Þjóðviljinn - 28.08.1964, Side 6

Þjóðviljinn - 28.08.1964, Side 6
g SlÐA ÞIÓÐVILIINN Föstudagur 28. ágúst 1964 Warren-skýrslan liggur á lausu Talsmenn hinnar svonefndn Warren-nefndar, sem rannsak- ar morðin á Kennedy forseta og Lee Oswald, hefur nú skýrt svo frá, að hafin verffi rétt- arrannsókn á því, hvernig bandaríska blaðið New York Joumal American hafi komizt yfir frásögn sína af leynileg- um viðræðum og yfirhcyrsl- um nefndarinnar. Joumal American hefur birt vitnisburð Jack Rubys, morð- ingja Oswalds, við yfirheyrsl- Mikið herlið hefur veriff flutt til Saigon Yfirleitt bera menn kvíðboga fyrir horfunum og óttast jain- vel að borgarastyrjöld kunni að brjótast út i landinu. (Dbl. Vísir á þrlðjudag). Hönd listamannsins skalf örlítið þegar hann kveikti í vindlinum fyrir mig og viff kvöddumst meff djúpri virðingu hvor fyrir öðrum. (Vignir Guðmundsson, viðtal við Kjarval). Réttlæti er aðeins hugs- anlegt milli tveggja jafn- sterkra aðila. (Thucydites). ur nefndarinnar og kveðst blaðið birta vitnisburðinn orð- réttan. Greinamar um vitnis- burð Rubys hafa vakið mikla athygli. Lögfræðilegur ráðu- nautur Warren-nefndarinnar, Lee Ranking, hefur lýst þeirri skoðun sinni, að útilokað sé, að nokkur af meðlimum henn- ar eða starfsliði hafi látið blað- inu þessar upplýsingar í té, og verði að leita til lögregl- unnar til að komast til botns í málin”, I síðustu greininni, sem birt var í Joumal American, er það sagt vera vitiiisburður Rubys, að hann neiti því að um samsæri hafi verið að ræða þegar Lee Oswald var ráðinn af dögum. Morðið hafi verið á augnaþlikinu ráðið til þess gert að hlífa Jacqueline, ekkju hins myrta forseta, við þjáningum í væntanlegum rétt- arhöldum yfir Lee Oswald. Nýjar Hand- tökur JÓHANNESARBORG 26/8 — Tíu hvítir menn, sem Suður- Afriku leynilögreglan hefur handtekið á undanförnum tveim mánuðum í samræmi við svo- nefnd 90 daga lög hafa nú ver- ið ákærðír í Jóhannesarborg fyrir að vera félagar í kommún- istaflokknum eða tekið þátt í kommúnistískri starfsemi. Sex hinna tíu eru konur. Samkvæmt 90 daga lögunum geta yfirvöldin haldið borgurun- um í fangelsi í þrjá mánuði án dómsúrskurðar eða ákæru. Enskir vísindamenn flýja iand hver af öðrum Margur vandinn steðjar nú að stjórn íhalds- flokksins enska. Skýrsla Robbins-nefndarinnar leiddi það í ljós, hve gjörsamlega hefur brugð- izt stefna stjórnarinnar í menntamálum yfir- leitt. Þar við bætist, að undanfarið hefur færzt mjög í vöxt flótti vísindamanna úr landi, og þá einkum til Bandaríkjanna. Þykir Englendingum sem nemi vísindalegri landauðn af þessum sök- um. í eftirfarandi frásögn er skýrt nokkru nánar frá þessu og stuðzt við grein í tímaritinu World Student News. -4> Nýskeður landflótti tveggja heimskunnra vísindamanna hefur varpað ljósi á þá að- búð, sem fremstú vísindamenn Englendinga. og starfslið þeirra eiga við að búa. Menn þessir eru Ian Bush, prófessor í líf- fræði við háskólann í Birm- ingham, og John Polpc. einn fremsti eðlisfræðingur landsins. Báðir fluttust menn þessir til Bandaríkjanna. 