Þjóðviljinn - 26.08.1964, Side 12
niHÖCUN FUNDARINS VID M ÝVA TN
Hemámsandstæðingar um land allt vinna nú að undirbún-
ingi landsfundarins, sem haldinn verður í Skjólbrekku við
Mývatn helgina 5.—6. september. Víða hafa héraðsnefndir
komið saman og í Skagafirði og Snæfellsnessýslu hafa verið
haldnar héraðsráðstefnur, sem skipulagt hafa þátttökuna á
landsfundinn. Á fimmtudagskvöld verður héraðsráðstefna á
Selfossi, á föstudagskvöld í Borgarnesi fyrir Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu og eftir helgina á Egilsstöðum fyrir Múlasýsl-
tur.
I Reykjavík verður haldinn stuðningsmannafundur í næstu
viku og gengið frá vali fulltrúa. Nauðsynlegt er, að allir sem
vilja koma á landsfundinn hafi tafarlaust samband við skrif-
stofu hemámsandstæðinga í Mjóstræti 3, sími 24701. Þeir sem
ekki eru kjömir fulltrúar mega sitja landsfundinn sem á-
Frá Myvatni.
heymarfulltrúar.
Hópferðir verða á vegum
samtakanna til Mývatns, og
er fyrri ferðin eftir hádegi á
föstudag og komið til Mý-
vatns nokkru eftir miðnætti.
Síðari ferðin verður seint á
föstudagskvöld frá Reykjavík
(næturferð) og verður það
hentug ferð fyrir fulltrúa af
norðurlandi á laugardags-
morgni. Tímaáætlun og far-
gjald verður auglýst síðar, en
gera má ráð fyrir, að farið
Rvík-Mývatn-Rvík kosti inn-
an við 700 krónur. Flugfélag-
ið hefur áætlunarflug til Ak-
ureyrar á laugardagsmorgni
og til baka á sunnudagskvöld
(samtals 1146 kr.). en séð
verður um ferðir milli Akur-
eyrar og Mývatns.
Matur og gisting
. Landsfundurinn hefst kl.
tvö á laugardag og lýkur uiii
kvöldmatarleytið á sunnudag
með sameiginlegu borðhaldi.
Ferðir verða til Reykjavíkur
strax um kvöldið og einnig
snemma á mánudagsmorgun.
Dagskrá fundarins verður
auglýst síðar.
I Skjólbrekku verður fram-
reitt kaffi, smurt brauð, heit-
ar súpur, mjólk og gosdrykk-
ir við vægu verði allan tím-
ann meðan fundurinn stend-
ur. Hótelið í Rejmihlíð (25
mín bílferð frá Skjólbrekku)
mun selja heitan mat, og þar
er einnig að fá gistingu fyrír
um 20 manns. Langflestir
verða þó að láta sér nægja
svefnpokapláss í Skjólbrekku
og bamaskólanum.
Héraðsnefnd hernámsand-
stæðinga í S-Þingeyjarsýslu
kom nýlega saman undir
forsæti Inga Tryggvasonar á
Kárhóli. Gengið var frá vali
fulltrúa á Iandsfundinn og
einnig var skipuð þriggja
manna undirbúningsnefnd til
að skipuleggja móttökur af
hálfu Mývetninga og eiga þar
sæti: Böðvar Jónsson á Gaut-
löndum, Þorgrimur Starri
Björgvinsson í Garði og Ey-
steinn Sigurðsson á Amar-
vatni.
\
\
\
\
([
r
Isbrjótur í heimsókn
/ Reykjavík
A Reykjavíkurhöfn getur nú
að Iíta heldur sjaldgæfa *jón.
Er það ísbrjótur frá bandaríska
flotanum og nefnist hann Ed-
isto, mikið skip og veglegt og
fylgja tveir koptar.
Skipstjóri á Edisto er Noval
E Nickerson og sýndi hann
fréttamönnum skipið í gær. Hon-
um sagðist svo frá, að Banda-
ríkjamenn eigi nú sjö ísbrjóta
af svipaðri stærð og eru fjórir
undir stjóm flótans en þeim
ræður strandgæzlan. Skipið er
um þessar mundir að störfum í
norðuríshafinu, en annan hvem
vetur er skipið að störfum í
Suðurhöfum. Héðan heldur skip-
ið norður í höf og munu halda
sig á svæðinu milli Islands, Jan
FriSrik fékk jafn-
tefli í 3. nmferð
1 þriðju umferð í skákmótinu
i Kaupmannahöfn gerði Friðrik
Ólafsson jafntefli við Kaup-
mannahafnarmeistarann Börge
Andersen en Larsen tapaði fyrir
landa sínum Svend Hamann.
Friðrik er þá með 2 vinninga
eftir 3 umferðir en blaðinu er
ekki kunnugt um hvar hann er
í röðinni.
