Þjóðviljinn - 26.08.1964, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 26.08.1964, Blaðsíða 4
SIÐA ÞIÖÐVILJINN Miðvikudagur 26. ágúst 1964 Ctgeíandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósiatistaflokk- urinn — Ritstjórar: Ivar H Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V BYiðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, SkólavQrðust. 19, Simi 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði Bandarísk sýnikenns/a JJvað er öflu^ur bandarískur her að gera í Suð- ur-Víetnam, búinn fullkomnustu nútíma- drápstækjum? Einhver kann að segja að ófróðlega sé spurt, því ekki standi á svörum valdamanna Bandaríkjanna. Bandaríkjaherinn í Víetnam er að þeirra sögn að verja lýðræðið og frelsið, mannhelgi og manngöfgi, siðferðilegan sjálfsákvörðunarrétt smáþjóðar, og síðasf en ekki sízt, að berjast hinni göfugu baráttu gegn kommúnismanum. JjYegnirnar undanfgrna daga frá þessu fjarlæga landi stinga einkennilega í stúf við yfirlýsing- ar hinna bandarísku stjórnmálamanna. Gegnum ströngustu ritskoðun komast fregnirnar um frum- kvæði stúdenta og menníamanna Suður-Víetnam, sem krefjast lýðræðis af fasistískum einræðiskúg- urum, er sitja að völdum vegna þess að banda- rískur innrásarher er í landinu. Stúdentarnir telja sig andsnúna kommúnismá en þeir segjast vilja öðruvísi „lýðræði“ en iðkað hefur verið. And- staða Búddhatrúarmanna sýnir einnig hve mót- spyman gegn hernaðareinræðinu er víðtæk. For- ystumenn Búddhatrúarmanna í Suður-Víetnam hafa gripið til þess áður sem mófmæla'gegn kúg- unaraðgerðum Bandaríkjaleppanna að hella benz- íni yfir sig á torgum og kveikja í, þegar allt ann- að brást til þess að ná athygli þéss heims'ér'Kosfað ‘hefur hið ægilega stríð innlendra fasista og er- lends innrásarhers Bandaríkjanna gegn friðsöm- um borgurum Suður-Víetnam. Og baráttan gegn kommúnismanum virðist hafa eitthvað einkenni- leg áhrif í þessu-landi, ef miða má við fregn sem íslenzka ríkisútvarpið flutfi fyrir nokkrum dög- um, að núverandi valdhafar teldu ekki óhætt að láta fara fram kosningar í Suður-Víetnam af ótta við að kosið þing yrði baráttutæki kommúnista! ^kæruhernaður og þjóðfrelsisbaráttan sem háð er í Suður-Víetnam hófst ekki fyrr en einræðis- herrann og fasistinn sem Bandaríkin studdu þar til valda eftir að þjóðfrelsisher landsins hafði sigr- azt á nýlenduveldi Frakka, sveik Genfarsamkomu- lagið um almennar kosningar, en hóf í þess stað ógnarstjóm og útrýmingarherferð gegn þeim sem bezt og drengilegast höfðu barizt gegn frönsku nýlendukúgúrunum. Sú þjóðfrelsisbarátta hefur verið háð með sívaxandi árangri og Bandaríkja- stjórn hefur þurft að skipta oftar en einu sinni um leppstjórneridur í hópi Víetnamfasista, sfundum nokkuð hastarlega. En síaukin bein og blygðunar- laus þátttaka bandarísks hers í baráttunni gegn þjóðfrelsishernum, samfara morðöld og pyndinga, fangabúðum og gereyðingartilraunum hefur ekki nægt til að brjóta niður frelsisþrá og sjálfstæðis- vilja víetnamþjóðarinnar. Líklegas't er að Banda- ríkjaauðvaldið vinni það eift með hinu hryllilega árásarstríði gegn þjóð Víetnam, að þjóðir Asíu fái enn sýnikennslu í því Hvað valdamenn Banda- ríkjanna eiga við þegar þeir boða „vestrænt lýð- ræði“ og „frelsi smáþ'jóða“. „vestraena mannhelgi og manngöfgi“. Og þjóðir Asíu munu kunna að bakka fvrir þá sýnikennslu svo sem verðugt Byggða-, bóka-r og málverka- safn í Safnhúsi Arnessýslu □ Hinn 5. júlí síðastliðinn var opnað Safnhús Ámes- sýslu í nýju húsi á Selfossi. í húsi þessu er héraðsbóka- safn Ámessýslu á neðri hæð, en byggðasafn héraðsins á efri hæðinni. Ekki er enn að fuilu búið að skipuleggja starfsemi bóka- safnsins, opnunartíma o.þ.h., en söfnin á efri hæðinni eru opin dag hvem og er Kjartan Magnússon safnvörður. Skúli Helgason hefur unnið að söfn- un munanna í byggðas&fnið og er hann sjór af fróðleik um sögu gripa þeirra sem þarna er að finna. Náttgagn Friðriks áttunda Það er margt sem ber fyrir augun á göngu gegnum Byggðasafn Ámessýslu og ekki sízt, ef maður eins og Skúii Helgason er leiðsögumaður og útskýrir sögu hlutanna, Þama er þvottasett, nætur- gagn. þvottaskál og kanna. sem Friðrik konungur 8. not- aði fyrstur manna, en var síðan í eigu l ÓJafs Magnússonar í Arnarbæli. Þarna hangir á veggnum sýslukvarði Ámes- sýslu löggiltur. Þama stendur á miðju gólfi furðutæki eitt mikið úr tré. en