1 skýrslu sem ráðgefandi nefnd menntamála í Englandi gerði og birt var i október 1963. er ríkisstjórnin vöruð við því, ,,að við séum að missa talsverðan hluta af þjálfuðum vísindamönnum okk-í>. ar og tæknifræðingum úr landi til Norður-Ameríku, og þá einkum til Bandaríkjana. Síð- ustu tíu ár hefur aukizt greini- lega þessi flótti. sem nú nem- ur 7—8% af öllum okkar dokt- orum“. Kennaraskortur En það er ekki eingöngu vís- indaálit Englands, sem hnekki bíður af þessum sökum. Jafn- framt því, sem færir vísinda- menn og efnilegir sækja úr landi, eykst skoi-turinn á hæf- um kennslukröftum við há- skóla landsins. Ekki þarf að lýsa því, hver áhrif slíkt kann að hafa á enskan iðnað, og framleiðslugetu hans. Þannig er talið, að fróðustu manna yfirsýn, að þessi landflótti geti valdið enskum vísindum óbætanlegum skaða, sé ekki ráð í tíma tekið. Og bersýni- legt þykir, að íhaldsstjómin enska sé ekki fær um að ráða fram úr vandanum. Gildir hér hið fomkvena, að „þeir sem aldrei þekktu ráð. þeir eiga að bjarga hinum“. Og hversvegna flýja svo visindamennimir land? Að sjálfsögðu er launamismunur mikilvægt atriði. En hér kem- ur annað atriði til, jafnvel enn mikilvægara, Aðbúnaður og aðstaða til vísindastarfa er svo bágborin víða í Englandi. að til háðungar er. Kunnugir menn telja, að þetta sé jafn- vel enn þyngra á metunum þegar skýra skal or- sakir landflóttans. Þess má geta, að það er víðar en í Englandi, sem þessu er þannig farið. Islenzkir vísindamenn hafa þannig enga teljandi að- stöðu margir hverjir ef ekki flestir til að sinna fræðigrein sinni, en þurfa að draga fram lífið við ítroðslu og aukastörf. Peningaþvarg Prófessor Bush lýsti því, að svo mikill hluti af tíma hans hefði farið í allskonar peninga- þvarg fyrir vísindastofnup hans, að sáralítið næði hefði orðið til að sinna venjulegum vísindastörfum. Stúdentar hans hefðu mátt notast við kennslu- tæki, sem voru þetta tuttugu til fjörutíu árum eftir tíman- um. Fred Hoyle. stjömufræð- ingurinn heimsþekkti, hefur lýst því yfir, að hann muni einnig flýja land. Hoyle lýsti því yfir um leið, að hver ein- asti vísindamaður að heita má velti því nú fyrir sér, hvort ekki sé rétt að yfirgefa sem skjótast þá vísindalegu dauðs- mannsey. sem England sé orð- ið. Vígbúnaðaræði Enska íhaldsstjórnin virðist hugsa sem svo — ef hún hugs- ar þá nokkuð um málið yfir- leitt — að ,.syndaflóðið komi eftir vom' dag“. Hún hefur enga lausn fram að færa og hefur jafnvel neitað að skipa nefnd til þess að gera tillög- ur til úrbóta. Enda er það mála sannast, að til þess að ráða bót á því öngþveiti, sem skapazt hefur í enskum menntamálum, þarf slíkt meg- inátak, að engin von er til þess. að íhaldsflokkurinn sé þess megnugur. Prófessor Bush beridir á það. að með 20 milj- ón punda fjárveitingu árlega megi stórbæta ástandið og með 60—70 miljónum gjör- breyta því. En slíkar fjárveit- ingar eru gjörsamlega óhugs- andi vegna þess gífurlega fjár- magns, sem íhaldsstjórnin und- anfarinna ára h'afa veitt til vígbúnaðar. Síðasta Hvítbók um varnarmál leiddi það í ljós, að á yfirstandandi ári verður hvorki meira né minna en 2.000 miljónum punda — 240.000 miljónum íslenzkra króna — ausið í vígbúnað. Að- eins smávægilegur hluti þess fjár myndi að dómi prófess- ors Bush nægja til þess að gjörbreyta. til hins betra að- búnaði enskra vísinda, en að sjálfsögðu eru morðtól látin ganga fyrir vísindum. En það er ekki fjárskortur- inn einn, sem amar að ensk- um vísindum, og er hann þó ærinn. Þeim er bezt til þekkja ber saman um það. að tak- markaðar umbætur komi aff engu haldi. Gjörbreyta þurfi