Skrifstofan í
Mjóstræti 3
Skrifstofa hemámsandstæð-
inga í Mjóstræti 3 er nú opin
alla daga frá klukkan 10 til 19,
sími 2-47-01. Mikill fjárskortur er
á skrifstofunni vegna kostnaðar
við fundarhöld og annan und-
irbúning landsfuridarins og er því
höfuðnauðsyn að allir hernáms-
andstæðingar styrki samtökin
með því að kaupa miða í happ-
drættinu.
Þeir sem áhuga hafa fyrir því
að koma á landsfundinn við Mý-
vatn 5.—6. september eru vin-
samlega beðnir að hafa samband
við skrifstofuna hið allra fyrsta.
Dagskrá fundarins verður til-
kynnt eftir nokkra daga.
Mayen og austurstrandar Græn-
lands.
Jafnframt þessu er skipið bú-
ið tækjum til veðurathugana og
hafrannsókna og hefur unnið
mikilvægt starf, einkum í sam-
bandi við alþjóðasamvinnu þá.
sem átti sér stað 1958—59 og
nefnd var Alþjóðlega jarðeðlis-
fræðiárið. Edisto heldur nú i
19. leiðangur sinn um norðurhöf,
en hefur áður farið í fimm til
Suðurheimskautslandsins.
Lektorsstaða
isýklafræði
auglýst laus
Starf lektors í sýklafræði við
Iæknadeild Háskóla Islands
hefur verið auglýst til um-
sóknar. Verður starfið veitt frá
15. scptember n.k. að tel'ja.
I síðasta Lögbirtingablaði.
þar sem þessi staða er aug-
lýst, er sagt ennfremur að nán-
ari upplýsingar um starfið séu
veittar af forstöðumanni rann-
sóknarstofu Háskólans við
Barónsstig, en umsóknarfrest-
ur er til 1. september.
I sama blaði er auglýst laus
staða mælingaverkfræðings hjá
teiknistofu skipulagsstjóra.
Umsóknarfrestur um það starf
er til 20. september n.k.
Þá eru í blaðinu auglýstar
embættaveitingar lækna. Svan-
ur Sveinsson héraðslæknir á
Reykhólum var hinn 10. þ.m.
settur til þess frá 1. ágúst
1964 fyrst um sinn þar til öðru-
vísi vei'ður ákveðið, að gegna
héraðslæknisembættinu í Búð-
ardalshéraði ásamt sínu eigin
héraði. Guðmundur Guðjóns-
son stud. med. & chir. var
sama dag settur til þess að
vera staðgöngumaður héraðs-
læknisins í Hvammstangahér-
aði frá og með 1.—15. ágúst.
Ennfremur var setning Magn-
úsar Karls Péturssonar, setts
héraðslæknis í Flateyrarhéraði,
framlengd til 1. nóvember 1964.
Fagnaðarfundir
Þcssi mynd er tekhx í gær er börn sem dvalizt hafa í sumar að
Laugarási í Biskupstungum á vegum Rauða Kross Islands voru
að koma í bæinn aftur. Og eins og myndin sýnir urðu það fagnað-
arfundir er foreldrarnir komu til þess að taka á móti börnunum
eftir sumardvölina í sveitinni. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
1800 árekstrar og 7 hana-
slys af völdum umferðar
Samkvæmt upplýsingum um-
ferðardeildar rannsóknarlögregl-
unnar hafa það sem af er þessu
ári orðið um 1800 árekstr.yr sem
henni hafa borizt skýrslur um
og er það 220 fleiri en á sama
tíma í fyrra.
í sambandi við þessar tölur
ber þess þó að gæta að mjög
mikil aukning hefur orðið á bíla-
fjöldanum frá því 1 fyrra og er
því ekki víst að árekstrafjöld-
inn sé hlutfallslega meiri nú en
þá miðað við tölu farartækja í
umferð.
Banaslys af völdum umferðar
hafa orðið 7 hér í Reykjavík
og nágrenni það sem af er
þessu ári og er það meira en
var á sama tíma í fyrra. Auk
þess hafa orðið nokkur banaslys
af völdum umferðar úti á landi
og eru þau ekki með í þessari
tölu.
Árekstrar- og slysafjöldinn af
Framhald á 9. síðu
NÁTTÚRUFRÆÐINGAR UNDIRBÚA
Námsferðir norrænna
stúdenta til Islands
■ Undanfarin hálfan mánuð hafa verið hér á landi 12
háskólamenn frá Norðurlöndum til að kynna sér íslenzka
náttúru og til að undirbúa væntanlegar námsferðir stúd-
enta frá Norðurlöndum til að fræðast um hina sérkenni-
legu íslenzku náttúru.
Blaðamönnum var í gær boð-
ið að sitja fund með háskóla-
mönnum þessum og rómuðu
þeir allir þá óþrjótandi mögu-
leika. sem íslenzk náttúra hef-
ur upp á að bjóða fyrir erlenda
stúdenta til rannsókna.
Ætlunin er að stúdentarnir
komi hingað til að kynnast ís-
lenzkri náttúru af eigin raun
og verði slíkar ferðir jafnvel
farnar á hverju ári.
