umtalað í
Noregi, og margir tala um það
sem mesta hneyksli sem komið
hafi upp í sögu knattspyrnunn-
ar í Noregi.
KR-mót í köstum
★ Frjálsíþróttadeild KR held-
ur innanfélagsmót í köstum í
dag og á morgun. (Stjórnin).
Það voru tvö annarrar deild- •
ar lið sem áttust við. Eik og
Gjövik/Lyn, leikar stóðu jafn-
ir 2:2 er einn framherji úr
liði heimamanna skaut að
marki og framhjá markverði,
þá gerðist það að einn leiðtogi
hins liðsins. sem stóð . þar við
marksúluna, . skaut fæti fyrir
boltann áður en hann rann
yfir markalínuna. Þar með
missti Gjövik/Lyn af sigri í
leiknum og eitt dýrmætt stig
sem getur munað því að það
verður að sitja áfram í 2. deild.
Flestir áhorfendur og kepp-
-------------------------------<s>
Skrífstofahúsnæði
Tvö mjög góð skrifstofu-
herbergi til leigu,
SÍBS
Bræðraborgarstíg 9.
endur sáu hvað gerzt hafði og
Ijósmyndir hafa staðfest þetta.
en dómari virtist ekki taka
eftir neinu og raunar hefði það
ekki miklu breytt. þótt svo
hefði verið, því að skv. knatt-
spyrnulögunum getur dómari
undir engum kringumstæðum
dæmt mark nema boltinn fari
yfir markalínuna. Hann hefði
látið henda boltanum upp og
ekki er að vita hvað úr því
hefði orðið.
Ekki er enn vitað hvað, knatt-
spyrnusambandið gerir í þessu
máli. úrslitum leiksins verður
ekki breytt. en fullsannað er
að leiðtogi Eiks hefur gripið
inn í leikinn og hindrað að
Giövik/Lyn skoraði mark.
Menn líta þetta mál mjög al-
varlegum augum sem eðlilegt
er og er slíkt framferði íbrótta-
leiðtoga algert einsdæmi í Nor-
egi.
Þetta minnir okkur Islend-
inga á.atvik er varð hér fyrir
nokkrum árum er þýzkt lið var
hér á ferð. þá stóð 4:0 fyrir
íslendinga, en einn Þjóðverji
úr fararstjóm liðsins sem stóð
utanvallar hljóp í markið og
stöðvaði boltann á síðustu
stundu. Þetta breytti angu um
úrslit leiksins og menn höfðu
aðeins gaman af. Þetta atvik
og það sem gerðist í Noregi
minnir okkur á hvað getur
gerzt ef áhorfendum er leyft
að standa við marksúlur eins
og oft sést hér. einlcum þegar
yngri flokkar eru að leika.
íþróttasíðunni er ekki kunn-
ugt um að önnur atvik þessu
lík hafi komið fyrir í knatt-
spyrnunni hér á landi, en gam-
an væri ef einhverjir lesendur
blaðsins vita til þess. að þeir
sendu blaðinu frásögn af því.
sitt af hverju
★ 22 ára gamall japanskur
atvinnuhnefleikamaður lézt í
gær af völdum áverka sem
hann hlaut 1 keppni sl.
sunnudag.
★ Alþjóðlega olympiunefndin
tilkynnti opinberlega á
þriðjudag, að Suður-Afríka
fái ekki að taka þátt Olymp-
íuleikunum í Tokio i haust.
Ástæðan fyrir þessu banni
er að sjálfsögðu sú, að stjórn-
in í Suður-Afríku hefur neit-
að að hverfa frá aðskilnaði
hvítra manna og svartra inn-
an íþróttanna.
★ Ástralska sundsambandið
mun hafa ákveðið að heims-
methafinn Murray Rose verði
ekki tekinn i lið Ástraliu á
Olympíuleikunum.
Murray Rose er 25 ára gam-
all og hefur unnið fern gul-
verðlaun á Olympíuleikunum,
hann hefur þjálfað af kappi
að undanförnu. og hinn 2.
ágúst sl. setti hann nýtt
heimsmet i 1500 m skriðsundi
17:01,8 mín. Hann hefur aftur
á móti ekki tekið þátt í úr-
tökumótum í Ástralíu. af því
að hann dvélst í Kalifomiu.
þar sem hann er við nám og
freistar gæfunnar sem kvik-
myndaleikari í Hollywood.
Rose hefur sjálfur sagt að
með því að setja heimsmetið
hafi hann gert úrslitatilraun
til að komast i olympíuliðið.
en það virðist ekki hafa nægt
til að sambandið geri undan-
tekningar frá þeim reglum
sem það hefur sett um úr-
tökumótin.
★ 62. aðalfundur alþjóðlegu
olympíunefndarinnar verður
kallaður saman í Tokio 6. okt.
n.k Hirohito keisari og kona
hans verða viðstödd setningu
fundarins Aðalfundurinn
verður haldinn í Nissei leik-
húsinu i Tokio. Þetta er í
annað sinn sem Alþjóðlega
olympíunefndin heldur aðal-
fund sinn f Japan. Síðast var
hann haldinn þar fyrir 6 ár-
um í sambandi við Asíuleik-
ana.
utan úr heimi
íslandsmeistarar FH í 9. sinn
Mfl. FH sem
9. sinn í röð.
