Þjóðviljinn - 28.08.1964, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.08.1964, Síða 1
Föstudagur 28. ágúst 1964 — 29. árgangur — ,193. tölublað. Aldrei verra ástand vega —12. síða KR-Fram jafntefli 0:0—5. síða Enn róstusamt á Kýpur — 3. síða Laft er allt lævi blandið í höfuðborg Suður- Víetnam Bandaríkin klambra saman þrístjóraveldi í Suður-Víetnam í gær tókust enn heiftarlegir götubardagar í Saigon Blóðugar óeirðir urðu í Saigon og annars staðar í Suður- Vietnam í gær, er kaþólskir stuðningsmenn Nguyen Khanh efndu til kröfugöngu. Talið er að hershöfðingjaklíkan hafi í dag ætlað að leysa vanda sinn með því að gera Tran Thiem Kiem hershöfðingja að forseta og Doung Dan Minh forsætisráðherra, en hafi ráðagerðin strandað á mótspymu Bandaríkjanna, sem ekki vildu styðja stjórn, sem spark- aði Khanh og var því gripið til þess að hafa hann með. SAIGON 27/8 — í dag voru völd í Suður-Víetnam fengin í hendur þremenningastjórn og er fyrrverandi forseti Nguyen Khanh einn stjórnenda. Þetta var kunngert í Saigon í dag skömmu eftir að herinn tók að skjóta á mikinn fólksfjölda, sem safnaðist saman í kröfugöngu KRON með kjörbáðarbíl í Kópavogi Ingólfur Ólafsson kaupfélagsstjóri KRON, Guðmundur Jónsson og Hadda Halldórsdóttir við kjörbúðarbílinn er verzlun hófst í honum í gær. — (Ljósm. Þjóðv. J.Th.H.) Þjóðviljinn . hafði spumir af því í gær, að KRON ætlaði að fara af stað með kjörbúð- arbíl í Kópavogi. Það fylgdi og fréttinni. að bæjarfógetinn í Kópavogi, Sigurgeir Jóns- son, væri í andstöðu við framtak þetta og hyggðist banna sölu úr bílnum. Tíð- indamaður Þjóðviljans brá sér á staðinn er bíllinn lagði af stað frá KRON-verzlun- inni að Álfhólsvegi 32 < Kópavogi um klukkan 2 e.h. í gær. Bíllinn tók sér fyrst stöðu við Lyngbrekku og þegar i stað hópaðist fólk að til að verzla. Ekki bólaði neitt á því að fógetinn myndi banna verzlun í bílnum. Snerum við okkur þá til fógetaembættisins og spurðist þar að ekkert yrði aðhafzt i bili og hefði fógeti skipað undirmönnum sínum að fresta aðgerðum, a.m.k. um sinn. Heilbrigðisnefnd Kppavogs- bæjar og bæjarstjóm höfðu samþykkt verzlunarleyfið fyr- ir sitt leyti, en fógeti var einn í andstöðu. Starfsfólk í kjörbúðarbíl þessum eru Hadda Halldórs- dóttir og Guðmundur Jóns- son. fyrir framan höfuðstöðvar hers- ins í Saigon. Blóðsúthellingar Sex manns létu lífið í óeirð- unum og minnsta kosti 30 særðust. Brynvarðir herbílar komu á vettvang og um rÖO fall- hlífaliðar hófu skothríð að mannfjöldanum, sem reyndi að brjótast inn í höfuðstöðvar hers- ins vopnaður stöfum. hnífum, flöskum og öxum. Þarna voru samankomnir um 3000 kaþólikk- ar og hrópuðu þeir slagorð og kröfðust þess, að herforingja- klíkan héldi áfram að vera við völd og styðja Khanh hershöfð- ingja, en ganga hvergi að kröf- um Búddista að fara frá. í þremenningastjóminni eru Khanh, Duong Dan Minh hers- höfðingi sem var forseti næst á undan honum og fyrrverandi vamarmálaráðherrá og yfirmað- ur herforingjaráðsíns Tran Thi- en Khiem. StraX þegar herforingjaklíkan hafði skýrt frá myndun þrí- stjóraveldis áttu hershöfðingj- amir þrír fund með sér og skor- uðu síðan á þjóðina að virða lög og reglu. Hgrforingjaklíkan leyst upp I yfirlýsingu sem gefin var út í dag, er því lýst yfir að hers- höfðingjaklíkan verði nú leyst upp og muni hershöfðingjamir aftur taka upp störf sín í hem- um. I Þá er skýrt frá því að bráða- birgðastjórnin sem nú er við völd haldi þeim. og eigi að kalla saman þing innan tveggja mán- aða til þess að kjósa nýjan þjóðarleiðtoga. Bandaríkin styája Khanh Traustir heimildarmenn í Saigon skýra frá því, að áður en þrístjóraveldið var tekið upp aftur hefði Thiem Kiem hers- höfðingi óskað þess að verða út- nefndur forseti Suður-Víetnam og 'hafa Minh hershöfðingja í stöðu forsætisráðherra. En Bandaríkin vildu