Þjóðviljinn - 29.08.1964, Page 2
I
1 gær á 25 ára af-
mælisdegi Ara Jósefs-
sonar, skálds, er lézt
af slysförum fyrr í
í sumar, var ákveðið
af nokkrum félögum
hans að gangást fyrir
stofnun sjóðs til minn-
ingar um hann.
’ Mynduð hefur verið
pfp nefnd til að annast
| söfnun fjár i minning-
í arsjóðinn.
r Síðar veríjur gerð
| nánari grein fyrir til-
| gangi sjóðsins og
' skipulagsskrá hans birt.
|g|P:f; í undirbúningsnefnd-
inni eiSa sæti: Árni
Bjömsson, Laugavegi
iJHsÍ 43> Ásmundur Sigur-
íáiHliÉ jónsson, Háteigsveg 26,
Haukur Jóhannsson,
afsson, Tjamargötu 20, Ragnar
Þorsteinn Jónsson frá Hamri,
SlÐA
HÓÐVILIINN
- Laugardagur 29. ágúst 1964
Sem kunnugt er ákváðu
brezkir og franskir aðilar að
heija smíði nýrrar farþega- og
flutningavélar á síðasta ári,
þotu sem á að geta náð meiri “**e> ----------------•
hraða en hljóðið.
Þessi nýja þota hefur hlotið
nafnið Concorde, og er gert ráð
fyrir að hún geti flogið með
2335 km hraða á klukkustund
(1450 mílna hraða) og flutt um
100 farþega. Flugþol • þotunn-
ar á að vera 5955 kílómetrar.
Síðustu mánuði hafa verið
' uþpi ýmsar bollaleggingar um
að auka flughraðann enn meir
og stækka vélarnar jafnframt,
þannig að þær geti flutt fleiri
farþega í hverri ferð. Ef þessar
bollaleggingar verða meira en
ráðagerð:rnar einar má búast®*
við að enn líði alllangur tími |
áður en fyrstu Concorde-flug-1
vélamar verða afhentar frá 1
verksmiðjunum, en gert hafði
verið ráð fyrir því að fyrstu
þoturnar yrðu tilbúnar á ámn-
um 1970 eða 1971.
í lok síðasta árs höfðu flug- ■ PARÍS 27/8 — Flugfarþegar
félög víðsvegar um heim lagt | sem koma til Parísar frá Tokío
inn pantanir á alls 33 Concor- j Verða frá og með föstudegi að
de-þotum, þar af hafði brezka j ieggja fram vottorð um það,
félagið BOAC pantað 6 og j ag þejr seu bólusettir gegn
franska félagið Air France jafn '
sem áætlaður er 1000 milj.
dollarar, en flugvélaframleið-
endumir telja að of mikið sé
að ætla þeim að greiða fjórð-
ung kostnaðarins.
Þó að ekki najðist samkomulag
um framangreint á síðasta ári
hafa ýmsar athuganir verið
gerðar á undanfömum árum
í Bandaríkjunum á smíði far-
þegaþotu. sem á að geta flog-
ið með 3200 kílómetra hraða á
klukkustund (2000 mílna), flutt
milli 120 og 160 farþega í ferð
hverri, og haft 6450 kílómetra
flugþol. Með öðrum orðum:
Bandaríkjamenn gera ráð fyrir
í sínum áætlimum að smíðuð
verði þota talsvert stærri en
brezk-franska Concorde-vélin.
1 lok ársins 1963 höfðu borizt
fyrirspumir ýmissa flugfélaga
um þessa fyrirhuguðu þotu og
frumpantanir á 50 þeirra. Þar
er ekki aðeins úm að ræða
bandarísk félög, heldur og
fleiri 1 Evrópu og Asiu, m.a.
ítalska félagið Alitalia, Air
India í Indlandi og japanska
flugfélagið.
Kolen kemur
upp / Jupun
Ein af tillögum þeim um hraðfleyga farþegaþotu, sem bandarísk-
ir flugvélasmiðir hafa Iagt fram á síðustu mánuðum. Þetta er til-
laga frá hinum frægu Boeing-verksmiðjum og er þar gert ráð fyr-
ir að unnt sé að breyta stöðu vængjanna eftir því hvort flogið
er með litlum hraða, t.d. við flugtak og í lendingu, eða ofsahaða
háloftunum.
margar, en önnur flugfélög sem
hafa hug á að kaupa Concorde
eru Middle East Airlines, Pan
American Airways, American
Airlines, Trans-World Airlines
og Continental.