Þeir Islendingar, sem leiðbeint
hafa gestunum um landið eru
Sigurður Þórarinsson, Guð-
mundur Sigvaldason, Guðmund-
ur Kjartansson, Tómas Tryggva-
son og Jón Jónsson.
Það eru ríkisstjórnir Norður-
landanna, sem eiga að standa
straum af kostnaði við Islands-
ferðimar og mun verða sett á
stofn sameiginleg nefnd Norð-
urlandanna fjögurra til þess að
úthluta styrkjum af fjárveitingu
þessari.
Þeir sem dvalizt hafa hér á
landi í þessu skyni eru Tom
Barth pröfessor og dr. Björa
Andersen frá Noregi, Veikko
Okko og Neuvonen prófessor frá
Finnlandi, prófessoramir Gunn-
ar Hoppe, Filip Hjulström og
Franz Wickmann, Walter Sch-
ytt og Tomas Lundquist frá Sví-
þjóð, Asger Bertelsen, Börge
Fristrup og Arne Noe-Nygaard
frá Danmörk.
Tíu þessara náttúrufræðinga
voru staddir í Reykjavik í gær
en þeir Asger Bertelsen og
Walter Schytt fóru héðan í fyrra-
dag.
Einn fulltrúi frá hverju landi
ræddi við fréttamenn í gær og
létu þeir allir í ljósi ánægju
sína með þessar væntanlegu
námsferðir norrænna stúdenta
tii Islands. Prófessor Tom
Barth tók meira að segja svo
djúpt í árinni að Island gæti
orðið fremst í veröldinni á sviði
j arðfræðivísinda.
Fellibylurínn Cleo
stefnir nú á Kúbu
Folk flutt burt af hættuslóðum í Oriente- og
Camagueyfylkjum; mikið tjón á Guadeloupe
HAVANA 25/8 — Fellibylurinn
Cleo sem þegar hefur valdið
miklu tjóni á eyjum við Karíba-
haf stefndi þegar síða.st fróttist
á Kúbu og var þar mikill við-
búnaður að flytja burt .fólk frá
þeim héruðum þar sem mest
hætta er á ferðum.
Þetta er einkum í fylkjunum
Oriente og Oamaguey sem verst
urðu fyrir barðinu á féllibylnum
Flora í fyrra, en hann varð um
þúsund manns að bana og olli
geysilegu tjóni.
Þegar síðast fréttist voru vind-
sveipir frá Gleo famir að gera
vart við sig á suðurströnd Ori-
ente. Einnig var farið að hvessa
Danskur lista-
maður á Mokka
1 gær var opnuð í Mokka-
kaffi við Skólavörðustíg sýning
á 12 olíumálverkum eftir danska
listamanninn Elvin Erud.
Erud hefur haldið fjöldamarg-
ar sýningar í heimalandi sínu,
Danmörku, og auk þess hefur
hann unnið að innanhússskreyt-
ingum, hefur hann meðal ann-
ars málað altaristöflur og mynd-
skreytt skóla. Listamaðurinn
hefur um margra ára skeið
annazt kennslu í keramik og
málaralist. Kvæntur er Erud
konu af íslenzkum ættum og
dvelst hún um þessar mundir
hérlendis og annast sýninguna
fyrir me.nn sinn.
Eins og áður segir eru á sýn-
ingunni 12 olrumálverk og eru
þau öll til sölu. Sýningin stend-
ur yfir til 4. september. I haust
mun Erud opna sýningu í Kaup-
mannahöfn.
á Haiti og Jamaica. Þar hefur
verið varað við flóðbylgjum.
Cleo gekk yfir eyna Guadel-
oupe á sunnudag og olli þar gíf-
urlegu tjóni. varð a.m.k. 13
mönnum að bana, en 40 særð-
ust og þúsundir misstu heimill
sín. Nær öll bananauppskeran
eyðilagðist og mikið tjón varð á
sykurekrum.
Samkvæmt AFP-frétt reif
fellibylurinn þökin af um 10.000
húsum. Eignatjón er til bráða-
birgða áætlað um 3 miljarðar
króna og er það mesta sem orð-
ið hefur af völdum fellibyls í
30 ár.
Víða hafa orðið skriðuföll og
margir vegir hafa lokazt, en
símasamband slitnað. Margir
bktar munu hafa farizt.
Vindhraði Cleo hefur mælzt
mestur 63 metrar á sekúndu.
Höfrungur III.
fékk 700-800
tunnur af síld
Akranesi 25/8. — Höfr-
ungur III. kom hingað í
dag með 700—800 tunnur
af síld er hann veiddi út
af Jökli um hálfs fjórða
tíma siglingu frá Akranesi.
Síldin var frekar smá en
fer þó í frystingu. Skipið
landaði 400 tunnum af
síldinni hér á Akranesi en
fór með hitt til Reykja-
víkur. Höfrungur fékk
þessa veiði í þrem kösfcum,
þar af 400 tunnur í einu
kasji.