grjóthnullungum er hrúg- að saman í skúffu, sem unnt er að færa fram og aftur á þrem keflum. Skúli segir okk- ur, börnum atómaldarinnar, að þetta sé taurulla. Ymsir munir eru í safninu úr kirkjum og kirkjugörðum sýslunnar. Þar er biblía, prent- uð á Hólum 1728. grátur úr Laugardælakirkju þeirri er rif- in var 1957, altaristafla frá Stokkseyri. altari frá Hruna, smíðað af Illuga Jónssyni. Verzlunarstarfið á Eyrar- bakka á sínar minjar í safn- inu. Ullarvog, krani af ó- hemjustórri brennivínsámu en á hann er letrað ártalið 1802. Lífsbjargartól Lífsbjargartól alþýðunnar í Árnessýslu er þarna að finna eins og reipi, klyfberar, söðlar, hagldir, ballansbor, sauma- vélar, þ. á. m. sú elzta á íslandi, skeifur. blóðtökubild- ar, hrossabrestur, plógur frá Torfa í Ólafsdal, reizla frá Skálholti, kistur, hesprutré o.fl. o.fl. sem fyrir aðeins hálfri öld var nauðsynlegt til að draga fram lifið frá degi til dags en nú er álitið ónýtt nema ef ,,einkennilegir“ menn berja upp á sveitabæjum' og spyrja um gamlan hlut. Tónlistin á Eyrarbakka er landskunn. Þama er langspil, sem Ebeneser Guðmundsson á Eyrarbakka smíðaði sjálfur. Flygill úr ,,Húsinu“ á Eyrar- bakka, taktstokkur. Framhald á 9. síðu. Regíur settar um eftírlit með geislavirkum tækium □ í nýútkominni reglugerS dómsmálaráSuneytisjns um skoSun tækja, sem hæf eru til aS framleiSa jónandi geisla, er kveSiS svo á aS skoSun þessa skuli framkvæma eigi sjaldnar en annaS hvert ár. Reglugerð þessi er útgefin 12. ágúst sl. og öðlas.t þegar gildi. en aðalefni hennar er þetta: Framkvæma skal, eigi sjaldnar en annað hvort ár. er. s. í CATULLUS: T/L LESBÍU Gerum oss lífiS aS gamni, gamalla manna sinnum ei svæsnu og præsnu siSvendnisnöldri. Upp koma aSrar sólir aS hinum fyrri gengnum: ævisól okkar hnigin áSur en varir upp kemur aldrei framar aS eilífu slokknuS. Kysstu mig þúsund kossa, kysstu mig hundraS aS auki, auktu svo enn þá tölu um ellefu hundruS, eftir þaS þúsund og ennþá einu hundraSi betur. Eftir þaS ótaldri mergS, svo enginn sá viti þá tölu, er megnaSi aS gera okkur galdur. ef gæti hann þaS vitaS. . Málfríður Einarsdóttir þýddi. skoðun á þeim tækjum, sem hæf eru til að framleiða jón- andi geisla og leyfi ráðherra þarf fyrir. Skoðunin skal framkvæmd af mönnum. sem til þess eru sett- ir af landlækni. Þeim skal heimill frjáls að- gangur að sérhverjum þeim-ý stað, þar sem þau tæki, sem reglugerð þessi tekur til, eru notuð eða geymd, í því skyni að framkvæma á þeim skoðun, enda ber að gæta þess, að skoðunip valdi sem minnstri röskun á daglegri starfsemi við- komandi tækja. Skoðunarmenn skulu athuga ástand tækjanna og hvort við- eigandi öryggisráðstafana sé . gætt við notkun þeirra. og þeir gefa landlækni skýrslu um at- huganir sínar og gera tillögur um úrbætur. þar sem þeir telja þeirra þörf. Landlæknir fyrirskipar eig- anda tækis að framkvæma þær lagfæringar, sem skoðunar- menn telja nauðsynlegar. og séu lagfæringar eigi fram- kvsemdar innan þess frests, sem landlæknir tiltekur. getur landlæknir bannað notkun tæk- isins þar til lagfæring hefur farið fram. Eigandi tækis, sem skoðun gera grein fyrir því til land- læknis. Brot gegn reglugerð þessari varða sektum eða varðhaldi, ef miklar sakir eru, nema þyngri refsing liggi við sam- kvæmt öðrum lögum. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. gr, laga um öryggisráðstaf&nir gegn jónandi geislum frá geislavirk- um efnum eða geislatækjum, nr. 95, 20. desember 1963, öðl- ast þegar gildi. Kiarnasprenging ! WASHINGTON 24/8 — Enn ein kjarnasprengja var sprengd neð- anjarðar í Nevadaeyðimörkinni í Bandaríkjunum á laugardaginn og var það þrettánda kjarna- sprengingin þar vestra á þessu ári. Þrjó Kosmostungl enn send á loft MOSKVU 28/4 — Þremur gervi- tunglum af gerðinni Kosmos var skotið á loft frá Sovétríkjunum í gær, 41., 42. og 43. tunglinu af þeirri gerð. Tveim þeim síðar- nefndu var skotið á loft með arskylt er samkvæmt reglugerð sömu eldflauginni. þessari, skal greiða sérstakt skoðunargjald. sem varið ska’ ZERMATT 24/8 — Ungur til að stand&st kostnað við Frakki beið í dag bana þeg- skoðunina, ar hann reyndi að klífa tind- Skoðunarmenn innheimta nn Matterhorn að norðan- skoðunargjaldið. um leið og verðú. Hann missti fótfestu og þeir framkvæma skoðunina og I hrapaði hundrað metra fall. * <

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.