í Bandaríkjunum hefur 6-
samkomulag milli ' stjórnar-
valda og flugvélaframleiðenda
tafið undirbúning allan að
smíði nýrrar farþegaþotu, sem
flogið gæti hraðar en hljóð:ð.
Hefur verið deilt um það.
hversu mikinn hluta kostnaðar-
ins við undirbúningssmíði og
tilraunir rikissjóður eigi að
bera og hve mikinn hluta fram-
leiðendumir. Hafa stjómar-
völdin boðizt til að greiða þrjá
fjórðu hluta þessa kostnaðar.
Þannig á Concorde-þotan að líta út.
Aðeins
verksvit
Fyrir nokkrum dögum boð-
aði Vísir það snjallræði að
taka upp innflutning á er-
lendum sandi, sementi og
vatni til þess að leysa hús-
næðisvandræði landsmanna
og fá nýjan starfsvettvang
fyrir heildsalastéttina. Benti
blaðið á að byggingarkostnað-
ur hér á landi væri óhæfilega
hár, jafnvel minnstu íbúðir
kostuðu svo sem hundrað
þúsundum króna of mikið.
og því væri ekki seinna
vænna að taka upp innflutn-
ing á verksmiðjugerðum hús-
hlutum sem siðan væru sett-
ir saman í byggingar hérlend-
is. Þótti þessi tillaga svo
merkileg að Morgunblaðið
prentaði hana upp með til-
hlýðilegri virðingu og gerði
hana þanniy að sinni.
En hið óhæfilega ver4 á i-
búðum stafar ekki af því að
við höíum ekki sand, sement
og vatn til jafns við aðrar
þjóðir, heldur af íráleitú
skipulagi Bygging íbúðarliúsa
er hér vettvangur braskara
og fjárplógsmanna; hver íbúð
gengur oft kaupum og söl-
um tvívegis eða þrívegis áður
en hún kemst í hendur þeirra
manna sem ætla , að búa 1
henni. Af þessu leiðir svo
aftur áð vinnubrögðin við
smíði íbúða eru frumstæð 0g
dýr; hvert hús er tekið sem
sjálfstætt verkefni í stað þess
að skipuleggja í senn heil
borgarhverfi, koma á nauð-
synlegri samræmingu og setja
á laggimar íslenzka verk-
smiðju sem framleiði hús-
hluta. Það _er ekkert meira
vandamál fyrir okkur en ná-
grannaþjóðirnar að taka upp
hagkvæm og skynsamleg
vinnubrögð við húsbyggingar.
En forsendan er að sjálfsögðu
sú að fylgt sé félagslegum
sjónarmiðum, að það sé við-
urkennt að húsnæði er lífs-
nauðsyn almennings en ekki
vettvangur gróðabrallara.
Við þurfum þannig ekki að
flytja inn sand, sement og
vatn, heldur einvörðungu
verksv'it En það gæti reynzt
erfitt fyrir heildsalana sem
standa að Vísi að tryggja sér
umboðslauo fvrir þá vörutes-
und. — Austri.
Jes lEintr sýnir
í Ásmundarsal
í gærkvöld kl. 20,30 opnaði
ungur málari, Jes Einar Þor-
steinsson, málverkasýningu í Ás-
mundarsal við Freyjugötu. Er
þetta önnur sýningin sem hann
heldur en hann sýndi einnig í
fyrrahaust á sama stað við
góða aðsókn.
Jes Einar hefur lagt stund á
nám í arkitektúr í París síðan
1954 og býst hann við að ljúka
námi á næsta ári. Hann hefur
fengizt við myndlist frá unga
aldri og var í Handíða- og
myndlistarskólanum og hefur
einnig lagt stund á málaralist í
París jafnhliða námi ' sínu í
arkitektúr.
Á sýningunni í Ásmundarsal
eru 22 olíumálverk, 16 vatnslita-
myndir og 18 blýantsteikningar,
allt verk unnin í vor og sum-
ar. Eru flestar myndirnar til
sölu en nokkrar eru einkaeign.