ekki styðja stjórn, sem Khanh ætti ekki að- ild að, og eftir að óeirðimar brutust út í dag og kröfugöngur Framhald á 3. síðu. 49 nrnnns hafa faríit af slysförum hér á landi fyrstu 8 mánuði ársins ■ Samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélags íslands hafa 49 íslendingar látizt af slysförum hér á landi eða hér við land það sem af er þessu ári- 17 hafa drukknað í sjó eða vötnum, 17 farizt í bifreiðaslysum, 2 farizt af völdum bruna og 1 í flugslysi. Loks hafa 12 farizt í ýmsum slys- um- í þessum tölum eru ekki meðtaldir þeir íslendingar sem farizt hafa af slysförum erlendis eða útlendingar sem farizt hafa hér á landi. 1 fyrra var óvenju mikið um I banaslys hafa verið komin upp slysfarir hér á landi og munu í um 90 um þetta leyti í fyrra. Alls urðu 105 banaslys á árinu 1963 og skipbust þau þannig. I svigum tölur frá árinu 1962: 52 drukknuðu í ám og vötnum eða í sjó, (35), 18 fórust í umferðar- slysum (11), 14 fórust í flug- slysum og 21 í öðrum slysum (11). Alls fórust því 105 menn í slysum á árinu 1963 en .57 árið 1962. I Af þessum tölum sést að á tæpum átta mánuðum sem af eru þessu ári hafa farizt nálega jafnmargir menn í umferðarslys- um hér á landi og á öllu árinu í fyrra og 6 fleiri en á árinu 1962. Er hin síhækkandi tala dauðsfalla af völdum umferðar- slysa hér á landi vissulega á- hyggjuefni og segir hún þó ekki alla söguna því tala þeirra sem slasast meira eða minna í umferðarslysum þótt þeir haldi lífi fer einnig síhækkandi og jafnframt vex tjón það á verð- mætum er af umferðarslysum leiðir ár frá ári. FÝLL í HREIDRI Myndin er af fýl á hreiðri efst i bjarginu á Barðsnesshorni sem er austan megin við mynni Norðfjarðarflóa. Myndin er tekin í ferð sem Sósialistafélag Neskaupstaðar efndi til í sumar og er frásögn af henni og fleiri myndir birtar á 7. síðu í dag. — (Ljósm. H.G.). Sfldveiðin er aftur ai glæðast Góðar horfur eru á því að sfldveiði fari nú að glæðast fyrir norðan. I gær fréttist af því, að Ægir hefði fundið allstórar torfur um 90 mílur austur af Langancsi. Síldin stendur þar djúpt á daginn en leitar upp undir myrkur og dreifir sér. I gærdag kastaði einn bátur á þeim slóðum og fékk 200 mái. Ennfremur fann Pétur Thor- steinsson töluvert af síld um 120 sjómílur út af Dalatanga. Enn- fremur fannst allmikið síldar- magn um 80—90 mílur undan landi. og var kastað- á þeim slóðum en með litlum árangri, því síldin var stygg. Þá er og kunnugt um að Fanney fann nokkrar allgóðar torfur í Isafjarðardjúpi, en ekki er enn- vitað til hvers sú síld gæti reynzt nýt. I gærkvöldi hafði Síldarleitin þær fréttir að færa, að allmörg skip væru komin á vettvang og hefðu kastað á , svæðinu 60—120 mílur út af Ðalatanga. En aðeins eitt skip hafði tilkynnt úm afla. og var það Jörundur III. og hafði fengið 1100 mál. Veður var heldur leiðinlegt og háði það skipunum. Einnig höfðu mörg skip farið á svæðin austur af Langanesi. þar sem Ægir hafði fundið síld, sem fyrr segir, en enn var engar fréttir að þeim aflabrögðum að fá. flðgerðum frest- að í máli flg- ústs Sigurðss. Klukkan 10 í gærmorgun var enn einu sinni tekið til við uppboðið á íbúð Ágústs Sigurðssonar að Drápuhlíð 48 hér í bæ. Voru hlutað- eigandi boðaðir á skrifstofu borgarfógeta að Skólavörðu- stíg 12. Mættir voru borgarfógeti og skrifari hans, Jón B. Jónsson, Ágúst Sigurðsson og aðstoðarmaður hans. Bergur Sigurbjömsson, og Kristján Eiríksson, fulltrúi uppboðsbeiðanda. Jóhann- esar Lárussonar, ásamt blaðamönnum. Kristján Eiriksson lagði fram mótmæli gegn mót- mælum Ágústs Sigurðsson- ar um réttmæti uppboðs- kröfunnar. Bergur Sigur- björnsson fór fram á viku- frest til að athuga mót- mælaskjal Kristjáns Ei- ríkssonar og var hann veittur. Aðgerðum verður því frestað enn einu sinni e

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.