ússon,
Geir I v : :
sigraði á fslandsmótinu I handknattleik utanhúss 1964 og varð fslandsmeistari í
Efri röð f.v. örn Hallsteinsson, Auðunn Óskarssr.n, Gils Stefánsson, Kristófer Magn-
aúr C-'-'ison, Krirtián Stefánsson, Páll Eiríksson, Hjalti Einarsscn. Fremri röð f.v.:
o»\ Guðjón Ir.gi Súturðsson, Ragnar Jónsson, Birgir Björnsson (fyrirliði), Þorsteinn
Björnsson, Rúnar PáJssoa.
Tveir fulStrúar Irá HSÍ á
al^jó&aþing í Biðdapest
Tveir fulltrúar frá flandknattleikssambandi
íslands munu sitja þing Alþjóðlega handknatt-
leikssambandsins, sem haldið verður í Búdapest
dagana 18. og 19. sep't n.k. Búizt er við að.um 100
fulltrúar frá 37 þjóðum mæti til þingsins.
Þing Alþjóðahandknattleiks-
sambandsins eru haldin annað
hvort ár, og hafa íslendingar
átt fulltrúa á þingum þess síð-
an 1956. Fulltrúar HSÍ á þing-
inu í Budapest verða formaður
sambandsins, Ásbjörn Sigur-
jónsson, og varaformaður, Axel
Einarsson.
fslendingar hafa samstöðu
með öðrum Norðurlandaþjóð-
um á þinginu og við undirbún-
ing þess, og komu forystumenn
handknattleikssambandanna á
Norðurlöndum saman til skrafs
og ráðagerða hér í Reykjavík
þegar Norðurlandamót kvenna
var haldið hér í sumar.
Nær 40 þjóðir eru nú i Al-
þjóðlega handknattleikssam-
bandinu, en fyrir þinginu liggja
upptökubeiðnir frá 9 þjóðum.
Munu þær allar vera utan Evr- ^
ópu, en flestar Evrópuþjóðir
eru þegar i sambandinu, nema
Bretland og ftalía.
Helzta verkefni sem fyrir
Valur siqraði
í 5. flokki
Valur varð Islandsmeistari í
5. fl. í knattspyrnu. Úrslitaleik-
urinn fór fram á Melavellinum
í fyrrakvöld, og sigruðu Vals-
drengimir þá jafnaldra sína
frá Akranesi með 2:0.
Hinir ungu Islandsmeistarar
Vals eru: Aron Bjömsson, Ámi
Geir Jónsson, Bergur Bene-
diktsson. Einar Óskarsson,
Guðmundur Jóhannesson, Gúst-
af Níelsson. Helgi Benedikts-
1 son, Hörður Hilmarsson, Ingi
B. Albertsson. Jón Gíslason,
Reynir Vignir. Sigurður Har-
aldsson, Tryggvi Tryggvason.
Vilhjálmur Kjartansson og
Þorsteinn Helgason. Þjálfari
liðsins er Róbert Jónsson.
þinginu liggur eru tillögur sem
fram hafa komið um breyting-
ar á fyrirkomulagi heimsmeist-
arakeppninnar. Fram að þessu
hafa 16 lið komið til úrslita-
keppninnar, en nú eru tillög-
ur um að fækka þeim niður í
12 eða jafnvel 9. Þá er einnig
rætt um, að framvegis komist
ekki aðrar þ.ióðir beint í úr-
slitakeppni en heimsmeistari
og sú þjóð sem heldur mótið
hverju sinni, en til þessa hafa
þær þjóðir sem voru í 6 efstu
sætum i síðustu keppni kom-
izt beint i úrslit í hinni næstu
án þátttöku í undankeppni.
Einnig verða rædd á þinginu
vandamál þjóða utan Evrópu
í sambandi við þátttöku i und-
ankeppni, Tillaga hefur komið
fram um að fjölga leikjum í
Evrópukeppni meistaraliða,
þannig að þau félög sem lenda
saman leiki tvo leiki sín á milli
eins og er í sambærilegri
keppni í knattspyrnu. >á má
nefna að komið hafa fram hug-
myndir um að efna til nám-
skeiðs rétt fyrir heimsmeistara-
keppni hverju sinni fyTÍr þá
dómara sem dæma í keppninni.
Öll þessi mál verða rædd á
þinginu og má búast við að um
þau verði skiptar skoðanir.
Ekki er þess að vænta að stór-
vægilegar breytingar verði
gerðar á leikreglum, þau mál
voru tekin til rækilegrar end-
urskoðunar á síðasta þingi, og
miklar breytingar gerðar á
reglunum. Þá hefur komið
fram tillaga um áð ekki þurfi
að bíða eftir að dómari flauti
þegar fríkast er tekið.
Loks verður kosin stjórn fyr-
ir næsta tímabil og tekin á-
kvörðun hvar norsk heimsmeist-
arakeppni verður haldin. Þau
lönd sem talin eru koma helzt
til greina eru Danmörk, Frakk-
land og Sovétríkin.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa, einnig kona til
eldhússtarfa.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR
Laugavegi 116 — Sími 10312.
Júrniðnaðarmenn—
Aðstoðarmenn
Okkur vantar nú þegar nokkra járniðn;
armenn og aðstoðarmenn.
VÉLSMIÐJA NJARÐVÍKUR H.F.
Njarðvík, sími 1750 Koflavík.