fræðslukerfi Englands og það frá grunni. Þess er engin von. aff ráðherrar íhaldsstjórnar- innar, komnir bcint úr yfir- stéttaskólum Englands, hafí nokkurn skilning á því, að slíkra breytinga sé þörf. Þar þurfa aðrir að koma til. Bandaríkjaforseti birtir fjár- reiéur fjölskyldu sinnar Eins og kunnugt er af frétt- um, hefur Johnson Bandarikja- forseti séð sig tilneyddan aff skýra opinberlcga __ frá fjárhag fjölskyldu sinnar, en í hita kosningabaráttunnar hefur þrá- faldlega verið að því atriði vikiff. Samkvæmt greinargerð forsetans er fjölskylda hans að heita má beiningarmenn miðaff við aðra auðkýfinga Banda- ríkjanna. á .,a.ðeins“ sem svar- ar tæpum 150 miljónum ís- lenzkra króna. Mikill hluti þessara eigna eru fasteignir, svo sem jarð- eignir. einnig hlutir í útvarps- stöðvum og svo hlutabréf alls- konar. Það er forsetafrúin sem bezt er stæð af fjölskyldunni, á um 90 miljónir. Dætumar eru heldur ekki á flæðiskeri staddar ef pabbi kynni að detta út úr pólitíkinni, þær eiga nokkrar miljónir hvor. Kosningabaráttan hefur að undanförnu harðnað í Banda- ríkjunum og neytt forsetann til þess að gefa þessa yfirlýsingu. Hið svonefnda ,,Baker- hneyksli" frá því í fyrra. þeg- ar einn af nánustu samstarfs- mönnum Johnsons var sakað- ur um fjársvik, hefur gefið repúblikönum aukinn byr i seglin. Barry Goldwater, sem er nánast smáþjófur við hlið Bandaríkjaforseta, hefur áður lagt fram skýrslu um fjárhag sinn og þannig óbeinlínis neytt Johnson til þess að fara og gera. slíkt hið sama. Það framgengur af skýrslu forsetans, að honum er líka vel kunn sú list að fela bak við skuldir. bæði skuldar hann skatt og ýmislegt fleira. Eignir forsetafjölskyldunnar hafa fjórfaldazt á siðasta ára- tug, og fer ýmsum sögum af því. hvemig svo hafi mátt verða. Víst er um það að John- son hefur ekki skirrzt við að nota sér aðstöðu sína í Öld- ungadeild Bandaríkjaþings til þess að afla sér fjár, enda virðist slíkt álitið nánast sjálf- sagt vestan hafs líkt og á ís- landi nú orðið. — Þess má að lokum geta, að Johnson hefur nýlega lýst stríði á hendur allri fátækt. 90 miljóna virði. Bannað að aka tveim bílum samtímis! — Það er hvergi bannað í umferðarlögunum að aka tveim bílum samtímis, sagði ung, lagleg óg ljóshærð stúlka í Arlington, Gayle Andrews að nafni, þegar lög- regluþjónn stóð hana að umræddu verki. — Hversvegna, spurði vörður laganna, hversvegna ak- ið þér tveim bílum í einu? — Af því einu, svaraði unga stúlkan, undrandi á pessu skilningsleysi mannsins, að rnér þykir þettó þægilegra en að aka fyrst öðrum bílnum heim og fara svo íótgangandi eftir hinum. — Þér eruð hérmeð handtekin! sagði löggan. — Hvers vegna? spurði stúlkan. Lögregluþjónninn gat ekki svo fyrirvaralaust svarað því, en eitthevrt sjötta skilningarvitið hvíslaði þvi að hon- um, að eitthvað væri við þeáa að athuga. Ungfrúin hafði bá aðferð að setja aftari bílinn í gang, hlaupa síðan út og inn í hinn fremri, sem hún setti svo frígír og stýrði meðan aftari bíllinn ýtti á. Dómarinn sá sig tilneyddan að dæma ungfrú Andrews i sekt fyrir brot á — að vísu í þessu dæminu óskráðum - umferðarlögum. — Og þetta er nú íþróttaandinn hjá þessum lögfræð- ingum, tautaði þessi tvöfaldi kvenekill. um leið og hann gekk út úr réttarsalnum — 25 dölum fátækari (

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.