Sýningin stendur yfir til 6.
september og verður hún opin
kl. 5—10 e.h. virka daga en kl.
2,10 e.h. laugardaga og sunnu-
daga.
Verkamaður
slasasf
Á sjötta tímanum í gærkvöld
féll aldraður maður niður í
skurð við Kaplaskjólsveginn og
meiddist nokkuð. Var hann að
vinna þama á vegum Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Maðurinn
heitir Ámi Jónsson til heimilis
að Þvervegi 38 héi í bæ. Hann
var þegar fluttur á Slysavarð-
stofuna og munu meiðsli hans
hafa verið minni en ætlað var
í fyrstu.
kóleru.
Þetta var ákveðið eftir að
skýrt hafði verið frá því í höf-
uðborg Japan, að tveir menn
hefðu sýkzt af kóleru þar í
borg.
Jafnframt hefup öllum frönsk-
um íþróttamönnum sem eiga að
taka þátt í Olympíuleikunum í
Tokio verið fyrirskipað að láta
bólusetja sig gegn kóleru.
Þá hefur kóleru orðið vart
í Singapore og hafa
völdin skorað á fólk að láta
bólusetja sig. -
LUTHERSKA HEIMS-
SAMBANDIÐ Á ÍSLANDI
Þátttakendur í þingi Lútherska Heimssambandsins munu
prédika í eftirtöldum söfnuðum í Reykjavík og nágrenni:
DÓMKIRKJAN: Messað kl. 11 f.h. dr. Johannes Lilje biskup frá Þýzkalandi pré-
dikar, séra Jón Auðuns, dómprófastur þjónar fyrir altari. I
BÚSTAÐAPRESTAKALL: Messað kl- 10:30. dr. Gerhard Silitonga frá Indónesíu
prédikar, séra Ólafur Skúlason þjónar fyrir altari.
FRÍKIRKJAN: Messað kl. 11. dr. Jan Michalko frá Tékkóslóvakíu prédikar, séra
Magnús Runólfsson þjónar fyrir altari. •
GRENSÁSSPRESTAKALL: Messa kl. 11. herra F. Birkeli biskup frá Noregi
prédikar, séra Felix Ólafsson þjónar fyrir altari.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messað kl. 11. Séra Ake Kastlund frá Svíþjóð prédikar,
séra Jakob Jónsson þjónar fyrir altari.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messað kl.ll. dr. Fredrik Schiötz prédikar, séra
Garðar Þorsteinsson þjónar fyrir altari.
HÁTEIGSSÖFNUÐUR; Messað kl. 11. dr. Mikko Juva frá Finnlandi prédikar,
séra Jón Þorvarðsson þjónar fyrir altari.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messað kl. 11. dr. Heinrich Meyer biskup frá Þýzkalandi
prédikar, séra Björn Jónsson þ'jónar fyrir altari.
KEFLAVfKURFLUGVÖLLUR: Messað kl. 11. Séra Carl H. Mau prédikar, séra
Bragi Friðriksson þjónar fyrir altari.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messað kl. 11. dr. Rajah B. Manikam biskup frá Indlandi
prédikar, séra Gunnar Árnason þjónar fyrir altari.
KOTSTRANDARKIRKJA: Rektor Bjarne Hareide prédikar, séra Lárus Halldórs-
son þjónar fyrir altari.
LÁGAFELLSKIRKJA: Messa kl. 11. Séra Ruben Pedersen frá Genf prédikar, séra
Bjarni Sigurðsson þjónar fyrir altari. i
LANGHOLTSKIRKJA: Messað kl. 10:30. Herra Stefano R. Moshi biskup frá
Tanganyjka prédikar, séra Árelíus Níelsson þjónar fyrir altari-
LAUGARNESKIRKJA: Messað kl. 11. Herra Bo. Giertz biskup frá Svíþjóð
prédikar, séra Garðar Svavarsson þjónar fjrrir altari.
• NESKIRKJA: Messað kl. 10. Herra Jens Leer Andersen prédikar, séra Jón Thor-
arensen þjónar fyrir altari.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Messað kl. 11. Dr. Jaak Taul prédikar, séra Emil
Björnsson þ'jónar fyrir altari.
Unnið að smíði hraðfleygrar farþega-
þotu austan hafsins og vestan
/